Dagur - Tíminn - 05.12.1996, Blaðsíða 2

Dagur - Tíminn - 05.12.1996, Blaðsíða 2
14- Fimmtudagur 5. desember 1996 jDagur-'tDummt Pakkarnir og kortin...! Einhvern veginn finnst manni að gólfin á pósthúsum séu alltaf renn- blaut rétt fyrir jólin. Fólk sem aldrei kemur í pósthús stendur þarna hímandi í röðum eða bograndi úti í einhverju horninu að merkja pakka til útlanda og oft er luntur í mönnum því pakkinn kemst kannski ekki á leiðar- enda og enn er verið að senda alltof mörg jólakort. Auðvitað er slabb úti! Gólfin eru enn þokkalega þurr á póst- húsum landsins enda er jólavertíðin rétt að skríða af stað. íslendingar eru heldur ekkert að æsa sig of mikið yfir auglýstum frest- um að því er virðist, því t.d. er runnin út fresturinn fyrir ódýrustu sendinguna til Ameríku. Því miðm-! Þú verður að setja pakkann í A póst eða taka sénsinn á B póstinum. Drífðu þig í pósthúsið Sénsinn er nú kannski ekki svo mikill, reynslan hefur kennt okkur að yfirleitt komi þetta kappduglega póstfólk jólun- um á sinn stað í tíma. Hrefna Ingólfsdóttir, blaðafulltrúi Pósts og síma, segir að 2ja kílóa pakk- arnir séu farnir að berast núna. Það var Sumir hafa komið sér upp sérstökum myndaalbúm- um þar sem gefur að líta myndir af börnum vina frá fæðingu til stúdents! skilafrestur til 2. desember ef meirn vildu vera öruggir með B-póstinn til Am- eríku. Til Evrópu og Norðurland- anna er miðað við 6. desem- ber. A-pósturinn til Ameríku þarf helst að vera komin strax eftir helgi ög gott væri að sjá þá sem senda til Evrópu fyrir föstudaginn 13. des- ember. Vinir á Norður- löndum fá sinn jóla- glaðning ef pakkinn er kominn á pósthúsið fyrir 18. desember. Og Hrefna gaukar því að okkur að auðvitað sé pósturinn alltaf afgreiddur en þessar dagsetningar séu svona til að hafa allan varann á. 3 milljónir Gleðilegra jóla Dagsetningarnar eiga líka við um lítil og létt jólakort. Einu sinni heyrðist talan 3 milljónir þegar giskað var á magn jóla- 1 ■i 1 B & - Ætla mætti að allt fjörið væri í pósthúsunum rétt fyrir jólin. Þangað streymir fólk með pakka og kort og sumir ábúðarfullir enda kannski með seinni skipunum. korta sem pósturinn flokkar og dreifir. Hrefna segir að þessi tala sé hklega enn í gildi því þótt einhverjir hafi ákveðið að draga saman í jólakortasendingum eru alltaf að spretta upp nýjar fjölskyldur sem taka ótrauðar upp siðinn. Og viti menn, myndir af börnum eru alltaf jafn vinsælar. Sumir hafa komið sér upp sér- stökum myndaalbúmum þar sem gefur að líta myndir af börnum vina frá fæð- ingu til stúdents! En víkjum aftur að lífinu og íjörinu og bleytunni á pósthúsum. Allur póstur ís- lendinga fer í gegnum póstmiðstöðina í Ármúla. Þar eru menn þegar komnir á aukavaktir og eins mæta þar til leiks skólakrakkar. En það er ekki fyrr en svona 14.