Dagur - Tíminn Reykjavík - 28.06.1997, Síða 11

Dagur - Tíminn Reykjavík - 28.06.1997, Síða 11
JDagur-'QJímmtt ÞJÓÐMÁL Laugardagur 28. júní 1997 -11 Það er refsivert að valda dauða 600.000 bama Elías Davíðsson tónskáld skrifar Eftir bestu vitund og á grundvelli ákvæða al- mennra hegningarlaga og þjóðréttarlaga skuldbindinga íslands, tel ég að Jón Baldvin Hannibalsson og Halldór Ás- grímsson hafi með embættis- verkum sínum stuðlað - ásamt stjórnmálamönnum í öðrum löndum - að dauða 600.000 íraskra barna á tímabilinu ágúst 1990 til dagsins í dag. Þeir hafa unnið þessi verk ótil- neyddir, alls gáðir og aðvitandi um eðli verksins. Verk þeirra voru ekki unnin að skipun ríkis- stjórnarinnar heldur á eigin ábyrgð. Þeir bera persónulega refsiábyrgð á verkum sínum í samræmi við 85. og 86. gr. fyrsta viðaukans við Genfarsátt- málanna frá 12. ágúst 1949, sem íslensk stjórnvöld hafa heitið að virða. Embættisverk þeirra sýnast í fljótu bragði sakleysisleg: Ann- ar þeirra skrifaði undir auglýs- ingu sem birtist í Stjórnartíð- indum 28. apríl 1992, þar sem tilkynnt var að hvers kyns við- skipti íslendinga við aðila í írak væru bönnuð. Hinn gerði ekkert annað en að tryggja með ásettu ráði áframhaldandi gildi við- skiptabannsins hér á landi. Til þess þurfti hann ekki einu sinni að undirrita nafn sitt. Sam- kvæmt alþjóðastofnununum UNICEF, FAO og WHO hafa þeg- ar um 600.000 börn látið lífið af völdum þessa viðskipta- banns. Þeir sem framkölluðu dauðann með fjarstýrðum emb- ættisverkum sínum þurftu ekki að horfa á börnin kveljast til dauða. Rétt er að minna á, að leiðtogar nasista, sem voru dæmdir til dauða við réttar- höldin í Núrnberg árið 1945, höfðu ekki heldur unnið annað til saka en að undirrita skjöl sem aðrir en þeir framkvæmdu. Samkvæmt íslenskum lögum er hvers kyns aðvitandi þátt- taka í manndrápum refsiverð, þótt svo þátttakan sé óbein eða fleiri aðilar skipti með sér verk- um um að fremja verknaðinn. Vitneskja um hinar skelfilegu afleiðingar viðskiptabannsins gegn íröksku þjóðinni lágu fyrir í opinberum skýrslum frá UN- ICEF, FAO og WHO. Þessi vitn- eskja birtist einnig í íslenskum dagblöðum og var því ekkert leyndarmál. Þessar hrikalegu afleiðingar viðskiptabannsins voru því ekki ófyrirsjáanleg slys heldur meðvituð „aukaverkun" viðskiptabannsins. Hvort sem mönnum líkar það betur eða verr, flokkast að- gerðir af þessu tagi samkvæmt ákvæðum fyrsta viðaukans við Genfarsáttmálans frá 12. ágúst 1949 til stríðsglæpa. Það er lagaleg skylda framkvæmda- valdsins í hverju ríki að lög- sækja einstaklingá, án tillits til stöðu þeirra og þjóðernis, sem hafa verið sakaðir um þátttöku í slíkum glæpum eða hafa fyrir- skipað slíka glæpi. Samkvæmt alþjóðasam- þykktum, sem ísland hefur stutt, ber ríkjum einnig að refsa fyrir þátttöku í hryðjuverkum. Þótt þessar samþykktir hafi ekki enn verið lögfestar hér, er óbklegt að íslenskir dómstólar túlki þessa vöntun sem heimild til hryðjuverka. Og þótt engin einhlít skilgreining fyrirfinnist í þjóðarétti um hvað séu „alþjóð- leg hryðjuverk", er ekki úr vegi að styðjast við þá skilgreiningu sem hefur verið lögleidd í bandarískri löggjör, enda hafa Bandaríkin lagt áherslu á bar- áttu gegn