Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1983, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1983, Side 3
DV. MIÐVIKUDAGUR11. MAl 1983. 3 Mæla radon-gas til að geta spáð fyrír um jarðskjálfta „Við erum aö prófa aðferðir sem gætu hjálpað til við að spá fyrir um jarðskjálfta. En þaö er engin einhlýt aðferð fundin og ég held að það geri sér enginn vonir um að spá skjálftum með þessu ennþá. Hins vegar ef kannski tvær eða þrjár aöferöir óskyldar, sem menn eru að prófa, færu allar að sýna eitthvað þá yrðum við náttúriega á nálum.” Það er Sveinbjörn Bjömsson, eðlis- fræðingur við Raunvísindastofnun Há- skólans, sem hefurorðið. I DV í gær var viðtal við Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðing um bergþenslumælingar sem gerðar eru í borholum á Suðurlandi. Tilgangurinn með þeim mælingum er að safna upplýsingum í þeirri von að þær komi að gagni við jarðskjálftaspár í framtíð- irinL Raunvísindastofnun Háskólans stendur fyrir annars konar mælingum í sama tilgangi, svokölluðum radon- mælingum. Lauslega var minnst á þær í blaðinu í gær. „Tekin eru gassýni og vatnssýni úr jarðhitavatni og athugað hvort það koma fram breytingar á gastegund sem heitir radon,” sagði Sveinbjörn Bjömsson þegar hann var beöinn um aö fræöa lesendur um þessar mælingar. „Radon er geislavirk lofttegund sem er í örlitlu magni, alltaf uppleyst, í öllu hveragasi og öllu jarðvatni. Við notum jarðhitavatn til að fá vatn sem hefur farið nógu d júpt í jörðu. Radon-mæling er aðferð sem hefur gefið nokkuö fróðlega niðurstöðu þar sem hún hefur verið prófuð, í Kína, Bandaríkjunum, Sovétríkjunum og fleiri löndum sem mest hafa verið að eiga við mælingar í því skyni að spá fyrir um jarðsk jálfta. Það hefur komið fyrir að tekist hafi að spá fyrir um skjálfta með þessari aðferð. Kínverjar hafa gert það og Rússar líka. Þeir hafa þá séð breyt- ingar í þessu radoni sem þeir töldu vera fyrirboöa skjálfta. Það hafa viljað verða breytingar, sérstaklega hefur viljað verða aukning á þessu gasi, stundum rétt á undan skjálftum. Þá er eins og magnið af þessu gasi hafi Olíuskipið Þyrill sem áður hét Litlafell og var þá í eigu Sambandsins. Þyrill loks farinn f rá Southampton Olíuskipiö Þyrill fór í gær frá brunadælu og annað smáræöi um Southampton á Englandi áleiðis til borð, en eitthvað mun öryggisút- Danmerkur. Skipiö var eins og kunn- búnaði skipsins hafa verið ábóta- ugt er kyrrsett i Southampton í vant síðustu mánuðina. síöustu viku vegna vangoldinna Skipið var í Southampton í 9 sólar- launa skipverja en því máli var loks hringa. Nú er það laust allra mála kippt í liðinn í lok síðustu viku. þar og mun næstu vikurnar flytja Aður en skipið fékk aö fara frá lýsi frá Danmörku til Hollands. Southampton þurfti að gera við -klp FORÐAÐIÁREKSTRI — en hlaut meidsli Sautján ára stúlka, sem var að hjóla eftir Nýbýlaveginum í Kópa- vogi um miðjan dag í fyrradag slasaðist og var flutt á slysadeildina eftir að hún reyndi að forðast áreksturviðbíl. Bíllinn mun hafa ekið greitt og nærri stúlkunni sem sá ekki annan kost en hjóla út af veginum. Hún sá síöan á eftir bílnum aka burt. Stúlkan mun meðal annars hafa viðbeinsbrotnað. -JGH. aukistívatninu. Menn halda að þaö sé vegna þess aö þá aukist mikið smásprungur í berginu og vatnið nái þá að þvo þessa gas- tegund út úr berginu auðveldar en við venjuleg skilyrði. Rétt á undan skjálfta, þegar bergið er alveg komið að því að bresta, komi í það svona smá- sprungur og glufur. Vatniö komist þá að nýjum sprunguflötum, sem það hefur ekki áður komist að, og skoli þessari gastegund með sér upp,” sagði Sveinbjörn. Hann sagði að þessari aðferð hefði verið beitt hér á landi í fimm ár, frá árinu 1978. Fólk á nokkrum stöðum á Suðurlandi og eins fyrir norðan tæki reglulega, viku- eða hálfsmánaðar- lega, sýni og sendi þau í flöskum til Raunvísindastofnunar. Eins væri á Flúðum síritandi mælir sem mældi radon-gas. Þetta væri japanskur mælir sem verið hefði í notkun í tvö ár. Sveinbjöm Björnsson sagöi að árið 1978 hefðu komið mjög skýrar breytingar skömmu fyrir nokkra smá- skjálfta sem þá urðu. Þær breytingar hefðu mælst í sýnum frá Flúðum. ,,Þá fengum við hækkun á radoni skömmu fyrir nokkra skjálfta, sem vom af stærðinni tveir til þrír á Richters-kvarða. Þessi óregla stóð í nokkra daga á undan. En svo höfum við líka fengið óreglu sem ekki hafði neina skjálfta í för með sér. það koma líka fyrir falskar aðvar- anir, truflanir sem við getum ekki skýrt og reynast ekki vera tengdar skjálftum. Við gemm okkur ekki neinar vonir um að þessi aðferð verði örugg vísbending en svona með öðm gæti hún hjálpað til. Það er sjálfsagt að prófa hana. Hún er ekki svo dýr í fram- kvæmd. En þetta er allt á tilraunastigi ennþá,” sagðiSveinbjörn. Hann sagði aö engar truflanir hefðu komið á radon-útstreyminu sem svör- uðu til þeirra spennubreytinga sem þenslumælar í borholum hafa að undanfömu mælt á Suðurlandi. „Síðasta skýra tmflun sem ég man eftir að við fengum var á Laugalandi í Holtum. Það var truflun sem hefði getað tengst Heklugosinu 1980. Þegar Hekla fór af stað kom fram truflun á Laugalandi. En viö höfum ekki fengiö neitt núna nýlega í ætt við það sem hefur verið að sjást á þessum þenslu- mælum,” sagði Sveinbjörn Bjömsson eðlisfræðingur. -KMU. Tölvuborð Prentaraborð Ritvélaborð TIL AFGREIÐSLU STRAX Konráð Axelsson Ármúla 36 — SÍMI 82420 Bókav. Sigfúsar Eymundssonar Reykjavík Bókaval Akureyri Bókav. Jónasar Tómassonar ísafirði YEAR GEFUR 0'RETTA GRIPID FULLKOMIN HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA TÖLVUSTÝRÐ JAFNVÆGISSTILLING HF Laugavegi 170-172 Sími 21240

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.