Dagur - Tíminn - 15.10.1996, Síða 4
16- Þriðjudagur 15. október 1996 ^Dagur-Címtmt
Unráudaiauót
Opið bréf til dópinnflytjanda
egar þú telur hagnaðinn
af sölu mánaðarins, sem
hlýtur að vera álitleg upp-
hæð, hvernig líður þér þá?
Finnst þér þú vera verðugur
launanna? Veltir þú aldrei fyrir
þér örlögum þeirra sem versl-
uðu af þér efnin? Ertu kannski
að segja sjálfum þér að ef þú
værir ekki að flytja inn og selja
efni, þá væri einhver annar að
gera það? Nú skal ég segja þér
nokkuð sniðugt: Ef þú værir
ekki að gera það, þá væri ein-
um barnamorðingjanum færra
á íslandi. Svo einfalt er það. Ég
veit að þér hlýtur að þykja vænt
um aurana sem þú hefur uppúr
krafsinu, en þú mátt ekki
gleyma hvaðan þeir eru komnir.
Peir eru komnir frá börnum
sem mörg hver liggja núna uppi
í Grafarvogi, í nýja kirkjugarð-
inum. Hin eru öryrkjar til hk-
ama og sálar ævilangt. Þetta
eru seðlar frá fermingarstúlk-
um sem leyfa barnaníðingum
að fara höndum um líkama
sinn, svo þær geti borgað fjæir
efnið sem þú flytur inn.
En þú ert ekki maður sem
kippir þér upp við smáræði. Þú
ert svona maður sem ert hafinn
yfir sóðaskap, ekki satt? Þú ert
svona maður sem rekur þitt
blómlega fyrirtæki, kannski
virtur maður í einhverjum
kreðsum, kannski er stundum
mynd af þér í blöðunum,
kannski í umræðuþáttum í sjón-
varpinu eða í fréttatímum? Þú
hefur þitt örugga skjól, þitt neð-
anjarðarbyrgi þar sem enginn
nær til þín. Þú ert ósnertanleg-
ur. Þú smýgur inn á milli regn-
dropanna. Maður eins og þú
lendir ekki í klandri.
Kannski tókstu þróunarkenn-
ingu Darwins aðeins of bókstaf-
lega, þegar þú varst í gaggó. Þú
hefur ákveðið að verða sá sem
lifði af. Þú ætlaðir þér ekki að
deyja út. Og sjá, þér hefur tekist
það sem þú ætlaðir þér. Þú lifir,
en hinir veiku deyja. Til ham-
ingju. Þú ert svona maður sem
trúir fullyrðingu eins og þessari
hérna: „Það er ekki byssan sem
drepur, það er maðurinn sem
heldur á henni.“ Og þar af leið-
andi er það ekki efnið sem þú
flytur inn sem drepur, heldur
eru það asnarnir sem kaupa
það sem eru að drepa sig. Þeir
ættu jú að vita hvað þeir eru að
gera, ekki satt? Og þér finnst
örugglega ekkert athugavert við
seðlaveski fullt af blóðpening-
um. Hverjum er ekki sama svo
lengi sem veskið er fullt af seðl-
um?
Því miður, fyrir börnin í
þessu landi, verður þess líklega
of langt að bíða að þú verðir
handtekinn. Því miður er dóms-
kerfið eins og það er. Það er svo
undarlegt að allir eru alltaf að
tala um dópið og fórnarlömbin,
en menn eins og þú falla í
skuggann. Mennirnir sem eiga
alla þessa umfjöllun skilið.
Mennirnir sem standa á bakvið
þetta allt. Þú ert í hópi hinna
ósýnilegu, alveg eins og vopna-
framleiðendur heimsins. Eng-
inn spyr hvers vegna styrjöld
brýst skyndilega út einhvers
staðar í heiminum. Þeir, sem
ekki spyrja, vita að það er
vegna þess að vopnaframleið-
endur þurfa að rýma lagerinn.
Það hefúr ekkert með pólitík að
gera. Hún kemur eftirá.
Eins er það með þig. Allir
tala um fórnarlömbin, meðferð-
ir, vímuefnavanda osfrv. osfrv.,
og það er gott og nauðsynlegt,
en það leysir ekki vandann.
Enginn spyr: Hver flytur eitur-
lyfin inn? Hver selur þau? Hver
dreifir þeim?
Starfsemi þinni má líkja við
sprungið rör í húsi þar sem
vatnið fossar inn. Eigendur
hússins hafa mestar áhyggjur af
nýja teppinu á stofugólfinu og í
viðleitni sinni til að vernda það
fyrir vatnselgnum hlaða þeir
'BOGGl'
pz/o r/?o /ið /nr/? /j£> asogo
z/r/o /zos/v/fð/ r// prss
/jpr/? /ZÓSPy/Z/ /J FONDJAfAZ/
sandpokum upp í stofudyrnar. Á
meðan fyllast hin herbergi
hússins af vatni og loks brestur
sandpokavirkið einnig. Þannig
mun þetta halda áfram, hús úr
húsi, þangað til einhverjum
dettur í hug að loka fyrir inn-
takið. Þú ert inntakið og dagar
þínir munu brátt taldir.
