Dagur - Tíminn - 13.09.1996, Blaðsíða 1

Dagur - Tíminn - 13.09.1996, Blaðsíða 1
Lífið í landinu Herra Island valinn í kvöld MATARTÍMIXr ; Dagsins besti jL \ tími! Föstudagur 13. september 1996 Akureyri 79. og 80. árgangur 173. tölublað Verð í lausasölu 150 kr. Akureyrarbær Stjórnkerfið ÚA-bréf seld Akureyrarbær selur á næstunni hlutabréf í ÚA að nafnvirði 225 millj- ónir króna; söluverð 1,1 milljarður króna Bæjarráð Akureyrar hefur gengið frá samningi um sölu Akure^rarbæjar á hlutabréfum í Utgerðarfélagi Akureyringa hf. til félagsins að nafnvirði 91,8 milljónir króna skv. samþykkt bæjarráðs frá 11. júlí sl. Gengi bréfanna er 4,98 og söluverð því 457 milljónir króna. Samninginn hefur bæj- arstjóri, Jakob Björnsson, und- irritað ásamt stjórnarformanni ÚA, Jóni Þórðarsyni, með fyrir- vara um samþykki bæjarstjórn- ar og eins þarf hann að að hljóta staðfestingu stjórnar ÚA. Næsti bæjarstjórnarfundur verður nk. þriðjudag, 17. sept- ember, en stjórnarfundur í ÚA er sama dag. Alls hyggst Akur- eyrarbær selja hlutabréf í ÚA að nafnvirði 225 milljónir króna, og verður starfsfólki ÚA og öðrum Akureyringum boðin forkaupsréttur að kaupum að hluta þeirra bréfa innan ákveð- inna tímamarka. Heildarsölu- verð bréfanna miðað við áður- nefnt gengi er 1,1 milljarður króna. GG Heilsugæslustöðvar Starfsemin af stað Tólf ára húsnæði breytt s gær var síðustu hindrun- inni rutt úr veginum svo heilusgæslulæknar komi aftur til starfa. Óvænt snurða hljóp á þráðinn í fyrrakvöld vegna þess að ekki var búið að ganga frá málum vegna rekst- urs heilsugæslustöðvarinnar við Lágmúla í Reykjavík. Sam- komulag um það tókst um miðj- an dag í gær. Læknar telja sig hafa trygg- ingu fyrir því að allir geti geng- ið aftur í sín gömlu störf og í dag verða heilsugæslulæknar víðast komnir til starfa. Þó koma flestir þeir læknar sem Sjúkraliðar fóru í tímabundin störf erlendis ekki aftur fyrr en um mánaða- mót í fyrsta lagi. Ljóst er að nokkurn tíma mun taka að ná eðlilegu ástandi á ný og óttast menn að á sumum stöðum út á landi geti jafnvel orðið læknis- laust fram eftir vetri. HA Verið er að breyta og bæta húsnæði samgönguráðu- neytisins í Hafnarhúsinu fyrir 23 milljónir króna. Jón Kristjánsson, formaður ijár- laganefndar alþingis, segir að þessar framkvæmdir hafi ekki komið á borð fjárlaganefndar og fyrir þeim sé ekki sérstök íjárveiting á íjárlögum þessa árs. Hins vegar sé á fjárlögum gert ráð fyrir að verja 173 millj- ónum í viðhald fasteigna ríkiss- ins. Ef framkvæmdirnar rúmist innan þess, sé ekkert við þær að athuga. Samgönguráðuneyt- ið er að stækka við sig og er það sagt vegna þess að það er að taka við verkefnum sem áð- ur heyrðu undir Póst og Síma. Mynd: Pjetur Möðruvellir Siðanefnd prestafélagsins segir sr. Torfa ekki stætt á að neita Ótryggur friður Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður Sjúkraliðafé- lags íslands segir að það sé engin trygging fyrir friði inn- an heilbrigðiskerfisins þótt t.d. heimilslæknar hafi afsalað sér samnings- og verkfallsrétti með því að samþykkja að kjaranefnd úrskurði um sín kjör. Hún bendir á að ef heimilislæknar verða óánægðir með úrskurð kjaranefndar, þá geta þeir grip- ið til aðgerða í formi uppsagna eins og áður. Ef eitthvað er þá séu uppsagnir miklu alvarlegri hlutur en verkföll vegna þess að í verkföllum er farið eftir ákveðnum leikreglum. -grh Siðarrefnd Prestafélags ís- lands hefur úrskurðað í máli sem upp kom í sumar í kjölfar þess að sr. Jón Helgi Þórarinsson, sóknarprestur á Dalvík, framkvæmdi hjóna- vígslu utandyra við Möðruvalla- kirkju í Hörgárdal. Kirkjan var læst en sóknar- presturinn á Möðruvöllum, sr. Torfi Hjaltalín Stefánsson, hafði lýst sig andvígan því að sóknar- börn fengju aðra presta til að annast athafnir í sinni kirkju. Sr. Torfi sagðist í sjálfu sér ekki mikið hafa um úrskurð siðanefndar að segja, en minnir á að það var hann sem upphaf- lega gerði athugasemd við framferði sr. Jóns Helga og þannig komst málið til siða- nefndarinnar. Hann gagnrýnir hins vegar harðlega að málið skuli vera komið í Qölmiðla áð- ur en aðilar þess hafi fengið úr- skurðinn í hendur. „Það er rangt með farið í fréttum út- varps að ég hafi neitað Jóni Helga um kirkjuna því það gerði ég aldrei. Hann er einmitt gagnrýndur í úr- skurðinum fyrir að hafa ekki beðið um kirkjuna, að hafa ekki haft samband við mig.“ í úrskurði siða- nefndar kemur fram að sr. Torfi hafi ekki getað neitað öðrum presti að annast athöfnina í kirkj- unni. Telur hún að svör hans um að hann væri á móti því að leyfa afnot af kirkj- unni jafngildi neitun. Nefndin telur vandséð á hvaða forsend- um sóknarprestur geti neitað sóknarbörnum um afnot af sók- arkirkju sinni, uppfylli athöfnin öll formleg skilyrði og kirkjan sé ekki í notkun á sama tíma. Einnig er það skoðun nefndar- innar að ummæli sr. Torfa varð- andi málið í Degi og Tímanum í sumar hafi verið ómálefnaleg og ekki í samræmi við siðaregl- ur. Þó telur hún ekki ástæðu til formlegrar áminningar. Sr. Torfi hefur þegar sent siðanefndinni svarbréf. „Mér finnst að siðanefnd eigi að halda sig alfarið við að úr- skurða samkæmt siðareglunum en ekki blanda sér almennt í umræðu um stjórnskipun kirkj- unnar, eins og hún gerir í þessu tilfelli og í svari mínu gagnrýni ég hana fyrir það.“ HA Sr. Torfi H. Stefánsson sóknarprestur „Mérfinnst að siðanefnd eigi að halda sig alfarið við að úrskurða sam- kœmt siðareglunum en ekki blanda sér almennt í umrœðu um stjórnskip- un kirkjunnar. “

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.