Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1983, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1983, Qupperneq 12
12 DV.MIÐVIKUDAGURll. MAI1983. *- DAGBLAÐIÐ-VÍSIR Tvömikilvægmálefni: Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaðurogútgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. AðstoOarrilstjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON ogÓSKAR MAGNÚSSON. Augtýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. RÍtstjóm: SÍÐUMÚLA12—14. SÍMI 86611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiðsla,áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI ll.SÍMI 27022. Sími ritstjómar: 86611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA12. Prentun: ÁRVAKUR HF., SKEIFUNNI 19. Áskriftarverð á mánuði 210 kr. Verð í lausasölu 18 kr. Helgarblað 22 kr. Úthlaup krata Krafa Alþýðuflokksins um að fá forsætisráðherra í nýrri „Stefaníu” er skiljanleg en framsetning hennar á þessu stigi var ekki rökrétt, hefðu alþýðuflokksmenn ein- hvem áhuga á því stjómarmynstri. Stjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks einna saman yrði ekki fyrirfram vinsæl stjórn. Að vísu eru menn gleymnir. En afleiðingar síðustu samstjórnar þess- ara flokka urðu fylgishrun þeirra beggja. Því hefur verið áhugi, bæði meðal sjálfstæðismanna og framsóknar- manna, á að breyta frá þessu stjómarmynstri. ,,Menn em sammála um, að það sé óráðlegt að fara með Framsóknarflokknum einum í stjóm,” sagði Sigurður Öskarsson, formaður verkalýðsráðs Sjálfstæðis- flokksins, um afstöðu verkalýðsmanna í viðtali við DV í gær. Þeir vilji ekki fara í ríkisstjórn eins og hún var 1974— 78. Margir framsóknarmenn eru svipaðrar skoð- unar. Þetta eru dæmi um afstöðu talsvert öflugra hópa í flokkunum, þótt þau útiloki engan veginn, að slík gæti orðiðniðurstaðan. Af þessu leiddi, að reynt hefur verið að fá Alþýðuflokk- inn með í stjórn með þessum flokkum. Þó hafa Sjálf- stæðisflokkur og Framsóknarflokkur öflugan þingmeiri- hluta, 37 af 60 þingmönnum. Þeir höfðu yfirgnæfandi þingmeirihluta í ríkisstjóminni 1974—78. Alþýöuflokksmönnum var strax ljóst, að þeir yrðu aukahjól undir vagni, nema annaö yrði tryggt með sér- stökum hætti. Kjósendum Alþýðuflokks yrði þessi staða ljós. Unnt væri, hvenær sem verkast vildi, að senda Alþýðuflokkinn heim, hinir tveir hefðu nógan meirihluta eftir. Hið sérkennilega var, að Alþýðuflokkurinn skyldi svo fljótt setja sem skilyrði, að flokkurinn fengi forsætis- ráðherra. Menn hefðu talið ráðlegra, að fyrst væri reynt, hvort eitthvert samkomulag gæti oröið milli flokkanna þriggja, svo sem um efnahagsmálin. Síðan settu alþýðu- flokksmenn fram skilyrði sín. Vitað var, að forsætisráðherra yrði alþýðuflokks- maður. Að minnsta kosti hefðu sjálfstæðismenn þá losnað undan þeim vanda að velja forsætisráðherra úr eigin röðum. Alþýðuflokksmönnum þeim, sem réðu ferðinni, þótti á hinn bóginn sem staða þeirra yrði slæm, ef unnt yrði að1 benda á, að málefnaágreiningur væri sem næst úr sög-| unni en þeir létu stjómarsamstarf stranda á karpi um ráðherrastóla eingöngu. Því var brugðið á þetta ráð. En fyrst og fremst sést af framferði alþýðuflokks- manna, að þeir hafa lítinn sem engan áhuga á þessu stjórnarsamstarfi og gráta þurrum támm, þótt tilrauninni sé spillt. Þó munu ráðherrastólar hafa freistað, enda óséð, hver verður framtíð flokksins og for- ystumönnum umhugað um eigið skinn. Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur síðustu daga miðað við stjóm þessara flokka þriggja. Við úthlaup Alþýðuflokksins voru allar tilraunir hans í voða.Framhaldið er óvíst, þegar þetta er skrifað. Ölafur Jóhannesson notaði sína tilraun til stjórnar- myndunar árið 1974 til að mynda stjóm fyrir Geir Hallgrímsson. Þótt tilraun Geirs mistækist í þessari lotu, kann síðar að koma upp sú staða, að einhverjir myndi1 stjórn til dæmis undir forystu annars sjálfstæðismanns. Auk þess muna menn eftir gömlu kempimni, Ólafi Jóhannessyni, sem þessa daga kveðst hvergi nærri koma. HaukurHelgason. Þarf „regnhlífar- samtök”? Sjálfstæöisflokkurinn hefur löngum gumaö af því aö vera stór og „breiöur”. Auövitaö munar þar mest um óvirka kjósendur. En aö því ieyti sem þetta er satt, felst bæöi veikleiki og styrkur í stærð flokksins. Styrkurinn er f ólginn í verulegu afli at- kvæða og stuðningi margra viö ýmsar tiltektir flokksins. Veikleikinn felst í því aö stefna flokksins í áróðri og almennri fylgisöflun er lítt sértæk, en þaulmótuö dægurpólitík flokksins aftur á móti séreign lítils hóps. Senni- legt er aö Sjálfstæöisflokkurinn liðist í sundur þegar kreppur, stríðshætta og æ flóknari viöfangsefni gera strangari kröfur til lífvænlegrar stjórnmála- stefnu. Og auövitaö bætir sérhags- munahyggja og hægri stefna flokksins ekkiþarúr. Þetta er rifjaö hér upp til þess aö bera saman Sjálfstæðisflokkinn og fylkingu óljóst skilgreindra vinstri manna í landinu. Olíkt Sjálfatæöisftokki skiptast þeir í mörg hom. Margir álíta þaö mikinn galla. En í þeim efnum er ekki allt sem sýnist. Vissulega þarf vinnandi fólk aö standa saman og vissulega þarf hér stóran verkalýös- Kjallarinn flokkur veröa til á löngum tíma. sem einkennist af hugmyndafræðilegri bar- áttu, tilraunum og sóknartilburðum. Ihaldið er aö verja ástandið og þarf til þess einfalda og almenna hugmynda- fræöi. Kommúnistar, sósíalistar, jafnaöarmenn o. fl. eru fulltrúar skipulags og tíma sem eru miklu minna þekktir — ætla aö setja nýtt í staö gamals. Þeir þurfa miklu sér- tækari hugmyndafræöi. Þess vegna er ringulreiöin á vinstri kantinum ekki eins óeðlileg eins og margur heldur. Og hvað er eölilegra en aö átök veröi líka milli þeirra sem vilja búa til nýja samfélagsskipan og hinna sem telja sig vinstri menn, sem vilja aöeins lappa upp á kerfið? Hinir róttæku á íslandi hafa reynt AriT.Guðmundsson • „Að franskri fyrirmynd eru nú allt í einu starfandi hér þrír flokkar sem koma enn einni flokkstegundinni á framfæri. . .” Dafír I síðustu grein enduöum viö á Snæ- fellsnesi og nú skulum viö halda vestur um Dali og sjá hvaö þar mætti hugsan- lega gera f eröamálunum til gagns. Fyrst skulum viö líta á vegakerfiö og samgönguskilyröi. Þegar litið er á hæð f jallvega kemur í ljós aö Heydalur er 165 metra hár, Laxárdalsheiði200 m en Holtavörðuheiöi 407 m. Þaö ætti því aö vera mun auðveldara aö halda Dalaleiöinni opinni á vetrum, en til þess þarf aö ljúka uppbyggingu veg- anna, einkum austur af Laxárdals- heiöi. Á þessari leiö verður Búöardalur aöalþjónustumiöstööin. Annar mikil- vægur þáttur í vegasambandi Dala og þá til Vestfjarða er brú yfir Gilsfjörö utanveröan sem mundi stytta leiðina um rúma 20 km. Þetta mun vera í at- hugun. Þaö er því augljóst að mikilvægar samgönguæöar liggja um Dalasýslu enda hefur Búöardalur byggst ört á síöustu árum meö tilhey randi þjónustu viö ferðamenn. En hvaö geta menn gert til aö laða feröamenn gagngert til Dala og fá þá til að dveljast þar lengur eöa skemur. Laugar í Sælingsdal eru þegar orönar sumardvalarstaður og gætu hugsanlega oröiö stærri staður á því sviöi meö því aö gefa kost á fleiru til afþreyingar. Benda má á að lítt kannaöar gönguleiöir um nærliggj- andi fjöll gætu orðið áhugaveröar. Þá er rétt aö undirstrika sögusviö Dala- sýslu þar sem velþekktir sögustaöir eru á hverju strái og hvergi á landinu munu írsku áhrifin hafa verið meiri til fonia en einmitt í Dalasýslu. Bæði frá Búðardal og frá Laugum má fara áhugaverðar einsdags skoöunarferöir fyrirKiofning. Vestfirðir Vestfiröir eru í heild sinni ákaflega áhugaveröir fyrir ferðamenn og er þar fjölmargt sem vert er aö skoða. Á ferðamálaráðstefnu á Isafiröi á síö- asta ári var ljóst aö áhugi manna þar vestra á ferðamálunum er aö vakna og menn sjá þaö betur og betur aö ferða- málin gætu í framtíðinni oröiö veruleg- ur þáttur í atvinnumálunum og þar meö lífsafkomu fólksins. Nýstofnuö feröaskrifstofa á ísafiröi meö þátttöku flestra sem hagsmuna hafa þar aö gæta er spor í rétta átt. Sömuleiðis er sérleyfið Vestfjaröaleiö meö ýmsar nýjungar á döfinni. Þetta