Dagur - Tíminn - 07.12.1996, Side 4

Dagur - Tíminn - 07.12.1996, Side 4
Laugardagur 7. desember 1996 - IV SÖGUR O G SAGNIR jOa gur-'CÍItmrmt Önnur grein um „beinamál- ið“ fyrir hálfri öld Islendinga skorti þá ræktar- og framtakssemi að sýna leiði Jónasar Hallgrímsson- ar í Hjástoðargarðinum í Kaupmannahöfn þann sóma að setja þar upp minningarmark. Hefði það verið gert, var ólík- legra að þar væri grafið enn og aftur, síðast 1907. Var það á hátíðarári í aldarminningu skáldsins. Gengist var fyrir söfnun og samskotum og varð svo vel við, sem vænta mátti um hið ástsæla skáld, að Einar Jónsson myndhöggvari var fenginn til að gera líkneski af Jónasi, og var það sett á fótstall fyrir framan Landlæknishúsið austanvert við Lækjargötu í Reykjavík og afhjúpað á hund- rað ára minningardaginn, hinn 16. nóvember. Er styttan nú í Hljómskálagarðinum sem kunnugt er. Nokkurt fé var af- gangs og var það geymt í sjóði, en ekki auðvelt um að setja leg- stein á leiðið í Höfn þá, vegna þeirra 4 líka sem þar höfðu verið jörðuð, fyrst 30, loks 42 árum eftir útför hins íslenska náttúrufræðings. Varð slíkt ekki heimilt fyrr en 1928, þegar sendiráð Islendinga í Höfn fekk umráðaréttinn yfir Iegstaðnum leigðan til langs tíma. Mikill misskilningur er það hins veg- ar, að leiði Jónasar Hallgríms- sonar væri með öllu týnt. Hver einasta útför í kirkjugarðinum er skráð frá upphafi 1760 og allt til þessa með nafni og núm- eri. Fyrstu kistunum, sem sökkt var djúpt í mýrlenda jörð garðsins, var ekki alltaf fundið það leg, sem nákvæmlega hent- aði síðara skipulagi. Er þær því að finna að hluta undir síðari greftri, eins og sýnt er á teikn- ingum með fyrra þætti og þess- um, jafnvel undir gangstígum. Slíkt er einnig algengt hér á landi, þar sem gjarna er mis- lagt og skásett. Með árunum var æ sjaldnar hugsað til þess, hvar bein lista- skáldsins góða lægi í moldu f höfuðborg ríkisins, sem var heimastaður Jónasar Hall- grímssonar fremur en nokkur annar, nema bernskubyggðin í Öxnadal, sæludalur hans í ljóði og sveitin best í huga. Kirkju- staðurinn á Bakka, vestan Öxnadalsár, suðlægt að sjá gegnt Steinsstöðum, þar sem Jónas átti sitt heima og íjöl- skyldu alla ævi, þótt ekki væri þar á sálnaregistri eftir 1823, en á því hausti fór hann á Bessastaðaskólann og var ekki heima á Steinsstöðum, nema á sumartíð eftir það, en að loknu stúdentsprófi 1829 varð hann ritari landfógeta og sigldi til há- skólanáms í Höfn 1832. Faðir hans, síra Hallgrímur Þorsteinsson prests síðast í Stærra-Árskógi, var aðstoðar- prestur síra Jóns Þorlákssonar þjóðskálds á Bægisá, og þjónaði hann Bakkasókn frá 1803 til fyrir oss aðstæðurnar, ef þeir væri þar einir sveinarnir og faðir þeirra horfinn undir vatnsborðið í strengdu netinu. Líkið náðist og jarðsöng skáld- presturinn á Bægisá kapelán sinn að Bakkakirkju hinn 13. á- gúst. Alkunnar eru hendingar Jónasar í tregaljóðinu um föð- urmissinn: „Þá var eg ungur, / er unnir luku / föðuraugum / fyrir mér saman. / Man eg þó missi / minn í heimi / fyrstan og sárstan, / er mér faðir hvarf.“ Og þetta í kvæðislok: „— hið brennheita / brjóstið kalt. / Von- . Hluti handritanna varð eftir í Kaupm.höfn. Ekki mun að heldur endurheimtur sá hluti beina Jónasar Hallgrímssonar, sem eftir varð í Hjá- i stoðarkirkjugarði fyrir 50 árum. Strikalínan sýnir hið rofna grafarstæði skv. heimildum — og, hvað eftir varð: bein öll ofan brjóstmáls og i | höndur a.m.k. (teikn. Alda Sverrisdóttir). 