hryðjuverkum. Sé sú skilgreining höfð til viðmiðunar, hlýtur við- skiptabannið gegn írönsku þjóðinni einnig að flokkast til alþjóðlegra hryðjuverka. Ásamt mörg- um mætum ein- staklingum hef ég reynt að höfða til sam- visku áður- greindra stjórn- málamanna með bréfum, áskorunum og með öðrum friðsamlegum hætti. Ég hef einnig átt tvö hreinskilnings- leg en árang- urslaus samtöl við Halldór Ás- grímsson, utan- ríkisráðherra, með það fyrir augum að gefa honum ráðrúm til að skoða málið gaumgæfi- lega og binda endi á þátttöku íslands í þessum glæpum. Ég gaf honum þannig heiðarlegt tækifæri til að komast hjá rétt- araðgerðum. Því miður reynd- ust allar þessar tilraunir unnar fyrir gýg. Þar sem hér er meira í húfi en orðstír tveggja stjórnmála- manna varð óhjákvæmilegt að grípa til þeirra réttarúrræða sem óbreyttum borgurum hér á landi eru tiltæk ef þeir telja op- inbera aðila fremja refsiverðan verknað er varðar almanna- heill. Því fór ég þess á leit við embætti ríkissaksóknara að það lögsæki Jón Baldvin Hannibals- son fyrir þátttöku í stríðsglæp- um og alþjóðlegum hryðjuverk- um og við Alþingi að það kalli saman Landsdóm til að rétta í máli núverandi utanríkisráð- herra, Halldórs Ásgrímssonar vegna sömu brota. Með erindi mínu til ofan- greindra embætta fylgdu mörg skjöl, þar á meðal ítarleg skýrsla um afleiðingar og laga- legt eðli viðskiptabannsins gegn íröksku þjóðinni. Þessa skýrslu geta þeir sem aðgang hafa að veraldarvefnum kynnt sér (http://www. nyherji.is/~edavid). Þess ber að geta að einstakling- ar og hópar í öðrum löndum hafa einnig krafist lögsóknar gegn eigin stjórnvöldum vegna þátttöku hinna síðari í þessu villimannslega athæfi. Ríkissaksóknari og forseti Al- þingis vísuðu málaléitan minni frá og neituðu að rökstyðja frávísun sína með efnislegum rökum. Umboðsmaður Alþingis reyndist einnig óviljugur til að tryggja rétt minn til efnislegs svars. Þessi afgreiðsla vekur ýmsar áleitnar spurningar, ekki aðeins um vinnubrögð stjórn- sýslunnar heldur um almenna siðferðisvitund íslenskra ráða- manna: Til dæmis hvort ríkis- saksóknari og alþingismenn telji stuðning íslenskra ráð- herra við stríðsglæpi og alþjóð- leg hryðjuverk ekki ástæðu til opinberrar rannsóknar? Eða hvort borgarar þessa lands geti átölulaust og með ítrekuðum hætti sakað starfandi ráðherra og alþingismenn opinberlega um þátttöku í stríðsglæpum og barnamorðum? Eða hvort það sé álit lögfræðinga ríkisins að útrýming 600.000 barna sé ef til vill ekki refsiverð? Eða hvort glæpsamlegar aðgerðir verði réttmætar ef þær hljóta blessun öryggisráðs Sameinuðu þjóð- anna? Og ef frávísun á erindi mínu byggist á þeirri kenningu að Saddam Hussein beri laga- lega ábyrgð á afleiðingum við- skiptabannsins, hvers vegna segja íslensk stjórnvöld það ekki og beita sér í samræmi við það fyrir markvissum aðgerð- um gegn þessum manni á grundvelli tiltækra og bindandi alþjóðasamninga? Þeirn ijölgar sem skilja hvað er í húfi og styðja kröfurnar um réttaraðgerðir gegn Jóni Bald- vini Hannibalssyni og Ilalldóri Ásgrímssyni. Yfir fimmtíu manns hafa þegar undirritað þessar kröfur. Telji Jón Baldvin Hannibalsson og Halldór Ás- Tilboö á sérblandaðri innimálningu gljástig 10 Verð: 1 lítri 