Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.07.1997, Page 4

Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.07.1997, Page 4
MINNINGARGREINAR Laugardagur 5. júlí 1997 - IV Toppmenn Heima situr fólkið flest, fœtur piltar hvíla. Þeirra átök eru mest við akstur lúxusbíla, meðan upp á Everest afrekshetjur príla. Þangað sýnist löng og Ijót leið um fjallarinda, eyðimerkur, ís og grjót með ofsa-hörku vinda. -Æ, ég nenni ekki hót upp á slíka tinda! Tímans klukka tifar enn, tœpast fréttir stoppa. Margir styrkja sína senn setufúsa kroppa. -Ennþá sœkja ungir menn upp á hœstu toppa. Töf á niðurleið Mikil er gœfa vors guðskristnihalds; en gjarnan má splœsa í viftu, efforseti og handhafar forsetavalds festa sig aftur í lyftu. Ánœgju vekur að ekki fór ver, þar endaði ferðin með giftu. En súrefnisinnstreymi þökkum við þér Þorlákur helgi - í lyftu. Ósonvandi Vaknar ótti annað slagið, illur grunur magnast senn, út af því að ósonlagið er að gliðna, segja menn. Út í bláinn úðast hratið, okkur Ijós er hœttan sú. Bráðum opnast ósongatið upp á gátt, og hana nú! Eigi þeirri ógn að linna, aftur gleðjast heimsins þjóð, œttum við að eitra minna andrúmsloftið, börnin góð. Sjálfumgleði Gjarnan brúka titlatog, til að bjarga kraftinum, menn sem eru montnir og máttugir - í kjaftinum. Ásókn Að mér safnast fár ogfeigð, fita, gikt og leti, sultur, kvef og samkynhneigð, - send á interneti. Búi iDagur-CEtnnvm Magnús Guðmundsson Magnús Guðmundsson bóndi á Blesastöðum í Skeiðahreppi var fædd- ur 17. september 1912 á Blesa- stöðum. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 29. júní síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Guð- mundur Magnússon fæddur á Votumýri 11. maí 1878, dáinn 20. október 1972 og Kristín Jónsdóttir frá Vorsabæ, fædd 16. maí 1886, dáin 2. septem- ber 1971. Magnús var næst elstur 15 syskina en tvö þeirra dóu í æsku. Af þeim sem upp komust lifa nú öU nema þrjú. Þá átti hann eina hálfsystur. Magnús kvæntist 13. júní 1941 Önnu Stefaníu Berg- sveinsdóttur, fædd 17. janúar 1919 í Aratungu í Steingríms- íirði. Börn þeirra Magnúsar og Önnu eru fjögur. 1) Hrafnhild- ur, fædd 11. apríl 1942, gift Svavari Jóni Árnasyni og eiga þau þrjá syni. 2) Guðmundur Haukur, fæddur 20. desember 1944, kvæntur Jónu Guðbjörgu Sigursteinsdóttur og eiga þau tvö börn. 3) Tryggvi Karl, fæddur 12. ágúst 1949, kvænt- ur Berthu Sigurðardóttur og eiga þau þrjú börn. 4) Ragn- hildur, fædd 5. nóvember 1954, gift Árna Ái nasyni og eiga þau fjögur börn. Útför Magnúsar fer fram í dag frá Ólafsvallakirkju kl. 14:00. Þeir falla nú hver af öðrum gömlu bændurnir - menn hins nýja tíma - sem breyttu sveitum landsins til nútíma hátta - frá handverki tU vélarinnar og frá þrotlausu striti til mannsæm- andi starfa og lífsgæða. Einn af þessum mönnum, Magnús á Blesastöðum, er kvaddur í dag frá Ólafsvalla- kirkju, en hann var 84 ára þeg- ar hann lést 29. júní síðastliðinn á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Hafði hann lengi mátt þola sykursýki þótt annað mein yrði honum að aldurtila að lokum. Magnús var fæddur og alinn upp á Blesastöðum, en þar höfðu foreldrar hans búið alla tíð. Guðmundur faðir hans var annálaður dugnaðarmaður og Kristín móðir hans myndarleg húsmóðir og góður uppalandi. Þau hjónin voru samhent og komu upp stórum barnahópi og er mikill ættbogi frá þeim kom- inn á Skeiðum og víðar. Magnús fékk venjulega barnafræðslu í æsku en vann svo á búi foreldra sinna fram á fullorðinsár. Haustið 1939 settist hann í Bændaskólann á Hólum og lauk þar tveggja ára námi vorið 1941 útskrifaður sem búfræðingur. Á Hólum kynntist hann ungri og glæsilegri stúlku norðan af Ströndum, henni Önnu, og gift- ist henni þá um vorið. Iler- mann, yngri bróðir hans, hafði einnig lokið búfræðimenntun á Hólum og stofnað heimili þá um vorið. Foreldrar þeirra voru þá far- in