Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1982, Síða 6
22
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1982.
Hvað er á seyði um helgina Hvað er á seyði um helgina
Vorgleði Fáskrúðsf irðinga í fullum gangi:
KÓRARNIR MED TÓNLEIKA UM HELGINA
— Leikfélagið frumsýnir bráðlega
Frá Fáskrúdsfiröi. Bærínn er iðandi af menningarlifi um þessar mundir.
Vorgleði Fáskrúðsfirðinga hófst
fjórða april síðastliöinn með mál-
verkasýningu Ólafs Th. Ólafssonar í
grunnskóla staöarins. Á sýningunni
eru tuttugu og sex myndir, unnar
með olíu og blýanti. Hefur sýningin
verið vel sótt.
Fimmtudaginn áttunda apríl var
haldið skemmtikvöld í félagsheim-
ilinu Skrúð með blönduðu efni.
Magnús Stefánsson kennari og
Magnús Guðmundsson leikstjóri frá
Neskaupstað fluttu ljóð. Einar
Georg flutti ávarp. Samkór
Fáskrúðsfjarðar söng undir stjórn
Kjartans Ólafssonar og hljómsveit
lék lög Óðins G. Jóhannessonar við
texta Einars Georgs og fleiri. Þá voru
gjörningar og á dagskrá.
Meðal atriða á skemmtikvöldinu
má einnig nefna upplestur Ólafs
Bergþórssonar á Djáknanum á
Myrká sem þótti ærið kynngi-
magnaður. Vakti lestur Ólafs mikinn
gauragang meðal tilheyrenda.
Samkoman var vel sótt og skemmtu
menn sér vel. Kynnir var Agnar
Jónsson.
Skákmót grunnskóla Fáskrúðs-
fjarðar var haldið niunda april og
kepptu sex þriggja manna sveitir.
Hlutskörpust þeirra reyndist vera
sveit Einars Más, Guömundar
Þorsteinssonar og Ólafs Bergþórs-
sonar. Hlaut hún þrettán og hálfan
vinning af fimmtán mögulegum.
Sveit Guðmundar Hallgrímssonar
hafnaði í öðru sæti og í þriðja sæti
urðu Vignir Hjelm og hans menn.
Annan páskadag héldu Manuela
Wiesler flautuleikari og Þorkeil
Sigurbjörnsson slaghörpuleikari tón-
leika i félagsheimilinu Skrúð á vegum
gleðinnar við góðar undirtektir
áheyrenda.
Loks má geta þess að Samkór
Fáskrúðsfirðinga og karlakór
Stöðvarfjarðar munu halda tónleika
næstkomandi laugardag. Verða þeir
haldnir i Skrúð. Einsöngvari á
tónleikunum er Elín Ósk, en stjórn-
andi kóranna Kjartan Ólafsson.
Leikhópurinn Vera æfir auk þessa
af fullum krafti gamanleikritiö AUra
meina bót sem bráðlega verður tekið
tU sýninga eða i lok þessa mánaðar.
Leikstjóri verksins er Magnús
Guðmundsson.
-SER/Ægir, Fáskrúðsfirði.
inisskilnings og hamagangs, eins og sæmir i ærsla-
leik. Meö stærstu hlutverkin í leiknum fara þau
Margrét Ólafsdóttir, Gbli Halldórsson og Emll
Gunnar Guðmundsson, auk Kjartans Ragnarssonar,
Aóalsteins Bergdal, Ragnheióar Steindórsdóttur og
Guflmundar P&lssonar. Leikstjórí sýningarinnar er
Jón Sigurbjömsson, en leikmynd geröi Jón
Þórisson.
A laugardagskvöld verður J6I eftir Kjartan
Ragnarsson á fjölunum i Iönó, en þaö leikrit hefur
veríö sýnt viö metaösókn i allan vetur. Jói, sem er
þroskaheftur piltur veröur fyrir þvi aö missa móöur
sína, og við það standa skyndilega aðrir fjölskyldu-
meölimir frammi fyrir þeim vanda, hvaö beri aö
gera og hver þeirra eigi að taka Jóa aö sór. Með
stærstu hlutverkin fara þau Jóhann Slgurðarson,
Hanna María Karlsdóttir og Sigurður Karlsson, auk
Guðmundar Pálssonar, Þorsteins Gunnarssonar,
Elfu Gisladóttur og Jóns HJartarsonar.
