Dagur - Tíminn - 07.12.1996, Síða 7

Dagur - Tíminn - 07.12.1996, Síða 7
Laugardagur 7. desember 1996 - VII jDíigur-tEímmn allar 4 yngri kisturnar. Engin þeirra mun hafa verið öll undir hinum afmörkuðu útlínum við grafarbrotið, nema barnskist- an, sem lá á loki Jónasar kistu, frá fótagafli að miðju, að því er sagt var fyrir. En þegar hún var upp tekin, hefur það komið fram, sem hinn fundvísa, gam- alreynda fornminjafræðing varði ekki: að kista Jónasar Hallgrímssonar var ekki í sömu línu og hinar síðari kistur. Höfðagaflinn all langt inni und- ir næstu gröf vestan við. Þar var með öllu óheimilt að róta, en margra daga þóf hefði þurft til að fá útvíkkað og flengt graf- arbrotsleyfi í vestur. Skipulagi hafði verið breytt í hagræðing- ar- og fegrunarskyni nokkrum árum eftir útför Jónasar. Því náðust ekki jarðneskar leifar hans ofan brjóstmáls. Þá er ekki ósennilegt, en að vísu ekki lögð á það áhersla, að við upp- gröft norðanvert í grafarstæð- inu, þegar Trine Madsen var jörðuð, haíi þurft að grafa litla gryfju við fótagafl Jónasar kistu til þess að fela upp grafin bein í moldu hins sama en óreglulega grafarstæðis. Við þetta hafi fæt- ur, mjög fúin smábein, týnst. Er því ekki óyggjandi að meir en fót- og lærleggir, mjaðmargrind og hryggjarliðir upp til miðs hafi verið í beinakassanum, sem barst með Brúarfossi til Reykjavíkur í byrjun október fyrir 50 árum. Skal alls ekki lát- ið að því liggja, að hinn gamli öðlingsmaður, dr. Matthías Þórðarson, hafi í örvæntingu sinni, þegar sá í hvert óefni var komið, gripið til þess ráðs að bæta annarra manna beinum í heimflutningsskrínuna, svo sem hauskúpu, sem nóg var af, til þess að friða um sál Sigurjóns Péturssonar. En snilldarlega hefur þjóðminjaverði tekist við kistulagninguna á Laufásvegi 14 síðdegis föstudaginn 4. októ- ber, þegar líkvagninn hafði flutt hinar fáskrúðugu leifar frá skipsQöI þangað sem Sigurjón átti fyrir húsum að ráða. Hinn mikli kappi, og ákefðarmaður á efri árum, hefur ekki verið for- vitinn um hið jarðneska, for- gengilega, og allan kostnað af för dr. Matthíasar og upp- greftrinum greiddi hann, enda taldi hann sig eiga beinin eins og síðar kom fram. Einnig keypti hann kistuna, hjá Ey- vindi líkkistusmið á Laufásvegi 52. Aðeins einn maður tók á móti beinakassanum með þeim Sigurjóni og dr. Matthíasi. Var það Ásmundur Jónsson skáld frá Skúfsstöðum í Hjaltadal, og var hann þeim einnig innan handar við kistulagninguna, þögulli en gröfin í Hjástoðar- kirkjugarði. Þingvallanefnd lét ekki sjá sig, en með Jónasi Jónssyni euphorbia pulcherrima Stabsetning: Plantan þarf að njóta góbrar birtu. Kjörhitastig er um 20°C. Vökvun: Haldið moldinni rakri, óburðargjöf er ekki nauðsynleg ó blómgunartímanum. Athugib: Plantan er viðkvæm fyr- ir dragsúg og kulda, því er nauð- synlegt ab söluabilar pakki henni vel inn fyrir viðskiptavini sína. Blómamibstöbin sátu þá í nefndinni Norðlend- ingarnir Haraldur Guðmunds- son fyrir Alþýðuflokk og Sigurð- ur Kristjánsson fyrir