Dagur - Tíminn - 09.11.1996, Blaðsíða 8
Laugardagur 9. nóvember 1996 - VIII
MINNINGARGREINAR
33agur-SIímtmt
HJÓNAMINNING
Gimnlaugur Jósefsson og
Þóra Loftsdóttir
Fæddur 12. október 1896 á
Syðri-Völlum í Miðflrði. Dá-
inn í sjúkrahúsinu í Keflavík
19. desember 1981. Foreldrar:
Jósef bóndi á Hörghóli í Vestur-
hópi og víðar (f. 21. ág. 1852, d.
19. mars 1929) Gunnlaugsson og
kona hans, Kristín (fædd 20. febr.
1870, dáin 26. júní 1961)
Hansdóttir, bónda á Litla-Ósi í
Miðfirði, Jóhannssonar.
Kennarapróf 1919. Námsdvöl í
Noregi 1924. Kennari í Þorkels-
hólshreppi, V.-Hún„ 1919-1920;
Hrunamannahrcppi, Árnessýslu,
1920-1926; Laxárdalshreppi,
Dalasýslu, 1926-1927; Barnaskól-
anum Miðneshreppi, Sandgerði,
1927-1943. Bókari og skrifstofu-
stjóri hjá h.f. Miðnesi, Sandgerði,
frá 1947 til 1971. Oddviti hrepps-
nefndar Miðneshrepps 1937-
1947. Hreppstjóri Miðneshrepps
frá 1941 til 1972. Formaður bún-
aðarfélags hreppsins 1937-1943.
Fjárhaldsmaður Hvalsneskirkju
frá 1942 til 1977. Einn af stofn-
endum Lionsklúbbs Sandgerðis
og heiðursfélagi síðustu árin.
Einnig var hann frímúrari um
áratugi. Hann hóf sandgræðslu I
samvinnu við Gunnlaug Krist-
Orri Möller
Einarsson
Fæddur 13. maí 1976 — Dáinn 17. október 1996
/ dimmum skugga af löngu liðnum vetri
mitt Ijóð til þín var árum saman grafið.
Svo ungur varstu, er hvarfstu út á hafið,
hugljúfur, glœstur, öllum drengjum betri.
Og því varð allt svo hljótt við helfregn þína
sem hefði klökkur gígjustrengur brostið.
Og enn ég veit margt hjarta, harmi lostið,
sem hugsar til þín alla daga sína.
En meðan árin þreyta hjörtu hinna,
sem horfðu eftir þér í sárum trega,
þá blómgast enn, og blómgast œvinlega,
þitt bjarta vor í hugum vina þinna.
Og skín ei Ijúfast œvi þeirra yfir,
sem ung á morgni lífsins staðar nemur,
og eilíflega, óháð því, sem kemur,
í œsku sinnar tignu fegurð lifir?
Sem sjálfur Drottinn mildum lófum lyki
um lífsins perlu í gullnu augnabliki.
(T.G.)
Hvíl í friði, ungi vinur, og hafðu þökk fyrir allt.
Erla.
Auður Kristín Jóhannesdóttir,
Stangarholti 36, Reykjavík, andaðist í
Landspítalanum að morgni 30. október.
Árni Haildórsson,
Víðimel 23, Reykjavík, lést á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 31. október.
Árni Vilberg,
Rauðalæk 32, lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur
aðfaranótt 31. október.
Ásgrímur Albertsson,
gullsmiður og fv. bankafulltrúi, Vogatungu
6, Kópavogi, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur
22. október. Hann var jarðsunginn frá
Digraneskirkju miðvikudaginn 30. október.
Bjarnheiður Ingimundardóttir
frá Utla-Hvammi, Áilhólsvegi 43, andaðist í
Landspítalanum þann 21. október.
Björgvin Magnússon,
Tunguvegi 46, Reykjavík, andaðist í Sjúkra-
húsi Reykjavíkur 4. nóvember.
F.inar Pálsson,
Sólvallagötu 28, Reykjavík, lést á heimili
sínu 30. október.
Einar Sigurjónsson,
skipstjóri og fyrrverandi forseti Slysavarna-
félags íslands, Háholti 16, Hafnarfirði, varð
bráðkvaddur sunnudaginn 27. október.
