Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1983, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1983, Side 2
2 HBBIMn^ DV. MIÐVKUDAGUR11. MAI1983. DVáskrifendur: Vikudvöl i Vínarborg Dagblaöiö Vísir tekur upp þráðinn þar sem frá var horfið og efnir til 8 daga feröar til Vínarborgar hinn 2. júní nk. DV hefur náö sérstöku samkomulagi við Feröaskrifstofuna Farandi um flug, gistingu og annaö sem ferðinni fylgir og býður DV áskrifendum verö í samræmi viö það. Verðið sem er kr. 11.100,- gildir ein- ungis fyrir áskrifendur Dagblaðsins Vísis og inniheldur: beintfluttil Vínar- borgar og heim aftur, gistingu á þægi- legu austurísku hóteli, Haus Doebling, í sjö nætur, morgunverð og hálfs dags skoðunarferð um Vínarborg ásamt akstri til og frá flugvelli í Vín. Ástæða er til að upplýsa að beint flug til Vínar heyrir tU undantekninga í ferðaheiminum íslenska svo að það ætU að vera kærkomið tækifæri að geta notfært sér þau frábæru kjör sem hér bjóðast. Ferðaskrifstofan verður með þaul- kunnugan, íslenskan fararstjóra til taks og verður hann þátttakendum til aöstoðar og upplýsinga um hvaðeina, m.a. viö öflun aðgöngumiða á tónleika, óperusýningar, balletta, söngleiki og skoðunarferðir í Austurríki, — jafiivel til Ungverjalands, í dagsferð til Búda- pest. Ferðin sem DV efndi til með áskrif- endum sínum í marsmánuði sl. var meö eindæmum vel heppnuð og fýrir- spurnum um aðra DV ferð hefur ekki Unntsíðan. Þeir sem áhuga hafa á að notfæra sér hin sérstöku kjör á ferð til Vínar- borgar hinn 2. júní nk. ættu sem fyrst að hafa samband við ferðaskrifstofuna Faranda, Vesturgötu 4, (2. hæð), sími 17445, þar sem aUar nánari upplýsing- ar eru gefnar. Fulltrúar DV munu verða með í ferð- inni og gera henni skil í máli og mynd- um þegar heim er komiö. Náttúrufegurð Austurrikis er rómuð. SÝNINGARFERÐ MEÐ SÍDUSTU LAPPANA Síðustu Lapplanderbílarnir frá Volvo verða seldir næstu daga á sérstöku verði, aðeins 198.496.00 krónur (gengi 6/5 ’83, óyfirbyggðir). Kristján Tryggvason, þjónustustjóri Veltis hf. verður meðtvo glæsilega Volvo Lappa í ferð sinni til umboðsmanna víðsvegar um landið. Kristján sýnir Lapplander Turbo með vökvastýri, læstu drifi og innbyggðu spili. Hann kynnir líka ’ möguleika á stálhúsi auk blæjuhúss. Þetta er einstakt tækifæri fyrir bændur og aðra fram- kvæmdamenn, hjálparsveitir og fjallamenn - og alla þá sem vilja notfæra sér þetta einstæða tækifæri. Kristján sýnir Lappana: 10. maí Höfn í Hornafirði 11. - 12. maí Suðurfirðir og Fáskrúðsfjörður Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200 Flogið verður beint til Vínarborgar. Að gefnu tilefni: Spunnið f nýju fötin keisarans athugasemd frá Ásgeiri Hannesi Eiríkssyni DV hefur borist eftirfarandi athuga- semd Ásgeirs Hannesar Eiríkssonar í framhaldi af frétt í blaðinu á mánu- dag: DV birtir á mánudaginn ósamþykkta fundarsamþykkt frá hluta af stjórnar- mönnum í sjálfstæðisfélögum í Breið- holti vegna undirskriftar sjálfstæðis- manna um landsfund og lágmarks þingreisn. Þessi skrýtna orðsending skýtur nú upp kollinum í hverju dag- blaðinu á fætur öðru og sér ekki fyrir endann á þeim ósköpum. Eg harma hér enn á ný að eiga ekki heiðurinn af þessu tímabæra umbótaverki eins og stjómarmenn bera mér á brýn í ósam- þykktum samþykktum. En hins vegar læt ég ekki hjá h'ða að nota þetta góða tækifæri til að leggja nokkur orð í belg og er þakklátur stjómarmönnum fýrir að opna þarfa umræðu. Ég vil freista þess að greina hismið frá kjarnanum í hjartameini Sjálfstæðisflokksins. En meinið er ör- ugglega ekki fólgið í að vilja festa skoöanir ört vaxandi meirihluta sjálf- stæðismanna á pappír. Forseti Islands fól réttilega Geir Hallgrímssyni umboð til að mynda rík- isstjórn enda er Geir ennþá formaður Sjálfstæðisflokksins. Hann er hins veg- ar úr þeim hópi atvinnumanna sem trúir ekki eigin augum og tekur því ekkert mark á prófkjömm og kosning- um. Þar liggur hundurinn grafinn og hvergi annars staðar. Hefði Geir borið flokkshag ofar eigin hag átti hann að framselja þingflokknum umboð sitt án tafar. Þá fyrst hefðu forystumenn í öðmm flokkum tekið þreifingar hans alvarlega. Þess í stað hefur Geir nú notað tíma Sjálfstæðisflokksins til eigin þarfa. Því er vonlaust orðið að þingflokkur sjálf- stæöismanna fái að spreyta sig þegar Geir lendir loks væntanlega upp á 1 I skeri. Til þess vinnst ekki tími því þá er röðin komin að öðrum flokkum að reyna. Þannig lokast hringurinn án árangurs og utanþingsstjóm blasir við undir forsæti Seðlabanka. Það er reið- arslag fyrir þingræöið sem lætur hér í minni pokann vegna þess að Sjálfstæð- isflokkurinn fékk ekki að nota umboðið sitt sjálfur. En ábyrgð þingflokksins er einnig mikil í þessum harmleik. Alþingis-' menn flokksins sitja allir meö hendur í skauti og þora ekki að taka af skarið af ótta við að missa af ráðherrastólum. Á meðan heldur því Geir Hallgrímsson áfram ferðinni í nýju fötum keisarans. Forystumenn Sjálfstæðisflokksins um landiö þvert og endilangt loka allir augunum fyrir þeim nektardansi. Það kemur því hklega í hlut andstæðinga Geirs úr öðrum flokkum að benda hon- umloksá nekthans. Það er undir þessum makalausu kringumstæðum sem nokkrir sjálf- stæðismenn í Reykjavík missa loks þolinmæöina. Þeir hefjast handa við aö safna undirskriftum til að skora á mið- stjórn og þingflokk sjálfstæðismanna að hrista af sér slenið og gera skyldu sína. Almennir flokksmenn hafa nefni- lega séð allan tímann að keisarinn er nakinn. Að svo mæltu þakka ég hluta af stjórnarmönnum sjálfstæðisfélaganna hér í Breiðholti fyrir komuna. Þeir* hafa glatt mig sérstaklega með ágætu tækifæri til að leysa frá skjóðunni um nýju fötin keisarans. Vonandi verður þess ekki langt að bíða að fleiri ósam- þykktar samþykktir sjái dagsljósið og af nógu er aö taka. Þangað til bið ég ykkur að gæta ykkar á guðspjöllunum og við s jáumst við k jörkassann á næsta aöalfundi. Ásgeir Hannes Eiríksson, Krummahólum 6.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.