Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1983, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1983, Side 8
8 DV. MIÐVIKUDAGUR11. MAI1983. ; Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd 13 Lifði af fall úr 50 metra háu mastri Kona, sem kastaði sér niöur úr 48,7 metra háu mastri í Lafayette í Indiana, lifði af fallið en brotnaði illa. Björgunarmenn og ljósmynd- arar voru áhorfendur að þessu en fengu enga hjálp veitt. Þegar komið var meö hana inn á sjúkrahús eftir fallið, reyndust meiðsli hennar ekki lífshættuleg. En það kom í Ijós aö hún var ekki heil á geðsmunum. Konan hafði klifraö upp í mastrið eftir að hafa klessukeyrt bíl sinn á tré. Menn urðu þessa strax varir og þar sem þetta var háspennumastur varð uppi fótur og fit en straumur- inn var rofinn áöur en slys hlaust af honum. Prestur og ráðgjafar voru fengn- ir á staðinn til þess að reyna að tala um fyrir konunni og einn af línu- mönnum rafveitunnar í Indiana klifraði upp í mastriö til hennar, éins og meðfylgjandi myndir bera með sér. En konan fikraði sig þá út á eina þverslána, efst í mastrinu. Þegar konan hékk á höndunum í þverslánni var hún í rauninni 27 metra yfir jörðu. Lét hún sig falla þegar bjargvættur hennar hugðist rétta henni hönd. Lenti hún á vír- stagi og kom niður á aðra þverslá, neöar. Aftur klifraði maðurinn út á siána en áöur en honum tókst að ná til konunnar féll hún áfram niður. Hafnaði hún í runna. Kar jalainen segir sig úr Miðflokknum Bankast jori f innska seðlabankans umdeildur vegna áfengisvandamáls Ahti Karjaleinen, hinn 60 ára gamli bankastjóri Finnlandsbanka og fyrr- um forsætisráðherra, sagöi sig í gærúr Miðflokknum og er það taliö mikið áfall fyrir flokkinn þar sem Karjalein- en hefur um langt árabil verið einn áhrifamesti maður hans. Orsögn Karjaleinens úr flokknum má rekja til þess að Várrenen formað- ur Miðflokksins gekk nýveriö ásamt þremur af forvígismönnum flokksins á fund Karjaleinen og hvöttu hann til að segja af sér bankastjóraembættinu vegna persónulegra vandamála. Með því var átt við hið velkunna áfengis- vandamál Kar jaleinens. Karjaleinen móðgaöist og sagöi sig úr flokknum. Flokksbræðrum hans mun hafa þó gengiö gott eitt til, því að þeim var Ahti Karjalainen, seðlabankastjóri Finna, hefur átt við áfengisvandamál að stríða, sem spillti meðal annars fyrir möguieikum hans til þess að verða Finnlandsforseti eftir Kekkonen. kunnugt um, aö Jaatinen þingmaður og formaður bankaráðs Finnlands- banka ætlaöi á fundKoivisto forseta og fá hann til þess að setja Karjaleinen á eftirlaun fyrir aldur fram. Vildu flokksbræðumir telja Karjaleinen á að verða fyrri til og segja af sér með fullri reisn en höfðu ekki árangur sem erfiði. Stjóm Finnlandsbanka kom saman í gærkvöldi til að ræða framtíö Karja- leinens, en áfengissýki hans hefur valdið bankanum margháttuðum vandamálum, m.a. varð að fresta gengisfellingu finnska marksins í haust vegna þess að Karjaleinen var á kendiríi. Karjaleinen hefur tvívegis verið for- sætisráðherra og þrívegis utanríkis- ráðherra auk ýmissa trúnaðarstarfa annarra sem hann hef ur gegnt. -GA J í Lundi Ihaldsflokkurinn með 15% meira fylgi en Verkamannaflokkurinn Ihaldsflokkurinn naut 15% meira fylgis en Verkamannaflokkurinn í skoðanakönnun sem birt var í Bret- landi í gær. Er þaö mesti munur sem sésthefur ískoöanakönnunum í vetur. I skoðanakönnuninni, sem birtist í Daily Star, kom fram að 71% þeirra sem spurðir voru töldu að Margaret Thatcher forsætisráðherra hefði gert rétt í því á mánudaginn að boða til þingkosninga 9. júní, eða ellefu mánuð- um fyrr en hún þurfti. Samkvæmt niöurstöðum þessarar skoöanakönnunar njóta íhaldsmenn 46% fylgis, Verkamannaflokkurinn 31% og kosningabandalag frjálslyndra og jafnaðarmanna 21%. — Könnunin tók til eitt þúsund manna í 53 k jördæm- um. Forskot Ihaldsflokksins í fylgiskönn- unum hefur til þessa í vetur verið milli 8 og 11% og ráðgjafar