Dagur - Tíminn Reykjavík - 18.07.1997, Side 4

Dagur - Tíminn Reykjavík - 18.07.1997, Side 4
4 - Föstudagur 18. júlí 1997 |Dagur-®mmm F R É T T I R Stutt & laggott Hellirigning í upphafi viku setti umferð úr skorðum á Akureyri enda ökumenn óvanir nýlögðu malbiki sem verður mjög hált ef það vöknar hressilega. Þrír árekstrar á stuttum tíma og ástæða til að vara menn við - næst þegar rignir. En það verður varla næstu daga, slík er blíðan sem nú hefur flutt sig norður eftir frábæra sumardaga í Reykjavík. Félaglegar íbúðir Akureyrarbær afhenti nýverið 20 nýjar félagslegar íbúðir í Snægili. Þær eru af ýmsum stærðum og þykja einkar vel heppnaðar, ekki síst þegar tekið er tillit til þess að þær voru 8% undir áætluðu kostnaðarverði. Á myndinni sjást Gísli Lór- enzson formaður Húsnæðisnefndar bæjarins og Ómar Jóhann- esson fyrir hönd verktakans, Hyrnu hf. Gáfu of mikið eftir Framkvæmdastjórn Farmanna- og fiskimannasambandsins telur að íslensk stjórnvöld hafi gefið of mikið eftir í nýgerðum samningi íslands og Grænlands um miðhnu á Kolbeinseyjar- svæðinu milli landanna. í ályktun sem samþykkt var á fundi framkvæmdastjórnarinnar í gær segir að þetta eigi einkum við þegar litið sé til þess að Grænlendingar haldi óskertum rétti til miðlínu, t.d. á Dornbanka miðað við grunnlínu, sem þar sé dregin um eyjar og sker við nærri óbyggða austurströnd Græn- lands. Með hliðsjón af niðurstöðu samningsins skorar Farmanna- og fiskimannasambandið á íslensk stjórnvöld að láta ekki undan gagnvart frekari kröfum útlendinga varðandi hafsvæði og veið- ar við landið í framtíðinni. Vélstjórar samþykkja Nýgerður kjarasamningur vólstjóra á kaupskipum var sam- þykktur en atkvæði voru talin í gær. Á kjörskrá voru 148 en aðeins 56 greiddu atkvæði. Þar af sagði 31 já, en 24 vildu fella samninginn. Samningurinn var því samþykktur með rúmlega 56% greiddra atkvæða. Rauði krossinn og Samvörður 97 Að minnsta kosti m'u Rauða kross deildir taka þátt í ijölþjóð- legu almannavarnaæfingunni Samvörður 97, sem haldin verð- ur 25. til 27. júh' næstkomandi. Fram kemur í Hjálp, frótta- blaði Rauða krossins, að hundruð manna frá samtökunum muni taka þátt í æfingunni og að settar verði upp íjöldahjálp- arstöðvar í Reykjavík, Grindavík og á Eyrarbakka. Samvörður 97 er miðuð við að öflugur jarðskjálfti valdi miklu tjóni á svæði sem nær frá Reykjanesi austur að Selfossi og norður í Kjós. Fjöldi íslenskra og útlenskra herja, stofnana og samtaka taka þátt í æfingunni. Nýir netþjónar Búnaðarbankinn hefur samið við Tæknival rnn kaup á 30 Compaq netþjónum, sem kom- ið verður fyrir í öllum útibúum bankans. Einnig var gerður ít- arlegur samningur við Tækni- val um eftirlit og þjónustu. Verið er að endurnýja af- greiðslukerfi Búnaðarbankans og eru kaupin á nýju netþjón- unum liður í því. Búnaðarbankinn hefur þróað nýtt afgreiðslu- kerfi í samvinnu við Unisys og verður það tekið í notkun í haust. Á myndinni má sjá forsvarsmenn bankans og Tæknivals handsala samninginn. Það eru Ingi Örn Geirsson, forstöðu- maður tölvudeildar Búnaðarbankans, Sveinn Jónsson, aðstoð- arbankastjóri, Gunnar Ólafsson, deildarstjóri Tæknivals og fyrir aftan standa Jón Bjarki Gunnarsson, markaðsfulltrúi Compaq og Arinbjörn Sigurgeirsson, verkefnisstjóri tækni- deildar Tæknivals. Akið varlega! Sundlaugin á Akureyri 2000 manns mæta í sundlaugina á Akur- eyri á einum góðviðrisdegi. Þetta áætlar Gísli Lórenzson og