Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1983, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1983, Blaðsíða 3
DV. MIÐVIKUDAGUR19. JANUAR1983. 21 42. gr. „Ekkert gjald má greiöa af hendi nema heimild sé til þess í f járlögum eða f járaukalSgum. 42. gr. Greinin er óbreytt. 40. gr. Engan skatt má á leggja né breyta né af taka nema meö lögum. Ekki má heldur taka lán, er skuldbindi ríkiö, né selja eöa meö ööru móti láta af hendi neina af fasteignum landsins né afnota- rétt þeirra nema samkvæmt lagaheimild. 43. gr. „Engan skatt má á leggja né breyta né af taka nema meö lögum. Ekki má heldur taka lán er skuldbindi ríkiö, né selja eða með öðru móti láta af hendi neina af fasteignum ríkisjns, né afnota- rétt þeirra, nema samkvæmt lagaheimild.” Aður 40. gr. Greinin óbreytt nema í stað orðsins landsins kemur ríkisins. 43. gr. Sameinaö Alþingi kýs 3 yfirskoöunarmenn, og skulu þeim veitt laun fyrir starfa sinn. Þeir skulu kosnir með hlutfallskosningu. Yfirskoðunarmenn þessir eiga aö gagnskoöa árlega reikninga um tekjur og gjöld landsins og gæta þess, hvort tekjur landsins séu þar allar taldar og hvort nokkuð hafi verið af hendi greitt án heimildar. Þeir geta, hver um sig, tveir eða allir, krafist að fá allar skýrslur þær og skjöl, sem þeim þykir þurfa. Síðan skal safna þessum reikningum fyrir hvert fjárhags- timabil í einn reikning og leggja fyrir Alþingi frumvarp til laga um samþykkt á honum og athugasemdir yfirskoðunarmanna. Rétt er yfirskoðunarmönnum, einum eða fleirum, að fá að sjá reikninga og bækur ríkisfé- hirðis og sömuleiðis stjórnarráðsins fyrir ár það, sem er að líða eða liðið er. Þyki þeim nokkuð athugavert, skulu þeir gera eftirmönnum sínum vísbendingu um það skrif lega. 44. gr. „Endurskoðun á fjárreiðum ríkisins, stofnana þess og ríkisfyrirtækja, skal fara fram á vegum Alþingis og í umboði þess. Þeir sem endurskoðun annast skulu eiga aðgang að öllum skýrslum, skjölum og öðrum gögnum, sem þeim þykir þurfa til þess að geta leyst starfann af hendi. Nánar skal fjallað um endurskoðun á fjár- reiðum rikisins, stofnana þess og ríkisfyrirtækja í lögum.” Aður 43. gr. Meginatriði endurskoðunarvalds Alþingis eru hér undirstrikuð, sérstaklega það að þær stofnanir sem endurskoöunina annast heyri beint undir Alþingi og greinin gerð styttri og gleggri. Um framkvæmdaratriði endurskoð- unarinnar skal siðan f jallað i lögum. 49. gr. Meöan Alþingi stendur yfir, má ekki taka neinn alþingismann fastan fyrir skuldir án samþykkis þeirrar deildar er hann situr í, né heídur setja hann i varðhald eða höfða mál á móti honum, nema hann sé staðinn að glæp. Enginn alþingismaður verður krafinn reikningsskapar utan þings fyrir það, sem hann hefur sagt í þinginu, nema þingdeildin, sem í hlut á, leyfi. | 45. gr. | „Meðan Alþingi stendur yfir, má ekki setja 'neinn alþingismann í varðhald eða höfða mál á hendur honum án samþykkis þingsins, nema hann sé staðinn að giæp. Enginn alþingismaður verður krafinn I reikningsskapar utan þings fyrir það, sem hann hefur sagt í þinginu, nema Alþingi ieyfi.” Áður 49. gr. Greinin er óbreytt, nema hvað það ákvæði er fellt niður að ekki megi taka alþingis- mann fastan fyrir skuldir án leyfis þingsins. Frelsissvipting sakir skulda hefir verið almennt óheimil skv. lögum í tæpa öld, sbr. 1.19/1887. þingsköpum krafist, að öllum utanþingsmönnum sé vísað burt, og sker þá þingfundur úr, hvort ræða skuli málið í heyranda hljóöi eða fyrir luktumdyrum. 