sýnir aö áhuginn er vaknaður og svo taka fram- kvæmdir viö. Samgöngumálin eru eitt aöalvanda- máliö sem leysa verður stig af stigi. Mikinn hluta ársins er þaö næstum ein- Kjallarinn Einar Þ. Guðjohnsen göngu flugið sem leysir vandann, en þaö er ekki nóg. Samgöngur á landi veröa einnig aö vera mögulegar bæöi sumar og vetur. Fjallvegir eru margir og erfiðir enda þótt margt hafi veriö lagað á síöustu árum. Margir líta hýru auga ferju yfir Breiöafjörö milli Stykkishólms og Brjánslækjar og víst leysir slík ferja mikinn vanda en hún leysir ekki allan vandann. Þjóövega- kerfiö veröur aö vera samhangandi og fært allan ársins hring eftir því sem mögulegt er. Leiöin til Isafjaröar er löng og krók- ótt en hana má stytta verulega. Siíkt kostar aö vísu mikið fé og verður ekki gert í einu vetfangi en sé litiö á kortiö kemur eitt og annaö í hugann sem lagt getur af f jallvegi og fært veg- • inn niður á ströndina og stytt hann um leið. Göng Eg er búinn aö nefna Gilsfjörö sem er svipað fyrirtæki og Borgarfjarðar- brúin. Næst má hugsa sér aö leiðin liggi meö Berufirði og um Reykhóla- sveit og meö 2600 m brú og uppfyiling- um þvert yfir fjaröamynnin yfir í Skálanes. I tengslum viö þaö fyrirtæki gæti komiö margnefndur möguleiki á • fiskirækt í Þorskafiröi. Síöan yröi veg- urinn aö liggja inn meö öllum Kolla- f irði og úr f jarðarbotni í tveim göngum 2,5 og 1,5 km löngum þvert í gegnum norðurenda Bæjames- og Svínanes- fjalla meö viðkomu í Kvígindisfiröi. Færeyingar eru snöggtum færri en við en þeir hika ekki viö aö grafa göng í gegnum sín f jöll þar sem þurfa þykir. Kleifaheiöi er meira fyrirtæki en sjálfsagt ekki óyfirstíganlegt. Leiöin úr Vatnsfirði í Arnarfjörö veröur trú- lega erfiöasti hjallinn á allri leiöinni til Isafjaröar. Dýrafjörð má brúa meö 1300 m mannvirki yfir í Höföaodda sem stytta mundi leiðina um eina 25 km. Á Djúpleiöinni má halda áfram á sama hátt. Álftafjörð má brúa (1000 m) viö Langeyri, stytting nærri 20 km. Hestfjörö má brúa viö Eiöi (1000 m), stytting 15 km. Skötufjörö má brúa (1600 m) viö Skarðseyri, stytting 25 km. Mjóafjörö má brúa um Hrútey (1000 m), stytting 15 km. Isafjörö má brúa utarlega (1600 m), stytting tæp- lega 20 km. Þá kemur Reykjanesskóli í alfaraleið og sömuleiðis Vatnsfjöröur. Öll Djúpleiðin mundi styttast um eina 100 km eöa tveggja tíma akstur. Og Patreksfjörð má brúa yfir aö flugvellinum, en þaö yröi um 1600 m brú og uppfylling, sem myndi ger- breyta flugsamgöngum og auk þess gera mögulega aukna byggö sunnan fjarðar sem viröist mikið nauðsynja- mál. Sumarvegirnir yfir Þorskafjaröar- heiði og seinna einnig Steingrímsfjarö- arheiöi veröa aö sjálfsögöu áfram. Trúlega verður virkjaö í Ofeigsfirði einhvem tíma í náinni framtíð og þá koma möguleikar á sumarvegi vestur yfir Ofeigsfjaröarheiöi sem tengja mundi Strandir viö Djúpiö og auk þess gera ÖU vötnin aðgengUeg fyrir fiski- ræktogveiöi. Ferðamannabúskapur I Baröastrandarsýslu eru 2 staö- ir orðnir feröamannamiöstöövar, Bjarkarlundur og Flókalundur, og aukin umferö kaUar á aukna þjónustu á þessum stöðum. Ef framtíðarvegur yrði um Reykhóla, eins og áöur er nefnt, verður þörf ferðamannamiö- stöövar þar, sérstaklega vegna jarö- hitans sem er gulls ígildi. Þar er fram- tíöarstaður þéttbýlis, feröamanna- þjónustu og aUsherjar náttúruskoöun- ar viö innanverðan Breiöafjörð auk ýmiskonar smáiönaðar. Omar er nýbúinn að sýna okkur hverfandi byggð á þessum slóöum, og viröist venjulegur búskapur vera þar á aUsherjar undanhaldi. Hvemig væri fyrir jaröeigendur þar vestra aö kynna sér ferðamannabúskap Kristleifs í Húsafelli. Þama er víöa unaðslegt sumarland sem nýta mætti til ferða- mannabúskapar þótt ekki nýtist á hefðbundinn hátt. Eg beini því til aUra jarðeigenda á þessum slóöum aö kynna sér rækUega þessi mál og sjá hvort ekki opnist þarna nýir búskapar- möguleikar sem byggja mætti upp stig af stigi. Vatnsfjöröur hefur mikla möguleika tU aö veröa mikil feröamannamiöstöö.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.