Dagur - Tíminn - 23.11.1996, Blaðsíða 8
8 - Laugardagur 23. nóvember 1996
iDagur-ÍÍIímtmT
PJOÐMAL
®agur- Œímítm
Útgáfufélag: Dagsprent hf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjóri: Stefán Jón Hafstein
Aðstoðarritstjóri: Birgir Guðmundsson
Framkvæmdastjóri: Marteinn Jónasson
Skrifstofur: Strandgötu 31, Akureyri, Garðarsbraut 7, Húsavtk og Þverholti 14, Reykjavík
Símar: 460 6100 og 563 1600
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk. 1.600 kr. á mánuði
Lausasöluverð kr. 150 og 200 kr. helgarblað
Prentun: Dagsprent hf./ísafoldarprentsmiðja
Grænt númer: 800 70 80
Fax auglýsingadeildar: 462 2087 - Fax ritstjórnar: 462 7639
Frumkvæði hrifsað
r
í fyrsta lagi
Það er ekki tilviljun að sjá mátti hálfvolgan fram-
sóknarmann brosandi úti í banka í gær með gíró-
seðil í höndum. Hann var loksins búinn að gera
það upp við sig að borga félagsgjöldin. Sagðist
ætla að vera í vinningsliðinu. Eftir opnunina á
flokksþingi í gær á Framsóknarflokkurinn alla
möguleika á að uppfylla væntingar þessa félags-
manns og verða vinnmgslið í íslenskum stjórnmál-
um. Halldór Ásgrímsson hrifsaði þar til sín og
flokksins frumkvæði í þjóðfélagsumræðunni með
því að varpa út nokkrum pólitískum sprengjum,
ekki síst í sjávarútvegsmálum.
í öðru lagi
Formaður Framsóknarflokksins teflir djarft með
útspili sínu. Að ríkið sjálft leigi á kvótamarkaði
þær veiðiheimildir sem nú eru að bætast við og
slái þannig á hið háa markaðsverð veiðiheimilda,
er eitt og sér gríðarlegur eldsmatur. Þrátt fyrir að
Halldór geri sér far um að hafa fast land undir fót-
um með því að undirstrika réttilega gildi og árang-
ur kvótakerfisins, eru skrefin sem hann tekur það
stór að þau verða stórpólitísk. Þau eru líka það
stór að þau skila flokknum að framlínu stjórn-
málaumræðunnar. Það á enn eftir að koma í ljós
hvort þau voru rétt.
þriðja lagi
Með miðjulægan Sjálfstæðisflokk til hægri og
markaðssinnaða(r) jafnaðarmannasamfylkingu(ar)
af einhverju tagi til vinstri, verður pólitísk staða
miðjunnar sjálfkrafa sterk. Takist frjálslyndum
miðjuflokki auk þess að vera stórstígur dráttarklár
stjórnmálaumræðunnar þarf ekki að koma á óvart
þó gíróseðlar flokksins séu borgaðir. Áttræð fram-
sóknarmaddaman er á bullandi séns á afmælisár-
mu.
Birgir Guðmundsson.
Sp
Hefurðu áhyggjur af stöðu grunnskólanema
á fslandi samanborið við aðrar þjóðir?
Sigurður Grétar
Guðmundsson
nemandi í 10. bekk
Síðuskóla á Akureyri
Nei, ég hef engar
áhyggjur af því.
Ég held að krakk-
ar á íslandi séu latari að
læra og svo er oft lítill
friður fyrir þá sem vilja
læra og einbeita sér í
skólanum.
Erla Malen
Óskarsdóttir
nemandi í 10. bekk
Síðuskóla á Akureyri
Einhver
verður
neðst.
betra að
kennslu og
bekkjunum
meiri athygli kennarans
og til að láta kennarann
hjálpa sér í tfmum.