-15. des. sem allt fer á fullt og slabbið fer verulega að segja til sín á gólfum pósthúsanna. Bögglamagnið er gífurlegt, 30 tonn á dag, enda þótt um sé að ræða léttari pakka en á venjulegum pósthúsdegi. -mar Sjónvarpsbindindið heldur Walt Disney eða saumaklúbbur s Ameðan barnaefni var í sjónvarpinu í gærkvöld fór ég með stelpurnar í göngutúr. Áður en þær fóru að sofa las ég fyrir þær söguna Jól á Norðurpólnum eftir Walt Disney. Þegar blundur hafði fest á þeirra brá fór ég svo í sauma- klúbb til vinkvenna minna. Þá var mað- urinn minn, Sigurður Óli Þórsson, ný- lega kominn heim og fram eftir kvöldi sat hann og las blöðin. Ég kom seint heim og við sofnuðum fljótlega," segir Kristín Haraldsdóttir, Akureyrarhús- móðir. „Ég finn ekki merkjanlegan mun á heimilislífinu. Við horfum ekki það mik- ið á sjónvarpið að þetta breyti miklu. Við erum bara með Sjónvarpið, höfum ekki Stöð 2. Það gerum við ekki, að minnsta kosti ekki þangað til stelpurnar eru komnar til valda á heimilinu,“ segir Kristín. Bamagæsla og þjóðhagfræði Síðdegis í gær, þriðjudag, voru strák- arnir mínir, þeir Stefán Ólafur og Sig- urjón Þór, að gæta systursona sinna, eins og þeir gjarnan gera. Litlu strák- arnir vildu ólmir horfa á sjónvarpið, en barnagæslumenn sögðu að slíkt væri bannað. Því til staðfestingar sýndu þeir myndina af sér í Degi-Tímanum, þar sem frá þátttöku þeirra í þessu verkefni var sagt. í staðinn fóru þeir að tefla,“ segir Sigurlaug Gunnarsdóttir. Nú í vikunni hefur Sigurlaug setið við próflestur - og í gærkvöld gekkst hún undir próf í þjóðhagfræði við VMA. „Ég hef setið yfir bókunum mínum á kvöldin og strákarnir við sinn lærdóm eða eru að leika sér í tölvunni. Hér á þessu heimih höfum við eiginlega gleymt því að sjónvarpið sé til,“ segir Sigurlaug sjónvarpslausa. Akureyri Heilsufarið er gott Heilsufar íjölskyldunnar í sjónvarpsleys- inu er gott, nema hvað dóttirin er með flensu,“ segir Margrét Ríkharðsdóttir á Ak- ureyri, en hún og eiginmaður Akureyri hennar, Jón Baldvin Hannes- son og dóttirin Kristjana eru sjónvarpslaus þessa vikuna. Á þriðjudagskvöld var Margrét á fullu í jólabakstri, Jón Baldvin fór á sundæfingu. „Samskipti innan ijölskyldunnar eru lík- lega meiri núna, það er ekki sí- fellt sagt: Bíddu bíddu,“ segir Margrét. Hún bætir við að eitt kvöldið í vikunni hafi eiginmað- urinn straujað þvottinn sinn „fyrir sig“. „Það eina sem ég sakna í sjónvarpinu eru breskir saka- málaþættir og síðan Gaui litli í Dagsljósi," segir Margrét Rfk- harðsdóttir. -sbs. Jólasálmar og rit- stjómarviima IKirkjubóli í Bjarnadal hefur allt gengið venju samkvæmt síðustu dagana, enda þótt sjónvarpsins njóti ekki við. Dæturnar Kristín Guðný, 13 ára, og Ólína, 10 ára, taka sjón- varpsleysinu með stóískri ró. ureyri Amma 1 Bolungarvík sér um að . taka Jóladagatal Sjónvarpsins [ upp. Sonurinn, Finnbogi Dagur, sem er íjögurra ára, spyr hvers vegna sjónvarpið sé bilað. Á þriðjudagskvöld undirbjó Halla Signý útgáfu ísfirðings, blaðs vestfirskra framsóknar- manna. Eldri dæturnar lærðu sálminn Nóttin var sú ágæt ein, sem þeim var sett fyrir. Pabbinn á heimlinu, Sigurður Sverrisson, fór manna fyrst í háttinn enda þurfti hann á vakt hjá ísafjarðarlöggunni snemma á miðvikudagsmorgni. áfram „Ég finn ekki merkjanlegan mun á heimilis- lífinu, “ Barnagœslu- menn sögðu að bannað vœri að horfa á sjón- varpið. Sonurinn, Finn- bogi Dagur, sem er fjögurra ára, spyr hversvegna sjónvarpið sé bilað. „Heilsufar fjöl- skyldunnar í sjónvarpsleys- inu er gott, nema hvað dótt- irin er með flensu. “

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.