Dagur - Tíminn Reykjavík - 18.07.1997, Síða 9

Dagur - Tíminn Reykjavík - 18.07.1997, Síða 9
®agur-'2j«tröm ÞJÓÐMÁL Föstudagur 18. júlí 1997 - 9 Magnús M. Norðdahl formaður framkvæmda- stjórnar Alþýðuflokksins- Jafnaðarmannaflokks íslands, skrifar S Adögunum birtist í þessu ágæta blaði viðtal við Hrafn Jökulsson, rit- stjóra Mannlífs. Þar er forystu- sveit Alþýðuflokksins ekki sparaðar kveðjurnar. Sum um- mæla hans, m.a. um undirrit- aðan, eru þess kyns, að ekki eru svaraverð. Hins vegar myndast ritstjórinn við að fjalla um pólitík jafnaðar- manna og blandar þar inn hugleiðingum um sigur Verka- mannaflokksins á Bretlandi. Hann gagnrýnir Sighvat Björg- vinsson ótæpilega. Ber hann saman við Tony Blair og kemst að þeirri niðurstöðu að Sig- hvatur sé fulltrúi þeirrar for- tíðar sem Blair hafi ekið á haugana. Hvílík endaleysa. Halda mætti að ritstjórinn hefði dundað sér við eitthvað annað en að fylgjast með stjórnmálum síðustu árin. Þar sem ég veit, að stór hópur les- enda Dags-Tímans er einlægt jafnaðar-og samvinnufólk, verður í nokkru að veita sum- um ummælum ritstjórans and- svar og leiðrétta annað. Skoð- um brot af þeirri fortíð, sem breski Verkamannaflokkurinn hefur farið með á haugana að undanförnu. Kreppu- kommúnisminn Það sem Blair afrekaði var að losa Verkamannaflokkinn end- anlega úr þeim fjötrum, sem Alþýðuflokkurinn losaði sig úr fyrir löngu og Alþýðubandalag- ið er komið vel á veg með að gera. Eftir mikif átök innan Verkamannaflokksins hafði tekist að fjarlægja úr stefnu- skrá hans hefðbundnar yfirlýs- ingar um þjóðnýtingu í fram- leiðslu og þjónustu. Með því varðaði flokkurinn sér leið út úr hugmyndafræði kreppu- kommúnismans, sem fyrir löngu hafði gengið sér til húð- ar og átti ekkert erindi við breskan almenning. Fyrstu fjárlög Blairs sýna svo ekki verður um villst, að flokkurinn er kominn í hóp frjálslyndra og umbótasinnaðra systurflokka sinna í Evrópu. Þar er því trú- að, að langtíma velferð al- mennings verði best tryggð í opnu og umbótasinnuðu sam- félagi, sem hugsar jafnt um velferð almennings og hag at- vinnuveganna. íhaldssöm Evrópustefna Samhliða mótaði Verkamanna- flokkurinn sér nýja og jákvæð- ari stefnu gagnvart Evrópu- sambandinu. í því fólst viður- kenning á þeirri staðreynd, að Evrópusambandið hefur á síð- asta áratug þróast frá því að vera efnahagslegur hagsmuna- klúbbur yfir í það, sem upphaf- lega var áætlað þ.e. sam- band ríkja, sem tryggja frið og félagslega vel- ferð. Breskur almenn- ingur áttaði sig nefnilega á því undir stjórn íhalds- flokksins, sem á tæpum tveimur áratugum hefur rústað breskt velferðar- kerfi, að löggjöf Evrópu- sambandsins var bresk- um almenningi skjól með framsýnni og víðtækri fé- lagsmálalöggjöf sinni. Flokkurinn hefur því lát- ið af íhaldssamri and- stöðu sinni og íhalds- flokkurinn tekið við því hlutverki. Breskur al- menningur treystir nú forystu Verkamanna- flokksins til þess, að samræma íhaldssöm við- horf Breta gagnvart of nánum samruna Evr- ópuríkjanna við þá stað- reynd, að Evrópusam- bandið hefur fært og mun halda áfram að færa breskum almenn- Þeir sem ekki vilja með, hoppa sjálfviljugir af eins og nýleg dæmi sanna. Það ber að virða en hefur lítil áhrif