Dagur - Tíminn - 27.09.1996, Qupperneq 1

Dagur - Tíminn - 27.09.1996, Qupperneq 1
c\ / J § J? Jlagur-^límtmt /*■ LIFIÐ I LANDINU Föstudagur 27. september 1996 - 79. og 80. árgangur - 184. tölublað ERUÐ ÞIÐ ALVEG TÓM? Hann hefur lifað lífinu hratt og oft án tillits til ættingja eða þjóðfé- lagsins; áfengi og eiturlyf hafa stjórnað hans hans lífi meira og minna frá 15 ára aldri og hann hefur farið oft í meðferð. Guðmundur Davíð Gunnlaugsson frá Keflavík hóf eins og fleiri unglingar á íslandi aða drekka ungur, á 15. aldursári, og nú, 24 ára að aldri, hefur hann dvalið á meðferðarheimilinu Fjólunni á Akureyri um skeið. Þegar ég var að verða 18 ára var ég farinn að reykja hass á hverju kvöldi, tók einnig am- fetamín og drakk allar helgar. Þá var ég að verða Ieiður á brennivíni, var að „drepast“ og það þoldi ég ekki, svo það dró smám saman úr drykkjunni, en neysla á hassi, amfetamíni, morfíni og fleiru jókst.“ „Mér hefur aldrei tekist að vera edrú í Keflavík síðustu ár nema mjög stuttan tíma í einu, það sækir alltaf að manni löng- un til að hitta gömlu félagana sem maður hefur verið að drekka eða t.d. að reykja hass með. Ég er ekki nógu stöðugur, ef t.d. hafði gengið vel í vinn- unni og manni leið vel, þá hringdi kannski einhver í mig og var að rukka mig um ein- hverja skuld sem stofnað hafði verið til í einhverju ruglinu, þá helltist yfir mann löngunin til að fá sér eitthvað á ílóttanum frá raunveruleikanum. Foreldrar mínir voru strang- ir og reyndu hvað þeir gátu til að hindra þessa drykkju, en ég hlustaði ekki. Það eru fullorðn- ir, fyrst og fremst, sem eru að selja vín og landa og græða á óförum unglinganna, en stund- um er bruggari í vinahópnum og þá er oft til nóg. Brennivínið heillaði mig ekki nema fyrst, en þegar ég var 16 ára kláraði ég nám í 9. bekk og fór í Fjöl- brautaskóla Suðurnesja en Ég var alveg búinn, „meikaði“ það ekki meira, var studdur inn í herbergi þar sem ég féll saman, hágrátandi. flosnaði frá námi, var alltaf að sukka. Ég þurfti stöðugt meira á peningum að halda til að kosta allt þetta rugl og þessa spennu. Ilassið er ódýrara en brennivínið, kostar 1500 krón- ur, en flaskan 2000 krónur. Þegar ég byrjaði að reykja hass var sagt við mig, „keyptu þér mola, hann kostar bara 1500, dugar þér alla helgina og þú verður ekki þunnur en flaskan er búinn sama kvöldið og þú grúttimbraður daginn eftir.“ Nýr heimur, læknadópið „Nítján ára fór ég í fyrsta skipti í meðferð, var í 13 daga. Þar opnaðist fyrir mér nýr heimur, ekki heimur án eiturefna, held- ur allt læknadópið sem þar var og ég heyrði um og átti eftir að prófa, vá maður! Það hvarflaði ekki að mér andartak að ég ætti í einhverjum erfiðleikum, skildi ekkert hvað var í gangi, þetta var ekkert mál. Þegar ég kom út, svakalega reiður, fór ég strax að útvega mér peninga til að fjármagna kaupin, var meira að segja byrjaður áður en ég komst út af Vogi, fór að taka þátt í innbrotum og þá missti ég bílprófið eftir að hafa keyrt á staur í eitlyíjarugli. Bílprófið fæ ég ekki aftur fyrr en árið 2000. Ég var kominn langt á undan Mikill sigur ef reynslusaga mín bjargar einhverjum úr þessu rugli. félögum mínum, þeir voru ekki eins miklar dóphausar og „cool“ eins og ég, ekki tilbúnir í þetta „spennandi" líf, og þannig týndi ég gömlu félögunum ein- um af öðrum. Tvítugur flutti ég að heiman, farinn að sprauta mig reglulega með með morfínefnum og var svo auðvitað líka í „spíttinu“. Það var mjög auðvelt að komast yfir þau efni hjá „dealerum" eða umboðssölum hingað og þangað og ég veit að það er jafn auðvelt í dag, jafnvel auðveld- ara.