Dagur - Tíminn Reykjavík - 20.06.1997, Blaðsíða 7
" ‘'FöstiidatfUr SO.júrtíl 997^ 19
pá§Írr-tEtiíRtm
UTIVIST
Þórsmörkin dregur árlega
til sín fjölda ferðafólks og
margir kjósa að taka þátt
í skipulögðum ferðum Ferðafé-
lagsins, en þær eru um hverja
helgi frá maí og fram í október-
byrjun. í júlí og ágúst er einnig
boðið upp á ferðir á miðviku-
dögum og ennfremur eru dags-
ferðir flesta sunnudaga og mið-
vikudaga í sumar. Gistiaðstaða í
Þórsmörkinni er mjög góð með
sæluhúsinu Skagíjörðsskála og
tjaldstæðum í Langadal, en þar
eru salerni, útigrill, borð og
bekk og stórt viðdvalarhús sér-
staklega ætlað daggestum og
tjaldbúum.
Innar í Þórsmörkinni hafa í
vinalegum dalverpum sem
margir hafa enn ekki uppgötv-
að og nefnast Stóri- og Litliendi
er einnig komin góð aðstaða
fyrir tjaldgesti með salernum
og vöskum.
Ein af nýjungum Ferðafé-
lagsins er svonefnd fjölskyldu-
helgi sem farin hefur verið sl. 3
ár. Þar gefst fjöskyldum færi á
að fara í létta og skemmtilega
ferð og kynnast Þórsmörk í
leiðinni. Boðið er upp á léttar
gönguferðir, leiki fyrir börn og
fullorðna og kvöldvöku með
skemmtiatriðum á laugardegin-
um. Farið er á föstudagskvöldi
Snorraríki er hellir við Húsadal, kenndur við Snorra einhvern, sem flýði
þangað undan óvinum sínum.
Fejrðafélag
Islands
Fjölskylduhelgi Ferðafélagsins í Þórsmórk 27.-29. júní
Skagfjörðsskáli er skáli Ferðafélags Islands í Laugadal.
Á göngu í Laugadal í fallegu veðri.
kl. 20 og komið heim um kl.
18.30 á sunnudegi. Á laugar-
deginum er boðið upp á grill
fyrir alla fyrir kvöldvökuna.
A sunnudagsmorgninum er
gefinn kostur á léttri gönguferð
áður en lagt er af stað síðdegis.
Vegna 70 ára afmælis félags-
ins, verður þessi ferð boðin á
mjög góðu verði og fá t.d. börn
10 ára og yngri frítt, en hálft
gjald greiðist fyrir 11-15 ára.
Ferðin verður farin helgina
27.-29. júni, sem er mjög góður
tími í Þórsmörk. Meðfylgjandi
eru myndir úr slíkri fjölskyldu-
ferð í fyrra, en það tóku mjög
margir þátt í henni og skemmtu
sér hið besta í góðu veðri og
fallegu umhverfi.
í fjölskylduferð í Þórsmörk, veðrið
leikur við þátttakendur.