Dagur - Tíminn - 07.12.1996, Side 10

Dagur - Tíminn - 07.12.1996, Side 10
ÍDagitr-®ímmn Laugardagur 7. desember 1996-X MINNINGARGREINAR Ingimar Bogason Ingimar Bogason var fæddur að Syðra-Skörðugili á Lang- holti í Skagafirði 18. maí 1911. Hann andaðist í Sjúkrahúsi Skag- firðinga 19. maí sl. og var jarð- settur frá Sauðárkrókskirkju 25. maí. Foreldrar Ingimars voru hjónin Bogi Gíslason, bóndi á Syðra-Skörðugili, og Þorbjörg Ó- lafsdóttir. Tóku þau við búi á Syðra-Skörðugili af foreldrum Þorbjargar, Ólafi Eyjólfssyni og Guðrúnu Jóhannsdóttur, en for- eldrar Boga voru Gísli Arason bóndi í Geitagerði og Sigurlaug Jónsdóttir. Börn þeirra Boga og Þorbjargar voru fjórir synir og var Ingimar þeirra næst elstur. Tveir bræðurnir, Steinberg og Sigurjón, dóu í bernsku, en Ólaf- ur Guðvin lést árið 1935, nítján ára að aldri. Ingimar kvæntist 30. maí 1943 Engilráðu Sigurðardóttur frá Hvammi í Svartárdal í Austur- Húnavatnssýslu. Engilráð lést 23. febrúar 1988 og var það Ingimari þungt högg. Þau hjón eignuðust fjóra syni, sem alÚr eru á lífi. Elstur er Gunnar Hörður, f.v. kaupmaður, búsettur á Sauðár- króki. Kona hans er Margrét J. Gunnarsdóttir. Þá Bogi Björgvin, aðstoðarskólameistari við Fjöl- brautaskólann í Ármúla í Reykja- vík, kvæntur Birnu Helgadóttur. Næstur er Ólafur Ragnar, yfir- læknir sjúkrahússins á Sauðár- króki, og er kona hans Verónika Jóhannsdóttir. Yngstur er Sigurð- ur Haukur, framkv.stj. hjá Jó- hanni Ólafssyni og Co., búsettur í Reykjavík, kvæntur Elinóru Jósafatsdóttur. Allir eru þeir bræður miklir manndómsmenn. Barnabörn þeirra Ingimars og Engilráðar eru tólf og barna- barnabörnin tvö. Ingimar ólst upp hjá foreldrum sínum á Syðra-Skörðugili, en móð- ur sína missti hann árið 1927. Bjuggu þeir feðgar áfram á Skörðugili til ársins 1936. Jafn- framt því að stunda bústörfin með fóður sínum, vann Ingimar öðru hverju utan heimilis, svo sem við vegagerð. Þá var hann og vetrar- maður bæði í Bólstaðarhlíð og á Kagaðarhóli í Ilúnaþingi. Ingimar yfirgaf íoðurleifð sína 1936. Heimili átti hann fyrst í eitt ár á Reykjarhóli hjá þeim Guð- mundi Gíslasyni, fóðurbróður sín- um, og konu hans Sigríði Gísladótt- ur. Síðan vinnumaður og til heimil- is á Víðimýri hjá Gunnari Valdi- marssyni og Amelíu Sigurðardóttur til ársins 1940 og batt Ingimar ævilanga vináttu við Gunnar og Amelíu. Á árunum 1937-1939 bjuggu Jón Björnsson, bóndi og söngstjóri, og kona hans Sigríður Trjámannsdóttir á Reykjarhóli. Bogi, faðir Ingimars, var hjá þeim seinna árið á Reykjarhóli eða þar til þau fluttu í Hafsteinsstaði. Ingi- mar átti þau hjón Jón og Sigríði að ævilöngum vinum, en Jón hafði Ingimar þekkt allt frá frum- bernsku. Á árum Jóns söngstjóra á Sauðárkróki var hann tíður gestur á heimili Ingimars og fylgdi Jóni á- kafi og snerpa sem ungur væri. Var þá oft glaður góðra vina fundur. Frá Víðimýri flutti Ingimar í Halldórsstaði þar sem faðir hans var þá til heimilis. Þar bjó þá Hall- dór Gíslason, frændi hans, ásamt konu sinni Guðrúnu Sigurðardótt- ur. Þar kynntist Ingimar konu sinni Engilráðu, systur Guðrúnar, og voru þær systur dætur þeirra hjóna, Sigurðar Guðmundssonar og Elínar Pétursdóttur, sem lengi bjuggu í Hvammi í Svartárdal. Árið 1945 fiuttu þau Ingimar og Engilráð frá Halldórsstöðum og til Sauðárkróks. Þar stóð heimili þeirra upp frá því, lengst af á Freyjugötu 34. Nokkru áður en þau hjón flutt- ust frá Halldórsstöðum hafði Ingi- mar farið að vinna hjá Mjólkur- samlaginu á Sauðárkróki og vann þar í tvö ár. Er þeirri vinnu lauk, sinnti hann næstu