Dagur - Tíminn - 05.12.1996, Síða 1

Dagur - Tíminn - 05.12.1996, Síða 1
Eftirminnilega gott BRAGA KAFFI íslenskt og ilmandi nýtt JDagur-tEmram LIFIÐ I LANDINU Fimmtudagur 5. desember 1996 - 79. og 80. árgangur - 233. tölublað Eftirtninnikga goti BRAGA Fl íslenskt og ilmandi nýtt VEL KÆST ER SKATAN EF TÁRIN RENNA AVestíjörðum er hefð fyrir því að borða kæsta skötu á Þorláksmessu. Lyktin af skötunni er boðberi jólanna í hugum flestra Vestfirðinga og margir komast fyrst í jólaskapið þegar þessa sérstöku lykt legg- ur að vitum þeirra. En hvernig skyldi verkun skötunnar vera háttað? Kæsing er ekki hættuleg Þann sið að borða kæsta skötu segir Óskar hafa borist um allt land með Vestfirðingum, enda séu þeir búsettir í öllum lands- fjórðungum. „Menn vilja yfir- Hákarl, harðfiskur og skata Óskar Friðbjarnarson í Hnífsdal þekkir þann galdur vel að verka skötu, en hann hefur verkað hákarl og harðfisk til margra ára við góðan orðstír - og skötuna nú seinni ár. Hann segir auðvelt að verka skötu og það kreijist ekki jafn mikillar nákvæmni og verkun hákarls. „Skorin eru af henni börðin, sem svo eru kölluð, og þau síð- an sett í kassa þar sem vatnið lekur af. Þar liggur skatan í tvær til þrjár vikur, við 8-10 gráðu hita. Þá er hún tekin og þvegin upp, roðrifin og svo lausfryst. Þetta er svokölluð tindabykkja, sem er einnig oft kölluð lóðskata hér á Vestíjörð- um því alltaf kom mikið af henni á línuna," segir Óskar. Kæsta kötu sendir Óskar um allt land. Suður til Reykjavíkur, mikið til Akureyrar, á Austfirð- ina, til dæmis á Höfn í Horna- firði, og að sjáfsögðu um alla Vestfirði. Hann telur að næst á eftir Vestfirðingum í skötuáti komi Suðurnesjamenn. Aust- firðingar séu einnig miklir skötumenn. Guðmundur Páll við gám þar sem geymd eru skötubörð, sem liggja í kæsingu. Myndir: Magnús Hávarðsson. Óskar Friðbjarnarson og Guðmundur Páll, sonur hans, við kerru fulla af hákarli sem bíður verkunar. leitt hafa skötuna mikið kæsta og gömlu karlarnir vildu hafa hana það mikið kæsta að tárin rynnu úr augunum." - Margir halda að mikil kæsing geti verið hættuleg. Því hafnar ðskar al- farið, og segir kæsta skötu vera hollan og góðan mat sem óhætt sé að borða jafnvel oft í viku. Hann þekkir ekki söguna á bak við þann sið að menn borði skötu á Þorláksmessu en telur hann vera ævagamlan. Kæsing hafi verið aðferð við að geyma fisk svipað því að menn hertu fisk vegna geymsluþolsins. Með hnoðmör og kartöflum Hvernig er svo skatan elduð og framreidd? „Hún er soðin og borin fram með hnoðmör, kart- öflum og rúgbrauði og svo er hún oft stöppuð en þá er brjóskið Íjarlægt og skatan og hnoðmörinn hrærð saman í potti þannig að úr verður skötustappa," segir Óskar. Að- spurður segist Óskar telja að allir Vestfirðingar borði kæsta skötu hvar sem þeir séu staddir og það sé jafn- vel haft sam- band við hann frá Noregi og Danmörku af íslendingum sem vilja tryggja sér Þorláksmessu- skötu. Það sé helst ungling- unum sem líki ekki skatan og þá helst lyktin, en það eldist af þeim og flestir verði að lokum sannir skötumenn. Rauðleit skata er ekki skemmd Þegar Óskar er að lokum beð- inn um ráðleggingar við kaup og eldun skötu, segir hann: „Ég myndi vilja ráðleggja fólki að setja skötuna í volgt vatn og elda hana við vægan hita í svona um það bil stundar- Qórðung. Ef suðan er mikil verður lyktin meiri, og þar að auki verður hætta á að það sjóði uppúr og það getur ver- ið slæmt mál. Margir halda að rauðleit skata sé eitt- hvað skemmd en það er mis- skilningur. Rauðleita skatan er bara meira kæst og þess vegna eiga þeir, sem vilja mikla kæs- ingu, að velja hana.“ - Magnús Hávarðsson, Vestfjörðum. Hnífsdælingurinn Óskar Friðbjarnarson kann manna best þá list að kæsa Þorláks- messuskötuna. Þeg- ar skötulykt leggur að vitum Vestfirðinga eru komin jól í þeirra ranni.

x

Dagur - Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.