Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1982, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1982, Side 8
28 DV. MANUDAGUR1. NOVEMBER1982. íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Kveðjuieikur Alan Ball á Goodison — Einn litríkasti knattspyrnumaður Englands er hættur að leika knattspyrnu í heimalandi sínu Knattspyrnukappinn Allan Ball, fyrrum fyrirliöi enska landsliösins og síðasti leikmaður HM-meistara, Englands 1966 sem hefur leikiö knatt- spyrnu undanfarin ár, hefur nú leikið sinn síöasta Ieik í Englandi. Ball, sem hefur leikið aö undanfömu meö Southampton, lék kveðjuleik sinn gegn Everton á Goodison Park á laugar- daginn, en með því félagi lék hann hér á árum áður. Eins og svo oft áður, kom Ball við sögu — hann misnotaði vítaspyrnu í sínum síöasta leik. Það kom þó ekki að sök því að Southampton fór með sigur af hólmi, 3—2. Eftir leikinn var Ball hylltur og honum færðar gjafir. Hann er nú á förum til Hong Kong, þar sem hann mun leika knattspyrnu. „Þúertof lítill" Hinn smávaxna Ball dreymdi alltaf um að verða knattspymumaður þegar hann var ungur. Um tíma leit út fyrir aö ekkert yrði af því, því að bæði Bolton og Woives vildu ekki bjóða honum samning — töldu að hann væri of lítill. Þegar hann var 16 ára fór hann Happel áfram í Hamborg — ætlaði að skrifa undir f jögurra ára samning við Hamburger SV, sem er óstöðvandi Erast Happell, þjálfari Hamburger SV, hefur ákveðið að skrifa undir nýj- an, fjögurra ára samning við Ham- borgarfélagið, sem hefur verið óstöðv- andi í V-Þýskalandi að undanförau. Hamburger SV lagði Borussia Mönchengladbach að velli 4—3 í fjör- ugum leik á laugardaginn í „Bundes- ligunni” og er markamunurinn of lítill miðað við gang leiksins, því að yfir- burðir Hamburger vom miklir. Juergen Milewski átti snilldarleik og skoraði tvö mörk, en hin mörkin skor- uöu þeir Horst Hrubesch og Von Hess- en. Manfred Kaltz varð fyrir því óhappi að skora sjálfsmark þegar stað- an var 4—2. Stórsigur Bayern Leikmenn Bayem Miinchen unnu stórsigur á Stuttgart í Miinchen. 68 þús. áhorfendur sáu þá Karl-Heinz Rummenigge og Dieter Höness skora sín tvö mörkin hvom. Leikmenn Stutt- gart fóm illa með mörg góð marktæki- Emst Happel — áfram þjálfari Hamburger. færi í upphafi leiksins. Urslit urðu annars þessi í „Bundes- ligunni”: Leverkusen—Dortmund 1—2 Karlsruhe—Schalke 2—2 Diisseldorf—Niirnberg 3—1 Hamburger SV—„Gladbach” 4—3 Bayern—Stuttgart 4—0 Bochum—Hertha 4—0 Frankfurt—Köln 3—0 Bielefeld—Kaiserslautern 2—2 Braunschw.—Bremen 3—1 Hamburger og Dortmund eru efst með 17 stig, síðan kemur Bayern með 16 stig og Suttgart er í fjórða sæti með 15 stig. -sos til Blackpool, sem bauð honum samning áriö 1961. Ball varð fljótt frægur, enda mjög góður leikmaður og hann var valinn í landsliðshóp Englands fyrir HM í Englandi. Ball lék sinn fyrsta landsleik í Belgrad í maí 1965 — á tuttugu ára afmælisdegi sínum. Hann var yngsti leikmaður HM-liðsEnglands (21 árs) og átti hann snilldarleik á Wembley þegar Englendingar lögðu V-Þjóðverja að velli 4—2 — lagði upp tvö af mörkum liösins. Keyptur fyrir metupphæð Eftir HM var ljóst að Blackpool gæti ekki haldið Ball lengur. Everton keypti hann á 110 þús. pund, sem þá var metupphæð. 1971 keypti Arsenal Ball frá Everton á 225 þús. pund og varð hann þar með fyrsti leikmaðurinn í Englandi sem keyptur var á yfir 200 þús. pund. Síðan lá leið hans til Southampton og 1980 fór hann til Bandaríkjanna, þar sem hann gerðist þjálfari og leikmaður. Eftir eitt ár þar hélt hann aftur til Englands og gerðist þá framkvæmdastjóri og leikmaður með sinu gamla félagi, BlackpooL 1981 féll félagið niöur í 4. deild undir hans stjórn og var hann þá látinn hætta. Southampton fékk hann þá aftur til sín og með félaginu hefur hann leikið siðan. Alan Ball er á förum til Hong Kong, þar sem hann mun leika