Dagur - Tíminn - 13.09.1996, Blaðsíða 4
4 - Föstudagur 13. september 1996
JDbtgur-'ðKmtmt
F R E T T I R
Akureyri Húsavík
Byggingin syðst á núverandi byggingu teygir sig til vestur með núverandi laug. Þegar öllum framkvæmdum verður lokið verða búningsklefar í nýju
byggingunni, og gengið inn að sunnan. Þannig samnýtist bílastæði méð íþróttahöllinni og umferð gangandi fólks bægt frá mikilli bílaumferð um Þing-
vallastræti.
Gengið til sanrninga við SJS-verktaka
Gengið hefur verið til
samninga við SJS-verk-
taka ehf. á Akureyri um
framkvæmdir við Sundlaug Ak-
L#TT#
VINNINGSTOLUR . . „
MIÐVIKUDAGINN 11.09. 1996
AÐAUÖLUR
Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð
“\ m 6 af 6 3 14.620.000
0 5 af 6 . -f bónus 0 1.495.845
3. 5»<6 6 36.010
4. 4 af 6 172 1.990
C 3 af .6, O. + bónus 649 220
Samtals:
Heildarvinningsupphæð:
46.056.965
Á íslandi:
2.196.965
Upplýsingar um vinningstölur fást einnig I slmsvara
568-1511 eöa Grænu númeri 800-6511 og i textavarpi
ó síöu 453.
LEIKFELAG AKUREYRAR
Gaman, alvara,
gleði og sorg.
Glæsilegt
80 ára
afmælisár.
Á verkefnaskránni:
Sigrún Astrós eftir Willy Russel.
Dýrin í Hálsaskógi
eftir Thorbjorn Egner.
Undir berum himni
eftir Steve Tesich.
Kossar og kúlissur.
Léttur söngleikur um lífið
á sviði Samkomuhússins.
Handrit: Hallgrímur H. Helgason.
Utsetning tónlistar: Roar Kvam.
Vefarinn mikli frá Kasmír
eftir Halldór Laxness.
Markúsarguðspjall
á Kirkjulistaviku 1997.
Sala áskriftarkorta, frumsýngar-
korta og leikhúskorta er hafin.
Verð áskrifarkorta:
5 sýninga kort 5.850.
4 sýninga kort 5.040.
3 sýninga kort 4.050.
VerS frumsýningakorta:
5 sýninga kort 6.500.
4 sýninga kort 5.600.
3 sýninga kort 4.500.
Leikhúskortin eru nýjung
sem hentar vel klúbbum
og fyrirtækjum.
Kynnið ykkur kjörin.
MiSasalan er opin alla virka
daga kl. 13.00- 17.00.
Simi 462 1400.
ureyrar á grundvelli tilboðs fyr-
irtækisins að upphæð 61,4
milljónir króna. Við yflrferð á
tilboðum reyndist næstlægsta
tilboðið frá Fjölni hf. of lágt um
486 þúsund krónur. Verkið fel-
ur m.a. í sér framkvæmdir við
byggingu kjallara undir 415 m2
viðbyggingu við sundlaugina og
byggingu nýrrar sundlaugar
sem verður 25x16,6 metrar að
stærð.
Gert er ráð fyrir að fram-
kvæmdum verði lokið í júní-
mánuði 1997. Næsta fram-
kvæmd þar á eftir er bygging
búningsklefa ofan á kjallara-
bygginguna sem reist verður í
vetur og nýrrar afgreiðslu sem
hefur inngang úr suðri, þ.e.
verður færð frá Þingvallastræt-
inu. Jarðvegsframkvæmdir
munu því væntanlega hefjast
strax í þessum mánuði. Bygg-
ingarnar eru hannaðar af Arki-
tektastofunni Form hf. á Akur-
eyri. GG
Uliaríðnaðurinn
Er uUin ennþá 3/4
ferðamannaverslunar?
Ullarvörur virðast ennþá
gnæfa óralangt yfir alla
aðra vöruflokka í inn-
kaupum erlendra ferðamanna
hér á landi - eða um 75% alls
þess sem útlendingar hafa
með sér úr landi ef marka má
fyrstu upplýsingarnar frá Tax-
free Shopping, um endur-
greiðslu virðisaukaskatts.
Fyrsta endurgreiðslan fór
fram 25. júní og á næstu átta
vikum voru endurgreiddar tæp-
lega 11 þúsund ávísanir sem
hljóðuðu upp á samtals 110
millj. innkaup, þar af 83 millj.
voru fyrir ull. Þegar til þess er
litið að yfir 60 þúsund erlendir
ferðamenn komu hingað á
tímabilinu gætu þessar 11 þús-
und endurgreiðslur bent til
þess að margir erlendir ferða-
menn kveðji landið án mikilla
innkaupa, utan þess allra nauð-
synlegasta.
Bækur komust næst ullinni á
innkaupalistum útlendinganna
en en minjagripir og gjafavörur
námu samtals 7% þeirra inn-
kaupa sem komu til endur-
greiðslu. Meðalinnkaupin eru í
kringum 10.000 kr. hverju
sinni. Frá því eru þó víð frávik.
