Dagur - Tíminn Reykjavík - 24.04.1997, Side 12

Dagur - Tíminn Reykjavík - 24.04.1997, Side 12
SUMARBUSTAÐALIFIÐ I LANDINU 24 - Fimmtudagur 24. apríl 1997 rnnv lo____.......n |Dagur-®tnttmt llll i mnuii Garðhúsgögnin að koma í hús Garðhúsgögn sumarsins eru þessa dagana að koma í hús hjá verslun- um. Hér lætur hún Kristbjörg Eiðsdóttir í garðhúsgagnadeild- inni hjá Byko fara vel um sig í sólbekk frá síðasta sumri. „Petta er gamla línan. Nýja lín- an er ekki komin ennþá,“ segir hún. „Ég er ekki alveg viss hvernig hún lítur út.“ LONSBAKKA • 601 AKUREYRI SÍMAR 463 0321, 463 0326. 463 0323 FAX462 7813 Leikföngín nauðsynleg Gunnar Gunnarsson í garðdeild Byko situr í svokölluðum kastala, en hægt er að kaupa samsetningasett fyrir kastalann í versluninni og niðursagað efni í timbursölunni. Mynd: ohr að er nauðsyn- legt að börnin hafi eitthvað við að vera í sumarbú- staðnum. Þó fullorðna fólkið sé til í að slappa af og taka það rólega er ekki víst að börnin séu til í það sama. Það getur kom- ið sér vel að hafa að- stöðu fyrir börnin til að leika sér. Sandkassi er alltaf klassískur. Hann má gera með ýmsum hætti, t.d. leggja trakt- orsdekk á hliðina og fylla af sandi. Dekkið hefur þá kosti að böm- in meiða sig ekki á því. Það er líka hægt að smíða kassa úr timbri. Þá er hægt að hafa hann af hvaða stærð sem vill, en það er rétt að gæta þess að nota heflað efni í kassann til að minnka líkurnar á að börnin fái flísar. Kettir sækja í að gera þarfir sínar í sandkassa og bera með sér alls kyns óþrifnað. Því er ágætt að hægt sé að setja lok yfir kassann. En það er hægt að gera fleira en sandkassa. Úr timbri má gera ævintýraheima og í rauninni er hugarflugið það eina sem tak- markar. Víða má fá leiðbeiningar um smíði á t.d. dúkkuhúsum hjá aðilum sem selja timbur. Einn möguleikinn enn er að kaupa sett til að smíða leikföng úr. í verslun Byko í Kópavogi fást t.d. samsetningarsett fyrir kastala og ýmislegt fleira. Þá er keyptur pakki með öllum boltum, kaðal- stigum og samsetningum sem þarf og síðan niðursagað efni í leikfangið í timbursölunni. Dæmi um slíkan kastala er hægt að skoða á útisvæði Byko, fyrir utan verslunina. Kastali af þessu tagi kostar í Byko með öllu efni rétt tæpar 70.000 krónur. -ohr PHILIPS Sjonuarps- og myndbandstæki I einu og sama tækínu. Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SlMI 569 1500 Umboðsmenn um land allt. Engar óþarfa snúrur. Stöðvar stilltar inn bara einu sinni. Lítið mál að flytja tækið milli staða, Ein og sama fjarstýringin. PHILIPS 14" (PV263) HIBRI myndlampi íslenskt textavarp NTSC afspilun og tímastillir Kr. 66.400 stgr. PHIUPS 21” (PV267) Black Line myndlampi Tveir sjónvarps móttakarar íslenskt textavarp NTSC afspilun og tímastillir u. 89.960 tur. I

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.