48. gr. „Fundir Alþingis skulu haldnir i heyranda hljóði. Þó getur forseti, eða svo margir þingmenn, sem til er tekið í þingsköpum, krafist þess að mál skuli rætt fyrir luktum dyrum, og sker þá iingfundur úr.” Áður 57. gr. Efnislega óbreytt. 58. gr. Þingsköp sameinaðs Alþingis og beggja deilda >ess skulu sett með lögum. 49. gr. „Þingsköp Alþingis skulu sett með lögum.” Áður 58. gr. Efhislega óbreytt. 59. gr. Skipun dómsvaldsins verður eigi ákveðin nema með lögum. V. 50. gr. „Skipun dómsvaldsins verður eigi ákveðin nema með lögum.” Áður59. gr. Obreytt. 51. gr. „Hæstiréttur er æðsti dómstóll landsins. Skipun hans, valdssvið og starfsemi skal ákveðin með lögum. Hið sama gildir um aðra dómstóla lands- ins.” Grein þessi er ný. Rétt er og sjálfsagt að fjalla um æðsta dómstól landsins í stjórnarskránni og víkja á sama hátt að öðrum dómstólum landsins. 52. gr. „Rikissaksóknari fer með ákæruvaldið. Skipun hans, valdsvið og starfsemi skal ákveðin í lögum. Rikissaksóknari er einungis bundinn af lögunum í embættisstörfum sínum.” Grein þessi er ný. Rétt þykir að binda í stjórnar- skrá hver f ari meö ákæruvaldið og jafnframt taka fram að ríkissaksóknari sé einungis bundinn af lögunum í embættisstörfum sínum til þess að undirstrika sjálfstæði embættisins. 61.gr. . Dómendur skulu í embættisverkum sinum fara eintmgis eftir lögunum. Þeim dómendum, sem ekki hafa að auk umboðsstörf á hendi, veröur ekki vikið úr embætti nema með dómi, og ekki verða þeir heldur flúttir i annaö embætti á móti vilja þeirra, nema þegar svo stendur á, að verið er að koma nýrri skipan á dómstólana. Þó má veita þeim dómara, sem orðinn er fullra 65 ára gamall, lausn frá embætti, en eigi skal hann missa neins í af launum sínum. 53. gr. „Dómendur skulu í embættisverkum sínum fara einungis eftir lögunum. Ekki má fela dómara föst umboðsstörf nema með lögum.” Fyrsta setning greinarinnar er samhljóða upp- hafsákvæði núgildandi 61. gr. Akvæðið um að ekki megi fela dómara föst umboðsstörf nema með lögum er nýmæli. Þykir það eðlileg takmörkun á því að dómurum séu falin ýmis störf, sem utan dómstarfa liggja, af hálfu framkvæmdavaldsins eða annarra aðila. Er ákvæðinu ætlað að tryggja sjálfstæði dómara i störfum og aðgreiningu dóms- valdsins frá öðrum greinum ríkisvaldsins. 60.gr. Dómendur skera úr öllum ágreiningi um embættistakmörk yfirvalda. Þó getur enginn, sem um þau leitar úrskuröar, komið sér hjá að hlýða yfirvaldsboði í bráö með því að skjóta málinu til dóms. 55. gr. „Dómendum hæstaréttar, öðrum umboðs- starfalausum dómendum og rikissaksóknara verður ekki vikið úr embætti nema með dómi. Ekki verða þeir heldur fluttir í annað embætti gegn vilja þeirra, nema þegar svo stendur á, að verið er að koma nýrri skipan á dómstólana.” Áður 61. gr. Við greinina er bætt ríkissaksókn- ara í flokk þeirra, sem ekki verður vikið úr embætti nema með dómi. Þykir eðlilegt að þessi embættismaður njóti sömu verndar í starfi og þau dómaraembætti sem núgildandi ákvæði taka til. Fellt er niður ákvæði um launakjör hæstaréttar- dómara sem lausn fær 65 ára eöa eldri. 