Sjálfstæð- isflokk, enginn á vegum Sam- einingarflokks alþýðu — sósí- alistaflokksins, enda jafnan að- eins þrír menn í Þingvalla- nefnd. Stóð yfir áríðandi þing- fundur, að sagt var, og kunni vinstri pressan skýringu: Verið var að selja landið. Að svo búnu var næsta mál á dagskrá hjá a.m.k. formanni Þingvalla- nefndar einnig mjög áríðandi, en það var sjálft beinamálið. Þegar á sunnudagsnótt hafði þrútnað svo um, að Jónas Jóns- son hringdi í sýslumanninn á Akureyri miðju óttu og mið- morguns og stamaði flaumósa í símann, að hann hringdi af því, að það hefði verið, öhö, stolið lfld. Tók sýslumaður, Friðjón Skarphéðinsson, þessu með hinni mestu stillingu, enda vissi hann, hvað í efni var. Prófastur Eyfirðinga og presturinn á Möðruvöllum höíúu hitt hann kvöldið áður og flutt honum þau tíðindi, að kista með bein- um Jónasar Hallgrímssonar væri komin norður að Möðru- völlum og væri geymd þar um nóttina á lokuðum vörubílspalli að bæjarbaki á prestssetrinu. Yfir væri vakað, en Sigurjón taldi tryggilegast að sitja um nóttina í bflnum, vafinn í Ála- fossvoð. Vænlegt ráð þókti laug- arkvöldið, að kistunni með leif- um skáldsins úr Öxnadal yrði sökkt í milda jörð heimasveitar- innar í Bakkakirkjugarði þegar með morgni. Kistan var að vísu borin í Bakkakirkju á sunnudagsmorg- un, og þar stóð hún uppi í fulla viku. En með því að enginn hinna þriggja embættismanna í Eyjaíjarðarsýslu, sem að var vikið, mátti af þessu vita, höfðu málin snúist öndvert. Höfundur er fyrrverandi sendiráösprestur í Kaupmannahöfn. White-Westinghouse • 75 - 450 lítrar • Stillanlegur vatnshiti • Tveir hitastillar • Tvö element • Glerungshúð að innan • Öryggisventill • Einstefnulokar • Frí heimsending í Rvk. og nágrenni VISA - EURO - RAÐGREIÐSLUR JllyllL V RAFVÖRUR ÁRMÚLI 5 • 108 RVK • SÍMI 568 6411 Qpecjar íslenski osturinn er kominn á ostabakkann, þecjac hann kórónar matarcjerðina - brceÓdur eða djúpsteiktur - eða er einjjaiðlecja settur beint í munninn - f)á ez hátíðl . 'rta i krijddoUii Frábær með fersfeu salati og sem snarl. Uðala Jðric Á ostababfeann og meö feexi ogávöxtum. nascarpone Góður einn og sér og tilvalinn í matargerðina. JJónða (Sáric Með bexinu. brauðinu og ávöxtunum. Mjög góður djúp- eða smjörsteibtur. (jpbkvítm kastali Með fersfeum ávöxtum eða einn og sér. (JJljpniaostur Á feexið, brauðið. í sósur og ídýfur. Jðanienibert Einn og sér, á ostababbann og í matargerð. rJúxusurja Mest notuð eins og hún bemur fyrir en er einbar góð sem fylling í fejöt- og fisbrétti. Bragðast mjög vel djúpsteibt. 3Stóri-JJBímon Ómissandi þegar vanda á til veislunnar. DÍMOH *v< "’f’ hk VMC-V- m - <£Port <£alut Bestur meöávöxtum.brauði og bexi. £þep))eroneostur Góður í ferðalagið. JPjráðaostur. Tilvalinn til matargerðar - í súpur, sósur eða til fyllingar í fejöt- og fisbrétti. Góður einn og sér. (jplvítlauks (Jðrie Kærbominn á ostabafebann, með bexi, brauði og ávóxtum. lSLENSKIR OSTAR, J ■ *****$&

x

Dagur - Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.