Dagur - Tíminn - 07.12.1996, Qupperneq 3

Dagur - Tíminn - 07.12.1996, Qupperneq 3
JDagur-ÍÍImrám Laugardagur 7. desember 1996 - III ISLENDINGAÞÆTTIR HAGYRÐINGAR Mikið er um ljósbláar myndir á einni sjónvarpsstöðinni. Við klámmyndanna kennslustig kikna ég oft til hnjánna, þó sjálfur hafi ég menntað mig milli stóru tánna. Pétur Stefánsson. Kynferðisleg óreitni að Skaftafelli Kynferðisleg áreitni og brögð til að koma fram vilja sínum eru ekki ný af nálinni. Til voru galdrakúnstir sem kræfir menn kunnu til að fá kvenfólk til fylgilags, og þótti ekki pent. Saga um það: Einu sinni kom flökkumaður að Skaftafelli og beiddist þar gistingar, og fékk hann hana. Var honum vísað þar í hús og er ekki getið, að þar væru aðrir inni en vinnukona ein. Sagði húsfreyja henni að hún skyldi vara sig á gestinum, því sér sýndist hann heldur tortryggi- legur. Vinnukonan lofaði því og er ekki nefnt, hvað þau hafi tal- ast við, en er honum var fært að éta, tók hann bita og gaf henni. Hún tók við og lést éta, en laumaði honum svo í hund- tík, er hjá henni var. Bar svo ekki á neinu fyrr en um nóttina, að gestur var lagst- ur til svefns. Þá kom tíkin og stökk upp í rúmið til hans. En hann hratt henni jafnskjótt fram úr aftur, og gekk það alla nóttina, að tíkin kom hvað eftir annað, þó hann væri alltaf að hrinda henni frá sér, og gat hann ekkert sofið. Um morguninn er hann fór í burtu, sagði hann til vinnukon- unnar, að hún hafi gjört sér ljótan hrekk, þar sem hún hafi gefið tíkinni bitann, sem hann hefði ætlað henni að eiga, og yrði hann að hafa það svo búið, en þó gæti það verið, að henni lægi eins á að liggja með karl- manni einhverntíma, eins og sór hafi legið á kvenmanni í nótt. Er sagt, að það hafi ræst, því vinnukonan þótti mikil karl- mannaglenna eftir það. MB Stúlkurnar í Grímsey Fleiri ábendingar um stúlkurnar í Grímsey hafa borist og í ljós er komið að fyrsta heimildin um hverjar þær eru er ekki alls kostar rétt. Myndin er af ijórum prúðbúnum stúlkum í Gríms- ey. Réttu nöfnin eru, talið frá vinstri: Bára Sigurbjörnsdóttir, hún var búsett á Sveinsstöðum í Grímsey. Næst er Anna Matthíasdóttir, þá Rannveig systir hennar og lengst til hægri er Jóhanna Kristins- dóttir, sem Iíka átti heima í Grímsey. Samkvæmt áreiðanlegri heim- ild voru stúlkurnar góðar vinkonur og hálfgerðar uppeldissystur, einsog eðliiegt má teljast í svo litlu samfélagi sem Grímsey var. Stúlkurnar í miðið eru dætur séra Matthíasar Eggertssonar, sem tók myndina, en hann var ágætur myndasmiður og áhugasamur. Myndin mun vera tekin árið 1927. Má þó vera að skakki ári til eða frá. Hinn sœli Þor lákur oa selurinn Selurinn tekur á sig ýmsar myndir, enda býr hann bæði í sjó og á landi. Oft tekur skepnan á sig manns- mynd og stundum er mann- eskja í selslíki. Mennskir menn ganga í hjónaband með selum og selir ala kristnum körlum börn. Kunn er sagan um kon- una, eða öllu heldur kvení- myndina, sem átti sjö börn í sjó og sjö á landi og er ekki laust við að gætt hafi lauslætis í þeirri familíu. Svo hafa selir gengið aftur og gert óskunda. En