76.gr. Rétti sveitarfélaganna til að ráða sjálf málefn- um sínum með umsjón stjórnarinnar skal skipað með lögum. VI. 56. gr. „Landið skiptist í sveitarfélög, sem ráða sjálf málefnum sinum með umsjón ríkisstjórnarinnar. Stjómir sveitarfélaga skulu kjörnar í almennum, leynilegum kosningum.” Nú er mjög stuttlega fjallað um sveitarfélög i stjómarskránni og aðeins í einni grein hennar, 76. gr. Nýmæli er að landið skiptist í sveitarfélög og jafnframt að stjómir þeirra skuli kjörnar í al- mennum leynilegum kosningum. Er það til þess að undirstrika rétt íbúa sveitarfélaga til þess að velja sjálfir stjómir þeirra. 57. gr. „Rétti sveitarfélaga til að ráða sjálf málefnum sínum, sem og skipting á verkefnum sveitarfélaga og rikisins, skal skipað með lögum. Um tekju- stofna sveitarfélaga skal einnig f jallað í lögum.” Hér er það nýmæli að tekið er fram að skiptingu verkefna milli sveitarfélaga og rikisins skuli skipað með lögum. Jafiiframt að hið sama gildi um tekjustofiia sveitarfélaga. 58. gr. „Rétti ibúa sveitarfélags til þess að óska eftir atkvæðagreiðslu um málefni sveitarfélaga skal og i skipað með lögum.” Grein þessi er nýmæli. Veitir hún íbúum sveitar- félaga rétt til þess að krefjast almennraratkvæöa- greiðslu um málefni sveitarfélagsins, ef þeir telja ástæðu til. Hér eru því lýðræðisleg réttindi íbú- anna aukin og skulu tryggð í framkvæmd meö lög- um. Má ætla að heimiidin veröi sérstaklega notuö, þegar um umdeild mál er að ræða, sem íbúar sveitarfélagsins vilja fá að segja álit sitt á áður en til lyktar eru ráðin. Svipaðar heimildir hafa gefið góða raun erlendis, m.a. í Bandaríkjunum og Sviss. 62. gr. Hin evangeliska lúterska kirkja skal vera þjóð- kirkja á íslandi, og skal ríkisvaldið að þvi leyti styðja hana og vernda. Breyta má þessu með lögum. VII. 59. gr. „Hin evangeliska lúterska kirkja skal vera þjóðkirkja á íslandi, og skal ríkisvaldið að þvi leyti styðja hana og verada. Breyta má þessu með lögum.” Áður 62. gr. Greinin er óbreytt. 63. gr. Landsmenn eiga rétt á að stofna félög til að þjóna guði með þeim hætti, sem best á viö sann- færingu hvers eins; þó má ekki kenna eða fremja neitt, sem er gagnstætt góðu siðferði og alls- herjarreglu. 60. gr. „Landsmenn eiga rétt á að stofna félög til að þjóna guði með þeim hætti, sem best á við sann- færingu hvers og eins; þó má ekki kenna eða fremja neitt, sem er gagnstætt góðu siðferði og alisherjarreglu.” Fulltrúar Alþýðubandalagsins telja að ákveða þurfi hvort og þá á hvern hátt fundir nefnda þingsins skulu haldnir í heyranda hljóði. 38.gr. Hvor deild hefur rétt til að bera fram og samþykkja fyrir sitt leyti frumvörp til laga og annarra samþykkta. Einnig má hvor þingdeild eöa sameinaö Alþingi senda forseta lýðveldisins ávörp. 44. gr. Ekkert lagafrumvarp, að fjárlögum og fjáraukalögum undanskildum, má samþykkja, fjirr en það hefur verið rætt þrisvar sinnum í hvorri þingdeild. 45. gr. Þegar lagafrumvarp er samþykkt í annarri hvorri þingdeild, skal það lagt fyrir hina deildina, svo sem það var samþykkt. Ef þar verða breyt- ingar á gerðar, fer frumvarpið aftur til fyrri þing- deildar. Ef hér verða aftur gerðar breytingar, fer það að nýju til hinnar deildarinnar. Nú gengur enn eigi saman, og ganga báðar deildirnar saman i eina málstofu, og er þá málinu lokið með einni umræðu i sameinuðu Alþingi. Þegar Alþingi skipar eina málstofu, þarf meira en helmingur þingmanna úr hvorri þingdeild að vera á fundi og eiga þátt í atkvæðagreiðslu, til þess að fullnaðarsamþykkt verði lögð á mál; ræður þá atkvæðafjöldi úrslitum um einstök máls- atriði. En eigi ná þó lagafrumvörp, önnur en frumvörp til fjárlaga og fjáraukalaga, fullnaðar- samþykki, nema tveir þriðjungar atkvæöa þeirra, sem greidd eru, séu með þeim. 53.gr. Hvorug þingdeildin getur gert samþykkt um mál, nema meira en helmingur þingdeildar- manna sé á fundi og greiði þar atkvæði. 