Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1983, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1983, Page 10
10 DV. MIÐVIKUDAGUR11. MAl 1983. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Valdajaf nvægið í Asíu: Japanir íhuga nú ný úrræði Hugmyndir Japana um það hvernig berí að verjast útrás sovéska flotans og verja flutningaleiðir til og frá landinu. Fyrir tæplega mánuöi kom í opin- bera heimsókn til Japansaöstoöarut- anríkisráöherra Sovétríkjanna, Kap- itsa aö nafni, og verður ekki sagt aö tekiö hafi veriö á móti honum mjög hjartanlega. Þaö er kannski skiljan- legt að Japanir hafi ekki tekið gestin- um vel, þar sem hann haföi áöur komið til Singapore og þar fordæmt þaö sem hann kallaði „hervæðingu Japana”. Þetta sannar þaö aö í al- þjóöasamskiptum er sannleikurinn ekki alltaf sagna bestur því aö óneit- anlega stefna Japanir nú aö því aö efla mjög herbúnað sinn og hafa lýst sig reiðubúna til þess að takast á hendur veigameira hlutverk í varn- armáium síns heimshluta en þeir hafa gegnt til þessa, eftir stríö. Þessari stefnubreytingu Japana hefur verið misvel tekiö af þeim sem málið snertir. Bandaríkjamenn eru frekar ánægöir. Sovétmenn hafa tek- iö þessu mjög illa. Og nágrannaríki Japana, Filippseyjar, Indónesía, Malaysía og Singapore eru mjög beggja blands. Allt frá stríöslokum hefur þaö ver- ið þegjandi samkomulag risaveld- anna að Japan skyldi teljast vera á áhrifasvæði Bandaríkjamanna. Á ár- unum kringum Kóreustríðið varö þaö svo uppi á teningnum, þegar Bandaríkjamenn vildu efla banda- menn sína í þessum heimshluta aö „vamarlið” Japana varö til. Þaö hefur ætíö verið skipulagt á þann hátt að ótvírætt væri um varnarlið aö ræöa, veriö mannfátt og fjárframlög til þess sáralítil, með tilliti til auö- legöar Japana. Undir lok Víetnam-stríðsins lét Nixon, þáverandi Bandarikjaforseti, á sér skiljast aö hann teldi sjálfsagt aö bandamenn Bandaríkjanna tækju nú meiri þátt í vörnum sínum er. hingað til, og fylgdi þetta í kjölfar þess aö Bandaríkjamenn drógu sig nokk- uö inn í skel sína eftir ósigurinn í Víetnam. Þaö var svo áriö 1976 aö japanska þingiö samþykkti „alls- herjaráætlun” um styrkingu „vam- arliösins” þó aö sú samþykkt væri á sinn hátt frekar loöin og án ákveö- inna tímamarka. Þaö var svo þegar samband milli austurs og vesturs fór hríðversnandi í kjölfar innrásarinnar í Afghanistan ogannarra atburða, aðný „óstöðug” svæði uröu til, sérstaklega Persaflói, og sífellt bar meir á hinum sístækk- andi sovéska flota. Þar meö breyttist samband Japans við Bandaríkin, sérlega varðandi vamarmál og sam- starf milli herja þjóðanna hófst að marki. Áriö 1980 tóku svo japanskar flotadeildir í fyrsta sinn þátt í sam- eiginlegum flotaæfingum meö bandarískum, kanadískum, áströlsk- um og nýsjálenskum flotadeildum. 1982 vom svo haldnar sameiginlegar æfingar fyrir landher Japana og Bandaríkjamanna. Þaö er hins vegar vert að undir- strika þaö aö þó aö flestir telji núver- andi forsætisráöherra Japana, Nakasone, manninn aö baki þessum breytingum er þaö í reynd fjarri því rétt. Uppbyggingaráætlun sú sem japanski herinn starfar eftir nú og kennd er við hervæðingu var sam- þykkt nokkm áöur en Nakasone tók viö embætti. Munurinn á Nakasone og fyrirrennurum hans í embætti er fyrst og f remst sá aö hann talar held- ur óvarlegar en þeir. Þannig vakti yfirlýsing hans um að breyta ætti Japan í ósökkvandi flugmóðurskip mikla athygli og umtal. En á hverju byggjast hugmyndir Japana um eöli hugsanlegra átaka og upphaf þeirra? 1 franska dagblaö- inu Le Monde er vitnað til háttsetts starfsmanns í japanska vamarmála- ráöuneytinu þar sem hann lýsir hugsanlegum átökum. Þau mundu hefjast utan Kyrrahafssvæðisins, en fljótlega veröa alheimsstyrjöld milli Sovétríkjanna og Bandaríkjanna. Líklegast er að átökin muni eiga upp- haf sitt á svæðinu umhverfis Persa- flóa og á Indlandshafi. Japanir hafa hugsað sér hlutverk sitt vera að loka mikilvægum sundum, Tsushima, Tsugaru og Soya og loka þannig sovéska flotann, sem siglir frá Vladi- vostok, inni á Japanshafi. Þá er þaö einnig hugmyndin að japanskur her- afli hafi getu til þess að halda uppi eftirliti í lofti og á legi í allt aö 1500 kílómetra suöur á bóginn frá Japan og draga varnarlínu milli eyjanna OkinawaogGuam. Þaö er Ijóst að allir taka þessar fyrirætlanir Japana alvarlega. Sovétmenn hafa tekiö þær svo alvar- lega, að þeir hafa hótað að flytja fleiri SS-20 til Austur-Síberíu, en þeir hafa þar þegar 108 slíkar flaugar, ásamt 70 sprengjuflugvélum af hinni fullkomnu Backfire gerð. Og