Dagur - Tíminn Reykjavík - 28.06.1997, Blaðsíða 8

Dagur - Tíminn Reykjavík - 28.06.1997, Blaðsíða 8
8 - Laugardagur 28. júní 1997 2Bagur-®írmrm PJÓÐMÁL 4Dagitr-®tmirat Útgáfufélag: Dagsprent hf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjóri: Stefán Jón Hafstein Aðstoðarritstjóri: Birgir Guðmundsson Framkvæmdastjóri: Marteinn Jónasson Skrifstofur: Strandgötu 31, Akureyri, Garðarsbraut 7, Húsavík og Þverholti 14, Reykjavík Símar: 460 6100 og 800 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk. 1.600 kr. á mánuði Lausasöluverð kr. 150 og 200 kr. helgarblað Prentun: Dagsprent hf./ísafoldarprentsmiðja Grænt númer: 800 70 80 Fax auglýsingadeildar: 460 6161 - Fax ritstjórnar: 460 6171 Stríð í loftinu í fyrsta lagi Þótt yíirlýsingar séu varfærnislegar eru boðuð far- gjöld íslandsflugs á innanlandsmarkaði ekkert annað en stríðsyfirlýsing. Neytendur ættu að gefa því tækifæri til að sanna sig. Flugleiðir sögðust ekki geta flogið innanlands nema með háum far- g'öldum og tapi, og það í ríkisvernduðu umhverfi. landsflug þarf mikil viðskipti til að geta staðið við loforð um lágt verð að sögn Ómars Benediktssonar framkvæmdastjóra. Hann telur ástæðu til að ætla að Flugfélag íslands, alias Flugleiðir, reyni að kaf- færa keppinautinn. Það er neytenda að velja og hafna - hafa þeir einhverju að tapa? S FÍB undir forystu Árna Sigfússonar bauð neytend- um upp á sams konar viðskipti á tryggingamark- aði. Mun færri þekktust það boð en vænta hefði mátt vegna þess að gömlu fáokunarfyrirtækin sáu allt í einu leið til að lækka sig í verði. Hótun þeirra liggur bókfærð fyrir: að sú verðlækkun sé aðeins „tímabundin“ til að drepa af sér samkeppni. Við þurfum á því að halda að samgöngu- og flutninga- samsteypan fái annað og meira en tímabundna samkeppni. Utanlandsferðir hafa verið að lækka í verði vegna þess að neytendur hafa knúið bjóð- endur til að koma með tilboð. Innanlandsmarkað- urinn þarf sams konar hvata. í þriðja lagi Viðvarandi verðlækkun í loftinu getur haft víðtæk- ar og góðar afleiðingar fyrir ferðamarkaðinn inn- anlands og laðað að fleiri erlenda ferðamenn. ís- land hefur einfaldlega verið of dýrt ferðamanna- land. Leiði samkeppnin af sér meiri ferðalög inn- anlands og utan mun enginn græða meira á því en Flugleiðir. Fyrirtækið gerir margt vel og hefur já- kvæða ímynd meðal landsmanna þegar á heildina er litið. Risinn gæti því meitt sjálfan sig mest með því að traðka grimmilega á litla íslandsflugi. Fyrir utan að verða sjálfum sér til minnkunar. Stefán Jón Hafstein. V___________________________________________________J Spivming, dctgóUtó Ætlar þú að taka tilboði íslandsflugs í innanlandsflugi? Kristján Aðalsteinsson framkvœmdastjóri Sœplasts hf. á Dalvík Væntanlega mun ég gera það ef og þeg- ar tímasetningar henta mér. Verðið er allt í lagi. Eiríkur Finnur Greipsson sparisjóðsstjóri á Flateyri Eg hef flogið með ís- landsflugi þegar ég hef þurft og þeir hafa þjónað okkur Önflrð- ingum mjög vel, rétt eins Flugleiðir hafa gert með sínu ísafjarðarflugi. Bæði þessi flugfélög hafa verið í mikilli samkeppni og það ásamt öðru leiðir til þess mikla verðstríðs sem nú er að hefjast. ♦ ♦ Arnbjörg Sveinsdóttir á Seyðisfirði, þinymaður Austlendinga S Eg reikna með að nota þjónustu fs- landsflugs og Flug- félags íslands jöfnum höndum, þá aðallega eftir þeim tímasetningum sem henta mér í hvert skipti. Hins vegar mun ég skoða tilboðin frekar - eftir því sem hægt er - enda mikif verðlækkun boðuð. Þess- ari samkeppni er ég hlynnt enda er hún til mikilla bóta fyrir lands- byggðarfólk - og aðra sem nota þurfa flugið. Aðalsteinn Á. Baldursson formaður Verkalýðs- félags Húsavtkur Að sjálfsögðu - og ég fagna þessari kjarabót. Fyrir nokkrum árum þá vorum við nokkrir sem börðust fyrir því að fá samkeppni á flugleiðinni Reykjavík- Húsavík, en hvorki bæjar- stjórn né öðrum bar gæfa til að styðja okkur. Nú er það að koma í fjós að þetta hefði sparað Húsvik- ingum stórar fjárhæðir, sbr. að fslandsflug býður nú 6.900 kr. á sama tíma og fullt fargjald Flugfélags ísfands er 16.900 kr. Með hjartað í buxunum? „Ég fékk hægðarlyf í stað hjartalyfja." - Sigrún Marinósdóttir í viðlali við Al- þýðublaðið í gær. Hún er heldur óánægð með samskipti sín við lækna eins og fyrrnefnd orð bera með sér. Mogginn klikkar ekki! „Ljóst er að hvorgur aðilinn vill verðstríð þar sem rekstur áætl- unarflugs hérlendis stendur í járnum." - Niðurstaða opnugreinar í Morgun- blaðinu