Elínborg Óladóttir,
Kleppsvegi 132, Reykjavík, lést aðfaranótt
mánudagsins 28. október.
Erla Elínborg Sigurðardóttir,
Frostaskjóli 51, Reykjavík, lést í Landspít-
alanum 18. október. Jarðarfórin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Fannberg Jóhannsson,
Hraunbúðum, Vestmannaeyjum, lést í
Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 23. október.
Friðbjöm Guðbrandsson,
dvalarheimilinu Eir, áður til heimilis á Hof-
teigi 34, Reykjavík, er látinn.
Gerður Árný Georgsdóttir (Dæja),
frabakka 14, lést á heimili sínu aðfaranótt
30. október sl.
Guðmunda G. Guðmundsdóttir
lést í Landspítalanum 2. nóvember.
Guðmundur Jónsson,
Gautlandi 15, Reykjavík, andaðist í Borgar-
spítaianum 14. október. Jarðarförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Guðni Guðmundsson
bóndi í Hellatúni, Ásahreppi, er látinn.
Guðný Jónsdóttir Bieitvedt,
Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík, andaðist 12.
október. Útfórin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Guðríður Eiríksdóttir,
Hringbraut 70, Keflavík, áður til heimilis
að Hafnargötu 77, lést föstudaginn 25.
október á Sjúkrahúsi Suðurnesja. Útfór
hennar var gerð frá Keilavíkurkirkju fóstu-
daginn 1. nóvember.
Guðrún Ágústa Ágústsdóttir,
Heiðarvegi 55, Vestmannaeyjum, lést í
Sjúkrahúsi Vestmannaeyja miðvikudaginn
23. október.
Guðrún H. Árnadóttir,
mundsson sandgræðslustjóra,
frænda sinn, og sá um byggingu
varnargarðs gegn sandgangi. Átti
þátt í að iagður var vegur yfir
Miðnesheiði til Keflavíkur, er
stytti leiðina til mikilla muna. í
tryggingarnefnd Guilbringusýslu
og fræðsluráði.
Kona, 26. maí 1927, Þóra (f.
16. sept. 1904, dáin 10. maí 1986)
Loftsdóttir, bónda í Haukholtum,
Hrunamannahreppi, Þorsteins-
sonar, og konu hans, Kristínar
Magnúsdóttur. Börn: Kristín sím-
stöðvarstjóri, Sandgerði, f. 22.
aprfl 1928, gift Pétri Hjaltasyni,
bifreiðarstjóra og ökukennara.
Þau áttu saman tvo syni, en ann-
ar er látinn; hún átti son áður en
þau giftust. Hulda, f. 15. des.
1929, hjúkrunarkona, Kópavogi.
Var gift Þórhalli Þorsteinssyni,
bókaútgefanda og bókbindara
(M. Jónssonar, skólastjóra á Ak-
ureyri), en hann lést 11. jan.
1988. Þau áttu saman tvo drengi
og tvær stúikur. Loflur Haukur,
rafvirki og lögregluþjónn, fæddur
2. ágúst 1931, dáinn 27. sept.
1988. Var kvæntur Ragnheiði
Bjarnadóttur, er vann við bók-
band en er látin. Áttu tvær dætur
og einn son. Jósef Hilmar, f. 19.
ágúst 1933, prentsmiðjustjóri,
búsettur í Kópavogi, eigandi
Skemmuprents, kvæntur Málfríði
Þórðardóttur, verkamanns og
trúboða, Jóhannessonar. Hún
hefur unnið við bókband á ýms-
um vinnustöðum. Þau eiga tvær
dætur. Með fyrri konu sinni, Sig-
ríði Ingu Þorkelsdóttur, eignaðist
Hilmar ljóra syni. Gylfi, gjaldkeri
hjá íslenskum Aðalverktökum á
Keflavíkurflugvelli, f. 22. des.
1944. Framanskráðar upplýsing-
ar eru fengnar úr Kennaratali á
íslandi I og III, svo og frá Hilmari
Gunnlaugssyni prentsmiðju-
stjóra.
Jarðneskar leifar Gunnlaugs
og Þóru hvfla í kirkjugarðinum á
Hvalsnesi.
