Dagur - Tíminn Reykjavík - 28.06.1997, Page 10
10 - Laugardagur 28. júní 1997
,®agxrr-®mmm
í UMFERÐINNI
1 1 IIIIhDDDDn ERU ALLIR
Hamar í SAMA LIÐI
félagsheimili Þórs:
Salir til leigu fpáÉk,.
Tilvaldir til hvers
konar íþrótta- og tóm-
stundaiðkana.
Gufa - Pottur -
Búningsaðstaða
Hamar |gÉ UMFERÐAR
sími 461 2080 U RÁÐ
DÓMS- OG
KIRKJUMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Löggildingarpróf
fyrir skjalþýðendur
og dómtúlka
Dagana 18. og 19. október 1997 verður haldið próf fyr-
ir þá sem vilja öðlast löggildingu sem skjalþýðendur.
Próf fyrir dómtúlka kynnt í framhaldi skriflega prófsins.
Umsóknir á eyðublöðum sem fást í ráðuneytinu berist
dóms- og kirkjumálaráðuneytinu í síðasta lagi föstu-
daginn 18. júlí 1997.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 24. júní 1997.
Á hverjum föstudegi er
sérstök síða helguð golfi.
Á golfsíðunni er
fjölbreytt umfjöllun
um allt það
sem er að
gerast í golfinu
á liðandi stund.
Fylgstu með í
Degi-Tímanum
^Dctgur-^ímrnrt
-besti tími dagsins!
Móðurbróður minn,
ÞÓRÐUR KRISTLEIFSSON,
sem lést 24. júní sl. verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni,
þriðjudaginn 1. júlí kl. 10.30.
Þorsteinn Þorsteinsson.
ÓÐMÁL
Opið bréf til sveitar-
stjóra um allt land
Sigríður Arna
Arnþórsdóttir og
Elín Antonsdóttir
skrifa
Félag húsbflaeigenda og
Flakkarar fara þess á leit
við sveitarfélög og ferða-
málafulltrúa um allt land að
þau hvetji aðila í ferðaþjónustu
til að huga betur að þjónustu
við húsbflafólk.
Fólk á húsbflum ferðast yfir-
leitt mun meir og oftar um
landið hvert sumar en hinn al-
menni íslenski ferðamaður sem
fer kannski í eitt til tvö tjald-
ferðalög á ári. Mörg dæmi eru
um það að félagar í húsbflafé-
lögum fari í lengri og skemmri
ferðir hverja einustu helgi
sumarsins, og eru að langt
fram á haust. Á vegum Félags
húsbflaeigenda eru skipulagðar
7 ferðir í sumar og þar af ein 8
daga ferð um sunnanverða
Vestfirði. í fyrra var farin 8
daga ferð um Austurland, sum-
arið þar áður var farið í 8 dga
ferð allt norður í Ingólfsíjörð á
Ströndum. Aðrar ferðir eru
styttri ferðir vítt og breitt um-
landið. Einnig eru margar
lengri og skemmri ferðir skipu-
lagðar á vegum Flakkara.
Flestir húsbflar státa nú af
ferðasalernum, en það skortir
mjög á að aðstaða sé á tjald-
svæðum til losunar á þeim. Við
sendum ykkur hér með teikn-
ingu af algengri útfærslu á los-
unarvaski fyrir ferðasalerni, og
á niðurfalli til tæmingar á
skolptanki, en sífellt fleiri eru
með skolptank til að taka við
uppvöskunarvatni og vantar
víðast niðurfall til tæmingar á
þeim. Okkar metnaður er að
ganga vel og snyrtilega um
landið okkar og því er brýnt að
fólk í ferðaþjónustu taki sig á
hvað þetta varðar.
Húsbflaeign fer stöðugt vax-
andi og eru félagar í Félagi
húsbflaeigenda nú um 500 tals-
ins, og hátt á annað hundrað
félagar eru í Flökkurum. Þá eru
ótaldir þeir sem ekki eru í hús-
bflafélögum. Hinn almenni hús-
bflafélagi er að lágmarki 15
gistinætur á tjaldstæðum yfir
sumartímann og það gera yfir
tíu þúsund gistinætur. En marg-
ir fara mun oftar og mörg dæmi
eru um að húsbflafólk sé á ferð-
inni hverja einustu helgi
sumarsins.
Það er liður í starfi ferða-
málafulltrúa að lengja ferða-
mannatímann, en eftir 1. sept.
komum við víða að lokuðum
tjaldsvæðum. Þá er framundan
einn fallegasti tími ársins,
haustið með sínum margbreyti-
legu Utum í náttúru landsins.
Við viljum hvetja fólk í ferða-
þjónustu til að lengja opnunar-
tíma tjaldsvæða alla vega til
fyrsta október.
