Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.07.1997, Síða 1
rajjraiiU -'jjjjj íiCPt,
\Us\ x. •usvmb-snvswnA - <V
ÍDagwr-Œtmmn
Laugardagur 5.júlí 1997 - 80. og 81. árgangur -124. tölublað
Ásgarðsvegur 2
(Hótel Húsavík, Fensalir,
Sýslumannshús, Árból)
Húsið var byggt árið
1903. Byggjendur
þess voru Júlíana
Guðmundsdóttir og
Sigurjón Porgrímsson, bakari,
sem áttu vesturendann, og
Kristín Sigurgeirsdóttir og
Kristján Árnason, söðlasmið-
ur, sem áttu austurendann.
í mati frá 1905 er húsið
talið vera 21 x 14 álnir að
grunnfleti, tvflyft, vegghæð 9
álnir, ris 4 álnir. Þak er báru-
járnsklætt á plægðum 1”
borðum. Kjallari er undir öllu
húsinu úr hlöðnu steinlímdu
grjóti, 3 1/2 alin úr jörð. Húsið
er byggt af timbri þó ekki sé
þess getið í fyrstu virðingu
sem gerð var.
Á neðra gólfi eru sex íbúð-
arherbergi og þrjár forstofur.
Þar er hæð undir loft 4 1/2
álnir. Á öðru lofti eru sjö stof-
ur og gangur eftir hæðinni
endilangri, þar er hæð undir
loft 4 álnir. Efsta loft er óinn-
réttað. í kjallara er eitt skil-
rúm.
í húsinu eru tvö eldhús,
fimm ofnar og einn bakarofn,
hann er úr járni og innmúrað-
ur. Tveir reykháfar úr stein-
steypu eru á húsinu. Húsið er
ómálað að utan. Herbergi öll
eru þifjuð og flest máluð eða
pappaklædd. Húsið er með
tvöfaldri klæðningu og asvalt-
pappa í milli. Gólf eru úr 5/4”
borðum. Tuttugu og sex glugg-
ar eru á húsinu og fimm
gluggar á kjallara og fimm út-
gangar, þar af tveir á kjallara.
í gegnum tíðina hefur húsið
gengið undir nokkrum nöfn-
um: Hótel Húsavflc, Fensalir,
Sýslumannshúsið og núna Ár-
ból.
Sigurjón rak um tíma
brauðgerð í sínvnn hluta húss-
ins, einnig greiðasölu og gisti-
hús. Ennfremur leigði hann
húsnæði til fundarhalda.
Nokkru fyrir 1920 hætti Sigur-
jón hótelrekstri og einnig lagð-
ist bakarflð af. Eftir það vann
hann við ullar- og sfldarmatið
á Húsavík.
Kristján var söðlasmiður,
hafði verkstæði í húsinu og
nema. Hann leigði einnig út
húsnæði til íbúðar. Eftir nokk-
ur ár seldi Kristján Sigurjóni
sinn hluta eignarinnar og
byggði sér hús skammt frá
kirkjunni. Húsið nefndi hann
Hvarf. Hvarf brann tveimur
árum síðar. Eftir það byggðu
Kristján og Kristín húsið Ás-
garð sem nú er Ásgarðsvegur
27.
Samkvæmt manntali frá ár-
Þórunn og
Július Havsteen.
Sögulegt
sýslumannshús
- fjós og landageymsla í kjallaranum
inu 1910 búa í húsinu sem þá
er skráð Hótel Húsavík: Sigur-
jón Þorgrímsson, fæddur 2.
maí 1864 í Nessókn S-Þingeyj-
arsýslu, Júlíana Guðmunds-
dóttir, kona hans, fædd 27. júlí
1856 í Grenivflaisókn, Þóra
Jóhannesdóttir, fædd 26. mars
1879 í Grímsey, Jóhanna Frið-
riksdóttir, fædd 12. september
1891 í Nessókn S-Þingeyjar-
sýslu, Nanna Gísladóttir, fædd
13. desember 1891 einnig
fædd í Nessókn, Benedikt Sig-
urjónsson, fæddur 9. aprfl
1875 í Reykjahlíðarsókn,
Bárður Sigurðsson, fæddur 28.
maí 1872 í Lundarbrekku-
sókn, Stefán Jón Benedikts-
son, fæddur 27. janúar 1891 í
Reykjahlíðarsókn, Kristján
Jónsson, fæddur 16. mars
1886 í Skútustaðasókn, Axel
Jakobsson, fæddur 14. ágúst