“ í sambúð „Um þetta leyti byrjaði ég í sambúð með stelpu, og við bjuggum í Reykjavík. Hún var ekki í þessu rugli með mér, og ég reyndi að draga úr þessu, fékk mér hass einu sinni í mán- uði. Þá þurfti ég að sitja af mér dóm í einn og hálfan mánuð, var fyrst á Skólavörðustíg og síðan í Kópavoginum. Ég var al- veg „geggjað reiður“ út í sjálfan mig fyrir að vera orðinn þessi aumingi. Þrátt fyrir það leið ekki nema mánuður þar til allt rann í sama farið, var farinn að sprauta mig. Maður er fyrst eft- ir þurrk mjög ferskur, heldur áfram blekkingarvefnum og fer ekki strax í sama ruglið. Samt fór ég að venja komur mínar suður eftir til Keflavíkur til gömlu félaganna, sem útveguðu sér peninga fyrir dópi með lög- legum sem ólöglegum hætti. Eftir eina ruglnóttina ætlaði ég að aka til Reykjavíkur ásamt fé- laga mínum, en endaði á ljósa- staur. Við vorum heppnir að drepa okkur ekki, en ég braut í mér tennur og skarst í andliti. í marsmánuði 1995 flutti ég og konan til Keflavíkur, og auðvit- að fóru strákarnir að koma í heimsókn og redda okkur um peninga fyrir dópi. í júlímánuði fór ég rétt eina ferðina enn inn á Vog, síðasta korterið áður gleypti ég fullan pakka af svefn- töflum, spautaði mig með heilu grammi af amfetamíni og át eittthvað fleira þessu skylt. Þá var ég orðinn 60 kg að þyngd, leit út eins og vofa með dökka bauga undir augum, hreint hryllilegur í úthti, enda búinn að vera meira og minna vak- andi í þrjá mánuði. Ég var alveg búinn, „meik- aði“ það ekki meira, var studd- ur inn í herbergi þar sem ég féll saman, hágrátandi. Tilfinningin að vera kominn enn inn á Vog, vera búinn að „skíta“ á sig eina ferðina enn, var bara of mikil fyrir mig. Þegar ég kom svo út fór ég aftur í sambúðina, ætlaði að standa mig, en eftir tvær vikur bankaði ég upp á hjá einum félaganum, hann rétti mér sprautu og poka, ég fallinn enn einu sinni. Um nóttina sat ég og skrifaði niður á blað afsakanir til konunnar fyrir þessu. Ég hætti að drekka áfengi 1993. Konan fór frá mér í deSember, ég sökk dýpra, fékk m.a. skjálfta þegar ég var að „spítta“ og gat ekki fest hug- ann við neitt. í janú- ar á þessu ári var ég orðinn einn, fé- lagarnir farnir í „grjótið" eða eitthvað annað. Ég lokaði mig inni, þorði ekki út, var sama um allt, jafnvel að konan væri Þegar ég var að verða 18 ára var ég farinn að reykja hass á hverju kvöldi, tók einnig amfetamín, og drakk allar helgar. farin frá mér. Loksins tókst mér að sofna, vaknaði hágrátandi og lá í volæði í nokkra daga í sjálfsvorkunn, það var svo sárt að viðurkenna að allt væri hrunið, endanlega að mér fannst. Ég fór að mæta á AA-fundi með bróður mínum, en enginn hafði trú á mér, allra síst ég sjálf- ur, en þar fór ég að skynja ein- hvern neista, fór að trúa að ég gæti orðið eitthvað, gert eitt- hvað.“ Norður í annað umhverfi „Þá datt mér í hug að komast að hjá Fjólunni á Akureyri, sem er áfangahús fyrir menn sem eru að koma úr áfengismeðferð á Vogi, Staðarfelli eða Vík. Ég vildi komast burtu úr mínu gamla umhverfi. Það fór gott orð af starfinu á Akureyri. Þetta er lengsti tíminn sem ég hef ver- ið allsgáður og er í góðri vinnu hjá Gunna í Dekkjahöllinni. Það er komin meiri festa á mítt líf, foreldrar mínir hafa komið hingað og eru farnir að tala við mig aftur og 6 ára son- ur minn hefur komið með þeim. Ég var í sex ár í tónlistarnámi í Keflavík þegar ég var gutti og fer í gítarnám í vetur hjá Tón- hstarskólanum á Akureyri. Það er ofsalega gaman að vera aftur „lifandi“. Það yrði mikill sigur fyrir mig ef reynslu- saga mín yrði til þess að ein- hver sem er þarna úti í rugli hætti því, margir mínir félagar mér horfnir, sumir jafnvel dán- ir. Þegar ég hugsa til þessara krakka sem eru að djúsa eða sprauta sig, þá langar mig að segja við þau, „hvað eruð þið að gera, eruð þið alveg tóm?,“ segir Guðmundur Davíð Gunnlaugs- son. GG

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.