Dagur - Tíminn - 11.09.1996, Qupperneq 6
6 - Miðvikudagur 11. september 1996
Jlagur-'2Kmntn
F R E T T I R
Við erum ekki að keppa
innbyrðis í héraði
Þórir Páll Guðjónsson kaup-
félagsstjóri KB í Borgarnesi
Kaupfélag Borgfirðinga
(KB) hefur ekki farið var-
hluta af samdrætti í land-
búnaði og almennri niðursveiflu
í efnahagslífi undanfarinn ára-
tug. Fyrir tæpu ári var Mjólkur-
samlag Borgfirðinga úrelt og
voru mjög skiptar skoðanir um
þá aðgerð í héraði, en KB var
eigandi þess. En ætli það hafi
fylgt niðursveifla hjá félaginu í
kjölfar úreldingar samlagsins?
„Ég býst nú við að það hafi
gert það að einhverju leyti. Það
var náttúrulega gríðarlega stór
og mikil ákvörðun að ákveða að
fara þessa leið,“ svarar Þórir
Páll Guðjónsson, kaupfélags-
stjóri KB. Hann bendir hins
vegar á að ástæðan fyrir þess-
ari ákvörðun hafi verið þær
miklu breytingar sem eru að
eiga sér stað í landbúnaðinum.
„Það var augljóst að það var
ekki hægt að reka þessar af-
urðastöðvar, hvort heldur það
var mjólkursamlag eða slátur-
hús, með óbreyttum hætti,
þannig að það varð að taka á
því máli. Það var náttúrulega
mjög hörð krafa um það að eitt-
hvað gerðist í hagræðingarmál-
um hvað mjólkuriðnaðinn varð-
ar og það var alltaf horft á
Mjólkursamlagið í Borgarnesi
sem fyrsta punktinn í því og
kannski þann stein sem þurfti
að taka úr götunni til þess að
hleypa af stað meintri eða
raunverulegri hagræðingu."
Ástæðan var sú að Mjólkur-
samlag Borgfirðinga var eitt
nýjasta mjólkursamlagið og þar
af leiðandi voru miklir fjármun-
ir bundnir í aðstöðunni, „menn
horfðu sérstaklega á það.“
- En varð ekki tilfinnanleg
niðursveifla hjá Kaupfélagi
Borgfirðinga við þessa aðgerð,
urðu menn ekki varir við það?
„Það er náttúrulega ljóst að
það voru afskaplega skiptar
skoðanir um þessa aðgerð hér í
héraðinu og meðal félags-
manna sem eðlilegt er. Ég geri
ráð fyrir að það hafi haft ein-
hver áhrif á viðskipti við félagið
og það hafi mátt merkja það
tímabundið, en þetta gekk nú
tiltölulega fljótt yfir. Ég held að
menn hafi verið tiltölulega fljót-
ir að átta sig á því að þetta væri
ekki eins afleit aðgerð og
mönnum fannst í fyrstu, þá á ég
við bændurna sérstaklega. Það
var líka gert mjög margt til
þess að reyna að bæta úr þann-
ig að þetta yrði ekki eins mikið
högg fyrir héraðið."
Uppstokkun
nauðsynleg
Þórir Páll viðurkennir að ekki
sjáist fyrir endann á þessu enn-
þá, ekki sé komið í ljós hvernig
Engjaás spjari sig, en það fyrir-
tæki var stofnað til að halda at-
vinnustarfsemi í héraði sam-
bærilegri eftir þetta. „Það er
kannski ekki fyrr en kemur
fram á næsta ár sem við sjáum
endanlega hvernig það tekst tfl.“
Ákveðin uppstokkun var
nauðsynleg á KB í þá veru að
aðgreina einstakar starfsgrein-
ar meira en verið hafði. „Þær
áttu einfaldlega ekki samleið í
sama potti eins og verið hafði.