Einhverntímann varst þú lít-
ill drengur eða lítil stúlka, ein-
hverntímann varst þú líka barn.
Einhverntímann áttir þú stóra
drauma, vonir um bjarta fram-
tíð. En núna ertu barnamorð-
ingi. Svona er nú komið fyrir
þér. En hversvegna skyldi ég nú
vera að eiga við þig einræðu í
fjölmiðli? Ástæðan er einföld:
mig langar að sjá andlitið sem
fylgir nafninu þínu. Mig langar
að sjá þig stíga útúr skuggan-
um. Mig langar að sjá þig koma
fram opinberlega og útskýra
lögmál dópmarkaðarins fyrir
þeim sem hafa þurft að þola
svo mikið vegna græðgi þinnar.
Hefurðu hugrekki til þess að
létta martröðinni af börnum og
foreldrum? Eða hefurðu aðeins
kjarkinn til að vega úr laun-
sátri, að myrða börn fyrir pen-
inga?
Þegar þú tekur upp næstu
sendingu langar mig að biðja
þig að hugsa, í eitt einasta
augnablik, um þjáninguna sem
þú ert að græða á. Og þegar þú
vigtar grömmin, hvert á fætur
öðru, þá skaltu spyrja sjálfan
þig: Hef ég ekkert betra að gera
við h'f mitt?
Gagnlegur mislestur
Landsfundur Sjálfstæð-
isflokksins endaði,
hélt sig í eigin garði
og bryddaði ekki upp á
neinum nýjungum. Flokkur-
inn staðfesti á fundinum
sömu almennu stefnuna og
verið hefur um langt skeið
og umfram allt þá fór fram
hin mikilvæga foringjahyll-
ing, þar sem Davíð Oddsson
var settur á stall og Friðrik
fékk að sitja á
gólfinu fyrir
neðan. Það
var semsé
ekki farið í
miklar póli-
tískar reisur
þrátt fyrir til-
komumikla
leiksýningu.
Leiksýningin
fór fram og
var ræktuð í
garðinum heima, enda er
þetta jú hinn allra besti
hugsanlegi heimur og allra
besta hugsanlega ástand á
íslandi - flokkurinn í stjórn
og flokksgæðingar fá sína
mola af allsnægtarborðum
foringjanna.
Birtingur í Hafnarfirði
Það kann að hafa verið til-
viljun að þessa landsfundar-
helgi var frumsýnd í Hafn-
arfirði leikgerð af Birtingi
Voltaires og þegar Garri var
að lesa leikdóm Auðar Ey-
dal í DV í gær undir fyrir-
sögninni „Allt er gott“, mis-
las hann og hélt að hann
væri að lesa um landsfund-
inn í Laugardalshöll. Mis-
lesturinn var eitthvað á
þessa leið: Allt yfirbragð
sýningarinnar er gleði fyrir
augað og ber keim af anda
sögunnar. Leikmátanum má
kannski lýsa svo að hann sé
í aðra röndina bernskur. Ól-
afur G. Einarsson fundar-
stjóri lætur liðið bregða á
leik í ýmsum uppákomum
og notar óspart útfærslur og
uppstillingar sem vekja
hlátur áhorfenda. Lands-
fundargestir eru samstilltir
og allir gíra sig inn á þessa
bylgjulengd, þó að stöku
sinnum væri skautað á
mörkum ofleiks. Davíð
Oddsson er bjartsýnin upp-
máluð á hverju sem gengur
og nær glimrandi vel utan
um hlutverk Birtings. Allir
hinir leikararnir bregða sér
í fjölda hlutverka og margt
af því er mjög
skemmtilega
gert. Ég nefni
Kjartan Gunn-
arsson sem
meðal annars
leikur doktor
Altúngu eftir-
minnilega,
Sjálfstæðar
konur x hlut-
verki hinnar
fögru (og
seinna ekki svo fögru) Kún-
ígúndar, Markús Möller í
hlutverki kellingar, Friðrik
Sópphusson sem var
skemmtilegur Kakammbus,
Sólveigu Pétursdóttur í hlut-
verki vandlátu konunnar í
París og síðast en ekki síst
Einar Odd kristjánsson sem
brá sér í margra líki eins og
hin...
Leikdómur -
fréttaskýring
En þó svo að Garri hafi fljót-
lega rankað við sér og áttað
sig á hann var að mislesa
rækilega pistil Auðar, þá fór
það nú einhvern veginn svo
að þessi mislestur hefur
reynst besta fréttaskýringin
af fundinum sem fram hefur
komið, ennþá í það
núnnsta. Kjarni málsins er
einfaldlega að íhaldinu
finnst allt gott og allt miði
að því besta. Það varðar
ekkert um heimsins prjál,
strauma og stefnur en ein-
beitir sér að því að rækta
sinn garð - og sinn foringja.
Garri.