Húsbflafólk sem kemur er-
lendis frá er góðu vant frá sín-
um tjaldsvæðum, þar er að-
staða til losunar á ferðasalern-
um og skolptönkum en einnig
er boðið upp á rafmagnsstaura
fyrir 220w. í raun er þetta
nauðsynlegt til að tengja bæði
ísskápa, ljós og aðra rafmagns-
notkun sem fólk þarf á að
halda. Vöntun á þessu kemur
fram í því að menn eru að
gangsetja bfla sína í tíma og
ótíma til að hlaða geyma, hefur
það í för með sér hávaða- og
útblástursmengun sem enginn
kærir sig um og allra síst meng-
unarvaldurinn. Þessi skortur á
þjónustu við húsbfla hlýtur að
koma erlendu húsbflafólki í
opna skjöldu.
Það væri líka öllum til góðs
að skipta tjaldsvæðum, hafa sór
flatir fyrir hinn almenna íslend-
ing og sér flatir fyrir ferðamenn
í hópferðum. Þessir hópar ferð-
ast á mjög ólíkan hátt. Fólk í
hópferðum er oft með stífa dag-
skrá og gengur snemma til
náða og fer snemma á fætur,
jafnvel fyrir kl. 6 á morgnana.
Hinn íslenski ferðamaður er í
fríi, vill vaka lengi og þá jafnvel
sofa til kl. 9 eða 10 á morgn-
Húsbílafólk sem
kemur erlendis frá
er góðu vant frá
sínum tjaldsvæðum,
þar er aðstaða til
losunar á ferðasal-
ernum og skolp-
tönkum en einnig er
boðið upp á raf-
magnsstaura fyrir
220w.
ana. Það er því auðséð að hags-
munir þessara ferðalanga
stangast á og þeir trufla hverjir
aðra. Með skiptingu tjaldsvæða
væru þessi vandamál úr sög-
unni.
Verðlag á tjaldstæðum er
annað mál sem við viljum fá til
umræðu. Ekkert samræmi virð-
ist vera í því hvað fólk fær fyrir
peningana sína. Húsbflafólk
þarf til dæmis að borga fullt
gjald þó öll aðstaða sé í bflum
eins og salerni. Sé boðið upp á
aukna þjónustu svo sem aðgang
að þvottavélum, þá greiða gest-
ir sérstaklega fyrir þessa þjón-
ustu, ásamt því að greiða hærra
tjaldsvæðagjald! Það er okkar
krafa að við borgum eingöngu
fyrir þá þjónustu sem við not-
um.
Væri tekið tiliit til okkar
þarfa myndum við að sjálfsögðu
með glöðu geði borga fyrir það.
Það er okkar reynsla af hús-
bflafólki á ferðalögum að þar
sem verðlag er sanngjarnt nýtir
fólk sér ótakmarkað aðra þjón-
ustu sem þarf að greiða fyrir,
en þar sem verðlag þykir hátt
heldur fólk að sér höndum og
heldur áfram í næsta áfanga-
stað hið fyrsta.
Það er því hvatning Félags
húsbflaeigenda og Flakkara til
fólks í ferðaþjónustu; lækkið
verðið á næturgistingu og þið
fáið mun meiri innkomu í öðru
því sem þið hafið upp á að
bjóða. Okkur þætti ekki ósann-
gjarnt að fá eitt verð fyrir bflinn
en ekki að borga fyrir hvern
fullorðinn sé tekið tillit til þess
hve h'tið við notum þá þjónustu
sem mest mæðir á á tjaldsvæð-
um, en það eru salernin.
Við viljum x þessu tilfelli
nefna sem dæmi að við gistum
eina nótt hjá ágætum aðila í
ferðaþjónustu á Suðurlandi í
fyrra, hann lækkaði verðið
verulega fyrir okkur eða í kr.
300 fyrir bflinn. Menn voru
ánægðir og gerðu það mikla
verslun hjá honum í lítiili versl-
un sem hann er með á svæðinu
að hann hafði á orði að þetta
væri eins og um verslunar-
mannahelgi. Þegar við fórum
voru allir ánægðir, bæði ferða-
fólkið og ferðabóndinn.
Aukin þjónusta við húsbíla-
fólk er aðkallandi. Hún er þátt-
ur í sjálfsagðri framþróun á
tjaldsvæðum, og nýtist eirmig
þeim vaxandi íjölda sem ferðast
með tjaldvagna og fellihýsi, því
þeir eru svipað útbúnir og hús-
bflar og þurfa því viðlflca þjón-
ustu. I samanburði við tjald-
svæði erlendis þurfa aðilar í ís-
lenskri ferðaþjónustu að taka
sig á. Ef ísland á að verða það
ferðamannaland sem stefnt er
að og geta tekið við vaxandi
Qölda innlendra sem erlendra
ferðamanna þá verða aðilar í
ferðaþjónustu að vera í stakk
búnir til að taka vel á móti
ferðafólki á hvern hátt sem það
ferðast. Hver króna sem lögð er
í að bæta aðstöðu kemur til
með að skila sér margfalt til
baka.
Sigríður Arna er formaður Félags
húsbílaeigenda og Elín er formaður
Flakkara, félags husbílaeigenda.
Aukin þjónusta við húsbílafólk aðkallandi, segja greinarhöfundar.