um samkeppni í innanlands- flugi. Birtist í fyrradag. Aðalfrétt gær- dagsins var hins vegar að hafið væri fargjaldaslríð í innanlandsflugi. Hver segir að þeir séu ekki sammála? „Samþykkt var að hvetja presta til að vanda málfar sitt og fram- burð í predikunarstóli..." - Frétt í Morgunblaðinu í gær um Prestastefnuna. Ekki gafst tími til að ræða málefni samkynhneigðra enda mörg mikilvæg málefni á dagskrá eins og sjá má á tilvitnuninni. Aumingja Bibi! „Allir sem halda framhjá eru skíthælar." - Sara Netanyahu, forsætisráðherrafrú, í reiðikasti í sjónvarpsviðtali þegar spurt var út í framhjáhald sem eigin- maður hexmar hefur viðurkennt. Morg- unblaðið í gær. Áreitni og ástleitni Bandaríkjamenn hafa sérstakt lag á að útrýma forsetum landsins. Fjórir voru skotnir niður eins og hundar og aðrir sluppu með skrekk- inn. Nokkrir voru flæmdir úr embætti og Richard M. Nixon mátti axla skinn- in fyrir litlar sakir eða engar og fór þar einn hæfasti forseti Vesturlanda fyrir lítið. Nú síðast hefur hæstiréttur Bandaríkjanna svo galopnað Hvíta húsið fyrir hálf vitlausu fólki með því að skikka forsetann til að verja einkalíf sitt í embætti. Bilaðir vegfarendur eiga nú greiða leið að forsetanum með önnur vopn en skotvopn og forsetar verða skotnir nið- ur með kærumálum í framtíðinni. Pól- itískir andstæðingar geta dundað heilu kjörtímabilin við að dubba viljugt fólk upp með vitnisburði á hendur forset- anum fyrir hitt og þetta. Kæra mann- inn fyrir að líka ekki framkoma hans í fyrra starfi eða í skóla og jafnvel í móðurkviði. Clinton forseti á nú undir högg að sækja hjá frú einni frá Arkansas með tíu ára gamalt klögumál um dónaskap. Málið fellur undir lög um kynferðislega areitni og fyrir bragðið fær forseti Bandaríkjanna ekki vinnufrið á daginn og svefnfrið á nóttunni. í dag varðar nefnilega við lög að fara á ijörurnar við kvenfólk heima hjá þeim hugrökku í landi hinna frjálsu. Forsetinn mun aldrei geta á heilum sér tekið við að stjórna landinu með svona málflutning á bakinu og í fjöl- miðlum. Hvorki and- lega né flárhagslega. Bandarískt réttar- kerfi er í molum eftir að O.J. Simpson slapp fyrir horn með tvö mannsmorð. Dómar og kviðdómar standa lémagna frammi fyrir herská- um minnihluta og óttast um líf sitt og limi. Ógnun þessi hefur eitrað frá sér á fleiri sviðum en í dómskerfinu og emb- ætti forseta er í hers höndum eftir úr- skurð hæstaréttar. Löggjafinn á að taka af skarið og verja embætti forseta fyrir meira og minna biluðu fólki en ekki opna því leið að forsetanum. Hvort sem fólkið ræðst á manninn með vopnum eða kjafti og klóm í skjóli dómstóla. Jafnvel þó kærendur séu í sæmilegu jafnvægi og hafi nokkuð til síns máls þrátt fyrir allt. Frúin frá Arkansas kærir ekki embætti forseta fyrir áreitni heldur manninn sem gegnir því í dag. Allt þetta umstang má því vel bíða betri tíma og þegar kæru- efnin eru áratuga gömul sér ekki á svörtu þó málílutn- ingur dragist fram yfir hádegi. Forseti Bandaríkj- anna er oddamaður í heimspólitík og tek- ur einn af skarið þegar í harðbakkann slær. Forsetinn verður að vera fær í flestan sjó allan sólarhringinn, annars er voðinn vís fyrir heimsbyggðina. Klöguskjóður alls konar hafa rúman tíma til að lögsækja forseta sinn eftir að maðurinn í embættinu lætur af störfum og snýr aftur til borgaralegs lífs. Geta þá lagt minningu hans í rúst og rúið ijölskylduna inn að skinni eftir geðþótta sínum og hjartalagi. Hitt er svo annað mál: Sú var tíðin að íslenskt kvenfólk hafði lakari stöðu en karlmenn og var sá munur ekki til eftirbreytni. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og bilin verið jöfnuð hægt og bítandi. Of hægt sums staðar en annars staðar er fullur jöfnuður fyrir hendi. Hinu má ekki gleyma að konur hafa víða rétt- indi fram yfir karlmenn og þau bil þarf líka að brúa, eða hvað? íslendingar búa því miður við jafn gallaða löggjöf um kynferðislega áreitni og Bandaríkjamenn. En jafn- réttið verður að koma frá hjartanu og lög af þessum toga rétta ekki hlut kvenna. Kvenfólk verður líka að þola að stigið sé í vænginn við það og jafn- vel falast eftir atlotum annað veifið án þess að rjúka með málið í dómstóla. Móðir náttúra gerir ráð fyrir því í sam- drætti kynjanna til að halda við stofn- inum og lögin ganga því í berhögg við sjálft sköpunarverkið. íslenskt kvenfólk á ekki skilið að löggjafinn blandi lengur saman áreitni og ástleitni. Manneó

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.