Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1983, Qupperneq 3
DV. FEMMTUDAGUR 7. APRlL 1983.
3
A efri myndinni tekur Guðni Kolbeinsson við bókmennta verðlaunum Fl-æðsluráðs
fyrir bestu frumsömdu barnabókina 1982 en á þeirri neðri tekur Ólafur Haukur
við sínum verðlaunum. DV-myndir GVA.
GUÐNIOG ÓLAF-
UR VERDLAUNAÐIR
- fyrir bestu barnabækur síðasta árs
Guðni Kolbeinsson og Olafur Hauk-
ur Símonarson hlutu bókmenntaverð-
laun Fræðsluráðs fyrir bestu frum-
sömdu bamabókina og best þýddu
bamabókina á árinu 1982.
Davíð Oddsson borgarstjóri afhenti
þeim verðlaunin og hlaut Guðni 15 þús-
und krónur en Olafur Haukur 10 þús-
und.
Guðni Kolbeinsson fékk verðlaunin
fyrir fyrstu bamabók sína, Mömmu-
strák, sem kom út fyrir síðustu jól.
Olafur Haukur fékk verðlaunin fyrir
þýðingu sína á bókinni Veröld Busters
eftir danska rithöfundinn Bjarna
Reuter. ás
Framkvæmdum við
Suðurlínu hætt
—38 starfsmönnum RARIK sagt upp
Landsvirkjun hefur orðið að stöðva
allar framkvæmdir við Suðurlínu sem
liggur frá Sigölduvirkjun að spenni-
stöðinni aö Hólum í Hornafirði. Fyrir-
hugað var að ljúka framkvæmdum við
línuna í lok þessa árs. Af þessum sök-
um hafa Rafmagnsveitur ríkisins orðið
að segja upp 38 starfsmönnum sínum
sem störfuðu við þessar framkvæmdir.
Verkið hefur verið stöðvað þar sem
ekki hefur tekist að tryggja nægilegt
fjármagn til framkvæmdanna. Lands-
virkjun fór fram á heimild til að taka
lán að upphæö 285 milljónir króna með
það fyrir augum að ljúka verkinu á
þessu ári. Við undirbúning lánsfjár-
laga á Alþingi var þessi upphæð hins
vegar skorin niður í 160 milljónir.
Að sögn Halldórs Jónatanssonar, að-
stoöarframkvæmdastjóra Lands-
virkjunar, verður því að draga strax
úr framkvæmdunum og er búist við að
þær verði algerlega stöðvaðar á miðju
ári þegar uppsagnarfrestur starfs-
manna Rarik er runninn út.
Halldór sagöi að stöðvun fram-
kvæmdanna þýddi að ekki tækist að
ljúka hringtengingu landsins á þessu
ári eins og stefnt hafði verið að og
drægi úr afhendingaröryggi á raf-
magni frá Landsvirkjun. „Það gæti
komið til olíukostnaðar í ýmsum lands-
hlutum ef til bilana kemur sem ella
hefði verið hægt að forðast með hring-
tengingunni. Tilkoma Suðurlínu hefði
aukið rekstraröryggið mjög mikið
bæði á Austfjörðum og á Norðurlandi,”
sagði Halldór. Hann sagði ennfremur
að Landsvirkjun myndi endurskoöa
þessa stöðvun ef heimildir yrðu gefnar
fyrir auknum lántökum. Fram hefur
farið athugun á því hvort hægt væri að
f jármagna Suðurlínu með því að flytja
fjármagn milli verka eöa nota ónýttar
heimildir f rá f yrri tíð en ekki er sýnt að
þaöberiárangur. ÖEF
Þingvallastrætismálið:
„Dómurinn hefur sömu
áhrif og eignarupptaka”
— segja hin dæmdu íbréfi til ráðherra
Hjónin Danielle Somers og Ölafur
Rafn Jónsson, sem hæstiréttur dæmdi
hinn 25. mars sl. til að rýma íbúð sína
að Þingvallastræti 22, hafa skrifað
dómsmálaráðherra bréf. Þar
gagnrýna þau dóm réttarins, afskipti
fógetaembættisins og lögreglunnar á
Akureyri af málinu og fleira. Segir1
m.a. í bréfi þeirra að þar sem stefn-
andinn í málinu hafi a'drei látið skipta
eigninni Þingvallastræti 22 lögform-
lega geti þau ekki selt eignarhluta
sinn. „Dómur hæstaréttar hefir af
þessum ástæðum sömu lagaleg áhrif
og eignarupptaka,” segir í bréfi
þeirra. Biðja þau dómsmálaráðherra
um að hann „grípi hið bráðasta til
allra tiltækra ráða til aö leiðrétta það
óheillaástand er hér hefir skipast í
réttarfarslegutilliti.” -ás.
SHil
' I
M i\
. . I
JKja
Ármúla 20 - Sími 84630 og 84635.
VIÐ BJÓÐUM
Skilrúmin
fástmeð:
BÓKASKÁPUM.
STOFUSKÁPUM,
GLERSKÁPUM
O.M.FL.
ALLTAF EITTHVAÐ NÝTT -
BIÐJIÐ UM MYNDALISTA
Árfellsskilrúm og handrið
sérhönnuð fyrir yður.
LA NDSÞJÓNUS TA
Óteljandi mögu/eikar.
Þú gerbreytir íbúð þinni
með okkar aðstoð.
EIK og ASKUR í mörgum litum.