Dagur - Tíminn - 05.12.1996, Side 8

Dagur - Tíminn - 05.12.1996, Side 8
20 - Fimmtudagur 5. desember 1996 jOagra-'SJúmrat JÓLABÆKURNAR Alvöru súkkulaði ólík trúnaðarstörf Ekki er rétt að skilja við Gunnar Ragnars þótt at- vinnusagan hafi verið sögð. Við skulum forvitnast að- eins um önnur trúnaðarstörf hans, áhugamál og loks framtíð- aráætlanir. Byrjum á stjdrn Fjórðungssjúkrahússins. Gunn- ari finnst gaman að rifja upp formennskuár sín í stjórninni. „Það var lærdómsríkt eftir kosningarnar 1978 að vera sett- ur varamaður í stjórn FSA. Stef- án Stefánsson hafði lengi verið formaður og var það áfram og ég var varamaður hans. Undir árslok 1980 veiktist Stefán og varð að hætta í aukastörfum að læknisráði. Ég kom þá inn og Ólafur Sigurðsson yfirlæknir beitti sér fyrir því að ég yrði for- maður. Ekki voru allir sáttir við það, því D-listinn var í minni- hluta. Á þessum tíma var allt í lofti út af ákveðnum lækni þarna og við bættist að ekki var hægt að greiða út laun á Þorláksmessu. Hvílík staða þegar ég kom þarna inn! Allt í hers höndum. eins og alla samkeppni, og hann sagði ekki skynsamlegt að sam- eina félögin eins og oft hefur verið rætt um. Sjálfur er hann stimplaður KA-maður þótt ekki vilji hann gera upp á milli félag- anna. „Ég lenti óvart á skrá hjá KA þegar ég tók þátt í Akureyrar- móti í skíðagöngu. Ég varð víst Akureyrarmeistari í flokki 45-50 ára, en keppendur voru aðeins tveir. Hinn var starfsmaður í Slippnum og menn sögðu að hann hefði ekki þorað að vera á undan framkvæmdastjóranum. Þegar ég kom í mark og henti mér flötum kom starfsmaður aðvífandi og sagðist verða að skrá í hvaða félagi ég væri. Ég nefndi KA og komst þar með á skrá félagsins.“ [...] Víkjum þá að laxveiðunum. Það sport hefur gjarnan verið tengt forstjóratitlinum og Gunn- ar er árlegur gestur í Laxá í Að- aldal. „Annað sumarið sem ég var á Akureyri, 1970, bauð Sverrir föðurbróðir minn mér með sér í Laxá í Aðaldal. Ég hafði gaman af veiðitúrnum og ekki síst öllu í kringum veiðina, útiverunni og náttúrunni. Þetta varð til þess að ég gekk í Laxárfélagið Straum og fór með Sverri í veiði á hverju sumri. Hann byrjaði að veiða í Laxá 1943 en hætti 1993 á 50 ára veiðiafmæli sínu. Það var virkilega gaman að vera með þessum körlum. Þeir höfðu fasta reglu á öllu, meira að segja óreglunni líka. Menn voru með pela en aldrei var drukkið meðan á veiði stóð. Ákveðinn vökvi í ákveðnu magni var drukkinn þegar komið var inn í hádeginu og hliðstæð regla höfð á kvöldin. Ég er svo sem lítill veiðimaður í mér en maður þarf ekki að hafa veiðieðli til að hafa gaman af því að renna fyr- ir lax.“ Sverrir Ragnars, föðurbróðir Gunnars, var ræðismaður Nor- egs á Akureyri frá 1950. Árið 1977 spurði hann Gunnar hvort hann vildi ekki taka við embætt- inu af sér og það varð úr, bæði vegna þess að Gunnar hafði kynnst Norðmönnum að góðu einu í dvöl sinni þar og einnig vegna mikilla samskipta Slipp- stöðvarinnar við Norðmenn. Þessu embætti hefur Gunnar nú gegnt í 19 ár. „Ég get ekki sagt að ég hafi svitnað mikið í ræðismanns- starfinu en ég hef kynnst mörgu fólki í gegnum það, ekki síst sendiráðsfólki. Einnig hef ég þurft að greiða götu ferða- manna og taka á móti tignar- fólki, svo sem Noregskonungi og ráðherrum. Þótt ég hafi aldrei litið á embættið sem sérstaka upphefð fann ég þó einu sinni til þess. Þá var ég staddur úti í San Franc- isco á hóteli þar. Ég þurfti að fara niður og senda símskeyti og þar sem ég vænti svars lét ég af- greiðslustúlkuna líka fá nafn- spjaldið mitt. Þar kom fram að ég væri ræðismaður. Skömmu síðar hafði hótelstjórinn sam- band við mig og sagði ófært að svo tiginn gestur væri í venju- legu herbergi. Hann vildi endi- lega flytja mig í svítu en ég taldi enga þörf á slíkum fyrirgangi. Bandaríkjamenn eru sjálfsagt meira fyrir svona titla en við ís- lendingar.