Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.06.1997, Side 8

Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.06.1997, Side 8
8 - Föstudagur 27. júní 1997 jDagur-Œítuum Vinabæj asamstarf í fyrsta lagi Alþjóðasamstarf þjóða tekur á sig íjölmargar myndir, sumar formfastar og kerfislægar aðrar frjálslegri og vinalegri. í öllum tilfellum er mark- miðið það að rjúfa einangrun landamæranna og teygja sig út fyrir þau í leit að efnahagslegri og andlegri næringu af því tagi sem aðeins er hægt að fá í gegnum samskipti við fólk sem býr við öðru vísi kringumstæður. í gegnum slík samskipti víkka þjóðir sjóndeildarhring sinn og verða hæfari til að skilja og skilgreina stöðu sína og möguleika í sam- félagi þjóðanna. Skemmtilegt form alþjóðasamskipta er sú hefð sem myndast hefur fyrir vinabæjatengslum. Sterkust eru þessi tengsl milli bæja eða borga á Norður- löndunum þó þau séu öflug miklu víðar. Hin árlega og hefðbundna birtingarmynd þessara vinabæja- tengsla í huga hins almenna borgara hefur verið í formi gjafa á jólatrjám sem tendruð eru við hátíða- lega athöfn. Samskiptin eru hins vegar mun víð- tækari og fjölbreyttari og það er talsverður fjöldi manna sem að þeim kemur, gjarnan ungt fólk. Þar gefast kærkomin tækifæri til að horfa út fyrir land- steinana og kynnast erlendum sjónarmiðum og hugsunarhætti og kynna íslensk sjónarmið. í þriðja lagi Þessa vikuna hefur staðið yfir á Akureyri sérstök vinabæjavika þar sem vinabæir Akureyrar á Norð- urlöndum hafa sent fulltrúa sína til að fagna því að 50 ár eru liðin frá því að samstarf vinabæjanna hófst. Á þessari hátíð á Akureyri hefur borið hæst samstarf og samvinna ungmenna frá vinabæjun- um, og hafa þau í sameiningu verið að skapa hluti og takast á við ýmis mál með mjög góðum árangri. Samstarf þeirra er táknræn yfirlýsing um framtíð- ina auk þess sem árangur þeirra er til vitnis um almennt gildi vinabæjatengsla af þessu tagi í al- þjóðasamstarfi. Birgir Guðmundsson. PJOÐMAL ffiagur-®ímmn Útgáfufélag: Dagsprent hf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjóri: Stefán Jón Hafstein Aðstoðarritstjóri: Birgir Guðmundsson Framkvæmdastjóri: Marteinn Jónasson Skrifstofur: Strandgötu 31, Akureyri, Garðarsbraut 7, Húsavík og Þverholti 14, Reykjavík Símar: 460 6100 og 800 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk. 1.600 kr. á mánuði Lausasöluverð kr. 150 og 200 kr. helgarblað Prentun: Dagsprent hf./lsafoldarprentsmiðja Grænt númer: 800 70 80 Fax auglýsingadeildar: 460 6161 - Fax ritstjórnar: 460 6171 Sp Utó Er rétt að loka hluta Hafnarstrætis í Reykjavík til austurs, einsog meirihluti borgarstjórnar hefur ákveðið? Lilja Ólafsdóttir forstjóri Strœlis- vagna Reykjavíkur Já, ég tel svo vera. Skv. deiliskipulagi frá því um 1990 á Hafnarstræti að vera lokað í austurenda og í samræmi við það var byggð skipistöð fyrir SVR við enda götunnar og tvístefna sett á Hverfísgötu. Forsenda þeirra framkvæmda var lokun Hafn- arstrætis til austurs. Hafnar- stræti er enn opið með þeim afleiðingum að slysahætta er fyrir gangandi fólk á skipti- stöðinni og umferðarteppur eru á Hverfisgötu. Það bitnar á viðskiptavinum SVR. Hilmar Þorbjörnsson