Dagur - Tíminn Reykjavík - 17.07.1997, Qupperneq 10
1'
10- Fimmtudagur 17. júlí 1997
Prins Nassem Hamed er af mörgum talinn besti boxari nútímans og hefur
innleitt nýjungar í íþróttina sem gefa höggum hans aukinn þunga.
Prinsinn og
Argentínumaðurinn
Prins Nassem Hamed legg-
ur heimsmeistaratitil sinn
undir á laugardaginn í
bardaga við Argentínumann-
inn, Juan Carrera. Prinsinn,
sem enn hefur ekki tapað bar-
daga, er af mörgum talinn besti
boxari nútímans og hefur inn-
leitt nýjungar í íþróttina sem
gefa höggum hans aukinn
þunga. Fótahreyfingar hans eru
allt aðrar en áður hefur þekkst.
Guðmundur Arason sagði í
samtali við Dag-Tímann að
enginn hefði náð jafn mikilli
fullkomnun í að samræma fóta-
hreyfingar og högg. „Það þarf
mjög gáfaðan boxara til að
boxa eins og Prinsinn gerir.
Þessar leiftursnöggu hreyfingar,
skáhögg upp undir hökuna og
stökk hans á ská að andstæð-
ingi sínum, rugla alla aðra box-
ara. Ég hef ákaflega gaman að
Prinsinum," sagði Guðmundur.
Síðustu viðureignirnar í
þungavigt, sem landinn hefur
fengið að sjá, hafa valdið von-
brigðum um heim allan.
Frammistaða Tyson og Akinw-
ande varð þeim til ævarandi
skammar. Prins Nassem Hamed
er aftur á móti skemmtikraftur.
Hann hefur aldrei brugðist
stuðningsmönnum sínum sem
nú fjölgar ört, beggja vegna Atl-
antsála.
Meðal áhorfenda í London
nú verður hópur íslendinga.
Þar á meðal eru vinningshafar
sem dregnir voru út á sjón-
varpsstöðinni Sýn, Rut Árna-
dóttir, sem bauð með sér Krist-
jáni Gunnarssyni og Aðalsteinn
Líndal Gíslason, en hann bauð
föður sínum með sér að sjá bar-
dagann. Þá verða einnig bræð-
urnir Björn Ingi og Sigurbergur
Sveinssynir á svæðinu, en Björn
heldur upp á afmælisdaginn
sinn á laugardaginn. Megi fs-
lendingarnir eiga góða skemmt-
un. gþö
KNATTSPYRNA
Rúnar Kristinsson
tii Lilieström
Landsliðsmaðurinn og KR-
ingurinn, Rúnar Kristins-
son gæti verið á leið tU LU-
leström í Noregi. Rúnar hefur
undanfarin ár leikið með
sænska liðinu Örgryte en samn-
ingur hans við liðið rennur út
um áramótin. Fyrr á þessu ári
voru nokkur lið á höttunum eft-
ir Rúnari, sem leikið hefur sér-
lega vel á þessu leiktímabUi, en
sænska félagið hefur ekki viljað
láta hann frá sér.
Rúnar vUl gjarnan breyta til
og ganga í raðir Lifieström, sem
hefur boðið honum þriggja ára
samning. Hann getur farið frá
sænska félaginu um áramótin
án þess að það fái krónu fyrir
hann. Rúnar hefur aftur á móti
boðist tU að fara strax tU Lil-
leström, þar sem félagið vill fá
hann nú þegar tU liðs við sig.
Þannig fengi Örgryte sann-
gjarna upphæð fyrir hann. Rún-
ar hefur verið mjög sanngjarn í
viðræðunum sem nú eru á mjög
viðkvæmu stigi og vonast tU að
botn fáist í viðræðurnar alveg á
næstu dögum. gþö
Jkgur-®mxhm
Logi á Skagann?
Fræðilega gæti eitthvað
gerst eftir leikinn á
morgun.
„Ég veit nú ekki til þess að
hinn sé að hætta,“ sagði Gylfi
þórðarson, formaður Knatt-
spyrnudeildar ÍA, er Dagur-
Tíminn bar undir hann þá frétt
að Logi Ólafsson væri að taka
við þjálfun liðsins af Ivan Golac.
„Hann tekur aUa vega ekki við
fyrir leikinn á morgun“ (í dag),
bætti Gylfi við. Nokkur óánægja
hefur verið með störf Golac til
þessa og menn eru ekki sáttir
við gengi liðsins það sem af er
sumri. ÍA er fallið úr Coca Cola
bikamum og í þriðja sæti í Sjó-
vár-Almennradeildinni, nokkuð
sem fólk á Skaganum á ekki að
venjast. Gylfi sagði að það sem
menn væru einkum óánægðir
með væri framistaða Dragutin
KNATTSPYRNA
Vikingur i Stavangrí
vill Ríkharð
með fasta stöðu í liði KR í sum-
ar og nú í seinustu leikjum liðs-
ins hefur hann verið að leika á
mðjunni þegar hann hefur
komið inná í leikjunum. Því má
það teljast furðulegt ef KR er
ekki tilbúið að selja hann fyrir
10 milljónir nú í stað þess að
hann fari fyrir ekki neitt eftir
átta deildarleiki.