55.gr. Hvorug þingdeildin má taka við neinu málefni, nema einhver þingdeiidarmanna flytji það. 40. gr. „Rétt til að flytja frumvarp til laga og tillögur til þingsályktana hafa þingmenn, ráðherrar og ríkisstjórn. Ekkert lagafrumvarp má samþykkja fyrr en það hefur verið rætt þrisvar sinnum á Alþingi. Meira en helmingur þingmanna þarf að vera á fundi til þess að fullnaðarsamþykkt verði lögð á mál við hverja umræðu, ræður þá atkvæðafjöldi úrslitum um einstök málsatriði og lagafrum- varpið í heild.” Áður 38., 44., 45., 53. og 55. gr. Ákvæði38. og55. greinar um frumkvæðisrétt deilda og þingmanna til þess að bera fram mál hafa verið sameinuð í þessari grein og þær því felldar niður. Þá erutekin upp í þessa grein megin ákvæði 44., 45. og 53. gr. núgildandi stjómarskrár um meðferð mála og fullnaðarsamþykkt þeirra. Þar sem gert er ráð fýrir í 29. gr. að Alþingi starfi aðeins í einni málstofu er lagt til að þar fari fram þrjár umræður um hvert mál, sem i deildum áður, og hlýtur það fullnaðarafgreiðslu að þeim loknum. Til afgreiðslu fjárlaga og fjáraukalaga þarf þrjár umræður einnig og er það óbreytt frá því sem nú er. Falla því 44., 45. og 53. gr. núgildandi stjórnar- skrár niður. Akvæði 45. og 53. gr. um tilskilinn fjölda þingmanna á fundi haldast óbreytt, en óþarft þykir að taka sérstaklega fram að þeir skuli greiða þar atkvæði. NYGREIN. Fulltrúar Alþýðubandalags leggja til að á eftir 40. gr. komi ný grein, svohljóðandi: „Frumvarp til laga eða þingsályktunar sem felur í sér að rikfsvaldið eða forræði íslenskra stjóravalda sé að einhverju leyti selt í hendur alþjóðlegrar stofnunar eða samtaka telst ekki samþykkt nema hlotið hafi 5/6 hluta greiddra atkvæða á Alþingi. Nú hlýtur frumvarpið ekki tilskilinn meirihluta og getur þá ríkisstjórain borið frumvarpið undir atkvæði allra kosninga- bærra manna í landinu til samþykktar eða synj- unar. Ef minnst 50% kosningabærra manna taka þátt í atkvæðagreiðslunni og 2/3 hlutar þeirra grciða atkvæði með frumvarpinu telst það samþykkt.” 42. gr. Fyrir hvert reglulegt Alþingi skal, þegar er þaö er saman komiö, leggja frumvarp til fjárlaga fyrir þaö fjárhagsár, sem í hönd fer, og skal í frumvarpinu fólgin greinargerð um tekjur ríkis- ins og gjöld. Frumvarp til fjárlaga og fjáraukalaga skal leggja fyrir sameinað þing og afgreiða þar við 3 umi'æður. 41. gr. „Fyrir hvert reglulegt Alþingi skal þegar er það er saman komið, leggja frumvarp til fjárlaga fyrir það fjárhagsár, sem í hönd fer. I frumvarp- inu skal fólgin greinargerð um ráðgerðar tekjur og gjöld ríkisins, stofnana þess og ríkisfyrirtækja næsta f járhagsár.” Aður 42. gr. Hér er bætt við ákvæði um að í fjár- lagafrumvarpi skuli einnig fólgin greinargerð um ráðgerðar tekjur stofiiana ríkisins og ríkisfyrir- tækja. 41.gr. Ekkert gjald má greiða af hendi, nema heimild sé til þess í fjárlögum eða fjáraukalögum. 