aðst.ijjirlögregluþj. og yfirmaður umferðardeildar Við féllumst á þetta sem tilraun, en teljum þetta ekki framtíðarlausn að svo stöddu. Þess tilraun getur e.t.v. leyst umferðarvanda í miðborginni. Skilyrði lögreglu voru að breytingar yrðu gerð- ar á Póshússtræti, Geirs- og Tryggvagötu, sem auðvelduðu akslur úr iniðborginni hvort sem er til austurs eða vesturs; úr Geirsgötu eða suður Lækj- argötu. Ennfremur yrði Tryggvagata gerð auðveldari fyrir almenningsvagna og hættuminni gangandi fólki. Gunnar Jóhann Birgisson borgarfulltrúi SjálJXœðisJlokks Nei, og ég tel enga ástæðu fyrir lokuninni - og rökin að Hafnar- stræti sé slysagildra eru létt- væg. Strætið hefur verið opið til fjölda ára án teljandi vand- ræða. Kaupmenn hafa lagst gegn lokun Hafnarstrætis og telja hana getað skaðað starf- semi sína og ég treysti þeim til að meta það. ( skipulags- nefnd féllust við á þessa lokun á sínum tfma því fullyrt var að Miðbæjarsamtökin hefðu lagt blessun sína yfir lokunina. Það reyndist síðan rangt. Guömundur G. Kristinsson framkv.stj. Kola- portsins og form. Mið- borgarsamtakanna Akvörðun um að loka Hafnarstræti setur samstarf Miðborgar- samtakanna og borgarinnar í erfiða stöðu og er í raun skilaboð um að meirihiutinn ætii að fara sínu fram, án samráðs. Hagsmunir eru í húfi því þegar götunni var lokað um tíma í fyrra dróst verslun saman um fjórðung. Miðborgarsamtökin harma ákvörðun borgarstjórnar og áskilja sér rétt til að bregðast við af hörku. Að eiga en mega ekki „Heiðarleg samkeppni felst í því að ókunnir menn sem eiga engra hagsmuna að gæta taki sæti í stjórnum fyrirtækja sem þeir eiga ekkert í.“ - Dagfari gerir grín að úrskurði sam- keppnisráðs sem hefur bannaö Flug- leiðainönnum að sitja í stjórn Flugfélags íslands. DV í gær. Nýjasti óvinurinn: Upplýsingar! „...þýðingarmesta kunnátta upplýsingaþjóðfélagsins er fólg- in í því að vera nógu harður og grimmur við upplýsingar. Van- treysta þeim og átta sig fljótt á því hve fáar skipta máli og stugga öllum öðrum frá sér.“ - Árni Bergmann orðinn þreyttur á rós- rauðri umræðu um hið undursamlega upplýsingasamfélag. Kjallaragrein í DV í gær. Málœði eftir sex ára þögn „Eiginlega átti ég erfiðast með að stytta viðtalið, hann hafði svo mikið að segja,“ - segir Sigursteinn Másson, ritstjóri Heimsmyndar, um viðtal við Jón Óttar sem ekki hefur viljað tjá sig við fjöí- miðla í sex ár. Dagur-Tíminn í gær. En ekki hvað? „Kúreki með fortíð.“ - Fyrirsögn 1 Mogganum í gær. Tilefnið var gagnrýni um sjónvarpsmyndina Óskastund eða „Blue Rodeo". Afdrep fyrir þingmenn Ekkert rými er fyrir Alþingi í Alþing- ishúsinu og því hafa verið keypt og leigð ijöldi húsa í nágrenninu til að halda starfseminni gangandi. En það dugir ekki til þar sem þingstörfin þyngj- ast og aukast með hverju árinu og verð- ur ekki lengur undan því vikist að byggja við þinghúsið og liggur fyrir nýtt og fiott skipulag um framkvæmdir á svokölluð- um Alþingisreit. Þar verður reistur þingmanmnaskáli með glertengingu við gamla húsið og svo verða grafin niður bílastæði og svo reist- ar umfangsmiklar skrifstofubyggingar og svo verða garðar og göngustígar. Allt verður þetta í miðju ölkráahverfi