Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.07.1997, Blaðsíða 1

Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.07.1997, Blaðsíða 1
rajjraiiU -'jjjjj íiCPt, \Us\ x. •usvmb-snvswnA - <V ÍDagwr-Œtmmn Laugardagur 5.júlí 1997 - 80. og 81. árgangur -124. tölublað Ásgarðsvegur 2 (Hótel Húsavík, Fensalir, Sýslumannshús, Árból) Húsið var byggt árið 1903. Byggjendur þess voru Júlíana Guðmundsdóttir og Sigurjón Porgrímsson, bakari, sem áttu vesturendann, og Kristín Sigurgeirsdóttir og Kristján Árnason, söðlasmið- ur, sem áttu austurendann. í mati frá 1905 er húsið talið vera 21 x 14 álnir að grunnfleti, tvflyft, vegghæð 9 álnir, ris 4 álnir. Þak er báru- járnsklætt á plægðum 1” borðum. Kjallari er undir öllu húsinu úr hlöðnu steinlímdu grjóti, 3 1/2 alin úr jörð. Húsið er byggt af timbri þó ekki sé þess getið í fyrstu virðingu sem gerð var. Á neðra gólfi eru sex íbúð- arherbergi og þrjár forstofur. Þar er hæð undir loft 4 1/2 álnir. Á öðru lofti eru sjö stof- ur og gangur eftir hæðinni endilangri, þar er hæð undir loft 4 álnir. Efsta loft er óinn- réttað. í kjallara er eitt skil- rúm. í húsinu eru tvö eldhús, fimm ofnar og einn bakarofn, hann er úr járni og innmúrað- ur. Tveir reykháfar úr stein- steypu eru á húsinu. Húsið er ómálað að utan. Herbergi öll eru þifjuð og flest máluð eða pappaklædd. Húsið er með tvöfaldri klæðningu og asvalt- pappa í milli. Gólf eru úr 5/4” borðum. Tuttugu og sex glugg- ar eru á húsinu og fimm gluggar á kjallara og fimm út- gangar, þar af tveir á kjallara. í gegnum tíðina hefur húsið gengið undir nokkrum nöfn- um: Hótel Húsavflc, Fensalir, Sýslumannshúsið og núna Ár- ból. Sigurjón rak um tíma brauðgerð í sínvnn hluta húss- ins, einnig greiðasölu og gisti- hús. Ennfremur leigði hann húsnæði til fundarhalda. Nokkru fyrir 1920 hætti Sigur- jón hótelrekstri og einnig lagð- ist bakarflð af. Eftir það vann hann við ullar- og sfldarmatið á Húsavík. Kristján var söðlasmiður, hafði verkstæði í húsinu og nema. Hann leigði einnig út húsnæði til íbúðar. Eftir nokk- ur ár seldi Kristján Sigurjóni sinn hluta eignarinnar og byggði sér hús skammt frá kirkjunni. Húsið nefndi hann Hvarf. Hvarf brann tveimur árum síðar. Eftir það byggðu Kristján og Kristín húsið Ás- garð sem nú er Ásgarðsvegur 27. Samkvæmt manntali frá ár- Þórunn og Július Havsteen. Sögulegt sýslumannshús - fjós og landageymsla í kjallaranum inu 1910 búa í húsinu sem þá er skráð Hótel Húsavík: Sigur- jón Þorgrímsson, fæddur 2. maí 1864 í Nessókn S-Þingeyj- arsýslu, Júlíana Guðmunds- dóttir, kona hans, fædd 27. júlí 1856 í Grenivflaisókn, Þóra Jóhannesdóttir, fædd 26. mars 1879 í Grímsey, Jóhanna Frið- riksdóttir, fædd 12. september 1891 í Nessókn S-Þingeyjar- sýslu, Nanna Gísladóttir, fædd 13. desember 1891 einnig fædd í Nessókn, Benedikt Sig- urjónsson, fæddur 9. aprfl 1875 í Reykjahlíðarsókn, Bárður Sigurðsson, fæddur 28. maí 1872 í Lundarbrekku- sókn, Stefán Jón Benedikts- son, fæddur 27. janúar 1891 í Reykjahlíðarsókn, Kristján Jónsson, fæddur 16. mars 1886 í Skútustaðasókn, Axel Jakobsson, fæddur 14. ágúst

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.