Dagur - Tíminn Reykjavík - 18.07.1997, Page 6

Dagur - Tíminn Reykjavík - 18.07.1997, Page 6
6 - Föstudagur 18. júlí 1997 |Dagur-®nmm S Islendingar eru bjartsýnir og tækjaóðir, taka öruggt starf fram yfir góð laun, hafa dregið úr fituneyslu og vilja stórherða refsingar við skatta- lagabrotum. Þetta er meðal þess sem lesa má úr nýjustu neyslu- og hfsstílskönnun Gall- ups. Þetta er í fimmta sinn sem Gallup gerir svona könnun, en sambærilegar kannanir eru gerðar víðast í nágrannalönd- unum. Könnunin er mjög viða- mikil, úrtakið um 2000 manns á aldrinum 12 til 75 ára og spurt um allt milli himins og jarðar. Það er spurt um hvað fólk lesi í blöðum, hlusti á í út- varpi og horfi á í sjónvarpinu. Það er spurt um áhugamál og tómstundir og hvort fólk drekki mjólk eða appelsínusafa, kaffi eða te. Einnig er forvitnast um hvaða vörumerki fólk noti, hvort heldur í mat, eða drykk, heimilstækjum eða bflum. Valgerður Jóhannsdóttir skrifar Spurst er fyrir um aðstæður fólks, hvort það búi í einbýlis- húsi eða blokk, raðhúsi, eigi 1 eða fleiri bfla, og spurt um menntun þess, aldur, starf og tekjur. Ekki síst er spurt um viðhorf fólks til ýmissa mála. Það er spurt um skattamál, auglýsingar, umhverfisvernd, matar- og neysluvenjur og svona mætti lengi telja. Nýtist fyrirtækjum Könnun af þessu tagi er til margra hluta nytsamleg fyrir fyrirtæki sem eru að selja vörur eða þjónustu, eða aðra þá sem þurfa að koma skilaboðum og áróðri á framfæri. Það er eink- Notaðar tölvur 386.M86 og Pentium. Verð frá kr. 18.000. T#LVUTÆKI Furuvöllum 5 • Akureyri Sími 461 5000 bjaitsýnlsnienn um fyrirtæki sem kaupa upplýs- ingar úr neyslukönnuninni, en það er Gallup sem á frumkvæði að henni og starfsmenn þess semja spurningarnar. Fyrirtæki eða stofnanir hafa engin áhrif þar á og geta ekki keypt sér sérspurningar í neyslu- og lífs- háttakönnuninni, eins og í sum- um öðrum könmmum. Kristinn Ólafsson, viðskipta- fræðingur segir neyslukönnun- ina hafsjó af upplýsingum og með könnun af þesu tagi sé hægt að fylgjast með því hvern- ig neysla og _________________ viðhorf íslend- inga þróist. „Með þessari könnun geta menn skoðað og áttað sig á hvaða hópar það eru sem vara þeirra eða þjónusta höfðar til og til hverra þeir ná ekki. „Fyrirtæki vita vel hvað þau selja mikið af sinni vöru en mörg þeirra ... hafa ekki hug- mynd um hverjir eru að kaupa hana. Með neyslukönnuninni getum við greint manngerðirn- ar, sem fyrirtækin eru að ná til eða þurfa að ná tíl,“ segir Krist- inn. Hann nefnir pasta sem Það eru ekki þeir yngstu sem eru bjart- sýnastir heldur þeir sem eru á miðjum aldri. Um það bil 91- 92% fólks á aldrinum 32. ára til rúmlega sextugs segist vera frekar eða mjög bjartsýnt Skrifstofa Islandsflugs á Akureyrarflugvelli: 461 4050 Símbréf 461 4051 ÍSLANDSFIUB -gerir fleirum fsert að fljúga dæmi. „Könnunin sýnir að 12 tU 40 ára eru stórneytendur pasta, en eldra fólk notar mun minna af þessari vöru. Það eru ólík skilaboðin sem þarf að senda, eftir því hvort menn vUja viðhalda neyslu yngra fólksins eða koma þeim eldri á bragð- ið.“ Fróðleiksbrunnur um þjóðina En þótt hugmyndin á bak við könnunina sé einkum að afla upplýsinga fyr- :.