að reskjast og sáu að framtíð jarðarinnar yrði vel borgið í höndum þessara sona sinna og tengdadætra. Skiptu þau jörð- inni milli þeirra og sín, þannig að hver þeirra fékk þriðjung. Hermann stofnaði þá nýbýli á austurhluta jarðarinnar en Magnús settist í bú föður síns. Guðmundur hafði áfram nokkurn fjárstofn - en alls var hann við búskap í 64 ár - og áður en hann var allur hafði hann skipt jarðarparti sínum milli bræðranna. Ungu hjónin íluttu nú inn í hús foreldra sinna - og bjuggu því þrjár ijöl- skyldur í húsinu allt til ársins 1947, þegar Hermann hafði byggt íbúðarhús og flutti í það. En húsið var stórt og hafði Guð- mundur byggt það af mikilli framsýni sem tvibýlishús. Gömlu hjónin voru þar, meðan þau lifðu og siðan bjuggu Magn- ús og Anna þar með sína fjöl- skyldu en létu endurbyggja hús- ið Blesastaðir eru mikil kosta- jörð. Landið er grasgefið, rækt- unarland var mikið og gott - þurrir valllendismóar - og all góð engjalönd. Á þessum tíma voru bændur á Skeiðum að breyta um bú- skaparhætti. Skeiðaáveitan, sem komst í gagnið árið 1923 og hafði verið undirstaða heyöflun- ar var að byrja að hopa fyrir nýjum tíma með ræktun og vél- væðingu í heyskap. Engjalöndin höfðu dugað vel en voru ekki örugg - og menn kepptust við að stækka túnin. Búnaðarfélag sveitarinnar átti jarð- vinnslutraktur sem fór á milli bæja og fylgdu honum jarð- vinnslutæki Ræktunaraldan var hafin. Hinir ungu bændur á Blesastöðum sáu manna best að hverju stefndi og hófust þegar handa um jarðabætur, fullir áræði og bjartsýni, og brátt breiddi úr sér víðáttumikill töðuvöllur - stærsta tún jarðar- innar á einni jörð. Man ég að margir undruðust þessi umsvif bræðranna og sumum þótti jafnvel nóg um - Þeir bræður ræktuðu og heyjuðu í félagi aht fram á árið 1960,en þá voru þeir báðir komnir með stórbú. Þá tóku þeir upp á ýmsum nýjung- um, m.a. reyndu þeir kornrækt. Magnús kom fljótt upp góðu búi og búnaðist vel, enda fædd- ur bóndi.Hann hugsaði vel um gripi sína og fékk af þeim góðan arð. Hafði hann bæði kýr og kindur og var með eitt stærsta bú sveitarinnar. Vorið 1977 urðu enn um- skipti í vesturbænum á Blesa- stöðum en þá komu í búskapinn með Magnúsi og Önnu Ragn- hildur dóttir þeirra, sem gifst hafði Árna Árnasyni frá Selfossi haustið áður. Nú var byggt nýtt og stórt ijós og aðrar byggingar í kjölfarið - og búið stækkaði enn. þá byggðu ungu hjónin íbúðarhús, og er nú á Blesa- stöðum eitt glæsilegasta býlí sveitarinnar. Enn urðu ábú- endaskipti á Blesastöðum, þeg- ar Magnús, dóttursonur þeirra Magnúsar og Önnu tók við búi þar í vor. Magnús á Blesastöðum var í eðli sínu hlédrægur maður en var glaður og reifur í vina- hóp.Hann var söngmaður góður og söng í kirkjukór Ólafsvalla- kirkju í ein 40 ár Hann hafði sig lítið í frammi út á við en var samt settur til ýmissa trúnaðar- starfa, sat í hreppsnefnd um tíma, lengi eftirlitsmaður Naut- griparækrarfélagsins við skýrslugerð og fitumælingar og í stjórn Hrossaræktarfélagsins, enda hestamaður eins og hann átti kyn til. Heimilið og búið áttu hug hans allan. Hann var tengdur jörð sinni órofa bönd- um og hefði getað sagt eins og skáldið Guðmundur Ingi: Sérðu hve varpinn er veitull, er vorsólin skín? Hér er þinn hamingjusproti og hjartarót þín. Ég held að Magnús hafi haft í hendi sinni þann hamingju- sprota að búa á Blesastöðum. Þar fékk hann að lifa og starfa og eignaðist góða ljölskyldu. Samt er alltaf sárt að missa - og því sendi ég aðstandendum hans samúðarkveðjur. Jón Eiríksson Minningargreinar Minningargreinar birtast aðeins í laugardagsblöðum Dags-Tímans. Þær þurfa að berast á tölvudiskum eða vélritaðar. Myndir af þeim sem skrifað er um þurfa að berast með greinunum. Sendist merkt Dagur-Tíminn Strandgötu 31, 600 Akureyri Garðarsbraut 7, 640 Húsavík Brautarholti 1, 105 Reykjavík

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.