Dagur - Tíminn Reykjavík - 20.06.1997, Qupperneq 13
FöstiítÍá<}Úti'20: 'júrÍ&t99T-25
LEIKHÚS
KVIKMYNDIR
TÓNLIST
SKEMMTANIR
Aldísardóttir
Njála og sagan á Hvolsvelli
Sögusetrið opnar heim íslendinga sagna og fjársjóð fortíðar.
Nýtt safn, Sögusetr-
ið, hefur opnað á
Hvolsvelli með sýn-
ingu um víkinga-
tímann og Njálu.
Kynnisferðir verða
um helgina.
Sögusetrið á Hvolsvelli hef-
ur opnað viðamikla sýn-
ingu um víkingaöld og efni
Njáls sögu. Þarna er um að
ræða nýjung í íslenskri ferða-
þjónustu sem opnar heim ís-
lendinga sagna og þann íjársjdð
fortíðar sem sagan hefur að
geyma. Það var Vigdís Finn-
bogadóttir sem opnaði sýning-
una á fimmtudaginn var og
verður hún opin alla daga í
sumar frá 10-19. Um helgina
verða stuttar kynnisferðir með
leiðsögn um Njáluslóð og er um
að gera að nýta sér það.
Leiðsögn og vegvísar
Sögusýningin er hluti af sam-
starfsverkefni sveitarfélaga í
Rangárþingi sem hefur það
markmið að kynna sögu og
menningu héraðsins og gera
hana aðgengilegri þeim sem
sækja héraðið heim. Verkefnið
felur í sér ferðir með leiðsögn
um Njáluslóð, sýningu um vík-
ingaöld og Njáls sögu sem nú
opnar. Auk þessa verður komið
upp vegvísum og upplýsinga-
skiltum á nokkrum helstu sögu-
stöðum Njálu.
Sögusetrið er vel í sveit sett,
aðeins 100 km frá Reykjavík, í
miðju mikils söguhéraðs og
verður sumarverkefni til að
byrja með. Sögusetrið er vett-
vangur þeirra sem vilja nýta
menningu og sögu á markviss-
an hátt til hagsældar fyrir
byggðarlagið og tengja ferða-
þjónustu. Það er trú þeirra að
sagan sé vannýtt auðlind þar
sem af miklu er að taka. Fyrsta
verkefnið, Á Njáluslóð, vekur
athygli á að í Rangárþingi er
aðalsögusvið Njálu.
Brýnt
að fá afþreyingu
Ferðaþjónusta er í örum vexti
og því brýnt að huga að menn-
ingarlegri afþreyingu. Hingað
til hefur fátt verið gert til að
opna ferðamönnum heim ís-
lendinga sagna. Gildir það ekki
aðeins um ferðamenn frá öðr-
um löndum, við íslendingar
höfum sjálfir ekki að mörgu að
hverfa þegar kemur að sýning-
um og kynningu á sögu okkar
og bókmenntum ef frá eru talin
hefðbundin söfn. Það kemur sér
því vel að fá þetta nýja söguset-
m- og sýninguna þar.
f framkvæmdanefnd eru
Benedikt Árnason leikstjóri,
Eyja Þóra Einarsdóttir ferða-
þjónustubóndi, Guðjón Árnason
framkvæmdastjóri og Sæmund-
ur Holgersson. Undirbúningur
verkefnisins hefur staðið frá
ársbyrjun 1996 og er aðalráð-
gjafi um málefni Njáls sögu Jón
Böðvarsson fyrrverandi skóla-
meistari. Björn G. Björnsson
annaðist handrit, hönnun og
uppsetningu sýningarinnar.
Sýningin verður opin alla
daga í sumar kl. 10-19 og er
hún til húsa að Hvolsvegi 33 á
Hvolsvelli. Nú um helgina
verða stuttar kynnisferðir með
leiðsögn um Njáluslóð og hefj-
ast þær klukkan 13. Farið
verður frá þjónustumiðstöðinni
Hlíðarenda við þjóðveg 1. -GHS
Gott er að nýta sér helgina til að fara á sögusýninguna á nýopnuðu Sögu-
setri. Stuttar kynnisferðir verða um Njáluslóð.
Hlíf Sigurjóns-
dóttir
fiðluleikari við Sinfóníu-
hljómsveit Islands held-
ur einleikstónleika í tón-
leikaröð sumarsins í
Listasafni Sigurjóns Ól-
afssonar á þriðjudag-
inn.
Á efnisskrá eru tvö verk
fyrir einleiksfiðlu eftir
J.S. Bach, Partita nr. II í
d-moll, BMV1006. Þar
að auki mun Hlíf
frumflytja nýtt einleiks-
verk sem Karólína Ei-
ríksdóttir hefur samið
sérstaklega fyrir hana.
Tónleikarnir hefjast
klukkan 20.30.
„Fígúratífar myndir“
„tilfinningaleg og andleg verk“, „rosalega rauðar myndir", „dálítið geggjaðar"
og beint framhald af blómamyndunum fyrir norðan. Þannig lýsir myndlistar-
maðurinn Tolli verkunum sínum fimm til sex á málverkasýningu sem hann opn-
ar í Gallerý Horninu í dag.
Sýningin stendur til 12. júlí og fjallar um styrk og veikleika mannsins.