Það var orðin of mikil sam-
keppni milli greina og mikil
krafa um að hver einstakur
starfsþáttur út af fyrir sig stæði
við sitt og stæði að sínu.“ Hags-
munaárekstrarnir við að hafa
þetta í einum potti var ein af
ástæðunum fyrir því að farið
var í þessar aðgerðir í Borgar-
nesi, sagði Þórir Páll.
„Það voru búin að koma
mjög erfið ár, já,“ svaraði Þórir
Páll aðspurður hvort ekki hefði
verið yfirstandandi niðursveifla
í mörg ár hjá félaginu, tap af
rekstri í nærfellt heilan áratug.
Þar segir hann samdráttinn í
landbúnaði hafa komið þyngst
niður.
„Hann hefur alveg tvöföld
áhrif á félagið. Annars vegar á
afurðastöðvarnar sem félagið
rekur, eða rak og hins vegar
þjónustuna við sveitirnar, því
fólkinu fækkar svo gríðarlega í
sveitunum og öll þjónusta,
hvort heldur það er nú vöru-
sala, sala á framleiðsluvörum
eða almenn þjónusta við sveit-
irnar dregst auðvitað saman
líka, þannig að þetta eru alveg
tvöföld áhrif.“
Var ekki kominn í þrot
Margir af félagsmönnum KB
óttuðust að staða félagsins væri
orðin mjög alvarleg og urðu
heitar umræður um rekstrar-
lega stöðu Kaupfélags Borgfirð-
inga m.a. á aukaaðalfundinum
þar sem tekin var ákvörðun um
að heimila úreldingu Mjólkur-
samlags Borgfirðinga. Stefndi
fyrirtækið á þeim tíma í gjald-
þrot - var Kaupfélag Borgfirð-
inga komið að fótum fram á
þeim tímapunkti?
„Ég vil nú ekki meina að svo
hafi verið. Hins vegar er það
náttúrulega ljóst að hefði kaup-
félagið verið rekið áfram með
svipuðum hætti og taprekstur-
inn ekki stöðvaður, þá segir það
sig sjálft að það hefði lent í erf-
iðleikum á einhverjum tíma-
punkti,“ svarar Þórir Páll.
Fjárhæðin sem kom í hlut KB
við úreldingu mjólkursamlags-
ins losaði 200 milljónir nettó.
Þær raddir hafa heyrst að þeim
íjármunum sé búið að eyða í
endurbætur og breytingar, en
hvað segir kaupfélagsstjórinn
um það?
„Þessum Qármunum er búið
að ráðstafa á ýmsan hátt. Þeim
hefur verið ráðstafað til lækk-
unar skulda sem eðlilegt er,
sem hlutafé í Engjaás elif. og til
endurbóta og fjárfestinga að
hluta til í starfsemi félagsins.
Það er ljóst að félagið einbeitir
sér að verslun og þjónustu,
þeim greinum sem áfram eru
reknar á vegum félagsins og
það er verið að gera verulegt
átak í því að bæta verslunarað-
stöðu félagsins og bæta þar
með þjónustu við félagsmenn
og viðskiptamenn í héraði."
Verslun í héraði
Lögð hefur verið áhersla á
markaðs- og kynningarstarf-
semi hjá KB undanfarin misseri
og markvisst verið unnið að því.
Þórir Páll vill þó ekki viður-
kenna að fyrirtækið hafi róið
lífróður til að bæta ímynd sína
m.a. eftir úreldingu mjólkur-
samlagsins.
„Við teljum mikla þörf á því
að styrkja verslun í héraði.
Verslun er í sjálfu sér mjög stór
atvinnugrein og margir sem
starfa við hana. Það er mikil-
vægt fyrir kaupfélagið og mikil-
vægt fyrir héraðið að blómleg
verslun þróist áfram í Borgar-
nesi. Við höfum náttúrulega
orðið vör við að það er mikil
samkeppni í verslun við höfuð-
borgarsvæðið fyrst og fremst.
