Dagur - Tíminn Reykjavík - 20.06.1997, Page 7

Dagur - Tíminn Reykjavík - 20.06.1997, Page 7
" ‘'FöstiidatfUr SO.júrtíl 997^ 19 pá§Írr-tEtiíRtm UTIVIST Þórsmörkin dregur árlega til sín fjölda ferðafólks og margir kjósa að taka þátt í skipulögðum ferðum Ferðafé- lagsins, en þær eru um hverja helgi frá maí og fram í október- byrjun. í júlí og ágúst er einnig boðið upp á ferðir á miðviku- dögum og ennfremur eru dags- ferðir flesta sunnudaga og mið- vikudaga í sumar. Gistiaðstaða í Þórsmörkinni er mjög góð með sæluhúsinu Skagíjörðsskála og tjaldstæðum í Langadal, en þar eru salerni, útigrill, borð og bekk og stórt viðdvalarhús sér- staklega ætlað daggestum og tjaldbúum. Innar í Þórsmörkinni hafa í vinalegum dalverpum sem margir hafa enn ekki uppgötv- að og nefnast Stóri- og Litliendi er einnig komin góð aðstaða fyrir tjaldgesti með salernum og vöskum. Ein af nýjungum Ferðafé- lagsins er svonefnd fjölskyldu- helgi sem farin hefur verið sl. 3 ár. Þar gefst fjöskyldum færi á að fara í létta og skemmtilega ferð og kynnast Þórsmörk í leiðinni. Boðið er upp á léttar gönguferðir, leiki fyrir börn og fullorðna og kvöldvöku með skemmtiatriðum á laugardegin- um. Farið er á föstudagskvöldi Snorraríki er hellir við Húsadal, kenndur við Snorra einhvern, sem flýði þangað undan óvinum sínum. Fejrðafélag Islands Fjölskylduhelgi Ferðafélagsins í Þórsmórk 27.-29. júní Skagfjörðsskáli er skáli Ferðafélags Islands í Laugadal. Á göngu í Laugadal í fallegu veðri. kl. 20 og komið heim um kl. 18.30 á sunnudegi. Á laugar- deginum er boðið upp á grill fyrir alla fyrir kvöldvökuna. A sunnudagsmorgninum er gefinn kostur á léttri gönguferð áður en lagt er af stað síðdegis. Vegna 70 ára afmælis félags- ins, verður þessi ferð boðin á mjög góðu verði og fá t.d. börn 10 ára og yngri frítt, en hálft gjald greiðist fyrir 11-15 ára. Ferðin verður farin helgina 27.-29. júni, sem er mjög góður tími í Þórsmörk. Meðfylgjandi eru myndir úr slíkri fjölskyldu- ferð í fyrra, en það tóku mjög margir þátt í henni og skemmtu sér hið besta í góðu veðri og fallegu umhverfi. í fjölskylduferð í Þórsmörk, veðrið leikur við þátttakendur.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.