segir óhemju mikið um ferðamenn nú. 2000 sundlaugargestir í 15000 manna bæ. Þykir gott. Húsið vandræðalega. „Vandræðaleg umræða“ Kemur ekki til greina að Akureyrarbær kaupi húsið. Umræð- an affar vandræðaleg fyrir bæinn. Ekki kemur fram að Akur- eyrarbær kaupi hús sunn- an Strandgötunnar, sem áður var í eigu kvenfélagsdeild- ar Slysavarnafélags Islands. Þetta kom fram í máli Jakob Björnssonar, bæjarstjóra, á bæjarstjórnarfundi í gær. Skiptar skoðanir hafa verið um húsið frá upphafi. Leyfi var veitt fyrir byggingu sjóbjörgun- arstöðvar rétt fyrir kosningar og var það að margra mati van- hugsuð ákvörðun, enda tekin rétt fyrir kosningar. Þegar ljóst var að Slysavarnafélagið gæti ekki lokið við byggingu hússins var Akureyrarbæ boðið húsið til kaups en því var neitað. Húsið var síðan selt eigendum líkam- ræktarstöðvarinnar World Class í Reykjavík og hyggjast þeir setja upp bkamsræktarstöð í húsnæðinu. Fulltrúar Alþýðu- bandalagsins eru á móti því að þarna verði líkamsræktarstöð þar sem þeir telja svæðið henta betur undir aðra starfsemi s.s. hafnarskrifstofur eða þjónustu- miðstöð fyrir ferðamenn. Varp- aði Sigríður Stefánsdóttir m.a. fram þeirri hugmynd að húsið yrði fært, þar sem líkamsrækt- arstöð gæti verið staðsett hvar sem er, og myndi bærinn borga flutninginn sem nokkurkonar „fórnarkostnað". Þessar hugmyndir fengu h't- inn hljómgrunn meðal fulltrúa annarra flokka. „Þetta er afar vandræðaleg umræða og bæn- um ekki til framdráttar,“ sagði Guðmundur Stefánsson, fulltrúi Framsóknarflokks. Bent var á að Akureyrarbær hefði ekki not fyrir lóðina og litlar forsendur fyrir því að kaupa hús án þess að ákveðnar hugmyndir væru fyrir hendi um hvernig ætti að nýta það. AI Akureyri Engúi endurhæfíng Ari Friðfinnsson. Bið,bið og aftur bið segir hjarta- sjúklingur. að er engin endurhæfing fyrir hjartasjúklinga að lokinni aðgerð hór á þessu svæði“ segir Ari Frið- finnsson, og þykir lítið til koma. Hann er nýkominn úr hjartaað- gerð syðra og fókk þau skilaboð að þegar kæmi að endurhæf- ingu yrði hann að koma aftur. Ari spurði hvort ekki væri að- staða á Norðanlands, kunnátta eða rótt tæki. Allt reyndist þetta til staðar, en „eftir því sem næst var komist strandaði á um það bil hálfum launum" sem þarf til að hjartasjúklingar norðan heiða geti sótt endurhæfingu nærri heimilum. „Hér á þessu stærsta þéttbýlissvæði utan suð- vesturhornins er enga endur- hæfingu að fá, en líkamsrækt- arstöðvar og allt annað.“ Og biðtíminn er allnokkur um þessar mundir fyrir hjartasjúk- linga. Frá heimilislækni til sér- fræðings er 6 vikna leið, þá tek- ur við þriggja mánaða bið eftir þræðingu og loks 6-8 mánaða bið eftir aðgerð. „Og nú verða það líklega tveir mánuðir þar til kallið kemur frá Reykjalundi" segir Ari, sem finnst menn full linir gagnvart fjárvcitingarvaldinu. En hann lýkur lofsorði á starfs- fólk hjartadeildar á Landsspít- ala. Dimmuborgir Unnið að stígagerð Um þessar mundir er unn- ið að stígagerð í Dimmu- borgum í Mývatnssveit, til að vernda þar viðkvæman gróður og sjaldgæfar hraun- myndanir. Landgræðsla ríkisins vinnur að þessu verkefni í sam- vinnu við Samband íslenskra sparisjóða, sem styrkt hafa verkefnið með myndarlegum hætti. Hefur verkefnið m.a. beinst að því að binda allan lausan sand í Dimmuborgum og bæta aðstöðu þeirra 100 þús- und ferðamanna sem sækja svæðið heim árlega. -sbs.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.