1________________________________________________________I Sigurjón Pétursson glímukappi kom með bein Jónasar norður að Möðruvöllum í haustmyrkri fyrir 50 árum. Mistök hans og löghlýðni embættismanna nyrðra gerðu ætl- unarverk hans að engu. LEIFAR I TVEIMUR LÖNDUM ^ir^niwnrm- / Prestshúsið á Möðruvöllum 1946. Sigurjón vakti í bílnum aðfaranótt hins 6. október yfir beinakistunni að bæjarbaki (teikn. e. máðri mynd: Alda Sverrisdóttir). dauðadags hinn 4. ágúst 1816, er hann drukknaði við silungs- veiði í Hraunsvatni. Presturinn, samt þaulvanur þessum veið- um, flæktist í netinu. Er mjög aðdjúpt, grunnið aðeins örfáir faðmar og uppsprettuvatnið ís- kalt. Veiðiferðin var farin eftir messu á Bakka og er talið, að fleiri væri í för en síra Hall- grímur og drengirnir hans, Þor- steinn 15 ára, Jónas 8 ára. Hef- ur löngum verið til þessarar slysfarar höfðað, er skýra á taugaveiklun einkum Þorsteins, en átakanlegastar sjáum vér arstjarna hvarf í dauðans djúp, / en Drottinn ræður.“ Bjuggu síra Hallgrímur og Rannveig Jónasdóttir kona hans, frá Hvassafelli í Eyjafirði, fyrstu árin í Hrauni, en á Steinsstöðum frá 1809. Lifði frú Rannveig mann sinn í full 50 ár. Rak hún sjálf búskapinn á Steinsstöðum fyrstu árin eftir að hún varð ekkja, en tók ráðs- mann 1823, Tómas Ásmunds- son frá Silfrastöðum. Kvæntist hann Rannveigu dóttur þeirra síra Hallgríms áður langt leið og fekk ekkjufrúin þeim brátt jörðina alla. Frá vori 1825 var frú Rannveig á Möðruvöllum hjá Grími Jónssyni amtmanni í tvö ár. Fyrri veturinn brann hin mikla stofa, sem Stefán amt- maður Þórarinsson hafði látið reisa, er hann tók við embætt- inu 1787, en hann húsaði stað- inn allan veglega. Anna Margret, yngsta barn prests- hjónanna á Steinsstöðum, fædd ári áður en faðir hennar dó, fylgdi móður sinni út að Möðru- völlum, en þær komu báðar heim aftur 1827. Stundum er tahð, að eitthvað hafi bagað Önnu Margreti, nokkuð svo al- varlegt, úr því að hún giftist ekki, en vegna virðingar og í hlífð geti þess ekki, hvað að var, í húsvitjunarbók Bægisárpresta. Hvað, sem um það er, var Anna Margret vel skýr og snemma prýðilega lesandi, „gott barn“, en taugaveiklun gat þó hafa verið skuggi hennar allt til dauðans um Jónsmessuskeið 1866. Þá er hún skráð dóttir ekkjunnar á Steinsstöðum og ó- gift stúlka. Eftir lát 51 árs barnsins, gat frú Rannveig sofnað í friði. Hún fekk hægt andlát hinn 7. september á sama sumri. Söng síra Arnljót- ur á Bægisá mæðgurnar til moldar á Bakka við hlið gamals leiðis síra Hallgríms. Á fyrri öld var mikill siður, að vígðir venslamenn talaði við útför merkismanna og mágafólks. Er ekki að efa, að síra Jón E. Thorlacius í Miklagarði í Eyja- firði hafi einnig staðið yfir moldum mæðgnanna á Steins- stöðum, enda alfaraleið milli nágrannasóknanna að Mikla- garðs- og Bakkakirkjum allvel sækjandi um Kambsskarð að sumarlagi. Síra Jón í Mikla- garði var tengdasonur Tómasar og Rannveigar Hallgrímsdóttur á Steinsstöðum, átti Kristínu Rannveigu, sem fædd var í Öxnadal 1837. Tómasi bónda og um hríð hreppstjóra frá Silfrastöðum lýsir Eiður Guðmundsson á Þúfnavöllum svo, að hann væri höfðingi mikill, gleðimaður með afbrigðum, hvers manns hug- Ijúfi og afar vinsæll. Hann var og góðbóndi og sátu mæðgurn- ar allar þrjár í hagsældarbúi hans á hinni fríðu en heldur landþröngu jörð í þéttbýlum dalnum. Ári eftir lát Tómasar, 1855, giftist Rannveig Stefáni Jónssyni á Syðri-Reistará, um- boðsmanni Eyjaíjarðarsýslu- jarða og þingmanni, en Stefán sat öll löggjafarþing Alþingis 1845-1873. Annálaður merkis- maður og bjó við rausn og allsnægtir á Steinsstöðum og bókasöfnun mikla. Þau Rann- veig voru barnlaus, enda var hún komin á sextugsaldur, þeg- ar þau giftust. Meðal niðja hennar og Tómasar skal getið síra Tómasar Hallgrímssonar á Völlum, sem var listamaður í lund og hætti, svo að þókti minna á Jónas skáld frænda sinn í tilhaldi og töktum. Rann- veig dó á aðventu jóla þjóðhá- tíðarárið á 73. aldursári. Þegar sveitungarnir höfðu sungið sálminn um dauðans óvissan tíma eftir síra Hallgrím bróður Guðrúnar formóður hennar, og presturinn kastað rekunum í reit Steinsstaðafólksins í

x

Dagur - Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.