Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.09.1997, Síða 7
JDagur-tDrtmm
Föstudagur 5. september 1997 -19
LIF
FJOR
HVAÐ ER I BOÐI?
NORDURLAND
Gallerí +
Hollenski listamaðurinn Stan Ronken
er með sýningu í Gallerí + á Akureyri.
Um er að ræða þrjú málverk máluð
beint á vegginn og innsetningu. Sýn-
ingunni lýkur klukkan 18:00 á sunnu-
dag.
Elli á Kaffi Karólínu
Erlingur Jón Valgarðsson (Elli) opnar
myndlistarsýningu á Kaffi Karólínu
laugardaginn 6. september klukkan
14:00. Öll verkin eru unnin á þessu
ári en alls eru sjö verk á sýningunni
sem unnin eru í akríl og grjót. Erling-
ur stundaði listnám á íslandi og Sví-
þjóð og hefur tekið þátt í samsýning-
um hér heima og í Svíþjóð, auk
tveggja einkasýninga í Deiglunni
1995 og 1996. Engin boðskort verða
send út en allir eru að sjálfsögðu vel-
komnir.
Ferðafélagar í Svarfaðardal
Laugardaginn 6. september gengst
Ferðafélag Svarfdæla fyrir vinnuferð
yfir Reykjaheiði milli Ólafsfjarðar og
Dalvíkur, ætlunin er að ganga milli
byggða frá Reykjum í Ólafsfirði upp
Heiðardal yfir í Böggvistaðadal ofan
Dalvíkur og endurhlaða í leiðinni
vörður á þessari gömlu þjóðbraut og
póstleið.
Ferðafélagar munu leggja af stað frá
Dalvík klukkan 10 á laugardags-
morguninn, þeir fara frá Shell-stöð-
inni.
Kaffi Akureyri um helgina
Á föstudagskvöld sjá þau Sigga
Beinteins og Grétar Örvarsson um
fjörið.
Á laugardagskvöld sér Pétur Guð-
jóns um dans og diskótónlistina frá
árunum 1975-1985, í bland við ís-
lenska stuðsmelli.
Frá Ferðafélagi Akureyrar
Laugardaginn 6. september verður
gegnið á Kaldbak. Kaldbakur er
hæsta fjall við utanverðan Eyjafjörð
að austan, upp af innanverðri Látra-
strönd.
Sunnudaginn 7. september verður
farið í Seljahjallagil í Mývatnssveit.
Brottför kl. 09:00. Upplýsingar og
skráning á skrifsstofu félagsins að
Strandgötu 23, sími 462 2720.
Flóamarkaöur
verður á Hjálpræðishernum,
Hvannavöllum 10 á föstudaginn
klukkan 10-17. í boði er gott úrval af
fatnaði á vægu verði.
HÖFUÐBORGARSVÆDIÐ
Fundur esperantista
Esperantistafélagið Auroro heldur
fund að Skólavörðustíg 6b kl. 20.30 í
kvöld. Rætt verður um námskeið og
vetrarstarfið almennt. Kynnt verður
nýtt leikritasafn eftir króatíska höf-
unda og málhornið skipar sinn sess í
dagskránni.
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Leikfimi í Víkingsheimilinu, Stjörnu-
gróf, verður í vetur á þriðjudögum og
föstudögum kl. 10.50 byrjar í dag 5.
sept. Danskennsla verður í Risinu á
fimmtudögum kl. 20.30 í september.
Kolfinna Sigurvinsdóttir kennir kú-
rekadans (línudans).
Gönguferð og staðarskoðun
í Viöey
Framundan er næstsíðasta útivistar-
helgin í Viðey á þessu sumri. Að
venju verður gönguferð á laugardag
kl. 14.15 og síðan staðarskoðun
heima fyrir eftir hádegi á sunnudag.
Bátsferðir út í Viðey hefjast kl. 13
báða dagana og verða á klukku-
stundarfresti til kl. 17, en í land aftur
á hálfa tímanum til kl. 17.30.
Ljósmyndasýningin í Viðeyjarskóla er
nú aðeins opin fyrir hópa sem panta
fyrirfram en Hestaleigan i Laxnesi er
að störfum. Veitingahúsið í Viðeyjar-
stofu er opið frá kl. 14.
