Dagur - Tíminn Reykjavík - 01.10.1997, Síða 7

Dagur - Tíminn Reykjavík - 01.10.1997, Síða 7
T jDagur-tnútmm fóllcið Miðvikudagur 1. október 1997 - 19 Lifandi barbí-dúkkur Fegurðarsam- keppnir stúlkna njóta vaxandi vin- sœlda í Bandaríkj- unum, enda þykir fallegt barn vera vænleg söluvara. Um jólaleytið í fyrra fannst lík hinnar sex ára gömlu JoBenet Ramsey í húsi foreldra hennar í Boulder í Colorado. Fljótlega vöknuðu grunsemdir um að foreldrar hennar hefðu myrt hana til að hafa greiðan aðgang að þeim miklu íjármunum sem hún hafði unnið í fegurðarsam- keppnum víðs vegar um Bandaríkin. Foreldrarnir neita allri sök og hafa ráðið einká- spæjara til að leysa morðgát- una. Hftir margra mánaða rannsókn eru lögregluyfirvöld engu nær en myndir af hinni undurfallegu JoBenet prýða enn forsíður slúðurblaða í Bandaríkjunum. En það er eins og hörmuleg örlög lítillar fegurðardísar hafi í engu breytt viðhorfum banda- rísks almennings til fegurðar- samkeppna stúlkna sem aldrei hafa notið meiri vinsælda en einmitt nú. Myndirnar á þessari síðu eru frá einni slíkri, nánar tiltekið í Atlanta, Georgiu. Þátt- takendur eru allt frá nokkurra mánaða gömlum börnum til táninga. Barnslegt sakleysi er víðs fjarri þegar lítilli stúlku er breytt í heimskonu. þessari ungu tátu og hefur byggt sérstakt þjálfunarherbergi í ein- býhshúsi íjölskyldunar þar sem Jessica er þjálfuð í öUum þeim kúnstum og reglum sem ung stúlka þarf að tiloinka sér til að geta viðhaldið yndisþokka sínum og heiUandi framkomu. Þjálfunin dugir ekki sem skyldi í þessari kepprú því Jessica kemst ekki í verðlaunasæti. Skömmu íyrir úr- sUtin hafði móðir Jessicu sagt blaðamönnum að aðalatriði keppninnar væri að börnin hefðu ánægju af henni. Hún er lúns vegar foxill þegar úrslit eru kynnt og leitar skýringa hjá dómru'um. Þetta eru ekki barbí-dúkkur heldur fjögurra ára stúlkur sem bíða þess að Of mikið lakk dómarar skeri úr um hver þeirra sé fegurst. „Við leggjum aðaláherslu á Mikayla Boswell vann keppni þriggja ára stúlkna og fékk 750.000 krónur í verðlaun. Ekki þykir annað hæfa en að þriggja ára fegurðardrottning fagni sigrinu með því að drekka úr kampavínglasi meðan hún er keyrð í glæsibifreið. Þroska viðhorf til karlmanna Samkeppnin er gífurlega hörð og móðir hinnar fimm ára gömlu Brittany er ekki viss um að dóttir sín eigi möguleika á verðlaunum. Brittany hefur tek- ið þátt í fegurðarsamkeppnum allt frá íjögurra mánaða aldri og útgjöld vegna þessa kosta ijölskylduna um þrjár milljónir króna á ári. Móðir Brittany og amma fullyrða að þátttakan geri barninu gott. „Stúlkan öðl- ast sjálfstraust, lærir góða framkomu og þróar með sér heilbrigt viðhorf til karlmanna,“ segja þær. Brittany er ekki einungis ætl- að að vera sæt, hún á einnig að sýna hæfileika. Þeir felast í því að syngja mátulega falskt söng úr Kabarett meðan hún sveigir mjaðmirnar eins og þaulvan- asta Las Vegas fatafella. Jessica litla er meðal þátttak- enda. Hún hóf feril smn í fegurð- arsamkeppnum fjögurra mán- aða gömiú. Nú er hún 17 mán- aða en getur státað af því að hafa unnið til 150 verðlaunaútla. Móðir hennar er afar stolt af andlitsfegurð og aðlaðandi per- sónuleika," svara þeir. „En Jessica var sú eina sem hafði vott af persónuleika," svarar móðirin. „Of mikið hárlakk," segir einn dómaranna. „Við notum ekki hárlakk," hrópar móðirin. „Dóttir þín er fullkomin, „segir annar dómari róandi. „Fullkomin.