Gunnlaugur hóf kennslu á heima-
slóðum, eða í Þorkelshólshreppi,
árið eftir að hann lauk prófi frá
Kennaraskóla íslands. Á æskuár-
um dvaldi hann um skeið á Litlu-
Ásgeirsá í Víðidal og sinnti bú-
störfum þar.
ANDLÁT
Meistaravöllum 31, andaðist í Sjúkrahúsi
Reykjavíkur föstudaginn 1. nóvember.
Gunnar Möller
frá Siglufirði, Safamýri 55, lést 3. nóv.
Gunnar Óskarsson,
Víðivöllum, varð bráðkvaddur að heimili
sinu 25. október.
Helga Weisshappel Foster
listmálari lést á öldrunarheimilinu Arnar-
holti hinn 19. október sl. Útfórin hefur far-
ið fram í kyrrþey.
Jófríður Kristjánsdóttir
frá Tröllanesi, Neskaupstað, lést 19. þessa
mánaðar. Útförm hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Jón Hörður Árnason,
Stífiuseli 5, Reykjavík, lést í Landspítalan-
um 22. október.
Jón Egilsson ,
útvarpsvirkjameistari, Kirkjuteigi 13, lést í
Sjúkrahúsi Reykjavíkur mánudaginn 4.
nóvember.
Jón Kristjánsson
húsgagnabóistrari, Bogahlíð 8, andaðist í
Sjúkrahúsi Reykjavíkur 1. nóvember.
Jónfna Guðrún Friðleifsdóttir,
Fannborg 1, Kópavogi, lóst í Vífilsstaðaspít-
ala 15. október. Útför hennar hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Kristín Ingvarsdóltir,
Jöldugróf 20, Reykjavík, lést í Landspítal-
anum 13. október. Útför hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Næstu árin stundaði Gunnlaug-
ur kennslu í Hrunamannahreppi í
Árnessýslu. Var þá enn enginn
fastur skóli þar í sveit. Kennt var á
sveitabæjum, meðal annars í
Haukholtum. Þar komst hann í
kynni við heimasætu á bænum,
sem Þóra Loftsdóttir hét. Gott ef
Gunnlaugur kenndi henni ekki, því
að hún var átta árum yngri en
hann. Og einmitt árið eftir að
kennslu lauk í hreppnum giftu þau
sig, hinn 26. maí 1927. Veturinn á
undan kenndi Gunnlaugur í Laxár-
dalshreppi í Dalasýslu sem far-
kennari. Þá var haldið til Suður-
nesja, þar sem þau hjón bjuggu
alla tíð síðan. Fyrst áttu þau
heima á Ökrum á Hvalsnesi og
kenndi hann við fastan skóla þar í
plássinu og síðan í Sandgerði.
Hjónin byggðu þá húsið Sólbakka
þar á staðnum, þar sem þau
bjuggu allt til ársins 1957, að þau
byggðu hús á Suðurgötu 38. Gunn-
laugur var fastur kennari þarna
allt tii 1943, er hann kaus að
hætta kennslu, þá hátt á flmm-
tugsaldri, og tók að stunda skrif-
stofustörf í Sandgerði. Lengst af
kennslutíma Gunnlaugs var Valdi-
mar Össurarson skólastjóri. Gunn-
laugur vann fyrst eftir kennslulok
hjá kaupfélaginu á staðnum og
síðan hjá h.f. Miðnesi, eins og fyrr
segir. Hann var nákvæmur í störf-
um sínum, mjög áreiðanlegur og
eftirsóttur til starfa sem útheimtu
ritleikni og glöggskyggni í meðferð
talna. Einnig kunni hann vel að
stilla skap sitt.
Kristín Jóhannesdóttir,
dvalarheimilinu Seljahlíð, Reykjavík, áður
til heimilis að Hringbraut 39, lést í Sjúkra-
húsi Reykjavíkur 22. október.
Kristín Lily Kjærnested,
Þórufeili 20, Reykjavík, lést á heimili sínu
laugardaginn 26. október.
Kristján Hólmsteinn llelgason
(Lilii frá Bjargi), Njálsgötu 85, Reykjavík,
andaðist í Landspítalanum aðfaranótt 26.
október sl.
Liv Jóhannsdóttir,
Silfurteigi 5, Reykjavík, lést á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 30. október síðastliðinn.