Á sunnudagskvöld er 23. sýning á Sölku Völku
eftir Halldór Laxness, sem frumsýnd var i janúar sl.
i tilefni af 85 ára afmæli Leikfélagsins og 80 ára af-
mælis skáldsins. Sýning Leikfélagsins hlaut mjög
lofsamleg ummæli gagnrýnenda, og uppselt hefur
veriö á allar sýningarnar til þessa. Meö stærstu hlut-
verkin fara þau Guðrún Gisladóttir, Margrét Helga
Jóhannsdóttir, Jóhann Sigurðarson Þorsteinn
Gunnarsson og Jón Slgurbjömsson, en alls taka 16
leikarar þátt í sýningunni.
Hjalti Rögnvaldsson leikur skáldið og
hlaut menningarverðlaun DV fyrír góða
frammistöðu.
Síðustu sýningar á
„Húsi skáldsins"
Nú eru einungis tvær sýningar eftir á uppfærslu
Þjóöleikhússins á Húsi skáldsins, eftir Halldór
Laxness og i ieikgerö Sveins Einarssonar. Siöustu
sýningarnar veröa sunnudaginn 18. apríl og föstu-
daginn 23. apríl en lokasýningin er einmitt sama dag
og Halldór Laxness verður áttræöur. Þessi sýning
var frumsýnd á jólunum og hafa 10.000 manns séð
hana.
Eyvindur Erlendsson er leikstjóri, leikmynd og
búningar eru eftir Sigurjón Jóhannsson og lýsinguna
annast Ingvar Björnsson. Þá hefur Jón Ásgcirsson
samið sönglög við Ijóö Ljósvikingsins og eru þau
sungin í sýningunni viö harmonikkuundirleik Grettis
Björnssonar. — Sýning þessi hefur hlotið afar lof-
samlega dóma og túlkun einstakra leikenda þótt tíö-
indum sæta.
Þjóðleikhúsið
um helgina:
Amadeus eftir Peter Shaffer veröur sýnt á föstu-
dagskvöld og i 20. skiptiö á laugardagskvöld. Sýning
þessi nýtur mikilla vinsælda hér sem erlendis.
öfundarglæpur Salieris lætur engan ósnortinn og
glæsileg tónlist Mozarts undirstrikar hina drama-
tisku atburöi. Leikstjóri er Helgi Skúlason, Róbert
Arnfinnsson leikur Salieri, Siguröur Sigurjónsson
leikur Mozart og Guðlaug María Bjarnadóttir leikur
Konstönsu.
Gosi barnaleikrit Brynju Benediktsdóttir eftir sög-
unni sivinsælu sem Collodi samdi um þroskaferil
spýtustráks veröur sýnt einu sinni nú um helgina, á
sunnudag kl. 14.00. Árni Blandon leikur Gosa, Árni
Tryggvason leikur Láka leikfangasmiö og Sigurður
Sigurjónsson leikur Flökkujóa, samvisku Gosa. Nú
fer hver aö veröa síöastur að sjá þessa vinsælu
barnasýnineu. ___
Skemmistaðir
BROADWAY: Föstudags- og laugardagskvöld
veröur Heiöar Ástvaldsson með 18 manna dans-
hópinn sinn, Jassport.
HOLLYWOOD: Diskótekiö dynur alla helgina.
SNEKKJAN: Dansbandiö leikur föstudags- og
laugardagskvöld. Matsölustaðurinn Skútan opin
sömu kvöld.
HÓTEL BORG: Diskótekiö Dlsa sér um diskósnún- ‘
inga bæöi föstudags- og laugardagskvöld. Sunnu-
dagskvöld veröur hljómsveit Jóns Sigurössonar með
tónlist af vönduöu tagi sem hæfir gömlu dönsunum.
LINDARBÆR: Laugardagskvöld, gömlu dansarnir.