“ Það verður að segjast eins og er að það fór gríðarlegur tími í vandamál sem lutu að mann- legum samskiptum, svo og ijár- málin. Víða var pottur brotinn í rekstrinum, sumir vildu keyra áfram í nafni miskunnsemi en aðrir héldu sig á jörðinni og reyndu að halda sig innan rammans. Þetta vafstur tók mikinn tíma og eftir einn stjórnarfund sagði ég í gríni: „Jæja, nú fer ég niður í Slipp að hvíla mig.“ Að mörgu leyti var fróðlegt að kynnast þarna nýju fólki, skipulagi, valdsviði og árekstr- um. Ég hafði gaman af þessu. Mig langar að segja frá því að ég kynntist Gauta Arnþórssyni vel og ræddi oft lengi við hann. Þá ókum við gjarnan fram í fjörð og fengum okkur kaffi í Steinhólaskála. Hann er ágætur maður en vann allt of mikið og unni sér aldrei friðar. Starfið var líf hans og hobbí, en ég kynntist nýrri hlið á honum.“ [...] Mörg önnur trúnaðarstörf Gunnars mættu fá nánari um- fjöllun en aðeins fárra verður þó getið sérstaklega hér. Árið 1989 tók hann við formennsku í íþróttabandalagi Akureyrar eft- ir að þáverandi formaður, séra Pálmi Matthíasson, var kallaður suður til starfa. Leitað var til Gunnars og hann sló til. „Menn hafa sjálfsagt talið að ég hefði ríflegan tíma fyrst ég var hættur í bæjarpólitíkmni og byrjaður hjá Útgerðarfélaginu," segir Gunnar glottuleitur. Hann var þó enn formaður menning- armálanefndar bæjarins til 1990 en þrýstihópar menningar og íþrótta hafa einmitt löngum togast á um peninga og athygli á Akureyri. Gunnar kveðst þó ekki hafa lent í neinni togstreitu á milli þessara hópa og honum finnst óþarfi að tefla þeim hvor- aðildarfélaganna fóru út í vinnu við að skilgreina hlutverk og markmið félaganna sem ég tel að hafi verið gott starf. Þunga- miðjan í umræðunni var að skapa Akureyri nafn sem alhliða íþróttamiðstöð, bæði í ímynd og raun. Við réðum síðan fram- kvæmdastjóra til bandalagsins, Stefán Þór Sæmundsson, sagnfræðingur og Gunnar Ragnars með bókina Þeir vörðuðu veginn. um gegn öðrum. Það sé nauð- synlegt að rækta bæði líkama og sál og menningarstarfsemi og íþróttir séu hvort tveggja drjúgir þættir í heilbrigðu, frjóu og skapandi uppeldi. „Ég kynntist mörgu skemmti- legu fólki í starfi mínu hjá ÍBA. Stjórn bandalagsins og stjórnir Þröst Guðjónsson, sem tók við af mér sem formaður 1994. Stjórn ÍBA lagði áherslu á að heimsækja öll félögin og ráðin og það var afar lærdómsríkt að kynnast starfsemi þeirra innan frá. Þá verður manni fyrst ljóst í raun og veru hve mikið starf er unnið þar. Unglingastarfið er til að mynda gífurlega öflugt og mér fannst gaman að kynnast því. Þá er í félögunum margt fólk sem vinnur ótrúlega mikið án þess að almenningur geri sér grein fyrir því, enda er þetta fólk ekki endilega mikið í íjöl- miðlunum. Ég get ekki látið hjá h'ða að minnast á þátt Hermanns Sig- tryggssonar í uppbyggingu íþróttamála í bænum. Hann hef- ur unnið gríðarlega mikið starf og einnig má nefna menn á borð við Þröst Guðjónsson," sagði Gunnar. Margir hafa séð ofsjónum yfir kröfum íþróttafélaganna og íjár- stuðningi við þau en Gunnar sagði slíka gagnrýni ekki eiga rétt á sér. Um það bil helmingur bæjarbúa tæki þátt í starfi íþróttafélaganna og með öflug félög á borð við KA, Þór og Golf- klúbb Akureyrar innanborðs væri ekki óeðlilegt þótt íþrótta- hreyfingin hefði töluverð áhrif. Hvað hinn forna ríg milli KA og Þórs snertir þá taldi Gunnar hann geta verið af hinu góða, jOlJQIsna pmkmtm S>l4s«lning: Planfan þílú aS njéla góðfar m,' Wk’tm Há# catek ifeiféafBéfíHWá «aiáHW«|4Wé»|yiiW' tinwnimi. AtllHgiði PbMM «viMvsm Nf éssvápi Hittís., því «• aaiifeetegt ú í' iÁ.i btmj vsi íhh y r viMiptavy BttóM ÁMIÖSIÁÍÖIN Mörg

x

Dagur - Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.