Dagur-Tínainn ræddi við
Hauk Gunnarsson, varafor-
mann KR og þann sem hefur
með leikmannamálin að gera.
Hann staðfesti að Eric Thostved
hefði komið að skoða Ríkharð í
síðasta leik en ekkert tilboð
hefði enn borist x hann og það-
an af síður upp á 10 milljónir.
Ef KR hefði borist slíkt tilboð í
Ríkharð væri hann væntanlega
seldur nú. gþö
Ríkharður Daðason, knatt-
spyrnumaður í KR, hefur
verið til skoðunar hjá
norska liðinu Viking í Stavan-
Ríkharður Daðason, knattspyrnu-
maður í KR.
ger. Eric Tosthved, fyrrum
landsliðsmarkvörður Noregs og
enska liðsins Tottenham og nú-
verandi knattspyrnustjóri hjá
norsku Víkingunum, er sagður
hafa gert KR 10 milljóna króna
tilboð í Ríkharð en Vesturbæj-
arfélagið sagt nei. Ríkharður,
sem er samningsbundinn KR út
keppnistímabilið, er Iaus allra
mála hjá félaginu í haust og
getur þá farið hvert sem hann
vill án þess að til komi nokkur
greiðsla fyrir hann. Samkvæmt
heimildum Dags-Tímans vill
norska liðið fá Ríkharð strax til
liðs við sig. Það hefur verið að
leita að góðum framherja og
telur að Ríkharður henti vel í
þá stöðu sem liðið þarf að
manna.
Ríkharður hefur ekki verið
Ristic. Hann er að leika í stöðu
framherja sem hann hefur
aldrei leikið áður og árangur-
inn er ekki eftir því sem vænst
var.
í ljósi vandræða ÍA með
framherja var Gylfi spurður, af
hverju Bibercic hefði ekki geng-
ið í raðir ÍA, þegar hann æfði
með Skaganum á dögunum.
Hann sagði að þjálfarinn hefði
ekki haft áhuga fyrir honum
enda Arnar Gunnlaugsson kom-
in til Uðs við þá en hann stopp-
aði stutt við í þetta sinn. Því má
segja að óheppnin elti Golac svo
vægt sé til orða tekið og hann
gæti farið að gegna nafninu
Ivan óheppni. Spaugsamur
Skagmaður sagði að þrír flug-
miðar væru tilbúnir hjá Krist-
jáni Sveins. á Samvinnuferðum-
Landsýn og þeir væru allir með
júgóslavneskum nöfnum.
Logi Ólafsson.
Gylfi var ófáanlegur til að
staðfesta nokkuð um breytingar
á þjálfaramálum ÍA en sagði:
„Fræðilega gæti eitthvað gerst
eftir leikinn á morgun (í dag) en
ekki það að þetta sé að gerast."
ístruat
Ný og afar sérstök íþrótt,
ístruat, er að ryðja sér til
rúms. Heimsmeistara-
keppnin í þessari furðulegu
íþrótt, sem byggist á því ítur-
vaxrnr menn berjast með
bumbum sínum, fór fram í Roy-
al Albert Hall höllinni frægu,
þar sem Eric Clapton heldur
sína árlegu febrúartónleikaröð.
Heimsmeistarinn í ístruati, eða
kannski má kalla það bumbu-
box þar sem bumbur eru látnar
skipta í stað hnefa, er danskur
og heitir Mad Maurice. Aðrir
frægir bumbuboxarar eru Fred
Zeppelin frá Baden Baden, Les
Cargo frá Frakklandi og Bret-
inn Clive White. Þá er einnig sá
frægasti frá Bandaríkjunum í
þessum hópi, hvalveiðimaður-
inn „The Boston Globe“. Greini-
lega fríður flokkur þarna á
ferðinm. gþö
KNATTSPYRNA
Þórsarará
sterktmót
íLyngby
Síðar í þessum mánuði
heldur 2. flokkur Þórs á
Akureyri á mjög sterkt 12
liða mót í Lyngby í Dan-
mörku. Það eru ÍT-Ferðir
sem skipuleggja ferðina og
Hörður Hilmarsson, fram-
kvæmdastjóri, sagði að und-
anfarin ár hefðu nokkur lið
tekið þátt í þessu móti og
staðið sig mjög vel. KR-ingar
komust t.d. í úrslit á síðasta
ári undir stjórn Haraldar
Haraldssonar.
Þórsarar leika í A - riðli
og með þeim í riðli eru KB -
Kaupmannahöfn, Silkeborg,
Öster, Degerfors og Rosen-
borg. í B-riðlinum leika AB-
Kaupmannahöfn, Roskilde,
BK-Lyngby, BK-Forward frá
Svíþjóð og Brann frá Noregi.
gþö