Dagur - Tíminn Reykjavík - 19.09.1997, Blaðsíða 12

Dagur - Tíminn Reykjavík - 19.09.1997, Blaðsíða 12
llagur-ÍCfiinmi Föstudagur 19. september 1997 Venjulegir og demantsskomir trúlofunarhringar GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI - SlMI 462 3524 Aðalbjörn Sigurlaugsson á Blíðfara frá Olafsfirði er hvorki ánægður með aflabrögðin né árangur Leifturs á knattspyrnu- vellinum, en hann lætur engan leik fram hjá sér fara. Eitt af stuðningsmannafélögum Leift- urs er stofnað á kaffistofunni f verbúð Aðalbjörns og dregur nafn sitt af henni, Veðdeild Blíðfara. Þar hittast menn fyrir leiki og peppa hvern annan upp. Myndir: -GS. Sigurður Jónsson var staddur á Ráðhústorginu á Siglufirði og tók þar menn óspart tali. Og Sigurður kann umferðarreglurnar og virti biðskylduregluna. Reykingapásur eru alveg bráðnausynlegar, líka hjá starfsfólki rækjuverksmiðju Þor- móðs ramma-Sæbergs á Siglufirði. Konurnar leituðu skjóls bak við brettastafla, bæði fyrir norðanáttinni og vökulu auga Ijósmyndarans. 'IWsjtL Á TröUask Það er marglitt mannlíf í kaupstöðunum á Tröllaskaga. Stundum er sagt að mannlífið dragi nokkurn dám af landslaginu og óvíða er landslag fjölbreyttara og hrikalegra en á skaga þessum sem afmarkast af Skagafirði í vestri en Eyjafirði í austri. Ósagt skal hinsveg- ar látið hvort mannlífið á Siglufirði og í Ólafs- firði er með þeim hœtti, að minnsta kosti virt- ist svo ekki vera þegar Ijósmyndari Dags-Tím- ans var þar áferðinni. Hjólað með hund í Ólafsfirði.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.