Dagur - Tíminn Reykjavík - 18.07.1997, Síða 11

Dagur - Tíminn Reykjavík - 18.07.1997, Síða 11
jDagur-SImTÍmt Föstudagur 18. júlí 1997 -11 Landsmót Opin mót Keppendurá milli tvö og þrjú hundruð Mér sýnist fjöldi kepp- enda verða á milli tvö til þrjú hundruð talsins. Nokkuð var um að það færist fyrir að þátttökutilkynningar væru hengdar upp í golfskálum og því fórum við þá leið að leyfa skráningu til morguns,“ sagði Sigurjón Arnarsson, mótsstjóri Landsmótsins sem sett verður að Korpúlfsstöðum á þriðjudag- inn. Um 270 kylfingar tóku þátt í Landsmótinu í fyrra í Vest- mannaeyjum og lfldega verður Qöldi keppenda svipaður í ár. Fyrirfram var vonast eftir meiri ljölda, en flölmennasta lands- mótið var haldið á Hellu fyrir tveimur árum, þegar 350 kylf- ingar mættu til leiks. Þátttökutilkynningar frá nokkrum af smærri klúbbunum á landsbyggðinni hafa borist og með þeim rúmlega hundrað kylíingum sem skráðir eru til leiks úr Golfklúbbi Reykjavík er tala keppenda um 170 talsins, þá eiga enn eftir að berast til- kynningar úr mörgum klúbb- um. Kylfingar hafa frest til að skila inn þátttökutilkynningum til klukkan 19 í kvöld. Um há- degisbilið í gær voru þrjátíu kylfingar skráðir til leiks hjá Keili og eitthvað færri hjá Golf- klúbbi Kópavogs og Garðabæj- ar, öðrum og þriðja stærstu klúbbum landsins. Landsmótið hefst á þriðju- daginn, þar sem keppt er í 2. og 3. flokki karla, en degi síðar hefja aðrir flokkar leik í Grafar- holtinu. Glæsileg verðlaun í Garðabænum Opna Aiwa-mótið var haldið á Vífilsstaðaveliinum í Garðabæ á laugardaginn. Um 120 keppendur tóku þátt í mót- inu og nærri lætur að þátttakendur hafi fengið mótsgjaldið ríflega borgað til baka, því veitt voru verðlaun sem metin voru á rúmlega 600 þúsund krónur, aðaliega hljómflutningstæki. Myndin er tekin eftir verðlaunaafhending- una. Aftari röð frá vinstri: Hans Kragh Júlíusson framkvæmdastjóri Radíóbæjar sem gaf verðlaun til mótsins, Böðvar Hermannsson (GSE), Kristján Kristjánsson (GSE), Jón Ágúst Ólafsson sem sigraði með forgjöf (GR), Ólaf- ur Már Sigurðsson (GK), Guðmundur Hjörleifsson (GK), Tryggvi Pétursson (GR), Helga Rut Svanbergsdóttir (GKJ), Inga Magnúsdóttir (GK), Unnur Sæmundsdóttir (GKG) og Einar Hafsteinsson (GKG). Fremri röð frá vinstri: Jón Hafsteinn Guðmundsson (GR), Svanþór Laxdal (GKG), Friðbjörn Oddsson (GK), Kjartan Kristjánsson (GKG), Júlí- us Júlíusson (GR) - ásamt syni og Birna Hannesdóttir (GKG). Á myndina vantar sigurvegarnn án forgjafar. Krist- inn G. Bjarnason úr GR lék völiinn á 70 höggum og bætti vallarmetið um eitt högg. Opna breska meistaramótiö Hitt & þetta TekstTigerað temja Troon? riðja stórmót ársins, Opna breska meistaramótið hófst í gær á Royal Troon vellin- um í Skotlandi í gær og því lýkur á sunnudaginn. Bandaríkjamað- urinn Tiger Woods er sem fyrr á toppnum hjá veðbönkum, þegar kemur að hugsanlegum sigur- vegurum. Galdurinn við að ná lágu skori á vellinum felst í því að ná „fuglum" á fyrri helmingi vallarins, sem talinn er mun létt- ari og reyna síðan að halda fengnum hlut á síðari m'u holun- um, sem margar hverjar spilast í mótvindi. Mikið hefur verið fjallað um möguleika einstakra kylfinga í fjölmiðlum og hér er neðan má sjá líkurnar sem breskur veðbanki gefur upp og fyrir neðan eru möguleikar kylf- inganna tíundaðir. 5-1 Tiger Woods, Bandar. Ef upphafshöggin verða eins og þau voru í Masters-keppninni, er Tiger til alls líklegur. Hann gæti hæglega farið inn á flatirn- ar á nokkrum par-4 holum á fyrri helmingi vallarins. Hann slær boltann að öllu jöfnu nokk- uð hátt og hann gæti þurft að breyta leikstíl sínum til muna, ef það fer að hvessa. 7-1 Greg Norman, Ástrah'u „Hákarhnn hefur ekki verið mikið í fréttum, ef undanskilinn eru kaup hans á Boeing 737 þotu. Hann tapaði í bráðabana á Troon fyrir átta árum. Hann lenti í niðurskurðinum bæði á Masters og Opna bandaríska, en hefur átt lag til að spila vel á Opna breska. 10-1 Nick Faldo, Englandi Hann hefur komist í gegn um niðurskurðinn á „Opna breska", nítján ár í röð, þar af hefur hann í 17 skipti verið á meðal 20 efstu. Hefur ekki spilað vel síðan á „Masters" í apríl, en með sigri kemst hann í flokk með Bobby Jones, Harry Vardon, Gene Sarazen og fleirum sem unnið hafa sjö sinnum á stórmótum. 