Valgeröur Þórisdóttir syngur undir Ieik hljómsveitar
Rúts Kr. Hannessonar.
ÓÐAL: Opiö öll kvöld helgarinnar, Fanney og Dóri
skiptast á aö snúa plötunum viö.
SIGTUN: Opið laugardagskvöld kl. 14.30, laugar-
dag verður spilaö bingó.
GLÆSIBÆR: Grétar Laufdal verður i diskótekinu
um helgina frá klukkan 10—03, þaö er diskósalur
74”, tónlistin úr safni feröadiskóteksins. Grétar
býöur alla velkomna og óskar gestum góörar
skemmtunar. Hljómsveitin Glæsir leikur fyrir dansi
í öörum sal hússins öll kvöld helgarinnar.
ÞÓRSCAFÉ: Kabarettinn kætir alla. Galdrakarlar
leika sin beztu lög, diskótek á neöri hæö, opiö öll
kvöld helgarinnar.
Matsölustaðir
REYKJAVlK
ASKUR, Laugavegi 28 B. Símar 18385 og 29355:
Opiö kl. 9—24 alla daga. Vlnveitingar frá kl. 18
virka daga og allan daginn á sunnudögum.
ASKUR, Suðurlandsbraut 14. Simi 81344: Opið ki.
11—23.30.
BRAUÐBÆR Þórsgötu 1, við Óðinstorg. Sími
25090: Opiö kl. 9—23.30 virka daga og 10—23.30 á
sunnudögum.
ESJUBERG, Hótel Esju, Suöurlandsbraut 2. Simi
82200: Opiö kl. 7—22. Vínveitingar.
HLÍDARENDI, Brautarholti 22 (gengið inn frá
Nóatúni). Borðapantanir i síma 11690. Opið kl.
11.30— 14.30 og 18—22.30. Vinveitingar.
HOLLYWOOD, Ármúla 5. Boröapantanir i síma
83715. Matur framreiddur kl. 21—23 öll kvöld
vikunnar. Vínveitingar.
IIORNIÐ, Hafnarstræti 16. Simi 13340: Opiö kl.
11—23.30. Eldhúsinu lokaö kl. 21. Léttar vínveit-
ingar.
HÓTEL HOLT, Bergstaðastræti 37. Borðapantanir
i sima 21011. Opið kl. 12—14.30 og 19—23.30. Vin-
veitingar.
HÓTEL LOFTLEIÐIR, Reykjavíkurflugvelli.
Boröapantanir i sima 22321: Blómasalur er opinn kl.
8—9.30. (morgunmatur), 12—14.30 og 19—22.30.
Vinveitingar. Boröapantanir i Súlnasal i sima 20221.
Matur er framreiddur föstudaga og laugardaga kl.
19—21. Vínveitingar.
KAFFIVAGNINN, Grandagarði 10. Simar 12509 og
15932. Opið kl. 4 eftir miönætti til kl. 23.30. Vín-
veitingar.
KRÁIN við Hlemmtorg. Sími 24631. Opiö alla daga
kl. 9—22.
LÁUGAÁS, Laugarásvegi 1. Sími 31620. Opið 8—
24.
MATSTOFA AUSTURBÆJAR, Laugavegi 116.
Sími 10312. Opið kl. 8—21 virka daga og 9—21
sunnudaga.
NAUST, Vesturgötu 6—8: Boröapantanir í síma
17759. Opið alla daga kl. 11—23.30.
NESSÝ, Austurstræti 22. Simi 11340. Opiö kl. 11 —
23.30 alladaga.
ÓÐAL við Austurvöll. Boröapantanir i sima 11322.
Matur framreiddur kl. 21—01 sunnudaga til
fimmtudaga, kl. 21—03 föstudaga og laugardaga.
SKRÍNAN, Skólavörðustíg 12. Simi 10848. Opiö kl.
11.30— 23.30. Léttar vinveitingar.
VESTURSLÓÐ, Hagamel 67. Simi 20745. Opiö kl.
11— 23 virka daga og 11—23.30 á sunnudögum.
Léttar vinveitingar.