þjóðin
að vera
baö væri
fá meiri
fækka í
til að fá
Arnar Birgir
Jónsson
8. bekk i Iléttarholts-
skóla, Reykjavík
Eg held að ailir
nemendur séu á
móti því að lengja
skóladaginn eða stytta
sumarfríin, en það mætti
vel auka kennslu í stærð-
fræði og ýmsum raun-
greinum. Ýmislegt af því
sem við erum að læra,
eins og prímtöluruglið
held ég að verði aldrei
notað, stærðfræðin mætti
vera praktískari en hún
er í dag, og sama má
segja um ýmislegt annað
sem mætti bæta.
Nína Hjördís
Þorkeisdóttir
2. bekk K í Granda-
skóla í Reykjavík
Það er mjög gaman
í stærðfræði og óg
er á undan öllum
krökkunum og er núna
með Viltu reyna, rauðu
bókina. Mér þætti gam-
an að fá miklu meira af
reikningi í skólanum.
Núna er ég að setja sam-
an trémöppu, allt um
trén, mér finnst það nú
ekkert ofboðslega gam-
an. En mér finnst skól-
inn skemmtilegur.
I I
5 wL msM \ucvu-
Sparifatajafnrétti
„Kvartanir nokkurra kvenna í
þjóðfélaginu um kynjamisrétti
heyrist nær eingöngu, þegar ver-
ið er að velja fólk í störf þar sem
krafist er snyrtifegs fatnaðar."
- Jón Arnar Sigurjónsson í Morgunblað-
inu í gær.
Egill nútímalegur
„Stjórnarformaður Byggða-
stofnunar telur fréttaflutning
DV af lánveitingum til barna
manna, sem sitja í stjórn stofn-
unarinnar furðu gamaldags og
hallærislegan og að ekkert sé
óeðlilegt við þær.“
- DV í gær.
Það munar um núll
„Ég er nokkuð viss um að liðið í
Garðastrætinu léti ekki
viðgangast lengi að launin
lækkuðu þar á bæ, svo sem
næmi því að eitt núll yrði tekið
aftan af launaupphæðinni. Ætli
launin væru þá ekki nokkuð
nærri því sem þeir ætla þorra
launafólks að hfa af.“
- Guðmundur Þ.B. Ólafsson í Dagskrá,
Vestmanneyjurn.
í lagi að láta sig dreyma
„Sífellt fleiri gera sér grein fyrir
því að dagdraumar um kynh'f
eru eðlilegur hluti af mannlegu
eðli og umfjöllun um slíkt,
hvort sem er í formi skemmtun-
ar eða fræðslu, á fyllilega rétt á
sér.“
- Ágúst Borgþór Sverrisson í DV í gær.
T óbaksbyrlarar
✓
takanlegar fréttir bárust um ljós-
vakann fyrir skömmu og sögðu
frá tóbaksbyrlun. Fyrir nokkrum
áratugum fengu tóbaksbyrlarar heifa
kynslóð ungra kvenna til að ánetjast
reykingum með ísmeygilegum auglýs-
ingum um vöruna. Árangurinn er að
koma í ljós núna löngu seinna með vax-
andi lungnameini hjá þessum konum.
Þetta er skelfilegur vitnisburður og
menn verða að hugsa sig um tvisvar,
þegar framleiðendur söluvöru geta skot-
ið niður heilar kynslóðir af iifandi fólki
eins og endur í skotbakka.
Fólk Iokar bæði augum og eyrum fyr-
ir ógnunum sem fylgja tóbaksffkninni og
lætur gott heita að tóbaksbyrlun sé bara
einkamál þeirra sem selja og kaupa vör-
una. Mönnum er nokk sama hvort
tóbaksfólk kýs að reykja sig í hel eða
veðja á annan dauðdaga. Alþýða manna
stendur lémagna frammi fyrir tóbaks-
fíkninni og stjórnvöldum tekst mun bet-
ur að venja fólk á fíknir en hollustu með
sjálfa Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
í broddi fylkingar.