Kín- verjar hafa heldur ekki tekið fréttum af fyrirætlunum Japana vel, en þar ræður mestu hversu vel menn minn- ast heimsstyrjaldarinnar síöari og framferðis Japanaþá. Þaö eru einmitt minningar frá því í síðari heimsstyrjöldinni, sem einnig valda því aö ríki SA-Asíu, sem sam- kvæmt öllum aðstæöum ættu aö vera helstu bandamenn Japana, hafa ekki tekiö undir hugmyndir Japana af fyllstu einurö. Hið fyrirhugaða 1500 kílómetra varnarbelti Japana myndi færa áhrifasvæði þeirra nánast upp aö ströndum Filippseyja. Einnig hef- ur þaö reynst nokkurt deiluefni milli Japana og ASEAN-landanna, (Filippseyja, Indónesíu, Malaysíu og Singapore), hversu illa Japanir taka erlendum innflutningi, en þaö hefur reynst mjög erfitt að koma unnum vörum á markað í Japan frá þessum löndum. Japanir vilja helst ekki flytja inn frá þeim annað en hráefni. Auk þess er vitað að Marcos Filipps- eyjaforseta likar ekki sú efnahagsað- stoð, sem hann fær frá Japan, og vill fámiklumeira. Nú í vikunni var Nakasone forsæt- isráðherrá Japans einmitt á ferð um ASEAN-löndin þar sem þessi mál eru til umfjöllunar. Ekki er vitaö riá- kvæmlega hvernig þær viöræöur gengu eða hver árangur varö af þeim, en fréttaskýrendum bar þó saman um það aö þaö væri merki um aö árangur heföi náðst, hversu lítið var rætt opinberlega um hemaöar- áformJapana. Það er hins vegar ástæöa til þess aö efast um vilja Japana sjálfra til þess aö auka útgjöld sín til varnar- mála. Nú er þaö í sjálfu sér eðlilegt aö ríki sem á velgengni sína svo al- gerlega undir frjálsum flutningum til og frá landinu sem Japanir, hyggi aö aöferðum til að verja flutn- ingaleiðir sínar. Og Japanir flytja inn nánast alla sína orku og allt sitt hráefni, um leið og þeir eiga allt sitt undir útflutningi. En velgengni Jap- ana í efnahagsmálum á síöustu ára- tugum hefur veriö slík að þeir hika viö að hrófla viö efnahagskerfi sínu. Þeir hafa eytt afar litlu fjármagni til landvama til þessa, en reitt sig á vemd Bandaríkjamanna. Nú er sú vörn að sjá ekki eins sterk og hún áður var og komið að því að Japanir verða að hyggja að eigin vörnum. En þrátt fyrir yfirlýsingar forsætisráð- herrans og mikiö umtal sér hinnar breyttu stefnu ekki svo mikil merki. Nú er í gildi fimm ára áætlun um eflingu landvarna í Japan sem sam- þykkt var 1982 og gildir til 1987. Sam- kvæmt þeirri áætlun var gert ráö fyrir því aö útgjöld til vamarmála ykjust um sem svaraöi 10%, miðað við fast verölag. Þessu marki hefur ekki enn verið náö. Aukningin fyrir þetta fjárlagaár í Japan er aðeins 5%. Nú skyldu menn ætla aö annað eins risaveldi í iönaöi og Japan er ætti ekki í erfiðleikum með aö byggja upp fullkomna hertækni. En staðreyndin er sú aö víöa er japanskur iðnaður illa i stakk búinn til þess að taka upp hergagnaframleiöslu. Að vísu standa Japanir framarlega í ýmiskonar rafeindatækni, svo sem í smíöi kaf- bátaleitunartækja, en svo dæmi sé tekið úr flugvélaframleiðslu, standa þeir langt aö baki flestum herveld- anna í smíði afkastamikilla flugvéla- hreyfla sem nauðsynlegir em í f ram- leiöslu nútíma omstuflugvéla. Eitt stærsta iönfyrirtæki Japana, Mitsu- bishi, framleiöir sáralítið af her- gögnum til dæmis. Og útgjöld Japana vegna rannsókna tengdra vamarmálum eru sáralítil, innan viö eitt prósent af heildarútgjöldum til vamarmála, en sambærilegar tölur fyrir Bandaríkin, Frakkland og Bret- land em fimmtán prósent. Það er því ljóst að ótrúlega miklar skipulags- breytingar em forsenda fyrir því að hin nýja varnarmálastefna Japana verði annað en orðin tóm. Það er hins vegar ólíklegt að aftur verði snúið, þrátt fyrir erfiðleikana. Japanir gera sér grein fyrir því aö forgangsröð Bandaríkjamanna í viö- fangsefnum á alþjóðlegum vettvangi er þeim ekki í hag. Bandaríkjamenn leggja mesta áherslu á Persaflóa, þar sem er Akkillesarhæll Vestur- veldanna. Síðan kemur Evrópa og loks i þriöja sæti Austur-Asía. Og Japanir hljóta aö spyrja sjálfa sig hvað gerð- ist ef Sovétríkin teldu sér ógnað af Japönum og réðust gegn þeim. Myndu Bandaríkjamenn, ef til sovéskrar innrásar I Japan kæmi, taka áhættuna á kjamorkustríöimeö því að senda k jamaskeyti gegn SS-20 flaugunumíSíberíu? 1 stystu máli sagt má segja að mál- flutningur Reagans Bandaríkjafor- seta þess efnis að Bandaríkin hafi dregist aftur úr Sovétríkjunum, hafi valdið því aö Japönum sýnist nú kjamorkuvopnahlíf Bandaríkjanna ekki meö öllu trúveröug og aö nú veröi þeir aö grípa til eigin ráða. Japanska varnarliðið erlitið og iiia vopnum búið. Mun það breytast?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.