“ Móðir Mikaylu Boswell er öllu ánægðari enda vann dóttir hennar keppni þriggja ára stúlkna og er 750.000 krónum ríkari. Mikayla hefur þegar tek- ið þátt í rúmlega tuttugu feg- urðarsamkeppnum og móðir hennar sér fram á bjarta tíma. Móðir Brittany litlu er von- svikin fyrir hönd dóttur siimar sem hreppti engin verðlaun enda hlaut hún refsistig fyrir ósmekk- lega hárgreiðslu. Móðursystir Brittay er viðstödd keppmna. „Líf systur minnar snýst einungis um fegurðarsamkeppnir sem hún getur sent dóttur sína í,“ segir hún. „Þetta er brjálæði. Ég ætla bara að eignast stráka." fréttir PlRT ÁM ABYRGÐAR Ekki nógu hraðskreið Póstkona nokkur í White Plains, NY, hefur verið rekin eftir 18 ára dygga þjónustu vegna þess að hún er of skrefstutt. Martha Cherry, sem er 49 ára gömul, var undir eftirliti við daglegan útburð og þar kom í ljós að hún steig 66 skref á núnútu, en skreflengdin var minni en eitt fet. Athugasemdin hljóðaði á þann veg að vegna þessa væri hún að jafnaði 13 mín. lengur en þyrfti að skila af sér póstin- um í hverfið. Viðskiptavinir hennar eru hreint ekki sammála þessari ákvörðun og hafa sent mót- mælabréf til yfirmanna pósts- ins. í einu þeirra segir að „só hraði mikilvægari en notaleg og þægileg þjónusta við viðtakend- ur, þá er eitthvað athugavert við forgangsröðun póstsins“. ..Ég er niðurbrotin mann- eskja,“ segir Cherry, „yfirmenn mínir segja mig ekki skila góðu verki, en viðskiptavinirnir full- vissa mig um að ég standi mig vel“. Umferðin gengur fyrir í Ástralíu gerðist það, að sjúkraliðar þurftu að horfa á lest aka yfir lík konu, sem hafði framið sjálfsmorð. Starfsmenn járnbrautarfélagsins neituðu þeim um að stöðva lestina, á þeim forsendum það væri svo mikill annatími og ekki mætti trufla leiðarkerfið. Ráðherra umferðarmála hef- ur beðist opinberlega afsökunar á þessu atviki. Ekið án leyfis Manni nokkrum, Francis Glancy, sem aldrei ekur bíl, hef- ur verið skipað að fá sér öku- leyfi til þess að hægt sé að svipta hann því. Ilann er yfirleitt á 10 gíra reiðhjóli og var tekin við það að aka því undir áhrifum áfengis. „Ef hann fær ekki ökuleyfi, sem við getum svipt hann, þá endar hann með það að hafa blett á sakavottorði sínu,“ sagði verjandi hans, Tom Caulifield. Glancy hafði slasað sig við að detta af hjólinu, þá með vín- andamagn upp á 0.328% í blóð- inu. Hanskinn gleymdist Sjúklingur sem fór heim af sjúkrahúsi eftir níu daga með- ferð við astma, lést vegna þess að þunnur gúmmíhanski hafði gleymst í hálsi hans. Gary Ilarmon var 47 ára gamall og hafði eftir heimkomu kvartað talsvert yfir því að eitt- hvað væri í hálsi sínum, hóstað og reynt að koma því upp en tókst ekki. Við krufningu kom í ljós að hann hafði kafnað vegna hanska sem orðið hafði eftir í hálsi hans og enginn getur út- skýrt hvers vegna. t

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.