ef menn reyna í leiðinni að vekja athygli á sjálf- um sér með sleggjudómum, ósannindum og hnífil- yrðum. ingi og breskum at- vinnuvogum ótvírætt hagræði á flestum svið- um. Úrelt flokks- skipulag Einnig og ef til vill ekki síður má þakka kosn- ingasigurinn umfangs- miklum og á stundum umdeildum skipulags- breytingum. Verka- mannaflokkurinn ein- setti sér fyrir nokkrum árum, að endur- skipuleggja sig. Losað var um bein tengsl flokks og verkalýðs- hreyfingar þó ekki væru þau tengsl rofin. Skipulag flokksins á landsvísu var stokkað upp þ.e. að aðalskrif- stofa flokksins fékk aukið vægi og festu var komið á fjármál hans. Það gekk ekki sárs- aukalaust fyrir sig. Á þeim árum, sem liðið hafa hef- ur starf flokksins blómstrað. Meira samræmi hefur verið í starfi og málflutningi en lengst af áður og nýir félagar gengið til liðs við flokkinn. M.a. vegna þessa, og þrátt fyrir umtalsvert minni fjárráð til auglýsinga og sérfræðiaðstoðar, tókst flokkn- um að hafa þann mikla sigur, sem raun varð á. Hér hefur einungis verið stiklað á stóru. Fleiri þættir réðu því, að Verkamannaflokk- urinn vann þann stóra sigur, sem raun varð á. Miklu skipti, að þrautpíndur breskur al- menningur var búinn að fá nóg af stjórn íhaldsflokksins og þeirri andfélagslegu og kær- leikslausu stefnu, sem hann hafði hrint í framkvæmd. Það sem ritstjórinn misskilur Eins og ljóst er af framan- sögðu, er nokkuð til í því þegar ritstjórinn segir Blair hafa ekið einhverri fortíð á haugana. Rit- stjórinn virðist bara ekki vita eða skilja hvaða fortíð það var og enn síður, að svipaðri fortíð ók Alþýðuflokkurinn á haug- ana fyrir löngu síðan. Það sama hafa jafnaðarmanna- flokkarnir víðast hvar í Evrópu gert. Blair hefur ekki fundið upp neina nýja jafnaðarstefnu. Hjóhð og jafnaðarstefnuna þarf nefninlega ekki að finna upp á nýtt, eins og sá góði krati Birg- ir Dýrfjörð segir stundum. Hún er pólitísk hugsjón og stjórn- tæki, sem meitlað hefur verið um aldur og æfi í stefnu jafn- aðarmanna með orðunum Frelsi, Jafnrétti og Bræðralag og mun leiða Evrópu inn í næstu öld. Með kosningasigri sínum sveiflaði Blair breska Verkamannallokknum inn í nútíðina og vaxandi hóp nú- tímalegra jafnaðarmanna í Evrópu. Þar hittir hann fyrir samherja sína og skoðana- bræður. í þeim hópi er Sighvat- ur Björgvinsson og ekki síður þeir Guðmundur Árni Stefáns- son og Össur Skarphéðinsson, sem verið hafa í framvarða- sveit Alþýðuflokksins um ára- bil. Sighvatur Björgvinsson og formenn hinna stjórnarand- stöðuflokkanna, leitast við að leiða saman fólk og samræma markmið fyrir næstu Alþingis- kosningar. Það starf gengur vel og sameiginlegu framboði er spáð meirihlutafylgi. Sú lest, ef svo má að orði komast, er farin af stað og býður allt félags- hyggjufólk velkomið. Þeir sem ekki vilja með hoppa sjálfvilj- ugir af eins og nýleg dæmi sanna. Það ber að virða en hef- ur lítil áhrif ef menn reyna í leiðinni að vekja athygli á sjálf- um sér með sleggjudómum, ósannindum og hnífilyrðum eins og raun varð á í því við- tali, sem vitnað er til í upphafi þessarar greinar. Slíkt ekur sér sjálft á haugana og er hluti þeirrar fortíðar sem þangað er löngu komin.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.