ÞÓRSCAFÉ, Brautarholti 20. Boröapantanir i sima
23333. Matur framreiddur föstudaga og laugardaga
kl. 20—22. Vínveitingar.
AKUREYRI
BAUTINN og SMIÐJAN, Hafnarstræti 22. Sími
96-21818. Bautinn er opinn alla daga kl. 9.30—
21.30. Smiðjan er opin mánudaga, þriðjudaga og
miðvikudaga kl. 18.30—21.30. Föstudaga, laugar-
daga og sunnudaga kl. 11.30—14 og 18.30—21.30.
Vínveitingar.
HÓTEL KEA, Hafnarstræti 87—89. Simi 96-22200.
Opið kl. 19—23.30, matur framreiddur til kl. 21.45.
Vinveitingar.
KÓPAVOQUR
VERSALIR, Hamraborg 4. Sími 41024. Opið kl.
12— 23. Léttar vinveitingar.
HAFNARFJÖRDUR
GAFL-INN, Dalshrauni 13. Simi 54424. Opiö alla
daga kl. 8—23.30. Sunnudaga kl. 17—21 er opinn
veizlusalur með heita og kalda rétti og vinveitingar.
SNEKKJAN og SKÚTAN, Strandgötu 1—3. Boröa
pantanir i slma 52502. Skútan er opin 9—21 sunnu-
daga til fimmtudaga og 9—22 föstudaga og iaugar-
daga. Matur er framreiddur i Snekkjunni á laugar-
dögum kl. 21—22.30.
AKRANE8
STILLHOLT, Cííllholú 2. Sími 93-2778. Opið kl.
9.30— 21 virka daga og 9.30—22 laugardaga og
sunnudaga. Léttar vínveitingar eftir kl. 18.
Ævinlýrateiknlng eftir Theodor
Kittelsen sem er meflal þeirra
málara sem Ivar Orgland kynnir í
fyrírlestrum sínum.
Ivar
Orgland
gestur
Norræna
hússins
— heldurtvofyrir-
lestra þarsem hann
kynnirnorska
listamenn
íslandsvinurinn og skáldið Ivar
Orgland er gestur Norræna
hússins um þessar mundir.
Hann heldur tvo fyrirlestra í
Norræna húsinu, þann fyrri
laugardaginn 17. april kl. 16 og
hinn síðari þriðjudaginn 20. april
kl. 20.30.
í fyrri fyrirlestrinum, sem
nefnist „Kunstneren, naturen og
eventyret”, kynnir Ivar Orgland
norsku málarana Theodor Kittel-
sen (1857—1914) og
Christian Skredsvig (1854—
1924). Theodor Kittelsen er
frægur fyrir ævintýrateikningar
sínar, teiknaði skógartröll og
myndskreytti ásamt fleirum ævin-
týrasafn Asbjörnsens og Moes:
„Norske folke- og huldreeven-
tyr”.
Christian Skredsvig lærði í
Osló, Kaupmannahöfn, Mílnchen
og París, hlaut gullverðlaun í
„Salonen” í Parfs, og var það
stærsti sigur norsks málara til
þess dags í Evrópu, en síðar komu
Edvard Munch og fleiri málarar.
Segir Ivar Orgland frá heim-
kynnum þeirra Kittelsen og
Skredsvig í Sigdal og Eggedal og
sýnir Utskyggnur af listaverkum
þeirra og heimilum.
Síðari fyrirlesturinn verður
þriðjudaginn 20. april kl. 20.30,,
og nefnist „Dikter og miljo. Et
möte með noen av Norges fremste
diktere og miljo de levde i” og
segir þar frá nokkrum helztu stór-
skáldum Noregs og því umhverfi
sem þeir lifðu i. Má nefna Henrik
Ibsen, Bjarnstjerne Bjernson,
Knut Hamsun, Sigrid Undset
ásamt fleirum. Með erindinu
verða sýndar litskyggnur.
Svfþjóðarkynning
í Norræna húsinu.
Laugardagskvöldið 17. april kl.
20.30 verður kynning á Svíþjóð í
myndum, máli og söng.
Unnur Guðjónsdóttir og sonur
hennar Þór Bengtsson hafa að
undanförnu ferðazt víðs vegar um
fsland á vegum Norræna
félagsins og kynnt Svíþjóð.
