Dagur - Tíminn - 22.11.1996, Blaðsíða 6
6 - Föstudagur 22. nóvember 1996
FRETTASKYRING
|Dagur-®œróm
tÉMHgjgBi
Framsóknar-
maddaman
áttræð og em
Valgerður
Jóhannsdóttir
skrifar
Flokksþing Framsóknar-
flokksins hefst í dag, en
Framsóknarmenn í
Reykjavík tóku smá forskot á
sæluna í gær og héldu opinn
fund um kvótakerfið og veiði-
leyfagjald. Þetta var gert til að
hita upp fyrir flokksþingið, að
því er sagði í fundarboði, en
það er viðbúið að þar verði
nokkuð tekist á inn sjávarút-
vegsstefnuna. Framsóknar-
menn af Reykjanesi koma með
ályktun sem er hæpið að renni
mjög ljúflega niður í flokks-
menn. Þar segir m.a. „Veiði-
leyfagjald er ekki rétt að setja á
sjávarútveg að óbreyttu. Eðli-
legt er hins vegar að endur-
skoða þá afstöðu, þegar greinin
hefur náð að laga sig að bætt-
um aðstæðum. Auðlindagjald
getur t.d. verið ígildi virðis-
aukaskatts á allar féseldar
aflaheimildir." Einnig er bent á
þann möguleika að „úthlutun
aflaheimilda í þorski umfram
t.d. 220.000 lestir verði hagað
með þeim hætti að nýliðar í
greininni fái hluta og hluti verði
seldur á uppboðsmarkaði.“ Þá
segir í ályktuninni að það verði
að gera úttekt á umfangi við-
skipta með kvóta og það verði
að eyða þeirri leynd, sem yfir
þeim hvíli. Því er lagt til að „allt
framsal aflaheimilda verði látið
fara um opinbera nefnd, sem í
eigi sæti fulltrúar útvegsmanna
og samtaka sjómanna," eins og
segir orðrétt í ályktun sjávarút-
vegshóps Reykjanesanga Fram-
sóknarflokksins. Hún nýtm- þó
tæpast stuðnings allra fram-
sóknarmanna á Reykjanesi, því
samkvæmt heimildum Dags-
Tímans náðist ekki samkomu-
lag um þetta mál á kjördæmis-
þingi þeirra á dögunum og því
var vísað til sjávarútvegshóps-
ins. Það er ólíklegt að tillögurn-
ar nái fram að ganga, en hins
vegar hefur spurst út meðal
framsóknarmanna að formaður
Framsóknarmenn
eiga eftir að takast
á um sjávarútvegs-
mál á flokksþingi
sínu um helgina og
er jafnvel búist við
að formaður flokks-
ins boði breytingar
á stefnu hans.
flokksins, Halldór Ásgrímsson,
ætli að boða breytingar á sjáv-
arútvegsstefnunni í ræðu sinni
á flokksþinginu.
Lánasjóðsdeilan
Framsóknarmenn hafa undan-
fárið deilt hart við Björn
Bjarnason, menntamálráðherra
Sjálfstæðisflokksins, um Lána-
sjóð íslenskra námsmanna.
Þeim deilum á tæpast eftir að
linna, ef drög að ályktun um
sjóðinn verða samþykkt óbreytt
á flokksþinginu. Áthygli vekur
að ekki aðeins er hnykkt á
kröfum um mánaðargreiðslur
námslána og lækkun endur-
greiðsluhlutfalls, heldur segir í
drögunum að framsóknarmenn
vilji að hætt verði að taka vexti
af námslánum, enda séu mn
framfærslulán að ræða.
Menntamálaráðherra hefur til
þessa ekki verið til viðræðu um
að taka upp mánaðarlegar
greiðslur lána, en hins vegar
sagt að hann teldi rétt að létta
endurgreiðslurnar. Forystu-
menn Framsóknar- og Sjálf-
stæðisflokks hafa undanfarna
daga reynt að leysa þessa deilu,
sem er sögð ein sú erfiðast sem
á borð stjórnarflokkanna hefur
komið, enda einstakir þing-
menn Framsóknar ekki sparað
stóryrði í málinu og mennta-
málaráðherra ekki legið á sín-
um skoðunum heldur. Ýmsir
framsóknarmenn höfðu gert sér
vonir um að búið yrði að leysa
málið fyrir flokksþingið, enda
lánasjóðurinn eitt helsta bar-
áttumál flokksins í síðustu
kosningum. Það er hins vegar á
þessari stundu ekki útlit fyrir
að það takist.