50. gr. Nú glatar alþingismaöur kjörgengi, og missir hann þá rétt þann, er þingkosningin hafði veitt honum. 46. gr. „Nú glatar alþingismaður kjörgengi og missir hann þá rétt þann, er þingkosningin hafði veitt honum.” Aður50. gr. Greinin er óbreytt. 51. gr. Ráðherrar eiga samkvæmt embættisstöðu sinni sæti á Alþingi, og eiga þeir rétt á að taka þátt í umræðunum eins oft og þeir vilja, en gæta verða þeir þingskapa. Atkvæðisrétt eiga þeir þó því aðeins, aö þeir séu jafnframt alþingismenn. 47. gr. „Ráðherrar eiga samkvæmt embættisstöðu sinni sæti á Alþingi. Atkvæðisrétt eiga þeir þó því aðcins, að þeir séu jafnframt alþingismenn.” Áður 51. gr. Greinin er óbreytt, nema hvað niður er fellt ákvæðið um þátttöku ráðherra í umræðum, en það á heima í þingsköpum fremur en í st jórnar- skrá. 57.gr. Fundir beggja þingdeilda og sameinaðs Alþingis skulu haldnir í heyranda hljóði. Þó getur forseti eða svo margir þingmenn, sem til er tekið í 54. gr. „Dómstólar eiga úrskurðarvald um réttar- ágreining, með þeim undantekningum, sem ákveðnar eru i lögum. Þeir skera úr öllum ágrein- ingi um valdmörk stjórnvalda og hvort lög brjóta í bág við stjórnarskrá. Enginn getur frestað framkvæmd stjóravalds- boðs með því að skjóta málinu til dóms.” Aður 60. gr. Upphafsákvæðið er nýtt en þar er skilgreint hvert meginhlutverk dómsvaldsins er. I núgildandi grein segir að dómendur skeri úr öllum ágreiningi um embættistakmörk yfirvalda. Gleggra þykir að nota hér orðið valdmörk, enda hafa dómstólar jafnan túlkað ákvæðið á þá lund. Þá er það nýtt ákvæöi að dómstólar skeri úr því hvort lög brjóta í bág við stjómarskrá. Fyrir því er hinsvegar löng réttarvenja, sem aðeins er stað- festmeðákvæðinu. 61.gr. Dómendur skulu í embættisverkum sínum fara elnungis eftir lögunum. Þeim dómendum, sem ekki hafa að auk umboðsstörf á hendi, verður ekki vikiö úr embætti nema með dómi, og ekki verða þeir heldur fluttir í annað embætti á móti vilja þeirra, nema þegar svo stendur á, áð veriö er að koma nýrri skipan á dómstólana. Þó má veita þeim dómara, sem orðinn er fullra 65 ára gamall, lausn frá embætti, en eigi skal hann missa neins í af launum sínum. Áður63. gr. Greinin eróbreytt. 64.gr. Enginn má neins í missa af borgaralegum og þjóðlegum réttindum fyrir sakir trúarbragða sinna, né heldur má nokkur fyrir þá sök skorast undan almennri félagsskyldu. Enginn er skyldur til að inna af hendi persónu- leg gjöld til neinnar annarrar guðsdýrkunar en þeirrar, er hann sjálfur aðhyllist. Nú er maður utan þjóðkirkjunnar, og geldur hann þá til Háskóla Islands eða einhvers styrktar- sjóðs við þann skóla, eftir því sem á verður kveðið, gjöld þau, er honum ella hefði borið að greiða til þjóðkirkjunnar, enda heyri hann ekki til öðrum trúarbragðaflokki, er viðurkenndur sé í landinu. Breyta má þessu meðlögum. 61. gr. „Enginn má neins í missa af borgaralegum og þjóðlegum réttindum fyrir sakir trúarbragða sinna, né heldur má nokkur fyrir þá sök skorast undan almennri félagsskyldu. Enginn er skyldur til að inna af hendi persónu- leg gjöld til neinnar annarrar guðsdýrkunar en þeirrar, er hann s jálf ur aðhyllist. Nú er maður utan þjóðkirkjunnar, og geldur hann þá til Háskóla íslands eða einhvers viður- kennds styrktarsjóðs, er hann sjálfur tilnefnir,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.