Unnur segir frá landi og þjóð
og sýnir litskyggnur og Þór
syngur sænsk lög og leikur undir
ágítar.
Unnur Guðjónsdóttir hefur
verið búsett i Svíþjóð um árabil
og hefur kynnt fsland í ótal
borgum og bæjuin.
Leikendur í Leikfélaginu sem fara með hlutverk i leikritinu, talið frá vinstrí:
Guðrún Pétursdóttir, Arnhildur Jónsdóttir, Hanna Þóra, Júlía Ómarsdóttir,
Ágústa Andrésdóttir, Gunnar Sigfússon, Oskar Guðjónsson, Reynir Sveinsson,
Gunnlaugur Hauksson og Kristbjörg Ólafsdóttir.
Frumsýning helgarinnar— Sandgerði:
„Er ekki kalt
að vera andi”
— Leikfélagið sýnir Ærsladrauginn
,,Er ekki kalt að vera andi?”
spurði karlmaðurinn á sviðinu dular-
fulium rómi og beindi tali sínu að
ungri konu i hálfgegnsæjum kjól
þegar við rákum inn höfuðið í Félags-
heimili Sandgerðinga eitt kvöldið í
vikunni. Okkur brá svo við spurning-
una að við gleymdum svarinu. Þarna
var verið að æfa Ærsladrauginn eftir
Noel Coward, undir stjórn Arn-
hildar Jónsdóttur, en ætlunin er að
frumsýna „drauginn” á föstudags-
kvöldið (16. apríl) þarna á staðnum.
Annars töldu sumir vissara að hafa
sýninguna að degi til vegna myrk-
fælni. Miðillinn í verkinu, Guðrún
Pétursdóttir, leikur af slíkri innlifun
að reimt er oröið í Félagsheimilinu. f
öUu falli er afturgöngunum meinilla
við myndatökur og hafa eyðilagt
hverja filmuna af annarri af inni-
myndunum. Ekki fannst þvi annað
ráð vænna en að draga leikendur og
aðra sem vinna að sýningunni út í
dagsljósið kaldan páskamorgun og
mynda þá undir húsveggnum, hvað
sem hver draugur segði.
Ærsladraugurinn er okkar sjötta
verkefni á fjórum árum, sagði Óskar
Guðjónsson, formaður leikfélagsins í
Sandgerði. Meðal verkefnanna eru:
Á yztu nöf, Skím, Markólfa, —
mannmörg verk, en okkur hefur ald-
rei gengið jafnilla að fá fólk i hlut-
verkin og nú — og hefðum varla get-
að fært upp Ærsladrauginn með sjö
hlutverk ef þorskveiðibannið hefði
ekki verið sett á. Þökk sé Steingrími,
og nú kímdi Óskar um leið og hann
varð að þjóta í símann.
f einu hléinu töfðum við Arnhildi
Jónsdóttur leikstjóra stutta stund en
þetta er í annað sinn sem hún annast
leikstjórn á Suðurnesjum. Fyrra
verkið var Er á meðan er hjá
Leikfélagi Keflavíkur fyrir nokkrum
árum og hlaut mjög góða dóma.
Arnhildur hefur síðan bæði fært upp
og leikið, bæði á sviði og í kvikmynd-
um, m.a. konu Steinars í Steinahlíð-
um í Paradísarheimt.Einnig hefurhún
unnið við brúðuleikhús svo að hún er
flestum hnútum kunnug í leikmenn-
ingunni og það kom vel í Ijós þegar
hún fór yfir „nóturnar” ámilli atriða
til að sniða af agnúana.
Aðspurð var Arnhildur ánægð
með samvinnuna við leikfólkið í
Sandgerði. Æfingarnar væru
stundaðar af miklum áhuga og allir
legðu sig fram um að sýningin mætti
takast sem bezt. Hins vegar væri
sviöiö lítið og það háði leikendum
dálítið, en með natni væri hægt aö
vinna bug á þeim erfiðleikum. Og svo
er bara að bíða og sjá hvað setur á
f östudagskvöldið.