Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1982, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1982, Blaðsíða 2
 Aldur- hniginn málverka- og bóka- safnari sóttur heim Hann kemur til dyra eins og hann er klæddur, aldurhniginn, opnar dyrn- ar aðeins örlítið, stingur nefinu út og segir: „Já, hvað var það?” Við segjum til okkar. Það renna á hann tvær grímur og hann segir: ,,Ég? Af hverju tala við mig? Ég hef ekki frá neinu að segja.” Við höfðum heyrt, að hann væri í meira iagi bókhneigður? ,,Ja, maður á þetta tvö, þrjú þúsund titla.” Og við höfðum líka heyrt, að hann ætti dálítið af málverkum? ,,Ja, maður á þetta, nokkra orgin- ala.” Megum við sjá? Björninn var unnin, hann féllst á að lofa okkur að sjá. „Bflar eru bara vitleysa " Hann heitir Ketill Jónsson, er 78 ára og býr í pínulítilli kjallaraíbúð í mið- bænum, sem hann á sjálfur. Hann fæddist að Hausthúsum í Hnappadals- sýslu og þar bjó hann þar til hann komst á fimmtugsaldurinn, að hann tók sig upp og fluttist á mölina. „Af hverju? Ég veiktist og þurfti að leita mér lækninga í Reykjavík. Ég hafði fram að því unnið við heyskap en eftir að ég kom til borgarinnar fór ég í verkamannavinnu þar til fyrir 3—4 árum aðég hætti að vinna.” Ketill hefur aldrei gifzt, búið einn alveg síðan hann kom til Reykjavíkur. En leiðist honum ekki einveran? „Nei, ég hef alltaf verið sjálfum mér nægur. Ég vann náttúrlega alltaf hér áður en eftir að ég hætti því læt ég tím- ann líða við lestur og fer I göngutúra eins oft og ég get. Ég hef reyndar anzans ári lítið álit á bílum, þeir eru bara vitleysa, og maður verður gamall og stirður löngu fyrir aldur fram af að notaþá.” Bœkur í 50 ár, málverk í 30 Það er ógrynni bóka og málverka í Ibúð Ketils, miklu meira en kemst þar fyrir. Veggir eru þaktir málverkum og þeim, sem ekki komast á veggina, er „Maður á þetta, nokkra orginala. " Ketíll í stofunni heima hjá sér.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.