Frá Nýlistasafninu
Laugardaginn 6. sept. kl. 15 verða
opnaðar fimm sýningar í Nýlistasafn-
inu við Vatnsstíg 3B í Reykjavík. I
neðri sölum sýna Olga Bergmann og
Anna Hallin frá Svíþjóð. Hafdís
Helgadóttir sýnir í Bjarta og Svarta
sal og í Súmsal sýna Nikolaj Pavlov
og Yuri Spiridonov frá Jakútíu. Arnar
Herbertsson er gestur safnsins í
Setustofunni.
Elvis fyrir börnin
Á sunnudag kl. 14 hefjast að nýju
kvikmyndasýningar fyrir börn í Nor-
ræna húsinu. Að þessu sinni verð-
ur sýnd sænska myndin Bvis! El-
vis! sem er gerð eftir sögu Maríu
Gripe. Elvis er sex ára og verður
bráðum sjö. Hann er skírður í höf-
uðið á átrúnaðargoði og hetju
móður hans, Elvis Presley. Elvis er
ósköp venjulegur strákur og tekur
upp á ýmsum skemmtilegum hlut-
um ásamt vinkonu sinni henni
Önnu Rósu. Myndin segir frá æv-
intýrum þeirra og samskiptum við
fullorðna fólkið. Myndin er með
sænsku tali. Aðgangur er ókeypis.
Síðdegistónleikar Hins
hússins
Síðdegistónleikarnir hefjast að nýju í
dag eftir mánaðarfrí. Þeir verða
framvegis haldnir á Geysi Kakóbar
sem er nýtt kaffihús i Hinu húsinu.
Kolrassa krókríðandi spilar á þess-
um fyrstu tónleikum vetrarins, sem
hefjast stundvíslega klukkan 17.
Gleðisöngleikur Prinsessan
Gleðisöngleikurinn Prinsessan er
samstarfsverkefni leikfélagsins Reg-
ínu og Sniglabandsins og fjallar á
gamansaman hátt í tali, tónum og
myndskeiðum um dag einn í lífi kon-
ungsfjölskyldu I litlu og óþekktu kon-
ungsríki. Prinsessan á 21 ára afmæli
og konungur hefur látið þau boð út
ganga að öllum sé frjálst að berjast
um hver hlýtur prinsessuna og hálft
konungsríki með. Það eru ellefu leik-
arar og dansarar sem taka þátt í
sýningunni og Sniglabandið sér um
tónlistina.
Mendelsohns og Brahms
minnst
Næstkomandi sunnudagskvöld kl.
20.30 verða tónleikar í Listasafni
Kópavogs þar sem Rannveig Fríða
Bragadóttir mezzósópran og Jónas
Ingimundarson píanóleikari flytja fjöl-
breytta efnisskrá, m.a. lög eftir Felix
Mendelsohn og Joh. Brahms og
minnast þess með því 150 ára af-
mælis Mendelsohns og 100 ára ár-
tíðar Brahms. Auk þess flytja þau
nokkrar alþekktar perlur íslenskra
sönglaga og þrjú lög eftir Victor Ur-
bancic. Einnig mun Gunnar Kvaran
sellóleikari flytja með þeim Rann-
veigu og Jónasi lög eftir frönsku
meistarana J. Massenet og H.
Berlioz.
Djass í Tjarnarbíói
Sunnudaginn 7. september munu
þeir Skúli Sverrisson og Hilmar
Jensson halda tónleika í Tjarnarbiói
við Tjarnargötu. Á efnisskránni verð-
ur efni sem þeir félagar hafa verið að
taka upp og hyggjast gefa út. Tón-
leikarnir verða og hljóðritaðir.
Þó svo þeir félagar hafi starfað sam-
an um árabil þá er þetta einungis í
annað skiptið sem þeir koma fram
saman í dúó-formi. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 20.30 og aðgangseyrir er
1000 kr.
Myndlistasýning á Lóu-
hreiörinu
Ólafur Sveinsson, myndlistarmaður,
opnar sýningu á verkum sínum á
Kaffistofunni Lóuhreiðrinu Kjörgarði
Laugavegi 59. Á sýningunni verða
tréristur og einþrykk.
Ólafur hefur áður haldið einkasýn-
ingar hérlendis og tekið þátt í sam-
sýningum bæði hérlendis og í Dan-
mörku. Sýningin verður opin frá 8.
september og út septembermánuð á
opnunartíma Lóuhreiðursins.
