Dagur - Tíminn - 17.10.1996, Blaðsíða 15

Dagur - Tíminn - 17.10.1996, Blaðsíða 15
IBagur-tHímfrat Fimmtudagur 17. október 1996 - 27 Wppá&aCcU útucvipó- ag ójániwvtpóefni Fréttir í fyrirsagnastíl Jóhann Briem framkvœmdastjóri Myndbœjar hf. Skemmtilegasta sjón- varpsefni sem ég sé eru vel gerðar heimilda- myndir um ísland. Þær birtast ekki oft skjánum en þær eru áhugaverðar því þær varpa nýju ljósi á landið. En svo er alltaf ánægjulegt að sjá vandaða þætti eins og Kastljósið hennar Ólafar Rún- ar um unglinga og eiturlyf. Þetta var mjög sterkur þáttur og óhugnanlegt að hugsa til allra þessara, í rauninni dauðvona, unglinga. En svo hafa stjórnvöld kosið að setja vandamálið í nefnd, sem er úrelt stjórnsýsluaðgerð. Af erlendu efni finnast mér franskar kvikmyndir oft skemmtilegar og sömuleiðis eru sumir bresku framhalds- þættirnir skemmtilegir. Ég horfi mjög tilviljana- kennt á sjónvarp. En ég horfi alltaf á fréttirnar en mér finnst þær oft vera í fyrir- sagnastíl, vantar ýmislegt inn í þær. 11-fréttir gefa oft fyllri upplýsingar. Stimdum fyndist mér betra að hafa færri fréttir en ítarlegri um það sem er áhugaverðast á hverjum tíma. Útvarpsefni finnst mér áhugaverðast á Sígildu FM, þar er róleg og góð tónlist. Tónlist getur haft áhrif á aksturslag. Ég held það skipti verulega miklu máli að fólk hlusti á þægilega og rólega tónlist þegar það er að keyra. AHUGAVERT I ICVÖED Sjónvarpið kl. 22.00 Taggart - leikurinn æsist Skosku sakamálasyrpurnar um Taggart og samstarfsfólk hans hafa notið gífurlegra vinsælda hér á landi og eru enn jafnfrá- bærar þótt sá önugi sé fallinn frá. Forsprakki þjófagengis er látinn laus úr fangelsi eftir 15 ára vist og leikur ýmsum forvitni á að vita hvað hann tekur sér fyrir hendur því helmingur gull- stanganna úr síðasta ráni kom aldrei í leitirnar. Engum er greiði gerður með því að fara of náið út í söguþráðinn fyrir fram en eins og vant er fara menn að geispa golunni einn af öðrum og þá kemur til kasta hinna glúrnu lærlinga Tagg- arts heitins. Þetta er annar þátturinn af þrem- ur. í aðalhlutverkum eru James MacPherson, Blythe Duff, Colin McCredie og Iain Anders. Meðmæli í melleríi Einkamáladálkur DV er hin ágætasta skemmtun og sennilega vanmetinn af mörgum þeim sem á annað borð lesa blaðið. Mikill mis- skilningur er að þeir einir ættu að lesa dálkinn sem eru í maka- eða hjásvæfuleit - h't- um á 2 dæmi úr síðasta mánudagsblaði DV: „Ilalló, ég er 31 árs, frá- skilinn, með margvísleg áhugamál. ÉG STEND EKKI f BALLFERÐUM og mig lang- ar....“ (Leturbreyting blaðs- ins). Þetta er náttúrlega hrein snilld; að standa ekki í ball- ferðum. Annað dæmi úr mánu- dagsblaðinu: „Ungur maður, aðeins 52 ára (!), reglusamur, glaðvær og léttur í lund, Hef meðmæli (!), óskar eftir að kynnast stúlku. ..." Það er ljóslega afstætt hvað er að vera ungur maður og ekki er leiðinlegra að hafa meðmæli. Frá hverjum? Fyrr- verandi hjásvæfum? Hitt hefur heldur skemmt fyrir rýni dagsins að nú orðið er allt of fátítt að einstakling- ar auglýsi eftir kynnum í einkamáladálki DV. Bláar, Makalausar og Rauðar línur hafa tekið völdin og þarf eng- inn að efast um að stutt er í að starfsemi af þessum toga sé farin að nálgast ískyggilega brot á lögum um vændi. Einhverju sinni gerði rýnir til- raun til að ræða þessi mál við yfirvöld en þar virtust menn ásáttir að líta undan og sögðu erfitt að rannsaka þessa starf- semi. En þar sem þetta er fjöl- miðlarýni en ekki eitthvað annað þá verður ekki séð að þessi hlið mála eigi neitt er- indi hér. Góðar stundir. SJ Ó N VA R P - UTVARP i7 SJONVARPIÐ 10.30 Alþingi. Bein útsending frá þingfundi. 16.30 íþróttaauki. Nissan-deildin í handbolta. Endursýning frá miöviku- dagskvöldi. 16.45 Leiöarljós. 17.30 Fréttir. 17.35 Táknmálsfréttir. 17.45 Auglýsingatími - Sjónvarps- kringlan. 18.00 Gunna (Gwenno). Leikin mynd fyrir börn. 18.15 Friöþjófur (3:6). 18.25 Tumi (3:44) (Dommel). Hol- lenskur teiknimyndaflokkur um hvutt- ann Tuma og fleiri merkispersónur. 