Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.09.1997, Side 6

Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.09.1997, Side 6
18 - Föstudagur 5. september 1997 4Dagur-®ímmn •• 1 LIF FJOR ...haustinu og fegurð þess í náttúrunni: réttir heíjast senn, berin eru þroskuð, sjó- birtingar í ám, og nú dýpka skuggar og andstæður ljóss og lita skerpast þar sem gengið er um völl. Njótið náttúrunnar! segir Dagur-Tíminn (en ef veðurspáin er algjörlega afleit mælum við með rólegu matarboði með nánum vinum á laugar- dagskvöld). Lu Hong í Gallerí Fold Kínverska listakonan Lu Hong opnar á laugardag sýningu á verkum sínum í baksal GaJleris Foldar við Rauðarárstíg. Sýninguna nefnir listakonan Fjöll - þoka - hestar. Lu Hong, sem búsett hefur verið hér á landi frá 1990, notar eingöngu hefð- bundin kínversk verkfæri og efni við list- sköpun sína. Penslarnir eru handgerðir úr geitarhári. Liturinn er kínverskt blek sem hún blandar sjálf eftir aldagömlum hefðum. Pappírinn er handgerður og un- inn úr bambus eftir 2000 ára hefð. Þrjár listakonur í Gerðarsafni Þrjár listakonur sýna um þessar mundir i Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni. Kristín Jónsdóttir sýnir pappírsverk þar sem íslensk örnefni eru skrifuð í runu með blýanti og bleki. Einnig sýnir hún stóra skúlptúra úr ull, plexigleri og fleiri efnum. Minningin er kjarninn í verkum Málfríðar Aðalsteinsdóttur. í þeim stílfærir hún iðulega form úr íslensku landslagi, fjöll, hraun og önnur náttúrufyrirbæri. Þriðja listakonan er Ragna Ingimundardóttir sem sýnir stóra, litríka vasa og mósaíkborð. Sýningu listakvennanna lýkur sunnudaginn 21. september. |Dagur-<3Itmmn Hrukkurnar burt, takk To hell with all of us Laugardaginn 6: september kl. 21 verður opnuð sýningin „To hell with all of us“ í International Gallery of Snorri Ásmunösson á Akureyri. Margir reglulega huggulegir listamenn taka þátt og eru flestir búsettir í Bandaríkjunum en eru vinir Akureyrar. Má.-þar nefna Snorra, eiganda gallerisins og Bruce Conkle. Af fleiri (slandsvinum má nefna Aimee Simmons sem fæddist á herstöðinni á Keflavíkurflugvelli fyrir 27 árum síðan. Lengi framan af bar hún íslendingum ekki góða söguna enda voru herstöðvar- andstæðingar oft mjög tillitslausir gagnvart börnum hermanna og hreyttu gjarna í þau ónotum. Svo lauk kalda stríðinu. Aimee kynntist nokkrum hressum Akureyringum og síðan hefur slefið ekki slitnað á milli dátadótturinnar og klakans. Að lokum má nefna Ryan nokkurn Drew Mellon sem var hand- tekinn berrassaður á Þingvöllum hérna um árið. Alls eiga 21 listamenn frá hinum ýmsu löndum, borgum og bæj- um verk á sýningunni og ættu því allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Ekki síst þeir sem hafa áhuga á hverskyns helvítum. Sýningin stendur til 19. september. mælir með Sýning barnanna í Gerðubergi í Menningarmiðstöðinni Gerðu- bergi verður opnuð á laugardag- inn Ijósmyndasýning af listsköpun barna frá Noregi, Svíþjóð, Dan- mörku, Finnlandi og íslandi. Börnin hafa öll unnið með náttúr- una hvert í sínu heimalandi. Vinnuferlið varJjósmyndað og skráð og er afraksturinn farand- sýning sem