Dagur - Tíminn - 11.09.1996, Side 7
|Dítgur-®ímtmt
Miðvikudagur 11. september 1996 - 7
Bandaríkin
Bandarískir tóbaksframleiðendur verja
stórfé til þess að koma í veg fyrir
að hömlur verði lagðar á starfsemi þeirra.
Tóbaksframleiðendum í
Bandaríkjunum finnst að
sér vegið þessa dagana
úr öllum áttum og leggja nú allt
kapp á að verjast atlögunum. Á
fyrri helmingi þessa árs hafa
þeir varið 15 milljónum banda-
ríkjadala, eða sem svarar rúm-
um einum milljarði ísl. króna, í
varnarbaráttu sína. Þar af fór
um þriðjungurinn tU beggja
stærstu stjórnmálaflokkanna í
Bandaríkjunum, um 4 milljónir
dollara til repúblikana og tæp
milljón til demókrata.
Fjöldinn allur af dómsmálum
er í gangi þar sem verið er að
krefja tóbaksframleiðendur
skaðabóta vegna framleiðslu
sinnar. Þannig hafa þrettán
bandarísk fylki höfðað mál á
hendur þeim tU þess að fá end-
urgreiddan heUbrigðiskostnað
sem rekja má til reykinga. Og
átta mál eru í gangi fyrir dóm-
stólunum þar sem reykingafólk
Umhverfismál
Tryggingafélög hafa áhyggjur
af gróðurhúsaáhrifimum
Eftir því sem stormar og byljir verða algengari
í kjölfar hækkandi hitastigs jarðar aukast
útgjöld tryggingafélaga vegna þess skaða
sem af því hlýst. Þau eru farin að
hugsa fyrir framtíðinni.
Ahugafólki um umhverfis-
vernd og þeim sem hafa
áhyggjur af breyttu veð-
urfari á jörðinni í kjölfar gróð-
urhúsaáhrifanna svonefndu
hefur nú bæst liðsauki úr
óvæntri átt. Tryggingafélög,
a.m.k. í Bandaríkjunum, eru
farin að leggja þeim lið, og það
af hreinum fjárhagsástæðum.
Þau eru nefnilega farin að sjá
fram á það að veðurfarsbreyt-
ingarnar muni valda þeim
ómældum íjárútlátum sem erf-
itt verði að standa undir ef svo
fer fram sem horfir.
Þegar svo við bætist að bú-
setuþróunin í Bandaríkjunum
og víðar er orðin sú að fólk
flytur í auknum mæh til
strandsvæða þá þýðir það að
áhrifin af því að stormar verða
öflugri og algengari verða mun
víðtækari og alvarlegri en áður.
Á árunum 1989 til 1994
greiddu tryggingafélög í
Bandaríkjunum, bæði þau
einkareknu og þau sem starfa á
vegum ríkisins, yfir 67 milljarða
dollara vegna skaða af völdum
storms, og er það nærri helm-
ings hækkun frá næstu fimm
árum þar á undan.
Tryggingafélögin vilja mæta
þessum auknu útgjöldum með
hærri tryggingagjöldum, og sú
hækkun mun væntanlega ná til
allra tryggingaþega, hvort sem
þeir búa á sérstökum áhættu-
svæðum eða ekki, þótt íbúar á
áhættusvæðum muni líklega
þurfa að þola meiri hækkun en
hinir.
En nú er svo komið að þau
eru farin að átta sig á mikil-
vægi þess að fara líka hina leið-
ina - að fjármagna rannsóknir
á því hvaða áhrif athafnir og at-
hæfi manna hafa á veðurfar
jarðar. Tryggingafélögin eru
farin að verja milljörðum doll-
ara í shkar rannsóknir til þess
að ganga úr skugga um hvort
ekki séu til leiðir til þess að
halda skaðanum í lágmarki -
og þar með útgjöldum trygg-
ingafélaganna og trygginga-
gjöldunum.
Bandaríkin
Stálu strigaskóm frá
þurfandi bömum
Það er ekki að spyrja að
grimdinni í heiminum.
Hjálpræðisherinn var bú-
inn að safna saman nærri 2.200
strigaskóm sem átti að dreifa
meðal þurfandi skólabarna í
borginni San Antonio í Banda-
ríkjunum þann 23. september
næstkomandi. En nú verður
ekkert úr því vegna þess að
einhverjar illa innrættar per-
sónur gerðu sér lítið fyrir og
stálu hverju einasta skópari.
Sumir þessara krakka koma í
skólann með pappa í skósólun-
um, segir Patri- ^
cia Kitchen, §
talsmaður J
Hjálpræðis-
hersins
þar á **
staðn-
m
* 4
um.
rejmir að fá bætur fyrir að hafa
ánetjast tóbaki á meðan fram-
leiðendurnir þögðu um það að
framleiðslan væri ávanabind-
andi.
Bandaríska dómsmálaráðu-
neytið er auk þess að fara ofan
x' það hvort starfsmenn tóbaks-
framleiðsufyrirtækja hafi logið
að þinginu á undanförnum ár-
um um það hvort þeir hafi vitað
af ávanabindandi eiginleikum
tóbaksins, sem teljast mundi
sakhæft samkvæmt bandarísk-
um lögum.
Tóbaksframleiðendur leggja
nú mikla áherslu á að koma í
veg fyrir að sett verði lög sem
takmarka aðgang unglinga að
tóbaki, auk þess að afnema
þann möguleika að fyrirtæki
geti notað kostnað af tóbaks-
auglýsingum til skattafrádrátt-
ar, veita Matvæla- og lyíjaeftir-
litsstofnuninni vald til þess að
hafa eftirlit með tóbaksfram-
leiðslu og takmarka reykingar í
flugvélum og á vinnustöðum.
-gb
KJÖRBÚDIN
KAUPANGI
Fimm tudagstilboð:
Reykt úrb. folaldakjöt 566 kr. kg
Fimmtudagskynning:
Sólríkur
Föstudagstilboð:
Svínagúllas 898 kr. kg
Svínasnitsel í raspi kr. 828 kg
Föstudagskynning:
Blandaður ávaxtagrautur frá Sól
Helgartilboð:
Kindavöðvar kr. 998 kg
Vikutilboð:
Frá Bautabúrinu:
Léttreykt sparnaðarskinka kr. 766 kg
Skólaskinka kr. 898 kg
Frá Kjarnafæði:
Kindabjúgu kr. 389 kg
Lambasaltkjöt kr. 399 kg
Sólardagar 12.-25. september
Munið okkar vinsæla heita hádegismat m/súpu
eða desert alla virka daga
Lítill skammtur kr. 400 • Stór skammtur kr. 500
Opið öll kvöld til kl. 23!
1
4
> 1 4. KIORBUÐIN 1
SIMI461 2933-FAX 461 2936