árin ýmiss kon- ar störfum, svo sem almennri verkamannavinnu og bifreiða- akstri. En árið 1956 réðst hann til starfa hjá Kaupfélagi Skagfirðinga. Og þar var ekki tjaldað til einnar nætur, því hjá Kaupfélaginu vann Ingimar í 30 ár, eða þar til hann varð 75 ára. Fékkst hann jöfnum höndum við afgreiðslu og skrif- stofustörf og leysti hvortveggja af hendi með ágætum, enda ná- kvæmni hans og snyrtimennsku við brugðið. Rithönd hafði Ingimar afburða góða, sem kom sér vel þegar flest var handskrifað. Ingimar var frábitinn því að láta á sér bera í samfélaginu. Mér fannst hógværð hans og hlédrægni jafnvel stundum um of. En hann var að eðlisfari ákaflega félags- lyndur og ávallt reiðubúinn að leggja hönd á plóg, þegar til hans var leitað um liðsinni. Það var í samræmi við lífshugsjón Ingimars „að vernda æ hinn lægri garð“ og af því leiddi að hann tók drjúgan þátt í verkalýðsbaráttunni. Hann sat í stjórn verkamannafélagsins Fram á Sauðárkróki um árabil og var formaður þess um skeið. Hann átti sæti í bæjarstjórn Sauðárkróks frá 1950-1954. Hann tók mikinn þátt í störfum Verslunarmannafé- lags Skagafjarðar og var um árabil formaður þess. Hann var heilhuga samvinnumaður og var fulltrúi á aðalfundum Kaupfélags Skagfirð- inga áratugum saman. Formaður Dýraverndunarfélags Skagafjarðar var hann í tvo áratugi og um skeið formaður klúbbsins Öruggur akst- ur. Ilann söng með Karlakórnum Heimi um árabil og var formaður hans frá 1937-1940. Þegar Heimir minntist 50 ára afmælis síns, flutti Ingimar honum þakkarávarp í ljóðum og segir þar m.a.: Ég minnist hinna löngu liðnu daga, þá Ijúfir tónar glöddu huga minn. Hugþekk verður mörgum söngsins saga um sól og vor og bjartan himin inn. Svo vildi til, að ég kynntist Ingi- mari fyrst í Heimi og þá á nokkrum örlagatímum fyrir kór- inn. Þegar Heimismenn komu saman haustið 1937 til þess að undirbúa starfsemi kórsins á kom- anda vetri varð ljóst, að einungis 9 söngmenn höfðu tök á því að halda starfinu áfram. Nú, jæja, þetta var þó tvöfaldur kvartett og einum manni betur og að því leyti virtist áframhaldandi starf engin frágangssök. Hitt var lakara, hversu misskipt mönnum var í raddir. Að vísu voru þrír í öðrum bassa: Halldór á Fjalli, Björn í Reykjahh'ð og Tobías á Hellu; þrír í fyrsta bassa: Gísli í Mikley, Sigurð- ur Kristófersson og Ingimar Boga- son; tveir í öðrum tenór: Björn á Krithóli og Vigfús á Brekku, en að- eins einn í fyrsta tenór, Gunnlaug- ur í Ilátúni. Enginn vildi þó að ó- reyndu leggja árar í bát, allra síst formaðurinn Ingimar, og söng- stjórinn, Jón Björnsson, heldur skyldi þess freistað að fá í hópinn þrjá nýliða, einn í annan tenór og tvo í þann fyrsta. Og þetta tókst. Gísli Jónsson, seinna á Víðivöllum, gekk til liðs við þá Björn og Vigfús í öðrum tenór, en við Þorsteinn í Stokkhólma settumst undir arar með Gunnlaugi í fyrsta tenór. Það sagði Ingimar mér síðar, að hann hefði ekki mátt til þess hugsa, að kórinn hætti störfum. Ég er ekki bær að dæma um söng þessa fá- menna flokks né er þar heldur hlutlaus aðili. En það man ég að kórinn söng alloft opinberlega þennan vetur og við góðar undir- tektir. Mér þótti ákaflega gaman að taka þátt í þessari söngstarfsemi og félagsskapurinn var alveg frá- bær. Allir bundumst. við vináttu- böndum, sem entust ævilangt. Eins og að líkum lætur, er þessi þrettán manna flokkur farinn að þynnast. Eftir lifa aðems fjórir. Nú síðast leysti Ingimar landfestar. Ingimar var þeirrar gerðar, að maður mat hann því meir sem kynnin urðu nánari. Hann var íluggreindur, víðlesinn