yfirleitt hefur sambúðin við þá verið góð og mikil hlunnindi hafa löngum verið af selnum. Skinn hans, spik og kjöt hafa haldið lífinu í mörgum eybyggj- anum, enda hefur nábýlið við hann yfirleitt verið á þann veg að mennirnir hafa notið góðs af, en selurinn týnt afkvæmum sínum og lífi til að viðhalda mannlífi. Fyrir nokkru var gerð í þessu blaði samlíking á ham- ingjusömum sel í værðum og innanfeitum stjórnmálaflokki, sem lætur fara vel um sig í þjóðfélaginu og gerir svosem engum mein og á sér enga nátt- úrulega óvini fremur en selur- inn. Hér er maðurinn ekki tal- inn til náttúrunnar, sem er al- geng skoðun og afstaða. Þetta er líka rétt að því leyti, að síðan ríkissjóður hætti að greiða fé fyrir hreifa stafar selnum engin hætta af mannskepnunni. Ann- ars getur Framsókn vel við unað að vera líkt við svo við- kunnanlegt dýr sem selurinn er. Kraftur í kerlu Sögur og sagnir af sel eru ó- teljandi eins og von er, eftir að hafa deilt með honum landi og fiskislóð í ríflega þúsund ár. Hér skal tilfærð ein frásögn frá því um 1200 og hún hlýtur að vera sönn, þar sem hún er tilfærð í jarteinabók Þorláks helga og sýnir þann undramátt sem hann bjó yfir lífs, en aðallega liðinn: „Kona ein fór snemma morg- uns að kanna fjöru, því að bóndi hennar var ekki heima. Sá hún þá útsel mikinn liggja á steini og svaf hann, en hún hafði h'f hans ekki í hendi sér. Fékk hún síðan lurk nokkurn er lá í fjörunni og stillti að selnum og laust í höfuð honum. En sel- urinn reis uppréttur og var hann miklu hærri en hún og hét hún þá á hinn sæla Þorlák bisk- up að hún skyldi sigrað fá sel- inn. Þá féll selurinn að henni. Þá laust hún hann annað högg í svima. Þá komu menn út úr bænum í því bili og kallaði hún á þá síðan að þeir skyldu veita henni fulltingi og komu þeir til og varð þá sóttur selurinn. Varð hún fegin, húsfreyjan, því að þau voru fátæk en höfðu ómegð mikla, var sumar fanglítið. En þá dróst fram sumarfang mjög við veiði þessa. En húð selsins var níu feta löng og sjá var jar- tein mjög í gegn eðli að óstyrk kona skyldi geig gera svo mikl- um sel. En þessir menn höfðu lengi verið undir umsjá hins sæla Þorláks biskups og bjuggu á hans löndum og var þeirra ráð ávallt síðan björgulegra er þau komu undir hans áraburð en áður hafði verið. Þökkuðu þau guði þessa jartein og hin- um sæla Þorláki biskupi." Þessi guðrækilega saga sýnir vel hve notadrjúgur selurinn er, þegar farið er að honum með réttu hugarfari. Konan ráða- góða, sem vann selinn með til- styrk trúar sinnar á heilagan Þorlák, átti mikla ómegð með bónda sínum, eins og fram kemur í sögunni. Það þýðir að ættbogi hlýtur að vera frá henni kominn og hann ekki smár, því öruggt er að hver einasti ís- lendingur er frá henni kominn. Svo getum við velt fyrir okkur hvað hefði orðið ef henni hefði ekki hugkvæmst að leita full- tingis hins sæla Þorláks til að vinna selinn og öll börnin hefðu dáið úr bjargarskorti. Það hefði orðið efni í öðruvísi sögu. (Jarteinasagan er sótt í út- gáfu Þorlákssjóðs. OÓ)

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.