Kynjakvóti
24.ílokksþing Framsóknar-
flokksins er jafnframt afmælis-
þing, því framsóknarmaddam-
an er 80 ára á þessu ári. Útlit
er fyrir er að á þessum tíma-
mótum verði samþykkt jafnrétt-
isáætlun flokksins til aldamóta.
Samkvæmt tillögu að slíkri
áætlun er gert ráð fyrir að sér-
stakur jafnréttisráðgjafi starfi á
vegum flokksins og vinni að
stefnumótun í jafnréttismálum.
Allar stofnanir flokksins, sér-
sambönd, kjördæmastjórnir,
þingflokkur og framkvæmda-
stjórn verði að gera starfsáætl-
un, um hvernig þær ætli að
vinna að framgangi jafnréttis-
áætlunarinnar. Einnig segir þar,
að við skipan í nefndir og
stjórnir á vegum flokksins,
skuli leitast við að hafa hlutföll
kynjanna sem jöfnust. Sérstaka
athygli vekur að í tillögunni
segir að við röðum á framboðs-
lista skuli beita aðferðum, sem
tryggja það að hlutur kynjanna
verði sem jafnastur hjá flokkn-
um á alþingi og í sveitastjórnum.
Frá fundi framsóknarmanna á Hótel Borg f Reykjavfk í gær
Mynd Pjetur
Áliðnaður
Dæmigerð flölmiðlabóla
Talsmaður Lands-
virkjunar gefur lítið
fyrir „heimsendaspá"
Financial Times um
áliðnað heimsins
Financial Times í London
spáir mikilli dýfu í mark-
aðsverði á áli á komandi
árum. Spámenn blaðsins tala
um verðlækkanir líkar þeim
sem urðu fyrir nokkrum árum
og ollu miklu tjóni í álfram-
leiðslu heimsins.
„Nú er vaxandi áhugi hjá ál-
framleiðendum að auka fram-
leiðslugetuna. Þá skiptir máli
að vera snöggur til. Þeir fyrstu
sem staðfesta áform sín gera
hinum sem eru seinna á ferð-
inni erfitt fyrir. Þetta sem fram
kemur í Financial Times er
enginn nýr sannleikur og nóg
er nú af spámönnunum, sem
ekki ber nú alveg saman. Þessi
spá er svona, svo eru aðrar sem
ganga í aðrar áttir,“ sagði Þor-
steinn Hilmarsson, upplýsinga-
fulltrúi Landsvirkjunar, í gær.
Hann sagði að hér væri um að
ræða dæmigerða fjölmiðlabólu.
„Það er geysilega erfitt að
spá svona langt fram í ti'mann
um verð á áli á heimsmarkaði.
Þessar upplýsingar, að álverðið
geti sveiflast næstu áratugina á
milli þúsund og þrjú þúsund
dollara tonnið, eru ekkert sér-
staklega merkilegar. Markaður-
inn sveiflast mikið, en maður
sér engar forsendur fyrir því að
sveiflurnar breytist, ekkert sem
eykur þær og raunverulega
ekkert sem minnkar þær. Að
jafnaði hafa menn verið að
reikna með verði sem liggur
einhvers staðar rétt fyrir neðan
miðjuna,“ sagði Yngvi ILarðar-
son, hagfræðingur og rekstrar-
ráðgjafi, í samtali við Dag-Tím-
ann í gær.
Yngvi sagði að álnotkun í
heiminum væri að aukast, en
það væri framleiðslan líka.
„Ég sé enga sérstaka ástæðu
til svartsýni. Menn eru þarna
með viss áform uppi um aukn-
ingu á framleiðslugetu í heim-
inum. Það er ekkert sem segir
að þessi áform öll verði að
veruleika," sagði Yngvi.
Haft hefur verið eftir Dan
Peterson, eiganda Columbia
Ventures, um framtíðarhorf-
urnar að hann gæti sagt það
eitt að „markaðurinn sveiflað-
ist.“ -JBP