Um leið vaknar sú spurning hvort
þjóðfélagið eigi ekki kröfu á hendur
þeim sem fíknum valda gegn betri vit-
und og þar með talda Áfengis- og
tóbaksverslun ríkisins. Hart er tekið á
sölumönnum dauðans, sem flytja inn og
selja fíkniefni á borð við kannabis,
kókaín og jafnvel amfetamín. Læknadóp
hefur hins vegar aldrei verið tekið al-
varlega og þykir svona heldri manna
sport á borð við golf. En það er nú önn-
ur saga. Stjórnvöld sem reka tóbaks-
einkasölur verða ekki
tekin alvarlega á
málþingi um tóbaks-
ógnir og því síður á
dómþingi. Það kemur
því í hlut fólksins að
fá úr því skorið hvort
tóbaksbyrlun sé
vernduð með lögum.
Umheimurinn er óðfluga að breytast
og fólk er hætt að ganga að hlutunum
sem gefnum. Ekki þykir lengur sjálfsagt
að konum og börnum sé nauðgað í
styrjöldum án eftirmála. Helstu níðing-
amir á Balkanskaga verða senn dregnir
fyrir dóm og fá vonandi makleg mála-
gjöld. Mörg önnur teikn eru á lofti um
betri tíð með blóm í haga og ekki er
lengur sjálfsagt mál að lifandi fólk sé
áfram ódýr skotmörk hjá tóbaksbyrlur-
um. Fylkisstjórnir í Bandaríkjunum
höfða nú dómsmál á hendur tóbaksbyrl-
urum og kreíja um greiðslur á sjúkra-
kostnaði vegna þeirra íbúa sem stéttin
hefur örkumlað. Yfirvöldin segja að
tóbaksbyrlarar haldi áfram að byrla
fólki tóbak eftir að vísindin staðfestu að
því fylgdi bæði mein og dauði. Þess
vegna beri þeir fulla
ábyrgð. Rökin eru
einföld og ættu að
duga íslendingum
líka.
í fyrstu umferð þarf
að kanna hvort ís-
lensk lög verndi
tóbaksbyrlun frá upphafi til enda.
Framleiðslu, dreifingu, kynningu og
neyslu. Auglýsingar í fjölmiðlum og á al-
mannafæri voru bannaðar með lögum á
sínum tíma og víst er að margir lofa það
núna sem löstuðu áður. Með því var
dregin burst úr nefi tóbaksbyrlara, en
betur má ef duga skal. Tóbakslausir
eiga sama rótt til tóbaksleysis og
tóbaksfólk til tóbaks. Eðli málsins sam-
kvæmt er því sjálfsagt að tóbaksbyrlun
komi til kasta dómstóla á íslandi ekki
síður en í Bandaríkjunum.
Á síðustu misserum létust nokkrir
ástsælustu tónfistarmenn landsins úr
lungnameinum án þess að hafa nokkurn
tíma notað tóbak sjálfir, en eyddu allir
starfsævinni í annarra manna tóbaks-
lofti. Örlög þeirra hljóta að verða hvatn-
ing til að veitingamenn verði látnir bera
ábyrgð á andrúmsloftinu í húsum sín-
um, ekki síður en á teppalögn á gólfum
og lofthæð á salerni. En hlutur tóbaks-
foreldra er eftir.
Tóbaksfíkn er eins og annar ávani og
kviknar aðeins við notkun. Fjöldi barna
neyðist til að draga að sér daunillt
tóbaksloftið heima hjá sér frá frum-
bernsku og kynnist jafnvel nikótíni fyrst
í móðurkviði. Spurningin er hvort
tóbaksforeldrar séu ekki að leggja börn-
um sínum þungan kross á herðar með
því að venja þau við tóbaksloftið í barn-
æsku og úr því verður að fást skorið.
Yfirvöld hafa tekið börn úr umsjón for-
eldra með áfengisfíkn og það er hrá-
skinnaleikur að leyfa tóbaksfíklum að
byrla börnum sínum tóbak á sama tíma.
Œigeéí
Matmeð