og fróður, svo að ógjarnan var þar komið að tómum kofum. Hafði gaman af að velta fyrir sér ráðgátum tilverunn- ar og komst þá stundum að ný- stárlegri og eftirtektarverðri nið- urstöðu. Glettinn var hann og stundum grunnt á gáskanum. Skáldmæltur vel, en hélt því lítt á lofti. Einstakt snyrtimenni og hall- aðist þar ekki á um þau hjón, svo sem heimili þeirra bar gleggstan vott um. Og það var oft mann- kvæmt á Freyjugötunni hjá þeim Ingimari og Engilráðu. Þar sátu glaðværð, gestrisni og greiðasemi í öndvegi. Þar rökræddu menn og leituðust við að brjóta til mergjar hin margvíslegustu mannfélags- mál, en þau voru húsráðendum mjög hugleikin. Þarna var gott að koma. Frá þessum „kvöldvökum" og öðrum samfundum okkar Ingi- mars á ég margar minningar. Þær eru góð eign. Og fyrir þær vil ég þakka nú við leiðaskil. Magnús H. Gíslason, Frostastöðum. Bryndís Kristjánsdóttir Bryndís Kristjánsdóttir fæddist á Húsavík 11. desember 1964. Hún lést á Landspítal- anum 2. desember síðastliðinn. Foreldrar hennar eru Ragnhild Hansen, f. 19.04. 1943 í Reykjavík, og Kristján Sigurðarson frá Lund- arbrekku, f. 18.07. 1942. Bryndís giftist 2. október 1993 Gísla Rafni Jónssyni, f. 20.04. 1964, frá Víkur- nesi í Mývatnssveit. Synir þeirra eru Arnar Rafn, f. 26.12. 1991, og Fannar Rafn, f. 11.05.1996. Útför Bryndísar fer fram frá Reykjahlíðarkirkju í dag, 7. desem- ber, og hefst athöfnin kl. 13.30. Vinkona okkar og fyrrum vinnufé- lagi, Bryndfs Kristjánsdóttir, er látin, aðeins 31 árs að aldri. í endurminningunum sem leita á hugann er sólskin og heiðríkja í Mý- vatnssveit. Bryndís hafði lengi hlakkað til að taka á móti okkur vinnufélögunum og eyða með okkur degi í sveitinni sem var henni svo kær. í velheppnaðri vinnustaðarferð sýndu þau Gísli Rafn okkur náttúru- undur ýmiss konar og gömul mann- virki og fræddu okkur eins og þeim var báðum svo vel lagið. Að því loknu var slegið upp veisluborði á heimili foreldra hans og að sjálf- sögðu boðið upp á reyktan Mývatns- silung, nýorpin egg og annað hnoss- gæti. Þá var hún hrókur alls fagnað- ar eins og ávallt endranær. Bryndís var öðrum duglegri að efna til mannfagnaða og veita gest- um sínum af því besta sem hún átti. Þau hjónin voru einstaklega glæsileg þegar þau gengu að hljóðfærinu; hún söng negrasálma fyrir gesti sína hljómmikilli röddu og hann spilaði undir. Við kynntumst Bryndísi fyrst þeg- ar hún kom sem félagsráðgjafanemi í starfsþjálfun á Félagsmálastofnun Akureyrar. Hún sýndi strax hvaða hæfileikum hún bjó yfir, varð undur- íljótl hagvön og tengdist okkur sam- starfsfólkinu sterkum böndum. Eðliskostir hennar komu síðan enn betur í ljós, þegar hún kom tii starfa á stofnuninni að loknu námi. Bryn- dís var ákaflega dugleg, fumlaus og afkastamikil, hugrökk og gagnrýnin, og hún hikaði ekki við að taka af skarið þegar henni þótti ástæða til. Bryndís deildi með okkur gleði og sorg, og við hrifumst af mannkostum hennar. Okkur er sérlega minnisstætt þegar Bryndís fór á slægjuball í Mý- vatnssveit og kynntist mannsefninu sínu. Milli þeirra mynduðust strax sterk og innileg tengsl, byggð á gagnkvæmri virðingu og væntum- þykju. Hún heillaðist af mörgu í fari hans, meðal annars því hvað hann sagði fallega frá. Ekki hefði hún get- að valið sonum sínum betri fóður: laginn við börn, umhyggjusaman og þolinmóðan. Þau Gísli Rafn voru ein- staklega samhent og heimilið, fjöl- skyldan og börnin sátu í fyrirrúmi hjá þeim báðum. Úr varð að þau settust að í Mývatnssveit og saman byggðu þau sér reisulegt hús á bökkum Mývatns og