Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1981, Síða 3
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1981.
23
Sjónvarp
Sjónvarp
„Kuskið” segir frá ungum manni
á uppleið, sem lendir í hringiðu at-
burða, sem fljótlega verða honum
hættulegri en hann hugði. Hann er
sakaður um eiturlyfjabrask oglendir
í gæzluvarðhaldi.
Árni Ibsen leikur þennan náunga,
sem reyndar heitir Eiríkur, en Elfa
Gísladóttir Dagrúnu konu hans. En
alls eru leikarar um 30. Leikstjóri er
Andrés Indriðason.
Davíð Oddsson hefur skrifað eitt
sjónvarpsleikrit áður. Hét það
,,Róbert Elíasson kemur heim frá út-
löndum”. Ef okkur misminnir ekki,
átti Róbert þessi ótrygga eiginkonu.
Yfirmaður hans blandaðist í málið og
girntist konuna. Hún var tilkippileg,
og Róbert þurfti að velja á milli þess
að loka augunum eða að missa
vinnuna.
Leiksk&ldið, sjúkrasamlagsforstjór-
inn og borgarfulltrúinn Davíð Odds-
son.
T
Davíð er forstjóri Sjúkrasamlegs
Reykjavíkur og borgarfulltrúi. f
nýafstöðnu prófkjöri Sjálfstæðis-
manna til næstu borgarstjórnarkosn-
inga varð Davíð efstur af öllum.
Hvað ritferil hans snertir þá hófst
hann upp úr 1970, þegar Davíð,
Þórarinn Eldjárn og Hrafn Gunn-
laugsson skrifuðu röð af útvarpsþátt-
um, sem þeir kölluðu Matthildi og
voru bráðfyndnir. Þeir félagar gerðu
seinna revíuna ,,Ég vil auðga mitt
land” fyrir Þjóðleikhúsið. Og loks
skrifuðu þeir Davíð og Hrafn
revíuna „íslendingaspjöll” fyrir
Leikfélag Reykjavíkur.
„Kusk á hvítflibbann” er fyrsta
leikritið af sex, sem sjónvarpið lætur
vinna sem árangur af námskeiði fyrir
leikritahöfunda, sem haldið var á sin-
um tíma. Verður spennandi að sjá
hvernig til hefur tekizt. Þess má geta
að höfundur er grunaður um að
sækja vissar fyrirmyndir til raun-
verulegra atburða, sem nýlega hafa
gerzt.
-ihh.
Mánudagur
28. desember
19.45 Fréttaágripátáknm&li.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Tommi og Jenni.
20.40 Björgunarbátar. Mynd um
meðferð gúmbjörgunarbáta, sem
Siglingamálastofnun ríkisins hefur
látið gera. Umsjón: Hjálmar R.
Bárðarson. Þulur: Guðbjartur
Gunnarsson.
20.55 íþróttir. Umsjón: Bjarni
Felixson.
21.25 Við vorum þó heppin með
veður. Sænskt sjónvarpsleikrit í
léttum dúr um listina að fara í frí.
Fjölskyldan er að fara i frí og allt á
þetta að ganga snurðulaust og af-
slappað fyrir sig. Það er þó hægara
sagt en gert. Þýðandi: Þrándur
Thoroddsen. (Nordvision —
Sænska sjónvarpið).
22.25 Börn/Foreldrar. Kanadisk
fræðslumynd um ófrjósemi og
tilraunir, sem gerðar eru með
frjóvgun eggja utan líkama komu
og „tilraunaglasavörn”. Þýðandi:
Jón O. Edwald.
22.50 Dagskrárlok.
»iinM>MiHit>uunuu>t»utHiM>ancMmntuuunnuu»nuuH HMunnH
21.05 Kusk á hvítflibbanum. Sjón-
varpsleikrit eftir Davíð Oddsson.
Leikstjóri: Andrés Indriðason.
Helstu persónur og leikendur:
Eiríkur Arni Ibsen, Dagrún-Elfa
Gísladóttir, Móðir Dagrúnar-
Þóra Friðriksdóttir, Nikulás-Jón
Sigurbjörnsson, Ester-Ragnheiður
Arnardóttir, Páll-Sigurður Sigur-
jónsson, Guðrún-Jóhanna Norð-
fjörð, Fréttastjórinn-Borgar
Garðarson, Loftur, blaðamaður-
Gunnar Rafn Guðjónsson, Leó-
Steindór Hjörleifsson, Valgeir
fangavörður-Róbert Arnfinns-
son. Eiríkur er ungur og fram-
sækinn maður í góðri stöðu. At-
vikin haga því svo að á hann fellur
grunur um eiturlyfjabrask, og
hann verður að sæta
gæsluvarðhaldsvist, á meðan málið
er rannsakað. Leikritið lýsir
tilraunum hans til þess að ljúga sig
út úr óþægilegu máli í upphafi, og
viðbrögðum fjölskyldu og sam-
verkamanna, þegar í óefni er
komið. Myndataka: Ómar
Magnússon. Leikmynd: Gunnar
Baldursson. Hljóð: Baldur Már
Arngrímsson. Lýsing: Ingvi
Hjörleifsson. Stjórn upptöku:
Andrés Indriðason.