T.d. var leitað endurgreiðslna
vegna pelsakaupa fyrir nokkuð
á aðra milljón. Einnig var leitað
endurgreiðslna vegna skókaupa
upp á hátt í milíjón, fatakaupa
sem fóru hátt á þriðju milljón
og skartgripa úr góðmálmum
fyrir vel á aðra milljón.
Þjóðverjar fengu langflestar
endurgreiðslurnar, enda voru
þeir langijölmennasti ferða-
mannahópurinn. Miðað við
Qölda ferðamanna hafa hlut-
fallslega flestir fengið endur-
greiðslur úr hópi Japana. Hlut-
fallið virðist líka nokkuð hátt
meðal Svisslendinga, Skandin-
ava og Taiwana.
Akureyri
Sjókokkar
fá svuntu
Undirbúningur er í fullum
gangi fyrir hina viða-
miklu alþjóðlegu sjávar-
útvegssýningu, sem fram fer í
Laugardalshöllinni í Reykjavík.
Verður sýningin sett með við-
höfn nk. miðvikudag.
Þátttakendur í sýningunni
koma víða að. Um 10 fyrirtæki
frá Akureyri taka þátt í sýning-
unni og þeirra á meðal er Haf-
tækni hf., sem sérhæfir sig í
þjónustu við siglinga- og fiski-
leitartæki. Fyrirtækið fór nokk-
uð óhefðbundna leið til að
Fyrstu svuntuna afhenti Sigurður Baldvinsson, sölustjóri Haftækni, Karli
Steingrímssyni, bryta á Akureyrartogaranum Kaldbak.
kynna starfsemi sína því það
hefur látið útbúa svuntu, sem
kokkum í íslenska flotanum
verður send. HA
Bæjarmála-
punktar
• Á fyrsta fundi Bæjar-
stjórnar Húsavíkur eftir
sumarleyfi, sem haldinn
var í síðustu viku, var sam-
þykkt að taka tilboði Tré-
smiðjunnar Rein í bygg-
ingu spilliefna- og sorp-
móttöku við Sorpeyðinga-
stöðina á Húsavík. Tré-
smiðjan Rein átti lægsta til-
boð í verkið, kr. 8.464.822
eða rúmlega hundrað þús-
und kr. yfir kostnaðaráætl-
un.
• Breytingar standa yfir á
efri hæð Félagsheimilis
Húsavíkur en þar er fyrir-
hugað að Skólaþjónusta
Eyþings og Félagsmála-
stofnun Húsavíkur verði til
húsa.
• Ákveðið hefur verið að
setja upp hraðahindranir á
Laugabrekku, en íbúar við
þá götu hafa lengi kvartað
undan mikilli og hraðri
umferð.
• Heilsdagsskóli hefur ver-
ið stofnaður við Borgar-
hólsskóla og forstöðumað-
ur og 2 aðrir starfsmenn
ráðnir til starfa við skól-
• Bæjarstjórn samþykkti
að kaupa hlut Slysavarna-
deildar kvenna á Húsavík í
Félagsheimili Húsavíkur,
sem er 0.5 % af eignarhlut-
um. Kaupverðið er 212
þúsund krónur og greiðist
með 5 ára skuldabréfi,
verðtryggðu en vaxtalausu.
• Höfðavegur 26, bæjar-
stjórabústaður, hefur verið
seldur Guðmundi Birki
Þorkelssyni skólameistara
Framhaldsskólans á Húsa-
vík.
• Tilnefndir hafa verið
fulltrúar Húsavíkurkaup-
staðar í skólanefnd Fram-
haldsskólans á Húsavlk.
Aðalmenn: Valgerður
Gunnarssdóttir og Berglind
Svavarsdóttir, varamenn:
Snædís Gunnlaugsdóttir og
Elín Kristjánsdóttir.
• Þá tók Bæjarstjórn Ilúsa-
víkur afstöðu til sameining-
ar Héraðsnefnda Þingeyj-
arsýslna á þá leið að hún
legðist ekki gegn samein-
ingu héraðsnefndanna og
heimilar fulltrúum sínum í
nefndinni að vinna að
framgangi málsins í sam-
ræmi við tillögur og hug-
myndir sem liggja fyrir.
GKJ
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi,
KÁRI BALDURSSON,
skipasmiður,
Laxagötu 4, Akureyri,
er látinn.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
F.h. aðstandenda
Guðbjörg Björnsdóttir.
Akureyri
Ráðning sundlaugar-
stjóra staðfest
Bæjarráð Akureyrar stað-
festi í gær ráðningu Gísla
Kr. Lórenzsonar í starf
forstöðumanns Sundlaugar Ak-
ureyrar. íþrótta- og tómstunda-
ráð bæjarins hafði áður mælt
samhljóða með Gísla í starfið.
Bæjarstjórn Akureyrar af-
greiðir þetta mál endanlega á
fundi sínum næstkomandi
þriðjudag og ekki er búist við
öðru en það gegni smurt í gegn.
Þess er vænst áð Gísli Kr. komi
fljótlega til starfa, en Sigurður
Guðmundsson fráfarandi sund-
laugarstjóri er þegar byrjaður
störf á nýjum vettvangi í Mos-
fellsbæ. -sbs.