farið hefur um öll Norðurlönd. Framlag íslands á sýningunni er frá námskeiði í Listasmiðju barna í Gerðubergi frá sumrinu 1996. Námskeiðið fékk heitið „Að skapa í og með náttúrunni“. Auk þess lögðu leikskólabörn á Kjalarnesi til vinnu. Börn eru sérstaklega veikomin á opnun sýningarinnar og þar gefst þeim kostur á að skapa listaverk í umhverfi Gerðubergs. ...að ef þornar fari menn í sveppatínslu. Gnægð er af sveppunum í Vaðlareitnum rétt við Akur- eyri og eru stóru og girnilegu lerkisveppirnir sem þar spretta óðfluga algjört lostæti. ...að fólk sofi út um helgina. ...að íslending- ar sýni prins- essu fólksins virðingu og þakklæti og íylgist með beinni sjón- varpsútsend- ingu frá útför hennar á laug- ardagsmorgun. Seinna um daginn væri vel við hæfi að leggja blóm á flöt breska sendiráðsins. WWW.ISLANDIA.IS/ARGENTINA/ Nú þarf fólk á andlits- hrukkustiginu ekki leng- ur á svokallaðri andlits- lyftingu á að halda. Nú er ein- faldlega skipt um andlit með leysigeislaskurðaðgerð. Alla- vega er þetta framkvæmt á afar einfaldan hátt í kvikmyndinni Face Off, þar sem stórleikar- arnir John Travolta og Nicholas Cage fara á kostum. Eg vona að enginn verði sár yíir að ég skuli ljóstra uppi aðal efnisþætti myndarinnar hér og nú. Mynd- ina sá ég að sjálfsögðu klukkan ellefu í Borgarbíói á Akureyri sl. mánudag. Kæru lesendur, (eða er það bara lesandi?) myndin var frábær skemmtun þrátt fyrir þessa fyrrnefndu óhugnanlegu hugmynd um and- litshúðarskiptingaraðgerð ef svo má kalla, en hugmyndin er mjög frumleg. Hver myndi ekki vilja skipta um andlit í smá tíma eins og John Travolta gerði í myndinni til að bjarga „andliti" Los Angeles-borgar? Pað eru ýmis þjóðkunn andlit sem koma upp í huga mér eins og... nei, nei. Eins og áður sagði léku þeir félagar Travolta og Cage hreint afbragðs vel, ótrúlega vaxandi leikarar með hverri mynd. Söguþráðinn tók mig smátíma að samþykkja, en sættist á hann vegna frumleika. Tónlistin var einkar skemmtileg og féll hún vel að hraða mynd- arinnar. Áhættuatriðin voru mörg hver afar hættuleg (hvað veit ég hvað er hættulegt og hvað ekki?). En þau voru vel gerð. Var myndin of löng? Þið verðið sjálf að dæma um það. Ég er ekki frá því að hún sé að- eins of löng. En hvað með það, hún fær þrjár og hálfa stjörnu. Ég sá einnig myndina Bull- etproof í vikunni. Það er ekki svo að mér hafi leiðst þessa vik- una. Það er bara svo góð skemmtun að fara í kvikmynda- hús. Eitthvað um Bulletproof. Ágætis afþreying. Ekki frá því að Beverly Cops-húmor væri reyndur (sá húmor var orðin býsna þreyttur). Aðalleikararn- ir Adam Sandler og Damon Wayans sluppu þokkalega frá sínu og kitluðu þeir mínar hlát- urtaugar nokkuð oft verð ég að viðurkenna. Viðurkenna, þetta gengur allt út á það. Sem sagt, tvær stjörnur. Þannig að ég átti ágætis bíó- viku en langar svona rétt í lokin (ofnotað, rétt í lokin) að koma ábendingu til þeirra Borgar- bíósmanna að fjöldi fólks sakn- ar sjösýninga. Dauður tími hjá mörgum áður en haldið er heim á leið úr vinnu. Hvað er þá betra en að sjá eina góða mynd? HELGIN FRAMUNDAN ^ HVAÐ ER I BO

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.