Dagur - Tíminn - 05.12.1996, Page 11

Dagur - Tíminn - 05.12.1996, Page 11
jDctgur-CEímimt Fimmtudagur 5. desember 1996 - 23 FINA FRÆGA FÓLKIÐ Lagerfeld er sá sérvitrasti g fór af stað með það í |H huga að þreyta ykkur -1__4 ekki með of löngum texta í þessum pistlum mínum. En maður getur hreinlega heillast af dellunni í sumu fólki. Franski tískuhönnuðurinn Karl Lagerfeld er einn þeirra. Lagerfeld er óumdeilt sá áhrifamesti í tískuiðnaðinum. Hann uppgötvaði ofurfyrirsæt- ur eins og Claudiu Schiffer og Nadju Auermann og hannar fatnað fyrir nokkur stór fyrir- tæki, frægust eru án efa Chanel og Fendi. - Og nú er karlinn farinn að vinna fyrir póstversl- unina Quelle. Meðal-jónarnir geta þess vegna eignast föt frá keisaranum sjálfum. Karl Lagerfeld er alveg óhemju sérvitur og í marga staði undarlegur náungi. Hann er einrænn og forðast að vera meira í sviðsljósinu er nauðsyn- legt er. - En þegar hann gefur færi á viðtölum þá er hann miskunnarlaus í orðavali og segir að fyrirgefning sé ekki til í sinni orðabók. Ég valdi nokkur gullkorn úr nýlegu viðtali við keisarann þar sem hann m.a. lýsir lífsháttum sínum. Sveskjur og Pepsi í morgunmat Karlinn setur þurrsjampó í hár- ið á sér á hverjum degi og litar það þannig skjannahvítt. Að- spurður segist hann sofa í hvít- um náttserk með hárið slegið: Ég lít út eins og draugur, segir hann. Lagerfeld sefur undir hreysikattarskinni á sumrin en safalafeldi á veturna. í morgun- mat fær hann sér sveskjur og Pepsi Light (sem er nú alveg jafn draugalegt að mínu mati). Lagerfeld lét gera dýrasta kjól í heimi, það tók 1280 vinnu- stundir að sauma hann. Verð- mæti kjólsins er áætlað a.m.k. 12,5 milljónir króna. Ef til vill eru það bara smápeningar í augum Lagerfeld, hann þénar nefnilega ríflega 800 milljónir króna á ári. Áætlað er að í heiminum séu aðeins u.þ.b. 300 einstaklingar sem kaupa hátískufatnaðinn (það allra dýrasta og fína). Lag- erfeld segist nú ekki þekkja þá alla. Oft panti þeir fötin símleið- is og sendi síðan einkaþotu eftir herlegheitunum til þess að geta mátað. Lagerfeld sjálfur kaupir sér föt tvisvar á ári, hjá Yamamoto og Comme des Gar- cons, og hann klæðist einungis svörtu og hvítu. Hermenn tískunnar Það hefur verið talað um að Lagerfeld sé ekki mikið fyrir kvenfólk svona hinsegin, en hann hefur skoðun á því hver sé erótískasti hluti kvenmanns- ins: Þar sem bakið og rassinn mætast. Lagerfeld hefur þótt óvæg- Karl Lagerfeld ásamt Stellu Tennant, sem nú er aðalstjarna Chanel tískuhússins og Claudíu Schieffer, sem áður var uppáhald Lagerfeld en hefur nú gert samning við keppinautinn Yves St Laurent. Teitur Þorkelsson skrifar Leiðbeiningar Þér skuluð ekki láta yður bregða þó stúlka víki sér undan kossi. Og jafnvel þó hún víki sér undan og æpi skuluð þér ekki kippa yður upp við það. Þér skuluð meira að segja vera ró- legir, þó hún víki sér undan, æpi og reyni að standa upp. Haldið henni hógværlega en þéttingsfast og sefið ótta hennar með sannfærandi orð- um. Munið eftir því sem Shake- speare sagði um „nei konunn- ar“. En ef hún víkur sér undan, æpir hátt eða rekur upp öskur þá skuluð þér fara að gá að yð- ur. Og ef hún fer að klóra fram- an í yður og reyna að losa sig þá megið þér fara að hugsa ráð yðar og reyna að komast úr þessu vandræðaástandi. Slíkar stúlkur eru engin lömb að leika sér við og þær láta ekki kyssa sig. Þær eru oftast nær úr þeim llokki kvenna sem trúir því enn að árangur kossanna verði sá að storkurinn komi fljúgandi með barn til þeirra. Þegar þér hafið svo komið handleggnum þægilega fyrir um herðar stúlkunnar og allt virðist vera í himnalagi er næsta skref- ið að skjalla hana á einhvern hátt. Öllum konum þykir lofið gott. Þeim þykir vænt um að heyra að þær séu fallegar, jafn- vel þótt spegillinn á móti þeim endurvarpi lyginni beint fram- an í ófrítt smettið á þeim. Bless- aðir hælið þér henni. Segið henni að hún sé falleg. inn við þær stúlkur sem ekki eru lengur í náðinni hjá hon- um. Hann réttlætir það með þessum orðum: Þessar stúlkur verða að skilja að fyrirsætu- bransinn er eins og stríð, - með vígvöllum og íjöldagröfum. Það er nefnilega það... Vitið þið hvað Claudia Schieffer hefur þénað á fyrir- sætustörfum? - Ég skal segja ykkur það: 3,5 milljarða króna! - Ó, þetta er indælt stríð... LEIÐALÝSING LÖGMANNSHLÍÐARKIRKJUGARÐUR Hjálparsveit Skáta stendur fyrir leiöalýsinsu í kirkjugarðinum eins og undanfarin ár. Tekiö á móti pöntunum í síma 462 4752 fram til 8. desember. Verö á krossi er kr. 1.200,- Þeir sem vilja haetta, tilkynni þaö í sama síma. ... --"l- ' J.. ..... ...... útvinna . Alvinnu . Atvinna Röskir starfskraftar Garðræktarfélag Reykhverfinga h.f., Hveravöllum, 641 Húsavík, óskar að ráða röska starfskrafta, helst hjón eða par ca. á aldrinum 20-40 ára. Um framtíðarstörf getur verið að ræða. Æskilegt er að umsækjendur hafi einhvern áhuga fyrir garðyrkju. íbúð fylgir þessum störfum. Allar nánari upplýsingar gefur Ólafur í síma 464 3900 eftir kl. 19 næstu daga. — AKUREYRARB4ER Viðtalstímar bæjarfulltrúa Mánudaginn 9. desember 1996 kl. 20-22 verða bæjarfulltrúarnir Ásta Sigurðardóttir og Heimir Ingimarsson til viðtals á skrifstofu bæjarstjóra að Geislagötu 9, 2. hæð. Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum eftir því sem aðstæður leyfa. Síminn er 462 1000. Bæjarstjóri.

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.