499 4 lítrar 1996 10 lítrar 4990 Þúsundir lita í boði KAUPLAND KAUPANGI Sími 462 3665 • Fax 461,1829 grímsson að sér ómaklega vegið með tilhæfulausum og grófum ásökunum, er þeim vitaskuld velkomið að stefna okkur fyrir rétt. Það er ekki markmið okk- ar sem krofjast réttarhalds yfir þessum mönnum að sjá þá fara í fangelsi, heldur tryggja að grundvallarreglur réttarríkis og siðferðis verði virtar í okkar samfélagi. Elías Davíðsson við upplýsingaborð sitt á Austurvelli. Skólaþjónusta Eyþings auglýsir eftir starfsmönn- um til eftirtaldra starfa: Sálfræðingi til starfa við greiningar- og ráðgjafarstörf fyrir grunnskóla og leikskóla. Kjör eru samningsatriði. Leikskólakennara með framhaldsmenntun til ráðgjaf- arstarfa fyrir leikskóla á svæðinu. Um er að ræða greiningar- og ráðgjafarþjónustu vegna barna með fé- lagslega og/eða tilfinningalega erfiðleika, ofvirkra barna og barna með atferlistruflun. Rekstrarfulltrúa til að sjá um skjalavörslu, áætlana- gerð, kerfisbundnar athuganir, úrvinnslu á vinnuskýrsl- um kennara, skýrslugerð og upplýsingagjöf til skóla, sveitarstjórna og annarra opinberra aðila. Rekstrarfull- trúi þarf ennfremur að veita kennsluráðgjöf til skóla á einhverjum sviðum, gjarnan í tölvumálum og stærð- fræði. Grunnskólakennara með framhaldsmenntun til að veita almenna kennsluráðgjöf og greinabundna ráðgjöf auk ráðgjafar vegna félagslegra og/eða tilfinningalegra erfiðleika. Þjónustusvæði Skólaþjónustunnar er allt Norðurland eystra. Búseta og vinnuaðstaða getur verið ýmist á Akureyri eða Húsavík. Kröfur eru gerðar til starfsmanna um góða færni í mannlegum samskiptum enda er stílað á samstarf sérfræð- inga skrifstofunnar við úrlausn fjölmargra mála. Umsóknarfrestur er til 21. júlí nk. Umsóknir sendist til Skólaþjónustu Eyþings, Glerárgötu 26, 600 Akureyri. Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður, Jón Baldvin Hannesson (eftir 9. júlí), í síma 460 1480/461 1699 og Hjalti Jóhannesson, framkvæmdastjóri Eyþings, í síma 461 2733. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - 101 Reykjavík Sími 552 5800 - Bréfsími 562 2616 Netfang: isr@rvk.is UTBOÐ F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk: „Staðahverfi, reið- og göngustígar, jarð- vinna og yfirborð". Helstu magntölur eru: Reiðstígar 2.590 m Göngustígar jarðvegsskipti 550 m Göngustígar malbikun 5.970 m2 Verkinu skal lokið fyrir 15. nóvember 1997. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri frá þriðjudegin- um 1. júlí 1997 gegn 10.000 kr skilatryggingu. Opnun tilboða: miðvikudaginn 9. júlí 1997 kl. 14:00 á sama stað. F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum [ stíga- og gatnagerð á ýmsurr) svæðum vestan Reykjanes- brautar. Verkíð nefnist: „Ymis smáverk1997“. Helstu magntölur eru: 3.200 m3 3.000 m3 . ■ .-4.400 m2 1.300 rp2 650 m2 5.000 m2 Skiladagur síðasta verkhluta er 1. nóvember 1997. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri frá þriðjudegin- um 1. júlí 1997 gegn 10.000 kr skilatryggingu. Opnun tilboða: fimmtudaginn 10. júlí 1997 kl, 11:00 á sama stað. - Uppúrtekt: - Fyllingar: - Malbik: - Hellu-& steinlagnir: - Steypa: - Ræktun:

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.