lands- ins, þar sem 20 þúsund manns geta setið samtímis að drykkju, og þarna eru haldnar allar þær sérstæðu og (jölmennu næturskemmtanir ungmenna, sem Reykjavík er orðin heimsfræg fyrir. Nýju garðarnir á milli þingbygginganna verða kærkomin viðbót við Austurvöll, sem er ástsælasti útidrykkjustaður landsins, sér- staklega eftir að áfengisútsala var sett upp við völlinn og nú síðast var nágrenn- ið gert enn girnilegra til drykkjuláta, eft- ir að leyft var að selja eina og eina öldós í áfengisbúðínni fyrir þurfandi. Einhvers staðar verða góðir að vera Það gefur auga leið að bæta þarf veru- lega við Alþingishúsið, sem er orðið alltof þröngt fyrir þingfundi. Einfaldlega vegna þess að ekkert pláss er fyrir alþingis- mennina í bakher- bergjum og kaffistofu þegar þingfundir standa yfir. Eins og allir vita er þingsalurinn tómur þegar málin eru rædd þar. Þá eru þar aðeins ræðumaður, forseti og starfsmenn. Ein- hvers staðar verða allir hinir að vera og er ófært að láta þá kúldrast í göngum og bakherbergjum í þröngu Alþingishúsinu, til að þurfa ekki að hlusta á ræður hver annars. Nú verður reistur sérstakur þing- mannaskáli, sem kallað er þjónustuhús innan sviga, og þangað verður innangengt beint úr þingsalnum og auðvelt að skreppa þangað undan orðaflaumi þeirra þingmanna sem eru haldnir þeirri náttúru að hafa ánægju af að heyra sjálfa sig tala. Álitlegar tillögur Annars sýnast þær tillögur um útfærslu á Alþingisreitnum vera skynsamlegar og jafnvel álitlegar. Núverandi notkun á svæðinu er fráleit, eins og önnur for- gangsverkefni í bflalandi. Það er sjálf- sagt að búa vel að Al- þingi og þeim sem þar starfa. Eins og víðast hvar í höfuðborginni er nóg rými fyrir hvers konar byggingar og starfsemi. Bflastæða- Haimið á Alþingisreitnum er smekk- leysa, eins og raunar talsvert af nánasta umhverfi þingsins. Þarna er tilvalið að bæta starfsskilyrði Alþingis og betrum- bæta ásjónu höfuðborgarinnar og þeirra stofnana sem eiga að gera hana ögn virðulegri en aðra hreppa. En með viðbótarbyggingum og bætt- um starfsskilyrðum þingsins, fer endan- lega í vaskinn gömul og afskaplega góð hugmynd, sem oft hefur verið viðruð í pistli. Hún er sú, að þingmenn skuli aldrei vera fleiri en komast fyrir með góðu móti í gamla góða Alþingishúsinu. Það var byggt fyrir 36 þingmenn, sem sátu í tveim deildum. En það er borin von að úr því geti orðið, því alltaf aukast þingstörfin og fleiri þarf til að annast þau. Samt er myndast við að hagræða á þeim bæ, eins og annars staðar, og var deildum fækkað og ræðutími skorinn niður, en allt kemur fyrir ekki. Löggjafarstarfið hleður utan á sig og er Alþingi fyrir löngu búið að sprengja utan af sér öll bönd. Með stækkun hússins skapasl nú möguleiki á að fjölga þingmönnum enn meira en orðið er og fá þá fleiri tækifæri til að komast á þing og láta ljós sín skína. Stækkun þings og fjölgun þing- manna mun leysa margan vanda, aðal- lega þeirra sem þrá það heitast að bæt- ast í hóp þeirra útvöldu. Og þjóðin mun njóta góðs af, saman- ber hið fornkveðna: Því betur gefast vilra manna ráð sem fleiri koma saman. - Eða svoleiðis. OÓ

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.