Dagur - Tíminn - 27.09.1996, Síða 6
18- Föstudagur 27. september 1996
3Elagur-®ímtnn
Jólaóratoría Bachs á Akureyri
Árið 1734 skrifað Johann Sebastian Bach
Jólaóratoríuna sem samanstendur af sex
sjálfstæðum þáttum sem upphaflega voru
fluttir sex sunnudaga í kringum jólin. Nú er
venjan að flytja þrjá fyrstu þætti þessa mikla
og merka verks og ætlar Kór Tónlistarskólans
á Akureyri að syngja Óratoríuna á næstu
jólum og þá vonandi í Akureyrakirkju.
Michael Jón Clarke er
stjórnandi Kórs Tónlist-
arskólans sem var
stofnaður í fyrra. I kórnum er
aðallega söngfólk skólans,
kennarar og nemendur, en
Michael segir að einnig séu þar
áhugamenn um söng, oft úr
öðrum kórum. „Þetta er kór
sem gerir ráð fyrir að fólk sé
eithhvað undirbúið því við æf-
um bara einu sinni í viku og
byggjum á því að fólk sé fljótt
að læra verkin. Það var þörf
fyrir kór á Akureyri sem getur
flutt þessi stærri verk og
kannski vantaði kór fyrir fólk
sem var búið að læra eitthvað í
tónlist." Michael segir að stund-
um fari sönglært fólk í kóra þar
sem þaggað er niður í því, af
því það sker sig úr. „í okkar kór
er ætlast til þess að fólk syngi
eins og söngvarar, ég geri ekki
upp á milli tækni við kórsöng og
einsöng."
Engin jól án
Jólaóratoríunnar
Lfldega má segja að Jólaórator-
ían eftir Bach sé draumaverk
allra kórmeðlima og mörgum
finnst engin jól nema heyra
þessa tónlist og svo er um
Michael. „Það hefur alltaf verið
siður heima hjá mér að setja
Jólaóratoríuna á fóninn á
hverjum jóladagsmorgni enda
stórkostlegt verk og mikill fagn-
aður. Það hefur verið æðsti
draumurinn að flytja þetta verk
og við í kórnum setjum markið
hátt.“
Hverjir munu syngja ein-
söng?
„í verkinu eru fjórar ein-
söngsraddir og aðalmálið er
tenórinn því hans hlutverk er
mjög veigamikið og því er ætluð
alveg sérstök raddgerð, það eru
mjög fáir í heiminum sem ráða
við hlutverkið. Ég á von á því
að fá Gunnar Guðbjörnsson til
að syngja tenórinn en hann er
orðinn stórt nafn og ég á von á
því að hann eigi eftir að syngja
Jólaóratoríuna margsinnis."
Michael segir að ekki sé búið að
skipa í hinar einsöngsraddirnar
en á von á að innanbæjarmenn
syngi þær.
Um fjörutíu manns eru í Kór
Tónhstarskólans á Akureyri og
er enn pláss fyrir fleiri raddir.
Michael segist vonast til að
áhugasamir nýliðar mæti á
næstu æfingar, sem fara fram á
miðvikudagskvöldum kl. 18-20
á sal Tónlistarskólans. mgh
Wm
Stjórnandi Kórs Tónlistarskólans á Akureyri, Michael Jón Clarke.
Hasar, hlaup
og lítið annað
Keðjuverkun (Chain Reaction) ★ /
Handrit: Michael Bortman og J.F. Lawton
Leikstjórú Andrew Davis
Aðalhlutverh Keanu Reeves, Morgan Freeman, Rachel We-
isz, Fred Ward, Kevin Dunn, Brian Cox og Joanna Cassidy
Háskólabíó
Bönnuð innan 12 ára
Örn Markússon
skrifar um kvikmyndir
Hér er hasarinn allsráð-
andi. Keanu Reeves er
nú frekar slappur leik-
ari, en hann þarf ekki að opna
munninn mikið. Hann hleypur
þeim mun meira, enda eru
bæði alríkislögreglan og leyni-
þjónustan á eftir honum. Það
þarf ekki að spyrja að leikslok-
um, sem sýnir e.t.v. hversu trú-
verðug mynd Keðjuverkun er.
Reeves leikur annars há-
skólanema, bráðkláran strák,
sem tekur þátt í tilraunum hóps
vísindamanna við að framleiða
raforku úr vetni. Þetta gengur
upp og fyrr en varir er leyni-
þjónustan komin með puttana í
málið. Tilraunastofan og næsta
nágrenni er sprengt í loft upp
og kennarinn hans myrtur. Ree-
ves og félaga hans, sem Rachel
Weisz leikur, er kennt um allt
saman og þau leggja á flótta.
Morgan Freeman leikur síðan
yfirmann þeirra sem reynir að
hjálpa þeim.
Andrew Davis leikstýrði
Flóttamanninum á þann hátt að
úr varð ein af bestu hasar-
myndum síðari ára. Hann nær
sér ekki oft á strik í þessu verk-
efni, enda handritið slakt.
Hraðinn er mikill og stundum
er atburðarásin spennandi, en
persónurnar eru nær allar al-
veg jafn mikið spurningarmerki
eftir myndina og í byrjun henn-
ar. f myndum sem þessari hafa
„vondu“ kallarnir oft verið vit-
lausir, staurblindir og heyrnar-
lausir á réttum stöðum eða
bara svo ótrúverðugir að það
fer að verða fyndið. Þetta er
sérlega slæmt í Keðjuverkun.
Persónusköpun og örlítið af
gáfulegri atburðarás hefði mátt
koma í stað margra innantómra
eltingarleikja.
Morgan Freeman er einn
besti leikari Bandaríkjanna í
dag. Hann nær ekki einu sinni
að gefa hlutverki sínu líf. Þá er
eitthvað mikið að.
Sigrún Ástrós
frumsýnd í kvöld
Fyrsta frumsýning
Leikfélags Akureyr-
ar á áttugasta sýn-
ingarári þess er í kvöld en
þá leikur Sunna Borg Sig-
rúnu Ástrósu í samnefndu
leikriti eftir breska leik-
ritaskáldið Willy Russell.
Sigrún Ástrós íjallar um
miðaldra konu, börnin tvö
eru flutt að heiman og
hjónabandið er orðið heldur
dauflegt. Sigrún er ekki sátt
við hlutskipti sitt í lífinu,
draumarnir hafa ekki ræst
og hversdagurinn veitir
henni litla gleði.
Með túlkun sinni á Sig-
rúnu Ástrósu heldur Sunna
Borg upp á þrjátíu ára leik-
afmæli sitt. Þráinn Karlsson
leikstýrir en þýðandi verks-
ins er Þrándur Thoroddsen.
í helgarblaði Dags-Tím-
ans verður viðtal við Sunnu
Borg.
leikritinu rifjar Sigrún upp svipmyndir úr lífi sínu og veltir því fyrir sér
með hvaða hætti hún geti nálgast sjálfa sig og lífsgleðina á ný.