22.00 Dick Cavett rabbar við
ABBA. Rabb- og tónlistarþáttur
með bandaríska sjónvarps-
manninum Dick Cavett og sænsku
popphljómsveitinni ABBA.
Þýðandi: Veturliði Guðnason.
22.50 Sagan af Cable Hogue. (The
Ballad of Cable Hogue). Banda-
rískur vestri frá 1970. Leikstjóri:
Sam Peckinpah. Aðalhlutverk:
Jason Robards, David Warner og
Strother Martin. Myndin lýsir því
hvernig utangarðsmaður vinnur
ástir konu með vafasama fortíð.
Þýðandi: Björn Baldursson.
00.45 Dagskrárlok.
Sunnudagur
27. desember
16.00 Sunnudagshugvekja. Séra
Agnes Sigurðardóttir, æskulýðs-
fulltrúi þjóðkirkjunnar, flytur.
16.10 Húsið á sléttunni. Níundi
þáttur. Hjónaerjur. Þýðandi:
Óskar Ingimarsson.
17.00 Saga járnbrautalestanna.
Annar þáttur. Breskur mynda-
Sjónvarp annan dag jóla kl. 22.00:
DICK CAVETT RÆÐIR
VIÐ MEÐLIMIABBA
KUSK Á HVÍTFLIBBANN— sjónvarpsleikrit annan íjólum kl. 21.05:
Nýtt sjónvarpsleikrit eftir
borgarfulltrúa í Reykjavík
Þó vinsældir ABBA-flokksins
hafi dalað eitthvað hér á landi undan-
farin ár er ekki sömu sögu að segja í
öðrum löndum. ABBA-skífurnar
renna alltaf út eins og heitar lummur
|og enn er flokkurinn dáður víðs veg-
ar um heim.
Nú eru liðin sjö ár frá því ABBA-
flokkurinn kom, sá og sigraði í
Evrópusönglagakeppni sjónvarps-
stöðva. Að vísu hefur margt breytzt
innbyrðis hjá flokknum en áfram
gefur hann út hljómplötur sameigin-
lega.
Á annan dag jóla sýnir sjónvarpið
nýja samtalsþátt bandaríska sjón-
varpsmannsins, Dick Cavett, við
meðlimi ABBA-flokksins. Dick
Cavett er frægur sjónvarpsmaður
vestanhafs og þá sérstaklega vegna
góðra viðtala sem hann hefur tekið
við ýmsa fræga menn.
Þau Agnetha, Annifrid, Björn og
Benni eru einnig sögð hress og þáttur-
inn á annan dag jóla ætti því að lofa
góðu. Þá kannski sérstaklega fyrir
aðdáendur ABBA-flokksins.
-ELA
flokkur um járnbrautalestir og
fólk, sem vinnur við þær og ferðast
með þeim. Þýðandi: Ingi Karl
Jóhannesson. Þulur: Friðbjörn
Gunnlaugsson.
18.00 Stundin okkar. Umsjón:
Bryndís Schram. Upptökustjórn
Elín Þóra Friðfinnsdóttir.
18.50 Hlé.
19.45 Fréttaágríp á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Sjónvarp næstu viku.
Umsjón: Magnús Bjarnfreðsson.
20.55 Tónlistarmenn. Sigriður Ella
Magnúsdóttir, óperusöngkona.
Egill Friðleifsson ræðir við
Sigríði Ellu og hún syngur nokkur
lög. Stjórn upptöku: Tage
Ammendrup.
21.35 Eldtrén í Þíka. Fjórði þáttur.
Vinir á æðri stöðum. Breskur
framhaldsmyndaflokkur um land-
nema í Afríku. Þýðandi: Heba
Júliusdóttir.
22.25 Jóiakvöld Krúgers. Leikin
bandarísk jólamynd um aldraðan
ABBA-flokkurinn vinnur enn saman þrátt fyrír ýmsar persónulegar breytingar
hjá þvi góða fólki. Hér er hópurínn saman kominn ásamt sjónvarpsmanninum
góðkunna, Dick Cavett
einstæðing í stórborg. Persónur
myndarinnar eru gamall húsvörður
og lítil stúlka, sem hefúr týnt
vettlingunum sínum. Með
aðalhlutverk fer James Stewart. í
myndinni syngur Mormónakórinn
i Utah. Þýðandi: Hermann
Jóhannesson.
22.55 íþróttir. Umsjón: Bjarni
Felixson.
23.25 Dagskrárlok.
Annan í jólum sjáum við nýtt vetur . „Kusk á hvítflibbann” heitir
íslenzkt sjónvarpsleikrit, það fyrsta í þaðogereftirDavíðOddsson.