Það er einnig orðin samkeppni
við verslanir erlendis, þannig
að við erum í beinni samkeppni
við verslunarborgir í nágranna-
löndunum. Haustferðir fólks má
nefna sem dæmi. Við þurfum að
standa vel að verki hér til þess
að halda versluninni, í fyrsta
lagi hér heima fyrir og aðstoða
við að halda henni hér innan-
lands líka.“
Þórir Páll bendir einnig á
aukið mikilvægi sumarbústaða-
eigenda, sumarbústaðadvalar-
gesta og ferðamanna í við-
skiptavinahópi KB. „Þetta er
mjög mikilvægur hópur og vax-
andi fyrir okkur. Á sama tíma
og þróunin í landbúnaði er okk-
ur óhagstæð, þá er þessi við-
skiptavinahópur okkur mjög
hagstæður og mikilvægur. Við
þurfum að gera það sem við
getum til þess að sinna þessum
vaxandi hópi. Við erum mjög
vel staðsett til þess hér í Borg-
arnesi og að mínu mati þurfum
við að gera allt sem við getum
til þess að taka vel á móti þess-
um viðskiptavinum okkar, ekk-
ert síður en heimafólki. Að því
höfum við miðað mjög mark-
visst á þessu ári og þar af leið-
andi höfum við ekki síst beitt
okkar auglýsingum og mark-
aðssetningu að þessum hópi.“
Einkaaðilar í
Kaupfélaginu
Kaupfélagsstjórinn viðurkennir
að margir hafi lýst dálítilli
furðu yfir því að einkaaðilar
hafi opnað verslanir inni í
Vöruhúsi KB, enda er þetta
hugmynd sem fáum ef nokkrum
hefði dottið í hug fyrir áratug
eða svo. „Staðreyndin er sú að
þetta hús okkar hefur verið af-
skaplega illa nýtt og það hefur
verið mikill höfuðverkur hvern-
ig við ættum að nýta það. Því er
ekki að leyna að menn hafa líka
spurt sig að því hvort verslunin
sé rétt staðsett hérna niðri í
bænum, hún er ekki við aðal-
þjóðveginn. Það getur vel verið
að það eigi eftir að koma í ljós á
seinni stigum að það verði
ástæða til að flytja aðalverslun-
ina, en það er allavega ekki
tímabært eins og er og þess
vegna var ákveðið að fara
þessa leið núna að styrkja
Vöruhúsið og efla þjónustuna
hérna niður frá með því að
bjóða einstaklingum og einka-
aðilum að leigja sér aðstöðu hjá
Kaupfélaginu. Ég held að það
sé óhjákvæmilegt að breyta dá-
lítið til. Við erum í raun og veru
ekki að keppa innbyrðis í hér-
aði eða á svæðinu, ég lít ekki
þannig á það. Við erum fyrst og
fremst að keppa að því að
halda versluninni heimafyrir.
Það eiga allir sömu hagsmun-
ina hér, hvort sem það er Kaup-
félagið eða einkaaðilar. ohr
Kampakátir fulltrúar einkaframtaks og kaupfélags í Borgarnesi, Þórir Páll Guðjónsson, kaupfélagsstjóri, Katrín
Gunnarsdóttir versiunareigandi og Guðbjartur Vilhelmsson, deildarstjóri Matvörumarkaðar kaupfélagsins.
„Ég held að það sé óhjákvæmilegt að breyta
dálítið til. Við erum í raun og veru ekki að keppa
innbyrðis í héraði eða á svæðinu, ég lít ekki
þannig á það. Við erum fyrst og fremst að
keppa að því að halda versluninni heima fyrir.
Það eiga allir sömu hagsmunina hér, hvort sem
það er kaupfélagið eða einkaaðilar. Að mínu
mati er það miklu sterkara að þessir aðilar
þjappi sér saman á einn stað þar sem er þægi-
legt fyrir viðskiptavininn að koma.“