18.50 Leiöin til Avonlea (3:13) (Road to Avonlea). 19.50 Veöur. 20.00 Fréttir. 20.30 Dagsljós. 21.05 Syrpan. 21.30 Hasar á heimavelll. 22.00 Taggart - Dauös manns kista (2:3) (Taggart: Dead Man's Chest). Skoskur sakamálaflokkur þar sem rannsóknarlögreglumenn í Glasgow glíma viö erfitt sakamál. 23.00 Ellefufréttir. 23.15 Þingsjá. Umsjónarmaður er Helgi Már Arthursson. 23.35 Dagskrárlok. STOÐ 2 12.00 Hádegisfréttir. 12.10 Sjónvarpsmarkaðurinn. 13.00 New York löggur. 13.45 Stræti stórborgar (3:20) (Homicide: Life on the Street) 14.30 Sjónvarpsmarkaöurinn. 15.00 Utan alfaraleiöa. 15.30 Hjúkkur (2:25) (Nurses) 16.00 Fréttir. 16.05 Chris og Cross. 16.30 Sögur úr Andabæ. 17.00 Meö afa. 18.00 Fréttir. 18.05 Nágrannar. 18.30 Sjónvarpsmarkaöurinn. 19.00 19 20. 20.00 Systurnar (11:24) (Sisters). 20.55 Hope og Gloria (11:11) (Hope and Gloria). 21.25 Seinfeld. 22.20 Listi Schindlers (Schindler’s List). Þaö tók Steven Spielberg tíu ár aö fullkomna þetta meistaraverk en eftir að myndin kom fyrir almenningssjónir hlaut hún metaðsókn og sjö Ósk- arsverðlaun, þar á meöal sem besta mynd ársins 1993. Aðalhlutverk: Liam Neeson, Ben Kingsley, og Ralph Fiennes. 1993. Stranglega bönnuö börnum. 01.30 Dagskrárlok. s T o Ð STOö 3 08.30 Heimskaup - verslun um víöa veröld. 17.00 Læknamiöstööin. 17.20 Borgarbragur (The City). 17.45 Á tímamótum (Hollyoaks) (32:38) (E). 18.10 Heimskaup - verslun um víða veröld. 18.15 Barnastund. 19.00 Ú la la (Ooh La La). 19.30 Alf. 19.55 Skyggnst yfir sviöiö (News Week in Review). 20.40 Kaupahéönar (Traders) (3:13). 21.30 Bonnie. 21.55 Þögult vitnl (Silent Witness) (2:2). 22.50 Lundúnalíf (London Bridge) (24:26). Breskur framhaldsmynda- flokkur. 23.15 David Letterman. 24.00 Geimgarpar (Space: Above & Beyond) (21:23). Bandarískur spennu- myndaflokkur. 00.45 Dagskrárlok Stöövar 3. %# svn 0 SYN 17.00 Spítalalíf (MASH). 17.30 Taumlaus tónlist. 20.00 Kung Fu. 21.00 Lygar (The Liar's Club). Nauög- un og afleiðingar hennar er umfjöllun- arefniö I kvikmyndinni Lygar sem Sýn sýnir á fimmtudagskvöld. Marla segir Mimi, vinkonu sinni, aö Pat hafi nauðgaö sér í samkvæmi kvöldiö áöur. Hún kemur vitneskjunni á fram- færi við David og Jimbo sem ganga hart aö Pat en hann neitar ásökunum og segir samfarirnar hafa veriö meö vilja Mörlu. Vinahópurinn er nú í upp- námi enda þarf aö taka afstööu I mál- inu og um leið er Ijóst aö einhver seg- ir ósatt. Leikstjóri er Jeffrey Porter en aðalhlutverk eru í höndum Wil Wheaton, Brian Kause og Soleil Moon Frye. Myndin er frá árinu 1995 og er stranglega bönnuö börnum. 22.30 Sweeney. Þekktur breskur sakamálmyndaflokkur með John Thaw t aðalhlutverki. 23.20 Uppheimar (Upworld). Spenn- andi og óvenjuleg ævintýramynd. 00.50 Spítalalíf (MASH). 01.15 Dagskrárlok. RÁS 1 9.00 Fréttir. 9.03 Laufskálinn. 9.38 Segöu mér sögu, Ævintýri Nálfanna. 9.50 Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur. 10.00 Fréttir. 10.03 Veðurfregnir. 10.15 Árdegistónar. 11.00 Fréttir. 11.03 Samfélagiö í nærmynd. 12.00 Fréttayfirlit á há- degi. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veöurfregnir. 12.50 Auölindin. 12.57 Dánarfregnir og auglýsingar. 13.05 Hádegisleikrit Útvarpsleikhússins. Veggirnir hlusta, eftir Margaret Millar. 13.20 Norrænt. 14.00 Fréttir. 14.03 Útvarpssagan, Lifandi vatniö, eftir Jakobínu Siguröardóttur. 14.30 Miö- degistónar. 15.00 Fréttir. 15.03 Laus- læti - frá ráöstefnu í Háskólanum á Akureyri. 15.53 Dagbók. 16.00 Frétt- ir. 16.05 Tónstiginn. 17.00 Fréttir. 17.03 Víösjá. 18.00 Fréttir. Víösjá heldur áfram. 18.30 Leslö fyrir þjóö- Ina: Fóstbræörasaga. 18.45 Ljóö dagsins. 18.48 Dánarfregnlr og aug- lýsingar. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Auglýsingar og veðurfregnir. 19.40 Morgunsaga barnanna endurflutt. - Barnalög. 20.00 Tónlistarkvöld Út- varpsins. 22.00 Fréttir. 22.10 Veöur- fregnir. 22.15 Orö kvöldsins: Sigríöur Valdimarsdóttir flytur. 22.20 Flugufót- ur. 23.00 Sjónmál. 24.00 Fréttir.

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.