12-1 Ernie Els, S-Afríku Hefur verið að spila mjög vel, frá því hann sigraði á Opna bandaríska mótinu í síðasta mánuði. Ilefur yfirleitt átt góðu gengi að fagna á Opna breska. 12-1 Nick Price, Zimbabwe Fyrsta stórmót hans eftir lát kylfusveinsins, Jeff „Squeeky" Medlem. Hann hefur sagst vilja heiðra minningu hans með sigri. Hann sigraði á Opna breska fyrir þremur árum og er þekktur fyrir að Iáta ekki slæmt veður hafa áhrif á sig. Hefur átt við meiðsl að stríða í öxl og það gæti dregið úr möguleikjum hans. 15-1 Tom Lehman, Bandar. Lehman hefur titil að verja og hann sýndi það á Loch Lomond vellinum um síðustu helgi að hann er í hörkuformi. Líklegur Miklar breytingar hafa verið gerðar á Grafar- holtsvellinum að und- anförnu. Helsta breytingin er sú að vallarstarfsmenn hafa verið sparari á ljáinn heldur en áður, allar brautir eru mun þrengri og röffið utan brauta er hærra. Þá hefur klúbbteigurinn á 8. holu verið færður aftur, - inn í Djúpadal, og holan verður því mun erfiðari fyrir 1. flokk karla á Landsmótinu. Tiger Woods. til að blanda sér í toppbarátt- una, eins og hann gerði á Opna bandaríska mótinu í síðasta mánuði. 15-1 Colin Montgomerie, Skotl. Enginn keppanda þekkir „Tro- on-völlinn“ betur enn Montg- omerie, en faðir hans hefur starfað hjá klúbbnum í mörg ár. Montgomerie hefur verið þekkt- ur fyrir að slá boltann frá vinstri til hægri, en óvíst er hve vel það hentar honum þar sem búast má við vindasömu móti. 18-1 Fred Couples, Bandar. 18-1 Steve Elkington, Ástralíu 20-1 Jose-Marie Olazabal, Spáni. Breytingarnar á umhirðu vallarins, kalla á nýtt vallar- mat, líklega mun vallarmatið í Grafarholtinu sem nú er um 124, hækka til muna og vægið um 1-2 högg, en það ætti að liggja fyrir nú um helgina, - fyr- ir æfingadagana fyrir Lands- mótið. Ákveðið hefur verið að völlurinn verði hirtur á svipað- an hátt eftir Landsmót og hinn „nýi“ Grafarholtsvöllur er því kominn til að vera. Vægi & vailarmet Nýtt mat á Grafarholtinu Golfveisla á sjónvarpsskjánum íslenskir kylfmgar hafa oft kvartað yfir því hve lítið er sýnt af golfi hjá Ríkissjónvarpinu og Stöð 2, en þeir geta ekki kvartað mikið þessa dag- ana þar sem Ríkissjónvarpið býður upp á 24 klukkustunda golfveislu þar sem golfþættir verða á skjánum, tólf daga í röð. Hátíðin hófst í fyrrakvöld með þætti um Opna breska meistaramótið, en umfjöllunin um mótið spannar nítján klukkustundir, þar af verður sýnt í mótinu í sex tíma á morgun og sunnudag. Á mánudaginn verður sýnt frá ein- vígi, margra af bestu kylfingum landsins á Nesvellinum, sem fram fer fyrr um daginn. Á þriðjudaginn hefst síðan umfjöllun frá Landsmótinu í golfi í Grafarholtinu og á Korpúlfsstöðum. Sýnt verður að jafnaði frá mótinu í 40 mínútur frá þriðjudegi til sunnudags. Fækkun í opnum mótum Forráðamenn stærri golfklúbba hafa orðið varir við nokkra fækkun keppenda á opnum mótum í sumar. Talið er að fækkunin nemi að minnsta kosti 20 prósentum á milli ára. Erfitt er að gera sér grein fyrir því af hverju fækkunin stafar, sérstaklega þar sem kylfingum sem hafa forgjöf til að leika í opnum mótum fjölgar með ári hverju. Veðrátta, ástand valla og aukið framboð á ýmis konar fyrirtækjamótum kann að vera hluti af skýringunni. Mörg vegleg opin mót voru haldin um síð- ustu helgi og þátttakan í þeim var nokkuð misjöfn. Keppendur voru um 120 talsins á Opna Aiwa mótinu í Garðabæ og á Póst og Símamót- inu í Grafarholti voru keppendur 95 talsins. Um 90 keppendur tóku þátt í Volcano open, alþjóðlegu móti í Vestmannaeyjum og sögðust mótshaldarar þar, vera ánægðir með þá þátttöku. Þá var metþátttaka á Fyrirtækjamóti GSÍ á Hellu, sl. föstudag þar sem 77 sveitir mættu til leiks. Samvinnuherðir Land&ýn hehur um lanst örabil boðið Slœ&ilesar solhherðir um heim allan. Við ikipulessjum Solfherðir til Spdnar os Matlorca og óameínum jahnvel solh og óiglingu! Allir Jarþegar okkar í solhherðum gefa gengid i Solhherðaklúbbinn &em veitir þdtttökurétt d hið vin&œta Sprensjumót a Hellu &em haldið verður 4. dgúót. Saiuviimulerúir Lantisýu M l{ • L W1111 • Mf ni« Ht IK ftto »41 • t M1171 • 1. M nn • MNIM !M ItaHlMr. M • L M11» • StaMI K U» fttaniB 8 • l ci m • ftrti ci m m Mnfc 1 • t «11» • mi 011 ik l m im • stak« «1 itt fcmmtr. kmm a • 1. «t \m •uémwvk m 7 • t «1 m • Mrta «1 m • bm uÉtummm m m

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.