LANDIÐ
Ljóöatónleikar Margrétar
Bóasdóttur
Margrét Bóasdóttir sópran og Ulrich
Eisenlohr píanó flytja Ijóðatónleika í
Reykholtskirkju, Borgarfirði í kvöld
kl. 21. Efnisskrá þeirra er að mestu
sú sama og á tónleikum þeirra fyrr á
árinu, í ýmsum borgum Þýskalands;
íslenskar þjóðlagaútsetningar eftir
Fjölni Stefánsson, Ijóðasöngvar eftir
Franz Schubert, Jórunni Viðar, Ed-
vard Grieg, Jónas Tómasson og Jón
Hlöðver Áskelsson.
Þau verða einnig með tónleika á
vegum Tónlistarfélags Akureyrar í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju
sunnudaginn 7. september kl. 20.30;
á vegum Tónlistarfélags ísafjarðar í
Sal Frímúrara á Isafirði þriðjudaginn
9. sept. kl. 20.30; og í Gerðarsafni í
Kópavogi sunnudaginn 14. sept. kl.
20.30.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Stóra sviðið kl. 20
ÞRJÁR SYSTUR eftir Anton Tsjekhof
Þýðing: Ingibjörg Haraldsdóttir
Lýsing: Páll Ragnarsson
Leikmynd og búningar: Vytautas
Narbutas
Tónlist: Faustas Latenas
Leikstjórn: Rimas Tuminas
Leikarar: Steinunn Ólína Þor-
steinsdóttir, Halldóra Björnsdótt-
ir, Edda Arnljótsdóttir, Arnar
Jónsson, Guðrún Gísladóttir,
Baltasar Kormákur, Gunnar Eyj-
ólfsson, Ingvar E. Sigurðsson,
Hilmir Snær Guðnason, Sigurður
Skúlason, Randver Þorláksson,
Stefán Jónsson, Guðrún Steph-
ensen, Sigurður Sigurjónsson.
Frumsýning föd. 19/9 kl. 20,2.
sýn. Id. 20/9,3. sýn. sud. 21/9,4.
sýn. fid. 25/9,5. sýn. sud. 28/9.
Sala og endurnýjun áskriftakorta er
hafin.
Innifalið í áskriftarkortl eru 6 sýningar.
5 sýningar á Stóra sviðinu:
ÞRJÁR SYSTUR -
Anton Tsjekhof
GRANDAVEGUR 7 -
Vigdís Grímsdóttir
HAMLET -
William Shakespeare
ÓSKASTJARNAN-
Birgir Sigurðsson
KRÍTARHRINGURINN í KÁKASUS -
Bertholt Brecht
1 eftirtalinna sýninga að eigin vali:
LISTAVERKIÐ -
Yazmina Reza
KRABBASVALIRNAR -
Marianne Goldman
POPPKORN-
Ben Elton
VORKVÖLD MEÐ KRÓKÓDÍLUM -
Hallgrímur H. Helgason
GAMANSAMI HARMLEIKURINN -
Eve Bonfati og Yves Hunstad
KAFFI -
Bjarni Jónsson
MEIRIGAURAGANGUR -
Ólafur Haukur Símonarson
Almennt verð áskriftarkorta kr. 8.220,-
Eldri borgarar og öryrkjar kr. 6.600,-
Miðasalan er opin alla daga í
september frá kl. 13-20.
Einnig er tekið á móti símapönt-
unum frá kl. 10 virka daga.
Pakkinit á
N herji b ur n
takmarka magn af s riega ^
v ndu um Tulip dt 5-lBB marg-
mi lunart lvum, Umax PageOffice
litask nnum og Canon BJC 240
litprenturum pakkatílbo i
sem s r enga hli st u.
Örgjörvi: Pentium 166 MHz
Vinniluminni: 32 MS EDD
m auka 128 MQ
Skyndiminni: 856K L2
Skjáminni: 2 MB
Harðdiskur: 1,6 GB
Tangirauiar: PCI/ISA
Tangill: Universal SerialBus
Skjar: Tulip 15" XVGA
Skjáupplausn: 1280x1024
Gaisladrii: Innbyggt 24x
Hljóðknrt: Soundblaster AWE
64
Hátai#ra|: 24[p -IL'
computers
- Verslun -
Skaftahl 24 ¥ S mi 569 77D0
http://www.nyherji.is