Thatcher hafa varað hana við því að búast mætti við að bilið minnkaði í kosningabaráttu. Ófriðarblikur álofti yf ir Líbanon Tilraunirnar til þess að fá útlendu dragi milli Sýrlendinga og Israela í herina brottflutta frá Líbanon virðast Líbanon. strandaðar í bih en í staöinn eru vakn- Utanríkisráðherra Sýrlands lét hafa aðar áhyggjur af því að til ófriðar eftir sér í gær að hann teldi líklegt að Israelar hyggðu á árás á Sýrland. Damaskus-útvarpið sagöi í gær að fjandskapur af hálfu Israels mundi leiða til skefjalauss stríðs. Mikil spenna er í lofti í Bekaa- dalnum í Líbanon, þar sem heraflar ísraels og Sýrlands standa augliti til auglitis hvor við annan. Frést hefur af liðsflutningum Sýrlendinga síöustu viku til Líbanons og jafnframt heyrist að skæruliðar PLO hafi fjölgað í sínu liði. Talsmenn Washington-stjómarinnar telja þó ekki hætta á því að styrjöld brjótist út. Sþennan hefur magnast enn meir eftir aö Sýrlendingar hafa tregðast við að ganga inn í samninga með Israel og Líbanon um brottflutning alls erlends herliðs frá Líbanon. s Verjendumir sjálfirhand- teknir Fjórir lögfræðingar á Kúbu, sem tekið höfðu að sér vamir verka- manna er sakaðir voru um aö reyna að stofna óháð verkalýðsfé- lög á borð við Einingu i Póllandi, hafa verið handteknir. Skjólstæðingar þeirra, f imm tals- ins, höföu í fyrstu verið dæmdir til dauða fyrir „iðnaöarskemmdar- verk” en refsingin síðarmilduðí30 ára fangelsi. Fríöarpostular illaséðiríSovét Einn af friðarhreyfingarpostul- um Sovétríkjanna, Sergei Batovr- in, sem um mánaðartíma var lok- aður inni á geðveikrahæli 1982, hef- ur nú fengið boð um vegabréfsárit- un til þess að flytjast til Vestur- landa. Þykir vinum hans líklegt að hann þiggi það. Hinn 26 ára gamli Batovrin er listamaður og einn af stofnfélögum óopinberra friðarsamtaka, sem höfðu á stefnuskrá sinni að efla traust milli Sovétríkjanna og Bandaríkjanna. Nær allir stofnfélagarnir sættu varðhaldi og innilokun mismun- andi lengi í fyrra. Batovrin sætti þó mestu afarkostunum. Ömmumar smygl- uðukókaíni 44 ára gömul amma hcfur verið dæmd í Los Angeles fyrir stjórn á „ömmu-mafíunni” svonefndu, er milligöngu hafði um að koma tug- um milljóna dollara hagnaði af ólöglegri kókaínsölu í umferð svo aðlítiðbæriá. Auk þess hafði mafían smyglað kókaíni fyrir enn fleiri milljónir dollara. í mafíunni voru miðaldra konur og menn sem á milli heimsókna til bama sinna og barnabarna fóru á milli með kókaínsendingar og fjár- fúlgur sem stóm smyglhringamir þurftu að koma á peningamarkað- inn, án þess að vekja grun. Nógaðgera hjáherréttinum Alis hafa 32.650 manns verið dæmdir í Tyrklandi af herréttinum fyrir pólitíska glæpi. Þá er átt við frá þeim tíma sem herlög voru leidd í gildi og til marsloka þetta ár. Herlög tóku að vísu gildi 22 mán- uðum áður en herinn rændi völdum (12. september 1980) en flestir þessir dómar hafa falliö eftir það. 117 voru dæmdir til dauða (23 hefur verið framfylgt). 141 var dæmdur í lífstíöarfangelsi en 433 fengu 20 ára fangelsi eða meir. Aðr- ir sluppu meö vægari dóma. Solzhenitsyn heiðraður Sovéski nóbelshöfundurinn Alex- ander Solzhenitsyn veitti í Buckinghamhöll í gær viðtöku Templeton-verðlaununum fyrir framlag hans til trúarinnar. Það var Filipus prins sem afhenti Solzhenitsyn 110 þúsund sterlingspundin er viöur- kenningunni fylgir. Skáldið, sem annars fer afar sjaldan út af heimili sínu í Banda- ríkjunum, flutti ræðu við þetta tækifæri. Sagði hann að öll 20. öldin hefði sogast inn í hringiðu sjálfs- eyðingar. Lá hann Vesturlöndum á hálsi fyrir aö reiða sig meira á „kjamorku-regnhlíf” en á „djörf hjörtu og staðfasta menn”. Kirkjaeyði- lagðistíflug- eldasprengingu Flugeldabirgðir, sem staflað hafði verið í kirkju í Mexíkó, sprungu í fyrrakvöld þegar altaris- ganga fór fram í kirkjunni. Fórust 30 manns en 250 meiddust. Flugeldana átti aö nota þegar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.