hafði Bryndís sérstaklega á orði að ekki þyrfti málverk á veggi í svona fallegri sveit. Bryndís smitaðist af áhuga á Qölskyldufyrirtækinu og ásamt tengdaforeldrum hennar færðu þau út kvíarnar og hófu rekstur gisti- þjónustu. Sú vinna lék í höndum hennar, skipulögð og gestrisin eins og hún var og með hugann fullan af framtíðaráformum. Nú er hún öll, hrifin á braut með sviplegum hætti. Við vissum að hún átti við veikindi að stríða síðustu vik- urnar, og þau reyndust alvarlegri en nokkurn grunaði. Elsku Gilli, nú er okkur orða vant. Við sendum þér og sonunum ungu okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Fyrir hönd vinnufélaganna, Guðrún, Valgerður og Hulda. Kenndu mér klökkum að gráta kynntu mér líftð í svip Fœrðu mér friðsœld í huga finndu mér leiðir á ný Og sjáðu hvar himinn heiður handan við þyngstu ský er dagur sem dugar á ný (Sigmundur Ernir Rúnarsson) Elsku Bryndís. Það er erfiðara en orð fá lýst að standa frammi fyrir því að þú sért farin. Við sem vorum rétt að byrja að fóta okkur á ný eftir fráfall elsku mömmu. Það er ekki á okkar vaidi að skilja hvers vegna þú í blóma lífs- ins varst hrifin burt frá Gilla og litlu drengjunum ykkar. Mig langar að þakka fyrir allar stundirnar sem við áttum saman bæði í sveitinni okkar, fyrst í Víkur- nesi og síðar í fallega húsinu ykkar, Arnarnesi, og hjá okkur á Akureyri. Þær stundir voru stundum erfiðar, eins og í veikindum mömmu, oftar skemmtilegar en alltaf góðar. Þær munu geymast í minningunni og verða okkur enn dýrmætari þegar sárasta sorgin dvínar. Mig langar líka að þakka þér fyrir hversu vel þú reyndist alltaf Jóni Árna mínum, sem átti heimili sitt hjá ykkur tvö síðastliðin sumur og var að passa Arnar Rafn, frænda sinn. Við munum öll reyna að standa þétt saman, vera Gilla styrkur og vaka yfir litlu drengjunum ykkar af fremsta megni. Ég veit, elsku Bryn- dís, að mamma mín hefur tekið á móti þér og að hún mun leiða þig og hjálpa eins og svo oft hérna megin. Takk fyrir allt og megi góður Guð gæta þín á ókunnum stigum og styrkja og blessa elsku bróður minn og litlu strákana ykkar. Solla. Elsku amma. Við trúum því varla að þú sért farin, eða kannski viljum við bara ekki trúa því. Það er svo skrítið að hugsa til þess að þú sért ekki lengur í Hamragerðinu, þar sem þú hefur alltaf verið síðan við munum eftir okkur, tilbúin með kaffi og konfckt handa þeim sem litu inn, og alltaf kandís handa okkur. Það eru ekki ófáar minningarnar sem við eigum um þig, elsku amma, eða „amma lalli" eins og við kölluð- um þig alltaf. Við munum aldrei gleyma því hvernig þú hélst í hend- urnar á okkur þegar við vorum litlar og söngst fyrir okkur „Létt stígur lalli". Við vorum daglegir gestir hjá þér þá, og þótt við höfum vaxið mik- ið síðan þá breyttist þú aidrei, þú varst alltaf bara hún „amma okkar lalli" og þannig munum við alltaf muna þig. Þetta verða lfka skrýtin jól, án þín. Skrýtið að þú komir ekki í mat með afa á aðfangadagskvöld, og skrýtið að við munum aldrci framar hittast öll í jólakaffinu í Hamragerð- inu eins og hefð er fyrir, og fá að smakka kakóið þitt, það gat enginn gert jafngott kakó og þú. Já, það er svo margt sem breytist nú þegar þú ert farin, margar hefðir sem liíðu með þér og verða aldrei eins án þín. Við trúum þessu varla, allt í einu ertu farin. En við munum aldrei gleyma þér, og við trúum því að þú munir alltaf vera hjá okkur. Þú lifir í hjörtum okkar, „elsku amma lalli“. Blessuð sé minning þín. Arna og Halla.

x

Dagur - Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.