knattspyrnu. Alan Ball lék sinn 726. deildarleik í Englandi á Goodison Park á laugar- daginn. Ball, sem er 37 ára, lék 72 landsleiki — var sex sinnum fyrirliði landsliösins. -SOS. Markvörður Lens meiddist og útispilari mátti ná í knöttinn fimm sinnum í netið. Teitur skoraði fyrir Lens Teitur Þórðarson og félagar hans hjá Lens urðu fyrir miklu áfalli þegar þeir léku gegn Tours í frönsku 1. deildar- keppninni. Francis Medoire, mark- vörður Lens, meiddist eftir aðeins 9 min. og þurfti að yfirgefa völlinn, þannig að útispilari þurfti að fara i markið. Sá var greinilega ekki nógu Juventus án Rossi — mátti sætta sig við jafntefli 1:1 gegn Avellino ítalska meistaraliðið Juventus varð að sætta sig við jafntefli 1—1 gegn Avellino i ítölsku 1. deildarkeppninni í gær. Juventus, sem lék án Paolo Rossi, sem er meiddur, varð á undan til aö skora. Það var vamarleikmaðurinn Gaetano Scirea sem skoraöi markið. Roma hefur tekið forustuna á ítalíu, eftir góðan sigur, 3—1, á Pisa. Marka- skorarinn mikli, Roberto Prazzo, skor- aði tvö af mörkum Roma. Rossi mun ekki leika með Juventus gegn Standard Liege í Evrópukeppni meistaraliða í Torino á miðvikudaginn og óvíst er hvort ítalski landsliðs- maðurinn Marco Tardelli getur leikið með, þar sem hann fór út af meiddur eftir aðeins 24 mín. í leiknum gegn Avellino. Urslit urðu þessi í ítölsku knatt- spyrnunniígær: Avellino—Juventus 1—1 Catanzaro—Genoa 2—2 Fiorentina—Cagliari 3—1 Inter Milan—Ascoli 2—0 Roma—Pisa 3—1 Sampadoria—Cesena 0—0 Torino—Napoli 1—1 Udinese—Verona 0—0 Argentínumaðurinn Daniel Passar- ella opnaði markareikning sinn hjá Fiorentina. Síðan skoraði Daniele Massaro og HM-stjaman Antognoni. Uribe frá Perú skoraöi fyrir Pisa. Roma er efst með 12 stig, síðan kem- ur Verona meö 11 stig og þrjú félög eru með 10 stig, Torino, Juventus og Inter Milan. Sampadoria er með 9 stig. -sos fingralangur, því að hann þurfti að hirða knöttinn fimm sinnum úr netinu hjá sér áður en yfir lauk, en leikmenn Lens náðu aðeins einu sinni að svara fyrir sig. Teitur Þórðarson skoraði mark Lens og minnkaði muninn í 1—2. Karl Þórðarson lék með Laval, sem gerði jafntefli 1—1 gegn Brest og skor- aði blökkumaöurinn Sene mark Laval, en hann skoraði einnig mark Laval á Korsíku á dögunum, þegar félagið gerði jafntefli 1—1 gegn Bastia, sem náði að jafna rétt fyrir leikslok. Urslit urðu þessi í frönsku 1. deildar- keppninni um helgina: Sochaux—Nantes 1-1 Lille—Bordeaux 2-1 Laval—Brest 1-1 Strasbourg—St. Etienne 1-1 París S.G.—Lyon 3-1 Nancy—Auxerre 3-2 Rouen—Monaco 1-1 Toulouse—Mulhouse 2-1 Metz—Bastia 0-0 Sigur botnliðsins Lille yfir Bordeaux kom mjög mikið á óvart. -SOS IFK Gautaborg meistari Frá Gunnlaugi A. Jónssyni — frétta- manni D V i Svíþjóð: — IFK Gautaborg tryggði sér Sví- þjóðarmeistaratitilinn í knattspymu í gær þegar félagið vann Hammerby 3— 1 i seinni úrslitaleik liðanna og vann því samanlagt 4—3. Gautarborgarliðið komst 3—0 yfir með mörkum frá Dan Comiliusson (2) og Thord Holmgren en Ulf Erikson náði að minnka muninn rétt fyrir leikslok. Mikil skrUslæti brutust út á Söder- Stadion í Stokkhólmi þegar 10 mín. voru til leiksloka og þurfti að stöðva leikinn um tima til að koma æstum áhorfendum út af leikvellinum. -GAJ/-SOS. Teitur Þórðarson—skoraði. FRAKKLAND nú þessi: Nantes 13 9 2 2 26—10 20 Bordeaux 13 8 1 4 26-15 17 Lens 13 7 3 3 25—18 17 Brest 13 5 6 2 21—18 16 Paris SC 13 7 2 4 23-20 16 Nancy 13 6 3 4 28-22 15 St. Etienne 13 7 1 5 14—12 15 Toulouse 13 7 1 5 19—18 15 Monaco 13 4 6 3 19—14 14 Laval 13 4 5 4 17—18 13 Auxerre 13 4 3 6 18—16 11 Metz 13 3 5 5 18—21 11 Sochaux 13 2 7 4 18—18 11 Strasbourg 13 4 3 6 14-23 11 Tours 13 5 1 7 20-26 11 Bastia 13 3 4 6 14-21 10 Ulle 13 3 4 6 9—16 10 Rouen 13 3 3 7 14—19 9 Lyon 13 3 3 7 15—21 9 Mulhouse 13 3 3 7 15-27 9

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.