-. . ir markaðinn, er hún einnig fróðleiks- brunnur um land og þjóð. Þar má tU dæmis sjá að það eru engar ýkjusögur að íslendingar séu tækjaglað- ir. Á 70% ís- lenskra heim- Ua er tU ör- bylgjuofn og er þetta hlutfaU ______________ óvíða í heimin- um hærra. Fleiri heimUi eiga myndbands- tæki eða nærri 83% og um það bil fjórðungur landsmanna á myndbandsupptökuvél. Þetta ræðst að sjálfsögðu mikið af tekjum manna. Þannig segjast 36% þeirra sem eru með yfir 400 þúsund krónur í heimUis- tekjur eiga myndbandsupptöku- vél en 17% þeirra sem eru með tekjur undir 100 þúsundum. ÁthygU vekur einnig að á ríf- lega þriðjungi íslenskra heim- Ua, eða 35,6%, eru 2 bflar. Um helmingur á einn bfl, en aðeins 7,4% aðspurðra segja engan bfl á heimUinu. Það er kannski engin furða þótt treglega hafi gengið að fjölga strætissvagna- farþegum. Á þremur af hverjum íjórum heimilum er til reiðhjól, en væntanlega er þar í flestum tU- feUum um að ræða krakkahjól. Þá kemur fram í könnuninni að 44,4 % fjölskyldna búa í einbýl- ishúsi, tæp 19% í raðhúsi og tæp 37% í fjölbýlishúsi. Hlut- fallslega flestir búa í einbýUs- húsi á Austurlandi, eða nærri 85%, og fæstir í Reykjavík eða 45%. Tæp 14% íslenskra fjöl- skyldna eiga sumarbústað. Bjartsýnismenn Það hefur margsinnis komið fram í könnunum að íslending- ar eru óskaplegir bjartsýnis- menn og nýja neyslukönnunin er engin undantekning þar á. Um 90% segjast frekar, eða mjög bjartsýnir. Því er löngum haldið fram að peningar geri menn ekki ---------- - ar kemur að yngsta aldurs- hópnum. Aðeins um 84% ung- menna á aldrinum 12 tU 21. árs eru mjög eða frekar bjartsýn. Öryggið á oddinn Nærri þrír af hverjum fjórum eða 72,4% aðspurðra í könnun Gallups segja að starfsöryggi sé þeim meira virði en góð laun. Ekki virðist mikU munur á við- horfum manna í þessum efnum eftir því hvaða tekjur þeir hafa, fyrr en þær eru komnar yfir fjögur hundruð þúsund á mán- uði. Þeir sem hafa 400 þúsund eða meira í tekjur skiptast nokkurn vegin í tvö horn, helm- ingurinn metin starfsöryggið meira en góðu launin sem þeir hafa og helmingur leggur meira upp úr feitu launaumslagi sínu en örygginu. hamingjusama, en samkvæmt Gallup könnun- inni virðast þeir með hærri tekjurnar ívið bjartsýnni, en þeir tekjulægri. Þannig segjast 82% þeirra sem eru með minna en 100 þúsund krónur á mánuði, vera frekar eða mjög bjartsýnir, á móti rúmlega 91%þeirra sem eru með 300- 350 þúsund á mán- uði. Athygli vekur einnig að það eru ekki þeir yngstu sem eru bjartsýnastir heldur þeir sem eru á miðjum aldri. Um það bil 91-92% fólks á aldrinum 32. ára til rúmlega sextugs segist vera frekar eða mjög bjartsýnn. Bjartsýnin virðist nokkuð dvína eftir sextugt, því 88% fólks á aldrinum 62. -71. árs segist mjög eða frekar bjartsýnt, en þetta hlutfall er enn lægra þeg- Mikill meirihluti er á því að refsingar fyrir auðgunarbrot, svo sem stórfellt skatta- misferli, ættu að vera harðari. Þeir sem hafa lægri tekjur eru Ifldegri til að setja örygg- ið á oddinn í atvinnumálum. Mikil meiri- hluti íslend- inga er á því að rétt sé að ______________ einkavæða op- inber fyrirtæki í meira mæli en gert hefur verið eða 70%. Mikill meirihluti er einnig á því að refsingar fyrir auðgunarbrot, svo sem stórfellt skattamisferh, ættu að vera harðari. Rúm 88% aðspurðra lýsa sig mjög eða frekar sam- mála því, en aðeins 3,5% eru því algerlega ósammála og rúm 8% frekar ósammála. Hér hefur aðeins verið stikl- að á stóru í þeim fróðleiks- brunni um landann, sem h'fs- háttakönnun Gallups er, en á næstu vikum mun Dagur Tím- inn birta frekari upplýsingar úr henni.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.