Margrét Þórðardóltir Haaek
lést í Danmörku 13. október.
Marianne I’lanvig
lést í Kaupmannahöfn 3. nóvember.
Ólafur G. Gfslason
verslunarmaður, Ölduslóð 36, Hafnarfirði,
andaðist í Sjúkrahúsi Reykjavíkur 25. októ-
ber.
Ólafur Jcnsson,
prófessor og fyrrverandi forstöðumaður
Blóðbanka lslands, er látinn.
Ólafur J. Long,
Grensásvegi 56, lést í Landspítalanum að-
faranótt miðvikudagsins 23. október.
Ragnheiður K. Björnsdóttir
lést í Sjúkrahúsi Akraness þann 29. októ-
ber sl. Jarðarfdrin liefur farið fram í kyrr-
þey að ósk hinnar látnu.
Sigríður Guðmundsdóttir
Þóra, kona Gunnlaugs, má ekki
gleymast í þessu yfirliti. Á heimili
þeirra hjóna var gestkvæmt og
mæddi það að sjálfsögðu mjög á
húsfreyjunni. Ilúsbóndinn gegndi
mörgum opinberum störfum og
þurftu ýmsir við hann að ræða.
Þóra var iðjusöm. Til marks um
það prjónaði hún margar flíkur
fyrir fólk í nágrannabyggðum, og
vel að merkja: allt var þetta unnið
eftir að kreíjandi heimilisstörfum
lauk.
Snemma tóku opinber störf að
safnast Gunnlaugi á hendur, eins
og yfirlitið í upphafi þessarar
hjónaminningar ber vitni. Elju-
maður var hann einstakur og átti
oft langan vinnudag.
Hilmar prentari Gunnlaugsson
hefur tjáð þeim sem þetta ritar, að
oft hafi faðir hans setið yfir emb-
ættisbókum og færslum langt fram
eftir kvöldi. Hætt er við að tíma-
kaupið hafi oft verið í lægra lagi.
Starfsskyldurnar gengu fyrir öllu.
Af framansögðu má ljóst vera
að Gunnlaugur hefur um langa
hríð, ásamt konu sinni, lagt Sand-
gerði drjúgt lið. Hann var svo að
segja allt í öllu á staðnum. Oft eru
hæfileikamenn það kafnir störfum
að nærri stappar heilsutjóni. Á þá
er hlaðið, eins og kunnugt er.
Gunnlaugur var lengi að. Hann
vann ekki peninganna vegna, því
að hann var einkar sanngjarn.
Þegar liðin er öld frá fæðingu
hans, minnast hans margir á Mið-
nesi með virðingu og þökk.
Auðunn Bragi Sveinsson.
frá Akri í Vestmannaeyjum, til heimilis að
Sólheimum 23, lést í Landspítalanum 31.
október.
Sigríður Ólafsdóttir,
Stórholti 43, Reykjavík, lést á heimili sínu
25. október.
Sigrún Kristín Jónsdóttir
frá Söndum í Miðfirði, síðast til heimilis í
Hamraborg 38, Kópavogi, andaðist í
Sjúkrahúsi Reykjavíkur í Fossvogi 29. okt.
Skúli Sigurðsson
lögfræðingur, Bauganesi 4, Reykjavík, er
látinn.
Tómas Hólm Viihjálmsson,
Kirkjustræti 2, Reykjavik, lést á öldrunar-
deild í Hátúni lOb 22. október. Jarðarfórin
hefur þegar farið fram.
Unnur Björnsdóttir
frá Hrísey lést á hjúkrunar- og dvalarheim-
ilinu Hornbrekku í Ólafsfirði aðfaranótt 24.
október.
Valdimar I. Einarsson,
Söndru, Stokkseyri, lést í Landspítalanum
4. nóvember.
Valtýr Hólmgeirsson,
fyrrv. stöðvarstjóri Pósts og síma á Raufar-
höfn, lést í Sjúkrahúsi Húsavíkur föstudag-
inn 25. október.
Þoriákur Ebenesersson
er látinn.
Þórhallur Sigurjónsson
heildsali, Hrauntungu 43, Kópavogi, lést á
heimili sínu 3. nóvember